Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
17
Arfleiddi Kvennadeild
SVFÍ að 4,5 miiljónum
NÝLEGA barst Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík höfð-
inglegur arfur eftir Höllu Jónsdóttur frá Bollakoti í Fljótshlíð að
upphæð 4,5 milljónir sem hún biður um að renni til styrktar slysa-
varnamálum í landinu. Halla lést
aravogi. Hún fæddist 18. ágúst
hefði því orðið 95 ára í gær.
í frétt frá kvennadeildinni segir:
„Hún dvaldi í sinni heimasveit
framundir tvítugsaldur en þá lá
leiðin til Vestmannaeyja og þaðan
til Reykjavíkur. Halla starfaði við
heimilisstörf og ræstingar fram
yfir áttrætt. Ávailt sem annarra
hjú, holl og trygg sínum húsbænd-
tæpra 95 ára 8. maí sl. að Kumb-
1898 á Kirkjulæk í Fljótshlíð og
um. Iðjusemi, snyrtimennska og
nýtni voru aðalsmerki hennar.
Halla virðist snemma ganga til
liðs við Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins, því hún starfaði undir
stjórn fyrsta formanns deildarinn-
ar, frú Guðrúnu Jónasson, og síðar
frú Gróu Pétursdóttur.
Halla gerir erfðaskrána 1954 og
sýnir það ljóslega hug hennar til
slysavamamála. Hafí hún mikla
þökk fyrir þann hlýhug er hún bar
til deildarinnar. Blessuð sé minning
hennar.
Kvennadeildin í Reykjavík hefur
afhent Björgunarsveit Ingólfs einn-
ar milljón króna minningargjöf um
Höllu Jónsdóttur. Á sú upphæð að
fara til endumýjunar á björgunar-
bát sem hefur verið óstarfhæfur.
Þess má geta að Ingólfsmenn áttu
49 ára afmæli í gær, 18. ágúst.“
Halla Jónsdóttir.
Ingibjörg B. Sveinsdóttir, formað-
ur Kvennadeildar SVFÍ í Iteykja-
vík, afhendir Torfa Þórhallssyni,
formanni Ingólfs, eina milljón
króna sem renna á til Björgunar-
sveitarinnar Ingólfs í Reykjavík.
Morgunblaðið/RAX
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóri, festir skjöldinn á húsið við
Lækjargötu 2.
Sögnleg hús
merkt á af-
mælisdegi
TIU söguleg hús í Reykjavík voru
merkt með sérstökum skjöldum
á 207 ára afniæli borgarinnar í
gfær. Markús Örn Antonsson,
borgarstjóri, setti fyrsta skjöld-
inn á Lækjargötu 2 en á þeim
kemur fram aldur húsanna og
| helstu atriði í sögu þeirra.
Húsin sem merkt voru í gær
em: Lækjargata 2, Lindargata 51,
Bankastræti 3, Norska bakaríið
Fischersundi 3, Vesturgata 2, Aðal-
stræti 2, Hótel Borg Pósthússtræti
11, Stöðlakot Bókhlöðustíg 6,
Bjarnarborg Hverfisgötu 83 og
Söluturninn í Mæðragarði.
í fréttatilkynningu frá Árbæjar-
safni kemur fram að húsin tíu hafi
verið valin þar sem þau séu góðir
fulltrúar byggingarlistar þess tíma
sem þau voru reist á.
-----» ♦ ♦-----
Forseti ASÍ
Engu liægl að
slá föstu um
> samningana
BENEDIKT Davíðsson, forseti
Alþýðusambands íslands, segir
að í dag sé ekki hægt að slá neinu
föstu um hvort forsendur séu
fyrir því að kjarasamningar
verði látnir standa í haust eða
hvort þeim verði sagt upp. Vaxta-
hækkanir bankanna, verðhækk-
anir í kjölfar gengisfellingar og
fjárlagagerðin verði metnar og
ákvörðun tekin í samræmi við
það þegar að því komi.
„Bankamir hafa farið sínar eigin
leiðir sem ekki eru í takt við annað
í þjóðfélaginu. Það á við um vaxta-
| hækkanir Landsbanka, Búnaðar-
banka og Sparisjóðanna nú einmg
þó að Islandsbanki hafi að vísu
: verið enn stórtækari í byijun mán-
aðarins," segir Benedikt.
„Vaxtahækkanir, verðhækkanir
k í kjölfar gengisfellingar og fjárlaga-
gerðin, allt vegur þetta þegar mat
verður lagt á hvort forsendur séu
fyrir því að samningar standist í
haust eða hvort segja verði þeim
upp,“ segir hann.
Pottaplöntu
FíIMIA
Okkar árlega haustútsala á pottaplöntum er hafin.
Komið í Blómaval og gerið góð kaup.
20-50% afsláttur af
öllum pottaplöntum.
iv' Ríí
Rósir, crýsi,
sóllilja og eldlilja allt í risabúntum
aðeins hr. 895,-
Hvergi meira úrval!
Dæmi um verð:
Verð áður Verð nú
Begónía 299,-
Pottacrýsi J&K- 249,-
Alpafjóla J&K- 499,-
Hengiaspas J9K- 199,-
Burknar J&r 299,-
Drekatré (30 cm) 449,-
Drekatré (3 saman ípotti) 1.359,-
Jukka (50 cm) sm 449,-
Fíkus (50 cm) MK- 499,-
Fíkus Hawai um,- 699,-
Gúmmítré (60 cm) jmr- 599,-
1JTSALA
GARDENA
Þessi viðurkenndu gæðaverkfæri seld
á útsölu meðan birgðir endast