Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1993
35
numið hana á brott með sér svo hún
átti ekki þangað afturkvæmt. Sá var
Ólafur K. Guðjónsson frá Hnífsdal.
Filippía notaði næstu tvö árin til að
undirbúa sig fyrir væntanleg heimil-
isstörf. Hún fór meðalannars í Hús-
mæðraskólann Ósk á ísafírði. Brúð-
kaup þeirra Ólafs fór svo fram þann
8. júní 1935. í Hnífsdal stóð svo
heimili þeirra til 1963 að þau fluttu
á Akranes. Þar áttu þau síðan heim-
ili sitt. Þau eignuðust tvö börn, Guð-
jón Baldvin forstjóra SÍS, sem
kvæntur er Guðlaugu Brynju Guð-
jónsdóttur frá ísafirði, og Ásgerði
kennara í Kópavogi, gift Sigurði
Rúnari Jónssyni tónlistarmanni úr
Reylq'avík.
Olafur K. Guðjónsson var lengi
útibússtjóri Kaupfélags ísfírðinga í
Hnífsdal. Þar kom ég nokkrum sinn-
um á glæsilegt heimili þeirra hjóna.
Lagði ég jafnan lykkju á leið mína
ætti ég leið um Vestfirði svo ég
gæti notið gleðifunda með þessum
ágætu skólafélögum mínum. Eftir
að þau fluttu á Akranes 1963 voru
hæg heimatökin. Endurnýjaðist nú
vinskapurinn og samskiptin urðu tíð
þar til yfir lauk. Ólafur andaðist 13.
apríl 1992. Þau voru bæði einstak-
lega skemmtileg, gestrisin og góð
heim að sækja. Umræðuefnið þraut
aldrei. Þau höfðu einatt frá mörgu
að segja. Gömlum og nýjum atburð-
um. Pilippía var myndarleg húsmóð-
ir, mikil móðir barna sinna og um-
hyggjusöm amma og langamma. Bar
hún fjölskyldu sína mjög fyrir brjósti.
Alveg sérstaklega tók hún miklu
ástfóstri við Ólaf Kjartan dótturson
sinn, enda var hann mikill sólar-
geisli í lífí hennar frá upphafi og
dvaldi löngum hjá afa og ömmu á
Akranesi. Hann hefur á síðari árum
goldið fósturlaunin ríkulega og sýnt
Filippíu mikla ástúð og umhyggju
þegar þörfin var mest.
Fyrir 8 árum kom í ljós að Filipp-
ía gekk með illkynjaðan sjúkdóm,
sem hún hefur síðan barist við af
mikilli festu og þrautseigju. Það var
henni mikið áfall þegar Olafur and-
aðist á síðasta ári eftir 2-3 mánaða
legu í sjúkrahúsi. Hann hafði verið
við góða heilsu og lengst af í fullu
starfí fram undir það síðasta. Veitti
hann Filippíu mikinn stuðning og
sýndi henni mikla nærgætni. Allt
þetta og ýmislegt annað sem á dundi
bar hún með hetjulund sem aðdáun
vakti. Kjarkur hennar og manndóm-
ur var slíkur að enginn ókunnugur
hefði látið sér til hugar koma að hún
bæri dauðann í brjósti sér. Slík var
reisn hennar og styrkur gagnvart
ofureflinu og hinum grimmu örlög-
um. Baráttunni lauk svo hljóðlega
13. þessa mánaðar.
Glæsilega stúlkan úr Svarfaðar-
dalnum sem gekk út í sólskinið á
Laugarvatni vorið 1933, með bjartar
framtíðarvonir, umvafin ást og um-
hygg)u eins af skólafélögum sínum,
hefur lokið vegferð sinni. í lífi henn-
ar skiptust á skin og skúrir. Ham-
ingjudísirnar vörðuðu lengst af veg
hennar en þegar örlaganornirnar
spenntu klærnar sýndi hún þann
styrk sem ekki gleymist. Ég veit að
hin fjölmenna og glaða sveit æsku-
fólks, sem var samtíða Ólafi og
Filippíu á Laugarvatni fyrir 60 árum
og enn er ofar moldu man þau vel
og minnist þeirra beggja með þakk-
læti fyrir glaðværar og góðar sam-
verustundir.
Megi höfundur lífsins blessa börn
þeirra hjóna og fjölskyldur á við-
kvæmri skilnaðarstund. Öll blessum
við minningu góðs vinar, sem kvatt
hefur eftir langa og hetjulega bar-
áttu við þann, sem alltaf sigrar að
lokum.
Daníel Agústinusson.
í dag, 19. ágúst, verður jarðsett
frá Akraneskirkju góð vinkona mín,
Filippía Jónsdóttir. Hún var ættuð
frá Jarðbrú í Svarfaðardal. Hún gift-
ist 8. júní 1935, Ólafí Kjartani Guð-
jónssyni frá Hnífsdal, og þar var
þeirra heimili þar til þau fluttust á
Akranes árið 1963.
Fljótlega eftir að þau fluttu hingað
á Akranes myndaðist sú vinátta milli
heimila okkar, sem aldrei bar skugga
á. Dætur okkar beggja urðu miklar
vinkonur í skóla og voru mikið inná
heimilum hvor annarrar. Þannig urðu
þessi tengsl sterk og þau rofnuðu
aldrei.
Filippía og Ólafur voru einstök
hjón. Þau voru svo samhent og náin
að það sem var vilji annars varð einn-
ig vilji hins. Þau voru ætíð kát og
létt og gefandi, og það leið öllum vel
í návist þeirra og fóru ríkari af þeirra
fundi. Þau voru þess vegna vina-
mörg.
Við hjónin fórum nokkrum sinnum
með þeim á Vestfirðina að heim-
sækja þeirra fyrri heimabyggð,
Hnífsdal. Fyrsta ferðin sem við fór-
um er ógleymanleg. Fyrir það fyrsta
þekktu þau leiðina sem ekin var og
fræddu okkur, sem ekki höfðum far-
ið þar um áður. Þegar komið var í
Hnífsdalinn var eins og um konung-
lega heimsókn væri að ræða. Þau
gengu hús úr húsi til að heilsa uppá
vini og kunningja og þar sem þau
sáust úti á götu kom fólk á móti
þeim með útbreiddan faðminn til að
fagna þeim. Við hjónin nutum góðs
af, því að yið vorum boðin með þeim
í matar- og kaffiboð. Þetta er
ógleymanlegt.
Það var mikið áfall fyrir Filippíu
þegar Olafur lést 13. apríl 1992.
Enginn átti von á því að sjúkdómur
sá sem greinst hafði hjá honum hrifí
hann svo fljótt héðan. En Filippía
stóð sem klettur þrátt fyrir að hún
væri sjúk sjálf, en hún hafði innra
hugboð um að ekki yrði langt á milli
þeirra, en það voru réttir 16 mánuð-
ir. Þau eru því saman á ný eins og
þau voru alltaf hér á jörð.
Oddfellowstúkan Asgerður var
stofnuð árið 1966 og var Filippía
einn af stofnendum hennar. Þar fann
hún sig og var góður Oddfellow. Hún
gegndi mikilvægum störfum fyrir
stúkuna og skilaði þeim öllum með
einstakri prýði. Síðustu árin þegar
sjúkdómur sá sem varð henni að ald-
urtila var farinn að herja á hana,
sótti hún færri fundi í stúkunni, en
hún fylgdist ávallt með og Odd-
fellowhugsjónin var ávallt í fyrir-
rúmi.
Fyrir hönd st. nr. 5, Ásgerðar, vil
ég þakka henni fyrir öll hennar störf
í þágu stúkunnar og ég veit að henn-
ar er þar sárt saknað.
Nú þegar skilnaðarstundin er
runnin upp og ekki verða farnar fleiri
Vestfjarðaferðir eða spilað rommí í
sumarbústaðnum, viljum við Valdi
þakka þær mörgu ánægjustundir
sem við áttum öll saman.
ElskU Ásgerður, Guðjón, tengda-
börn og barnabörn, ég votta ykkur
innilega samúð og bið Guð að blessa
ykkur öll.
Ingibjörg Ólafsdóttir.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast ömmu minnar, Filippíu Jóns-
dóttur.
Það er erfitt að henda reiður á
öllum þeim minningum sem nú sækja
á hugann, því svo stutt er síðan að
amma umvafði mig sínum hlýja
faðmi. Ég hef notið þeirra gæfu að
hafa frá barnæsku átt mikið og náið
samband við ömmu Píu og afa Óla
á Akranesi. Sem barn dvaldi ég oftar
en ekki dögum, jafnvel vikum saman
á heimili þeirra á Höfðabrautinni,
síðar á Suðurgðtunni. Það var í senn
gaman og þroskandi að umgangast
ömmu, því að þó að hún væri vinn-
andi myrkranna á milli, innan sem
utan heimilisins, þá átti hún alltaf
stund til að spjalla um heima og
geima. Þegar árin tóku að líða og
ég komst til vits og ára varð sam-
band okkar æ einlægara og alltaf
var hún til staðar ef ég þurfti á að
halda. Mér er minnistætt hvað félag-
ar mínir undruðust oft á togstreitu-
tímabilum unglingsáranna hvað ég
var oft uppi á Skaga, hjá ömmu og
afa. Því þrátt fyrir að mikið væri að
gerast, gat aldrei liðið langur tími
milli heimsókna.
ringo
UTSALA AINNIHURÐUM
Verðdæmi:
Nú stgr.
2d,222kf
ÁRMÚLA 8-10, SIMI Sl 28 88
Alltaf var gott að leita til ömmu
um góð ráð. Hún var víðsýn og gáf-
uð kona, sem var fátt óviðkomandi.
Ætíð tókst henni að snúa sorg í gleði
og var eins og alit lifnaði í návist
hennar. Einstakt var að upplifa þann
kærleik sem ríkti á milli ömmu og
afa. Það var eins og að þau yrðu
hamingjusamari með degi hverjum.
Þau voru stolt af börnum sínum
tveimur og iétu sér annt um okkur
barnabörnin sem og okkar börn. Ég
bið Guð að veita móður minni og
Badda styrk nú þegar þau kveðja
móður sína í hinsta sinn.
Þó að samverustundir okkar
ömmu verði ekki fleiri að sinni, er
ég þess fullviss að sú birta sem af
minningu elsku ömmu minnar stafar
mun lýsa mína lífsins leið og vera
mér styrkur í lífsins þrautum. Guð
blessi minningu hennar.
Ólafur Kjartan Sigurðarson.
-gistingog
góður matur
HEWLETT
PACKARD
PRENTARAR
FYRIR PC &
MACINTOSH
VerðHkr. 38.500.-
¦i
TÆKNl-OGTOLYUDEtLD
Ö Heimitistæki hf.
*mim * 'ioi *tYiu«.vfK. mh m ii m • •ew* sími m m »• f*x m « w
i&i
.HORO
Vatnsþéttingarefni
- VATNSFÆLUR
-100% ACRYL MÁLNING
- STEYPUVIÐGERÐAREFNI
- GÓLFVIÐGERÐAREFNI
Efni sem standast prófanir
út um allan heim, síðan 1912.
1 steinpryði
Stangarhyl 7, simi: 672777.
KAUPHALLAR
^L E I KU R^
EIN MILUÓN VARÐ AÐ
1.116.450
Á EINUM MÁNUDI
KHí er búið aO draga í Kauphallarieik Skandia sem haldinn var í síðasta
KringlukasU dagana 22., 23. og 24. júní. Þátttaka var ákafJega góo svo
draga þurftj út vinningshala úr hverjum flokki fyrír sig.
Hér Mrtast nöfn peirra heppnu sem unnu til verölauna að úrdrstti laknunu
1. verðlaun kr. 25.000.- hlaut Karl Sigurbjörnsson, Ásvallagötu 51, Reykjavík,
sem ávaxtaði milljónina um kr. 116.450.-
2. verðlaun kr. 15.000.- hlaut Lára Jónsdöttir, Smárahlíð 76, Akureyri,
sem ávaxtaði milljónina um kr. 116.420.-
3. verðlaun kr. 10.000.- hlaut Stefán Valdimarsson, Reynimel 65, Reykjavík,
sem ávaxtaði milljónina um kr. 116.120.-
Raunávöxtunartötar frá tímaWJJnu 25. lúm' - 28. júií 1883
Heiti verðbrétasjóðs: Raunavöxtun 2S.6-ZE.7. sl. f ÍKR. m.v. heilt ir *)
North America 136%
Japan 232%
Global 219%
Continental Europe 169%
Far East 220%
Natural Resources 170%
Skandia USD (Equites) 158%
Skandia German (Equites) 178%
Gestion France Index 174%
i *)Hér er um m|og sJutl timabil að raaa og bví ekiu bagt ao Dúast »ið j svo mikillf ávðxtim þegar tll lengrl tima er IUU. Enniremui »ar gengi ! fsiensku kranunnar iefR i bessu HmaWli og þvi töloraar karri an ella. !
FjárfestingarfélaBið
Skandia þakkar
öllumþeimsem
tóku þátt í leiknum.
^^Skandia
w
Fjárfestingafélagið Skandía hf.
Kringlunnl 8-12,103 Reykjavlk, s. (91) 699700
Uugavegi 170-172,105 Reykjavík, s. (91) 619700
Geislagötu 12, 600 Akureyri, s. (96) 11100