Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
35
lumið hana á brott með sér svo hún
ítti ekki þangað afturkvæmt. Sá var
Dlafur K. Guðjónsson frá Hnífsdal.
Filippía notaði næstu tvö árin tii að
andirbúa sig fyrir væntanleg heimil-
isstörf. Hún fór meðal annars í Hús-
tnæðraskólann Ósk á ísafirði. Brúð-
kaup þeirra Ólafs fór svo fram þann
3. júní 1935. í Hnífsdal stóð svo
heimili þeirra til 1963 að þau fluttu
á Akranes. Þar áttu þau síðan heim-
ili sitt. Þau eignuðust tvö börn, Guð-
ión Baldvin forstjóra SÍS, sem
kvæntur er Guðlaugu Brynju Guð-
iónsdóttur frá ísafirði, og Ásgerði
kennara í Kópavogi, gift Sigurði
Rúnari Jónssyni tónlistarmanni úr
Reykjavík.
Olafur K. Guðjónsson var lengi
útibússtjóri Kaupfélags ísfírðinga í
Hnífsdal. Þar kom ég nokkrum sinn-
um á glæsilegt heimili þeirra hjóna.
Lagði ég jafnan lykkju á leið mína
ætti ég leið um Vestfirði svo ég
gæti notið gleðifunda með þessum
ágætu skólafélögum mínum. Eftir
að þau fluttu á Akranes 1963 voru
hæg heimatökin. Endurnýjaðist nú
vinskapurinn og samskiptin urðu tíð
þar til yfir lauk. Ólafur andaðist 13.
apríl 1992. Þau voru bæði einstak-
lega skemmtileg, gestrisin og góð
heim að sækja. Úmræðuefnið þraut
aldrei. Þau höfðu einatt frá mörgu
að segja. Gömlum og nýjum atburð-
um. Filippía var myndarleg húsmóð-
ir, mikil móðir barna sinna og um-
hyggjusöm amma og langamma. Bar
hún Ijölskyldu sína mjög fyrir bijósti.
Alveg sérstaklega tók hún miklu
ástfóstri við Ólaf Kjartan dótturson
sinn, enda var hann mikill sólar-
geisli í lífi hennar frá upphafi og
dvaldi löngum hjá afa og ömmu á
Akranesi. Hann hefur á síðari árum
goldið fósturlaunin ríkulega og sýnt
Filippíu mikla ástúð og umhyggju
þegar þörfin var mest.
Fyrir 8 árum kom í ljós að Filipp-
ía gekk með illkynjaðan sjúkdóm,
sem hún hefur síðan barist við af
mikilli festu og þrautseigju. Það var
henni mikið áfall þegar Olafur and-
aðist á síðasta ári eftir 2-3 mánaða
legu í sjúkrahúsi. Hann hafði verið
við góða heilsu og lengst af í fullu
starfi fram undir það síðasta. Veitti
hann Filippíu mikinn stuðning og
sýndi henni mikla nærgætni. Allt
þetta og ýmislegt annað sem á dundi
bar hún með hetjulund sem aðdáun
vakti. Kjarkur hennar og manndóm-
ur var slíkur að enginn ókunnugur
hefði látið sér til hugar koma að hún
bæri dauðann í brjósti sér. Slík var
reisn hennar og styrkur gagnvart
ofureflinu og hinum grimmu örlög-
um. Baráttunni lauk svo hljóðlega
13. þessa mánaðar.
Glæsilega stúlkan úr Svarfaðar-
dalnum sem gekk út í sólskinið á
Laugarvatni vorið 1933, með bjartar
framtíðarvonir, umvafin ást og um-
hyggju eins af skólafélögum sínum,
hefur lokið vegferð sinni. í lífi henn-
ar skiptust á skin og skúrir. Ham-
ingjudísimar vörðuðu lengst af veg
hennar en þegar örlaganomirnar
spenntu klærnar sýndi hún þann
styrk sem ekki gleymist. Ég veit að
hin fjölmenna og glaða sveit æsku-
fólks, sem var samtíða Ólafi og
Filippíu á Laugarvatni fyrir 60 ámm
og enn er ofar moldu man þau vel
og minnist þeirra beggja með þakk-
læti fyrir giaðværar og góðar sam-
verustundir.
Megi höfundur lífsins blessa börn
þeirra hjóna og fjölskyldur á við-
kvæmri skilnaðarstund. Öll blessum
við minningu góðs vinar, sem kvatt
hefur eftir langa og hetjuléga bar-
áttu við þann, sem alltaf sigrar að
lokum.
Daníel Ágústínusson.
í dag, 19. ágúst, verður jarðsett
frá Akraneskirkju góð vinkona mín,
Filippía Jónsdóttir. Hún var ættuð
frá Jarðbrú í Svarfaðardal. Hún gift-
ist 8. júní 1935, Ólafí Kjartani Guð-
jónssyni frá Hnífsdal, og þar var
þeirra heimili þar til þau fiuttust á
Akranes árið 1963.
Fljótlega eftir að þau fiuttu hingað
á Akranes myndaðist sú vinátta milli
heimila okkar, sem aldrei bar skugga
á. Dætur okkar beggja urðu miklar
vinkonur í skóla og vom mikið inná
heimilum hvor annarrar. Þannig urðu
þessi tengsl sterk og þau rofnuðu
aldrei.
Filippía og Ólafur vom einstök
hjón. Þau voru svo samhent og náin
að það sem var vilji annars varð einn-
ig vilji hins. Þau vom ætíð kát og
létt og gefandi, og það leið öllum vel
í návist þeirra og fóru ríkari af þeirra
fundi. Þau vom þess vegna vina-
mörg.
Við hjónin fóram nokkrum sinnum
með þeim á Vestfirðina að heim-
sækja þeirra fyrri heimabyggð,
Hnífsdal. Fyrsta ferðin sem við fór-
um er ógleymanleg. Fyrir það fyrsta
þekktu þau leiðina sem ekin var og
fræddu okkur, sem ekki höfðum far-
ið þar um áður. Þegar komið var í
Hnífsdalinn var eins og um konung-
lega heimsókn væri að ræða. Þau
gengu hús úr húsi til að heilsa uppá
vini og kunningja og þar sem þau
sáust úti á götu kom fólk á móti
þeim með útbreiddan faðminn til að
fagna þeim. Við hjónin nutum góðs
af, því að við vomm boðin með þeim
í matar- og kaffíboð. Þetta er
ógleymanlegt.
Það var mikið áfall fyrir Filippíu
þegar Ólafur lést 13. apríl 1992.
Enginn átti von á því að sjúkdómur
sá sem greinst hafði hjá honum hrifi
hann svo fljótt héðan. En Filippía
stóð sem klettur þrátt fyrir að hún
væri sjúk sjálf, en hún hafði innra
hugboð um að ekki yrði langt á milli
þeirra, en það vom réttir 16 mánuð-
ir. Þau em því saman á ný eins og
þau voru alltaf hér á jörð.
Oddfellowstúkan Ásgerður var
stofnuð árið 1966 og var Filippía
einn af stofnendum hennar. Þar fann
hún sig og var góður Oddfellow. Hún
gegndi mikilvægum störfum fyrir
stúkuna og skilaði þeim öllum með
einstakri prýði. Síðustu árin þegar
sjúkdómur sá sem varð henni að ald-
urtila var farinn að heija á hana,
sótti hún færri fundi í stúkunni, en
hún fylgdist ávallt með og Odd-
fellowhugsjónin var ávallt í fyrir-
rúmi.
Fyrir hönd st. nr. 5, Ásgerðar, vil
ég þakka henni fyrir öll hennar störf
í þágu stúkunnar og ég veit að henn-
ar er þar sárt saknað.
Nú þegar skilnaðarstundin er
mnnin upp og ekki verða famar fleiri
Vestfjarðaferðir eða spilað rommí í
sumarbústaðnum, viljum við Valdi
þakka þær mörgu ánægjustundir
sem við áttum öll saman.
Elsku Ásgerður, Guðjón, tengda-
böm og barnabörn, ég votta ykkur
innilega samúð og bið Guð að blessa
ykkur öll.
Ingibjörg Ólafsdóttir.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast ömmu minnar, Filippíu Jóns-
dóttur.
Það er erfitt að henda reiður á
öllum þeim minningum sem nú sækja
á hugann, því svo stutt er síðan að
amma umvafði mig sínum hlýja
faðmi. Ég hef notið þeirra gæfu að
hafa frá barnæsku átt mikið og náið
samband við ömmu Píu og afa Óla
á Akranesi. Sem bam dvaldi ég oftar
en ekki dögum, jafnvel vikum saman
á heimili þeirra á Höfðabrautinni,
síðar á Suðurgötunni. Það var í senn
gaman og þroskandi að umgangast
ömmu, því að þó að hún væri vinn-
andi myrkranna á milli, innan sem
utan heimilisins, þá átti hún alltaf
stund til að spjalla um heima og
geima. Þegar árin tóku að líða og
ég komst til vits og ára varð sam-
band okkar æ einlægara og alltaf
var hún til staðar ef ég þurfti á að
halda. Mér er minnistætt hvað félag-
ar mínir undmðust oft á togstreitu-
tímabilum unglingsáranna hvað ég
var oft uppi á Skaga, hjá ömmu og
afa. Því þrátt fyrir að mikið væri að
gerast, gat aldrei liðið langur tími
milli heimsókna.
% ®
rmgo
UTSALA AINNIHURÐUM
°/oa
bf
_ Aður
Eik 26.951 kr
Beyki 27.320 kr
Mahony 22.887 kr
Eik fulning 49.856 kr
Verðdæmi:
Hú stgr.
imykf
19.453 kr
ÁRMÚLA 8-10, SÍMI 81 28 88
38.88$ j
Einnig takmarkað
magn af
útiitsgölluðum
hurðum á hálfvirði
Fullkom...inn rmgo
Gæðastimpill fyrir innihurðir
Alltaf var gott að leita til ömmu
um góð ráð. Hún var víðsýn og gáf-
uð kona, sem var fátt óviðkomandi.
Ætíð tókst henni að snúa sorg í gleði
og var eins og allt lifnaði í návist
hennar. Einstakt var að upplifa þann
kærleik sem ríkti á milli ömmu og
afa. Það var eins og að þau yrðu
hamingjusamari með degi hveijum.
Þau vom stolt af börnum sínum
tveimur og létu sér annt um okkur
bamabörnin sem og okkar börn. Ég
bið Guð að veita móður minni og
Badda styrk nú þegar þau kveðja
móður sína í hinsta sinn.
Þó að samverustundir okkar
ömmu verði ekki fleiri að sinni, er
ég þess fullviss að sú birta sem af
minningu elsku ömmu minnar stafar
mun lýsa mína lífsins leið og vera
mér styrkur í lífsins þrautum. Guð
blessi minningu hennar.
Ólafur Kjartan Sigurðarson.
HEWLETT
PACKARD
PRENTARAR
FYRIR PC &
MACINTOSH
iaggBSgSiTftKNl- 0G TÖLVUDEILD
éj) Heimilistæki ht.
8ÁETÚMI * * 1« KenUKáí * M H W • «CMN ClMI «• W 00 • FAX « tt U
-gistingog
góður matur
Thoro
Vatnsþéttingarefni
- VATNSFÆLUR
-100% ACRYL MÁLNING
- STEYPUVIÐGERÐAREFNI
- GÓLFVIÐGERÐAREFNI
Efni sem standast prófanir
út um allan heim, síðan 1912.
■■
■I steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.
KAUPHALLAR
^LEIKUR^
EIN MILUÓN VARB AB
1.116.450
Á EINUM MÁNUÐI
Nú er búið að draga í Kauphallarleík Skandia sem haldinn var í síðasta
Kringlukasti dagana 22., 23. og 24. júní. Þátttaka var ákaflega góð svo
draga jmrfti út vinningshafa úr hverjum flokki fyrir sig.
1. verðlaun kr. 25.000,- hlaut Karl Sigurbjörnsson, Ásvallagötu 51, Reykjavík,
sem ávaxtaði milljónina um kr. 116.450,-
2. verðlaun kr. 15.000.- hlaut Lára Jónsdðttir, Smárahlíð 76, Akureyri,
sem ávaxtaði milljónina um kr. 116.420.-
. verðlaun kr. 10.000.- hlaut Stefán Valdimarsson, Reynimel 65, Reykjavík,
sem ávaxtaði milljónina um kr. 116.120.-
Rasmévöxti(Rðs*iQÍur fi*a i*i 25. jWU■- 2B.p1w8
Heiti verObréfasjóOs: Raunávöxtun 25.6-26.7. sl. í ÍKR. m.v. heilt ár *)
North America 136%
Japan 232%
Global 219%
Continental Europe 169%
Far East 220%
Natural Resources 170%
Skandia USD (Equites) 158%
Skandia German (Equites) 178%
Gestion France Index 174%
Fjárfestingarfólagið
öHuriUiehn sTm S kcl IHÍ Íll
tóku þátt í leiknum. Fjárfestingafélagið Skandia hf.
Kringlunni 8-12,103 Reykjavlk, s. (91) 689700
Laugavegi 170-172,105 Reykjavík, s. (91) 619700
Geislagötu 12, 600 Akureyri, s. (96) 11100