Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 27

Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1993 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 27. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Samstarf þjóðanna á norðurslóðum Fyrstu ráðstefnu þjóðanna á norðurslóðum lauk í Reykja- vík'sl. þriðjudag og þar var ákveð- ið að setja á stofn fastanefnd þing- manna til að ijalla um sameiginleg hagsmunamál svæðisins. Ráð- stefnan leiddi í ljós, að lífshags- munir þjóðanna fara saman á mörgum mikilvægum sviðum. Norðurlandaráð boðaði til ráð- stefnunnar en helzti frumkvöðull að því var Halldór Ásgrímsson, alþingismaður. Ráðstefnuna sóttu þijigmenn, sérfræðingar og full- trúar frá Kanada, Danmörku, Færeyjum, Finnlandi, Grænlandi, Rússlandi, íslandi, Noregi og Sví- þjóð, auk fulltrúa sama, Norður- landaráðs og Vest-norræna þing- mannaráðsins. Berlega kom í ljós í erindum sérfræðinga, hversu viðkvæmt líf- kerfí heimskautasvæðanna er fyr- ir utanaðkomandi áhrifum og að tiltölulega lítið þarf til að þau bíði alvarlegt tjón af mengun í and- rúmsloftinu eða hafínu. Ekki sízt er horft til hættunnar af losun úrgangsefna í hafið eða vegna kjarnorkuslysa. Gróðurhúsaáhrif eru talin verða hlutfallslega mun meiri á norðursvæðunum en ann- ars staðar. Þetta kom m.a. fram í erindi dr. E. Fred Roots, for- manns kanadísku vísindanefndar- innar, sem fjallar um málefni norðurhjarans, en hann telur, að hækkun hita á jörðunni um eina gráðu að meðaltali valdi sennilega 4-5 gráðu hækkun hita á pólsvæð- inu. í lokasamþykktinni er lögð höf- uðáherzla á ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun í and- rúmslofti eða hafinu. Lagt er til við ríkisstjórnir landanna, að þær vinni að algjöru banni á tilraunum með kjarnorkuvopn og að alþjóð- legu eftirliti og stjórnun verði beitt við hvers konar notkun á kjam- orku, þar með talin losun og eyð- ing úrgangsefna. Hafin verði hreinsun á kjarnorkuúrgangi á heimskautasvæðinu. Lagt er til, að ríkisstjómir land- anna styðji þær athuganir, sem nú eru gerðar á opnun norðaustur- siglingaleiðarinnar milli Evrópu og Norður-Ameríku og Austur- og Suðaustur-Asíu og ráðstafanir verði gerðar til að hindra hugsan- legt umhverfístjón vegna olíuleka frá tankskipum á þeirri leið. Ráðstefnan lagði til stórauknar vísindarannsóknir á lífríki og veð- urfari, svo og samstarf um skyn- samlega nýtingu náttúmauðlinda. Fram kemur vilji til þess, að lönd- in nái saman urti stofnun sérstaks ráðs heimskautalandanna, sem verði vettvangur fyrir samstarf þeirra í framtíðinni. Þá var lýst vilja til þess, að þau hafi með sér samvinnu á alþjóðlegum vett- vangi, þar sem fjallað er um mál- efni, sem snerta beinlínis hags- muni svæðisins. Eitt mikilvægasta umræðuefnið á ráðstefnunni vom örygismál, en jafnframt það viðkvæmasta. Framsögu hafði Johan Jörgen Holst, utanríkisráðherra Noregs og fyrmm vamarmálaráðherra. Hann kvað endalok kalda stríðsins hafa ratt brautina fyrir nánara samstarfi ríkja, sem áður vora í andstæðum fylkingum. „Jafnvel þótt meiriháttar ágreiningur ríkja á þessu svæði sé nú afar ólíklegur ríkir enn allnokkur óvissa. Fram- tíð Rússlands, pólitísk stefna þess og tengsl við nágranna eru óviss. Straumar og stefnur á þessari stundu togast á. Sama á við um mörg ríkjanna, sem risu úr rústum Sovétríkjanna. Ólga í austri og óvissan munu hafa áhrif á framtíð stjórnmála í Evrópu og þann far- veg, sem öryggismál, samvinna og samkeppni á Norðurheim- skautssvæðinu mun renna eftir. Hvað sem öðru líður verður Rúss- land áfram mesta einstaka her- veldið í Evrópu um fyrirsjáanlega framtíð. Þess vegna er afar brýnt að laða Rússland að Evrópu og gæta þess að halda því ekki fyrir utan,“ sagði Holst. Norski utanríkisráðherrann fjallaði um það, að eðli öryggis- mála væri að breytast og t.d. hefði vaxandi mengun áhrif á skilgrein- ingu þeirra. Ógnun stafí af til- raunum með kjamorkuvopn, geislavirku úrfelli og úrgangi. Hann kvaðst telja, að kjarnorku- vopn verði áfram á Norðurheim- skautssvæðinu. Langdrægum kjarnorkuvopnum muni fækka, en vægi vopnakerfa á hafínu áukast. „Meginhöfn Rússa og aðgangur að heimshöfunum verður áfram á Kólaskaga. Mikilvægi flotastöðv- anna þar hefur aukizt eftir sjálf- stæði Eystrasaltsríkjanna og Úkraínu. Norðursvæðin verða áfram mikilvæg til að fylgjast með hemaðarógnun og fyrir framvam- ir í lofti.“ Holst kveður ólíklegt, að gerðir verði samningar um tak- mörkun vígbúnaðar, sem ein- skorðist við Norðurheimskauts- svæðið. Eins og ráða má af orðum norska utanríkisráðherrans verða öryggismálin helzti ásteitingar- steinninn í samskiptum ríkjanna { þessum heimshluta, enda meta þau öryggishagsmuni sína með mismunandi hætti. Kjamorkuógn- in mun því áfram varpa skugga sínum á Norðurheimskautssvæð- ið, en samstarf ríkjanna í svæða- samtökum getur þó dregið úr tor- tryggni. Svo mörg og stór verkefni bíða úrlausnar á Norðurheimskauts- svæðunum að við þau verður ekki ráðið nema með sameiginlegu átaki þjóðanna, sem þar búa. FuII- trúar Alþingis í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, þeir Halldór Ásgrímsson og Geir Haarde, era því hvattir til þess að halda vak- andi áformunum um stofnun Norðurheimskautsráðsins. Miklir hagsmunir era í húfí. VEIÐAR ISLENDINGA I BARENTSHAFI Við hljótum að fá heimildir til veiða Sjávarútvegsráðherra segir engin rök fyrir að opna landhelgina fyrir Norðmönnum ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segist ekki sjá rök fyrir því að leysa deiluna um veiðar í „Smugunni" með því að skipta á veiðiheim- ildum og opna þannig landhelgina fyrir Norðmönnum. Fram kom hjá utanríkisráðherrum Islands og Noregs eftir fund þeirra í fyrradag að í samningaviðræðunum yrði meðal annars rætt um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum og fiskvernd á alþjóðlegum svæðum. „Islensku skipin eru á veiðum á alþjóðlegu hafsvæði. Við erum með lögfræðiálit frá prófessor í þjóðarrétti sem segir að þessi réttur sé óskoraður og engar forsendur fyrir vemdaraðgerðum á þessu svæði. Á þessum grundvelli sýnist mér að niðurstaða af samningum gæti varla verið á aðra lund en þá að menn fengju skýrar veiðiheimildir," sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég sé engin rök fyrir því að opna landhelgina fyrir Norðmönnum núna. Við erum með álit frá prófessor í.þjóð- arrétti við Háskóla Islands sem segir að íslenskir ríkisborgarar eigi óskorað- an rétt til veiða á þessu svæði. Þar segir ennfremur að fiskistoftiinn í Bar- entshafí sé í svo góðu ástandi að ekki séu forsendur fyrir verndaraðgerðum. Meðan þetta álit liggur fyrir og ekki annað sé ég ekki nein rök fyrir því að fara að opna landhelgina fyrir Norð- mönnum og ég veit ekki til hvers það ætti að vera. Það væri til lítils unnið að fara í Barentshaf til að auka okkar hlut ef það ætti að kosta það að við þyrftum að opna landhelgina fyrir Norðmönnum. Við höfum nýlega gert samning sem þrengdi möguleika Norð- manna til að veiða á grundvelli loðnu- samningsins innan okkar lögsögu. Það gengi alveg þvert á okkar hagsmuni að fara að opna landhelgina núna fyr- ir þeim.“ Loðna ogjöfnun sóknar - Gætu skipti á veiðiheimildum komið til greina til að jafna sókn I stofna? „Það er allt annar hlutur. Ég vil ekki útiloka að komið verði á einhveij- um skiptum við aðrar þjóðir þegar einn stofn er veikur hér en annar sterkur, en það verður aðeins ef sjáv- arútvegurinn telur sig hafa hag af slíku. Þetta var rætt fyrir nokkrum árum en þá höfðu menn ekki áhuga á því.“ - Finnst þér að til greina gæti komið að skipta á loðnukvótanum sem við fáum frá Norðmönnum fyrir karf- akvótann samkvæmt sjávarútvegs- samningi okkar við EB fyrir veiði- heimildir við Noreg? „Það finnst mér mjög langsótt. Reyndar er ekki hægt að fjalla um þetta ennþá því sá samningur er ekki orðinn virkur.“ Skýrar veiðiheimildir Þorsteinn sagði í gær að á ríkis- stjómarfundinum síðastliðinn þriðju- dag hefði ekki verið ákveðið hvað rætt yrði við Norðmenn, það hefði þeim utanríkisráðherra verið látið eft- ir og ætluðu þeir einmitt að ræða það A * Formaður LIU um veiðileyfaskipti Ekkert að láta KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra ótvegs- manna, segist ekki sjá að íslendingár hefðu neinn hag af veiðileyfa- skiptum við Norðmenn, einfaldlega vegna þess að við nýttum okkar veiðimöguleika og hefðum ekkert að láta. „Ég er sammála sjávarútvegsráð- herra um það að ég sé ekki að við höfum neinn hag af einhveijum veiði- leyfaskiptum vegna þess að við höfum ekkert að láta og nýtum okkar veiði- möguleika hér við land. Ég tel að við gætum ekki bætt stöðu fiskiskipa- flota okkar að láta veiðiheimildir af hendi gegn öðrum jafngildum. Málið getur ekki snúist um það,“ sagði Kristján. Skynsamlegt að jafna svéiflurnar Kristján sagði þegar hann var spurður hvort til greina kæmi að semja um að jafna sókn í stofna, þannig að íslensk skip fengju kvóta í Barents- hafi núna gegn því að Norðmenn fengju kvóta hér þegar betur áraði á íslandsmiðum: „Slík umræða hefur komið upp áður. í ráðherratíð Hall- dórs Ásgrímssonar voru viðraðar hug- myndir um að eiga slík viðskipti við Kanada, að fá að veiða hjá þeim þeg- ar illa stendur hjá okkur en vel hjá þeim og síðan öfugt. Þessu var tekið fremur illa á þeim tíma sem mér fínnst óskynsamlegt því við höfum upplifað sveiflumar og það er ástæða til að reyna að jafna þær. Ég teldi slíkt verðugt viðfangsefni. Ég tel hins veg- ar að það geti ekki komið inn í það mál sem við erum að ræða núna, það er að leysa deilur út af þessu alþjóða- svæði í Barentshafi.“ síðdegis í gær. Hann sagði, þegar hann var inntur eftir því hvað hann teldi að leggja ætti áherslu á: „íslensku skipin eru á veiðumn þama á alþjóðlegu hafsvæði. Við erum með lögfræðiálit frá prófess- or í þjóðarrétti sem segir að þessi rétt- ur sé óskoraður og engar forsendur fyrir vemdaraðgerðum á þessu svæði. Á þessum gmndvelli sýnist mér að niðurstaða af samningum gæti varla verið á aðra lund en þá að menn fengju skýrar veiðiheimildir." - Miðað við þróun málsins og við- brögð í Noregi, finnst þér líklegt að þeir muni samþykkja þetta? „Ég vil ekki vera með neinar spár um það.“ Aftenposten/Jon Hauge Eftirlit á Barentshafi AHOFN Orion P-3-flugvéIar norsku strandgæslunnar fylgist með togaraumferð á Barentshafi. Fyrirmæli stjórnvalda í Ósló til landhelgisgæslunnar eru skýr Norsku varðskipin mega ekki skipta sér af veiðunum Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. FJÓRIR togarar, þar af tveir íslenskir, voru að veiðum í „Smug- unni“ síðdegis í gær er Orion P-3 vél norsku strandgæslunnar fór í reglubundið eftirlitsflug yfir svæðið með fréttaritara Morgunblaðs- ins um borð. Frystitogararnir Akureyrin og Snæfugl voru fyrstu íslensku skipin á vettvang. Skammt frá þeim lágu Nordic 2 og Klondyke sem bæði eru skráð á St Vincent-eyjum í Karíbahafi. Við sáum einnig 16 íslenska tog- ara sigla með 10-12 mílna hraða í átt að hafsvæðinu. Flotinn var dreifður yfir stórt svæði er nær frá nyrsta hluta Tromso-grunnsins yfir Nordkapp-bankann og allt að „Smugunni". Tæknimenn Orion- vélarinnar færðu staðsetningu skip- anna inn á kort sín þegar þau komu fram á ratsjám en síðan var flogið nær hveiju skipi í gegnum skýja- slæður til að hægt væri að sjá nafn og númer. Auk íslensku skipanna munu nokkur skip sem skráð eru á Karíba- hafi vera á leið til Barentshafs eftir að hafa landað í íslenskum höfnum. Er hætt við að þá geti orðið þröngt á þingi í „Smugunni“. Halvor Pett- ersen, kafteinn í deild strandgæsl- unnar í Norður-Noregi, segir að útilokað verði fyrir svo stóran flota að stunda veiðar með hagnaði. „íslendingarnir verða ekki hérna til langframa nema þeir veiði svo vel að aflinn réttlæti mikil útgjöld þeirra við veiðarnar. Til þess þurfa þeir sennilega um tíu tonn á sólar- hring, sem stendur fá þeir aðeins 2-3 tonn. Ef aflabrögðin verða áfram svona treg held ég að deilan leysist af sjálfu sér,“ segir Petters- en. „Komi á hinn bóginn mikil ganga og aflinn verði mikill óttumst við að slæm rányrkja á norsk-rúss- neska þorskstofninum verði niður- staðan“. Strandgæsluskipið Bar- entshav er nú á svæðinu en á næstu dögum mun varðskipið Kim leysa það af hólmi. Skipveijar og flug- menn hafa fengið strangar fyrir- skipanir um að skipta sér ekki af veiðunum sem norsk stjórnvöld telja ólöglegar. Alþýðusamband íslands svarar Norges Fiskarlag Getum ekki stöðvað veiðamar ALÞÝÐUSAMBAND íslands segir að það sé ekki í valdi samtakanna að koma í veg fyrir veiðar íslenskra fiskiskipa í Barentshafi. Þetta kem- ur fram í bréfi Benedikts Davíðssonar, forseta ASÍ, til Norges Fiskarlag sem beðið hafði ASÍ og LÍÚ að beita sér fyrir því að skipin hæfu ekki veiðar á þessu svæði. í svarbréfí sínu segir ASí að í af- stöðu til stjómunar fískveiða hafí samtökin ávallt lagt áherslu á skyn- samlega nýtingu auðlinda hafsins á grundvelli bestu þekkingar. íslenskir sjómenn og fískverkafólk sé því sam- mála þeim sjónarmiðum sem fram komi í bréfí Norges Fiskarlag að ís- lenskir og norskir sjómenn vinni á þessum grundvelli þegar þeir fái tæki- færi til. Hins vegar er mótmælt sam- líkingu Norges Fiskarlag á veiðum íslenskra skipa í Barentshafi nú og þorskastríði Islendinga og Breta og neitar að taka þátt í slíkri umræðu. Formlegar samningaviðræður hafnar ASí segir að það sé ekki í þess valdi að koma í veg fyrir veiðar ís- lensku skipanna í Barentshafi. Sam- tökin segjast ánægð með að í fram- haldi af umræðum um stjórnun þorsk- stofnsins í Barentshafi hafí nú verið ákveðið að stjórnvöld á íslandi og í Noregi hefji formlegar samningavið- ræður um málið og áframhaldandi samvinnu Noregs og íslands um stjórnun fiskveiða og hafréttarmál. Það sé skoðun ASÍ að hagsmunasam- tök í sjávarútvégi í báðum löndunum ættu að styðja þær og góða samvinnu milli stjómvalda og hagsmunasam- takanna á svæðinu. Það þjóni framtíð- arhagsmunum beggja. Lögfræðiálit Gunnars G. Schram um veiðar í „Smugnnni“ Þjóðréttarregla að veiðar á úthafinu eru frjálsar FORSÆTIS- og utanríkisráðherra studdust meðal annars við skriflegt álit Gunnars G. Schram lagaprófessors þegar þeir lýstu því yfir í Morgun- blaðinu siðastliðinn laugardag að bann við veiðum íslenskra togara á alþjóðlega hafsvæðinu í Barentshafi, „Smugunni" svokölluðu stæðist ekki íslensk lög og þjóðarrétt eða væri að minnsta kosti vafasamt. Sjávarút- vegsráðherra segir aftur á móti að kunnugleg túlkun úthafsveiðirikjanna á þjóðarrétti komi fram i álitinu. Lögfræðiálitið er dagsett 9. ágúst og hefur yfírskriftina: Um lögmæti takmarkana á veiðum íslenskra ríkis- borgara á úthafínu. Álitið í heild er fer hér á eftir: „Vegna þeirra umræðna sem orðið hafa að undanfömu um að banna ís- lenskum veiðiskipum að halda til veiða í Barentshafí eða á aðrar veiðislóðir í úthafínu, t.d. á rækjumiðin utan Ný- fundnalands (flæmska hattinn) skulu hér nefnd nokkur þjóðréttarleg atriði sem þetta mál varða. Það er skýr og ljós þjóðréttarregla að veiðar utan lögsögu ríkja, á úthaf- inu, eru heimilar og öllum fijálsar. Hefur reglan verið ein af hinum hefð- bundnu grundvallarreglum hafrétt- arins. Er hún nú staðfest m.a.a í 87. gr. og 116 gr. Hafréttarsáttmálans. Þetta er grundvallarreglan. Við notkun þessa frelsis þarf eðilega síðan að hafa nokkur sjónarmið í huga, fyrst og fremst þau að gerðar séu ráðstafan- ir við slíkar veiðar af hálfu ríkisins eða í samvinnu við önnur ríki sem nauðsyn- legar kunna að vera til að vemda hin- ar lífrænu auðlindir úthafsins, eins og það er orðað í 117. gr. Jafnframt segir í 118. gr. að ríki skulu starfa hvert með öðrum að vemdun og stjórnun lífrænna auðlinda á úthafssvæðum. Skulu þau m.a. hefja samningaviðræð- ur með það I huga að gera nauðsynleg- ar ráðstafanir til vemdunar hinna líf- rænu auðlinda sem um ræðir. Þessi ákvæði gilda fyrst og fremst fyrir aðila að Hafréttarsamningnum, en Norðmenn eru ekki aðilar að hon- um. Meginreglan um fullt fiskveiði- frelsi er hefðbundinn þjóðréttarregla og gildir hér óskorað. Þar að auki hefur ekkert komið fram um að stofn- ar þorsks í Barentshafi séu í hættu og verndar verðir. Þvert á móti er þar óvenju mikil fískigengd og því væntan- lega ekki forsenda fyrir verndarað- gerðum skv. ákv. sáttmálans. Né held- ur hafa Norðmenn farið fram á slíkar viðræður sem greint er í 118. gr. sátt- málans svo vitað sé. Af þessum sökum er enginn alþjóð- legur lagagrunnur fyrir hendi til þess að banna íslenskum skipum að veiða utan 200 sjómílna á alþjóðlegum haf- svæðinum. Lög nr. 34/1976 um veiðar ís- lenskra skipa utan fiskveiðiland- helgi Islands. Hér vaknar sú spurning hvort þess- um lögum megi beita til þess að banna íslenskum skipum að nota þann rétt sinn að sækja á alþjóðleg mið, nú þeg- ar afla skortir á Islandsmiðum. Meginefni laganna er að heimila sjávarútvegsráðherra að setja með reglugerð þær reglur um veiðar ís- lenskra skipa utan fískveiðilandhelgi íslands sem nauðsynlegar þykja til þess að framfylgt verði ákvæðum al- þjóðasamninga sem íslendingar eru að gerast aðilar að eða þá samninga sem gerðir eru milli íslenskra og er- lendra stjórnvalda. Auk þess er ráð- T herra heimilt að setja aðrar reglur um þessar veiðar sem honum þykja þurfa. Megintilgangur þessara laga kemur fram í 1. mgr. 1. gr. og viðbótará- kvæði um hina opnu heimild ráðherra i 2. mgr. 1. gr. hlýtur að verða að túlka í samræmi við hana. Hér má segja að um ákaflega hæpna lagaheimild sé að ræða til þess að banna veiðar íslenskra skipa í Bar- entshafí. Það er vegna þess að við erum ekki aðilar að neinum alþjóða- samningum sem banna eða takmarka veiðar á alþjóðlega svæðinu þar. Tilmæli norskra stjómvalda eru allt annar hlutur og hafa ekkert lagalegt vægi. Þar er aðeins um pólitíska beiðni að ræða. Ekki þýðir fýrir Norðmenn að vitna í þessu sambandi í Hafréttar- sáttmálann, því þeir eru ekki aðilar að honum eins og fyrr er sagt. Reynt var í sumar á fundi SÞ í New York að gera sáttmála um takmarkanir veiða á úthafínu en sá fundur leiddi ekki til neins samkomulags. Ef ráð- herra vill nota seinni mgr. 1. gr. er þar að vísu um einhliða rétt hans að ræða. En með því takmarkaði hann þann ljósa og ótvíræða rétt sem ís- lenskir ríkisborgarar eiga til fiskveiða í úthafinu. Það væri mjög umdeilanleg ráðstöfun sem gengi bemt gegn hags- munum umbjóðenda ríkissljómarinnar og engin lagaskylda kallar á slíka gjörð. Virðist hæpið að ráðherra geti svipt menn þeim fískveiðiréttindum sem þeir eiga skv. alþjóðalögum og sáttmála sem Alþingi staðfesti 1985 með einfaldri reglugerð. Vilji íslensk stjómvöld takmarka eða banna veiðar íslenskra ríkisborgara á alþjóðlegum hafsvæðum þyrfti til að koma ný skýr og ótvíræð lagaheimild sem unnt yrði að byggja slíkt bann á.“ Þér ferst, Flekk- ur, að gelta eftir Sighvat Björgvinsson Á Ólafi Ragnari Grímssyni er meira framboð én eftirspurn. Hann hefur þann háttinn á sjálfum sér að hringja reglulega í alla fjölmiðla til að biðja þá um að geta þess hvað Ólafur Ragn- ar Grímsson sé að gera eða hugsa. Af góðmennsku sinni láta fjölmiðlar þetta stundum eftir honum. Menn fá þá að minnsta kosti frið fyrir honum þangað til hann hringir næst. Á dögunum tók Ólafur símann rétt einu sinni og hringdi í alla fjölmiðla. Nú þurfti hann að koma því á fram- færi við þjóðina að hann væri ekki sáttur við þá ráðstöfun að prófessor Þorkell Helgason yrði skipaður ráðu- neytisstjóri í iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu til tveggja ára á meðan Björn Friðfinnsson, skipaður ráðu- neytisstjóri, væri í tveggja ára launa- lausu leyfi. Ólafur Ragnar bað alla fjölmiðla að segja nú þjóðinni frá því að Honum Sjálfum þætti þetta bæði siðlaust og brot á anda laganna — en Ólafur Ragnar Grímsson þykist eiga sér sagnaranda sem heitir „andi lag- anna“ og hann brúkar eftir geðþótta. Þessi „andi laganna“ er líka til innan- flokksbrúks í Alþýðubandalaginu og hefur valdið svo miklu framboði á Ólafi Ragnari Grímssyni þar að ekk- ert pláss er til framboðs á neinum öðrum og er það kallað „nýtt lýðræði". Hæfur embættismaður Mér er ljúft að gera grein fyrir því að ég hef ákveðið að doktor Þorkell Helgason verði settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu í fíarveru Björns Friðfinnssonar. Dokt- or Þorkell Helgason hefur mestalla starfsævi sína verið embættismaður, lengst af sem starfsmaður Háskóla íslands og gegnt þar prófessorsemb- ætti. Vegna yfírgripsmikillar mennt- unar sinnar hefur Þorkell auk þess verið ráðunautur ríkisstjórna og margra ráðherra um ýmis mál. Hann hefur til dæmis verið ráðgjafí ráð- herra og ríkisstjórna í skattamálum og fiskveiðistjórnunarmálum og var formönnum flokkanna til ráðuneytis í kjördæma- og kosningalagamálum. Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Islands hefur sérhver ráðherra heim: ild til að ráða sér aðstoðarmann. í lögunum er ekki kveðið á um að sá aðstoðarmaður skuli vera „pólitísk- ur“. Það var heldur ekki undir þeim formerkjum sem ég réð doktor Þor- kel Helgason til starfa fyrir tveimur árum enda hafði doktor Þorkell engin opinber afskipti haft af stjórnmálum og engan þátt tekið í stjórnmálastarf- semi á vegum stjórnmálaflokka svo mér sé um kunnugt. Það var vegna kynna minna af honum sgm embættismanni og ráð- gjafa stjórnvalda sem ég réð hann til starfa. Þeirri ákvörðun hef ég aldrei séð eftir. Ólafur Ragnar Grímsson virðist gera þá kröfu að embættismaður með þá starfsreynslu og menntun sem doktor Þorkell Helgaspn hefur missi embættisgengi sitt við það að starfa sem aðstoðarmaður ráðherra í tvö ár, því auðvitað lætur doktor Þorkell Helgason af störfum sem aðstoðar- maður ráðherra þegar hann tekur við störfum sem ráðuneytisstjóri og hverfur þar með aftur til starfa í embættiskerfinu. Af sjálfu leiðir að ég er ekki sammála skoðun Ólafs Rjgnars Grímssonar. Núverandi ráðuneytisstjórar í iðn- aðar- og viðskiptaráðuneyti og í um- hverfisráðuneyti voru báðir aðstoðar- menn ráðherra áður en þeir réðust til ráðuneytisstjórastarfanna. Ég sé engin rök í því að ekki sé heimilt að setja mann sem gegnt hefur starfi aðstoðarmanns ráðherra í ráðuneytis- stjórastarf í tvö ár þegar fyrir liggja tvö nýleg fordæmi um að menn sem verið hafa aðstoðarmenn ráðherra hafa verið skipaðir ráðuneytisstjórar til frambúðar. Ólafur á elleftu stundu En hver er hann þessi Ólafur Ragn- Sighvatur Björgvinsson „Fyrir einu ári var Ólaf- ur Ragnar Grímsson bó- inn að vera fjarverandi samtals í átta ár frá starfi sínu. Engu að síður virti lann þessa samþykkt að vettugi og sat sem fastast í prófessorsstöðunni. Þá samþykkti félagsvísinda- deild Háskóla Islands að gefa honum eins árs við- vörun til viðbótar og ef hann ekki segði starfi sínu lausu sjálfviljugur á þeim tíma myndi há- skóladeildin ekki mæla með að menntamálaráð- herra veitti honum lengra leyfi.“ ar Grímsson, sem hefur þessa skoðun á embættisgengi manna? Árum saman hefur hann gegnt stöðu prófessors við Háskóla íslands. Árum saman hefur hann látið halda þeirri stöðu fyrir sig án þess að gegna henni. Hann lét ekki aðeins halda stöðunni á meðan hann gegndi þingmennsku og ráð- herradómi heidur einnig á meðan hann starfaði sem ritstjóri Þjóðviljans. Framferði Ólafs Ragnars gekk svo fram af samstarfsmönnum hans í félagsvísindadeild Háskóla íslands að með vísan í fordæmi hans samþykkti háskóladeildin þá starfsreglu að kennari við háskóladeildina fengi ekki að halda starfi án þess að gegna því lengur en í fjögur ár og að hámarki í átta ár ef fjarveran væri vegna kjör- inna opinberra starfa í almannaþágu. Fyrir einu ári var Ólafur Ragnar Grímsson búinn að vera fjarverandi samtals í átta ár frá starfi sínu. Engu að slður virti hann þessa samþykkt að vettugi og sat sem fastast í pró- fessorsstöðunni. Þá samþykkti félags- vísindadeild Háskóla íslands að gefd honum eins árs viðvörun til viðbótar og ef hann ekki segði starfi sínu lausu sjálfviljugur á þeim tíma myndi há- skóladeildin ekki mæla með að menntamálaráðherra veitti honum lengra leyfi. Þetta jafngildir uppsögn með eins árs fyrirvara og er mér ekki kunnugt um aðra háskólakenn- ara en Ólaf Ragnar Grímsson sem háskóladeild hefur talið ástæðu til að álykta um með sambærilegum hætti. En ályktunin breytti engu. Prófessor- inn sat sem fastast í stöðunni og eins lengi og hann mögulega gat. Það var ekki fyrr en rétt áður en lokafrest- urinn rann út sem prófessorinn féllst á að segja starfi sínu lausu og hafði þá haldið stöðunni á níunda ár án þess að gegna henni. „Þér ferst, Flekkur, að gelta.“ Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.