Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
mmmn
„ Égg&t ejdá munafc hoort znf þeáu er
■fi'skur og frctnskur og hvort e.r L 'tfur
/neb Louuk.r."
að elda uppáhaldsréttinn
hans
TM Rh. U.S P«t OM.—all rights reserved
• 1M9 I rm AtvuOAa Timaa RvrvikratA
HÖGNI HHEKKVÍSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
„Fljúgandi furðuhlutir“
Frá Einari Ingva Magnússyni:
SÚ athyglisverða frétt kom í
Ríkissjónvarpinu, föstudaginn 13.
ágúst síðastliðinn, að ráðstefna
um „fljúgandi furðuhluti“ (UFO),
yrði haldin í Reykjavík á næstunni.
Frá mínum bæjardyrum séð er
hér um mjög svo tímabært fram-
tak að ræða, því hér er málefni á
ferðinni sem ekki eingöngu varðar
íslendinga, heldur og allt mannkyn
Jarðarinnar.
„Fljúgandi furðuhlutir", ljós-
fyrirbærin, eldvagnarnir, dýrð
Drottins, eða hvaða nafni sem við
nefnum þessi fyrirbæri, hafa fylgt
mannkyninu frá ómunatíð, eða frá
því „menn voru fyrst settir á jörð-
ina“, eins og segir í Jobsbók, 20.
kafla í Biblíunni. (Settir á jörðina!
Takið eftir orðalaginu.)
Leiðum hugann að dýrð Drott-
ins, sem ljómaði hjá fjárhirðunum
á Betlehemsvöllum, þegar Jesús
var borinn í heiminn. Hann sem
átti sér hreinlífa jarðneska móður
og himneskan föður. Leiðum hug-
ann að Betlehemstjörnunni, (ljós-
inu, eldlegum vagni) sem fylgdi
vitringunum og staðnæmdist svo
yfír fjárhúsinu. (Staðnæmdist!)
Tökum líka eftir orðalaginu, þegar
Jesús stígur upp til himna. Hann
sagðist sjálfur hafa stigið niður
af himni. Til jarðar kom hann til
að flytja mönnunum tíðindi af
endalokum heimsins og fagnaðar-
boðskapinn um ríki Guðs. Vegna
lögmálsbrota mannanna barna
hafa þeir gerst sekir um synd, sem
Kristur vill bæta fyrir og frelsa
alla þá sem taka við honum frá
tortímingu við endi daganna.
Lítum aftur á þessi „fyrirbæri“.
Ljós á himni vitraðist Páli postula.
Þar talaði Kristur út úr ljósinu.
Elía fór til himins í eldlegum vagni,
sem kom og nam hann í burt, frá
Elísa, þar sem þeir tveir voru á
gangi. Ljósið, eða dýrð Drottins,
fylgdi ísraelsmönnum í eyðimörk-
inni. Það var sem eldstólpi á næt-
urnar en skýstólpi á daginn. Áður
en Kristur Jesú fór til himna á
ný, sagðist hann koma aftur.
Hvernig? Biblían getur þess, að
hann muni koma aftur / skýjum
himinsins!
Eitt ber kristnum mönnum þó
að varast. í fyrstu Mósebók segir
að synir Guðs hafi stigið niður af
himni og tekið sér dætur mann-
anna fyrir konur, þar sem þeim
fundust þær fagrar. (Hvaða maður
getur láð þeim það, svo sem?) Það
virtist ekki vera í áætlun Alheims-
ráðsins. Því voru þeir gerðir út-
rækir frá himni, og fengu ekki að
fylgja móðurskipinu til baka, þeg-
ar leiðangri guðanria var lokið í
það sinnið. Enn eru þessir föllnu
englar á meðal okkar í dag, og
bíða dómsins hér ájörðu og í ná-
grenni jarðarinnar. I því sambandi
ber að benda á frásagnir Enoks-
bókar, hins apókrýptíska rits, sem
Ijallar um þessa „föllnu engla“,
sem meðal annars létu mönnunum
í té ýmiskonar tækniþekkingu,
sem syndugu^ mannkyni er ekki
hollt að vita. í Efesusbréfinu 6:12
erum við vöruð við hættunni af
þessum „öndurn". Þess vegna
hvetur Páll postuli okkur til þess
að reyna andana hvort þeir séu
frá Guði. Þess vegna geta orðið á
vegi okkar bæði verur ljóssins og
verur myrkursins. Því er nauðsyn-
legt að vera vel á verði og rann-
saka ritningarnar frá fyrstu hendi,
svo við getum staðist vélabrögð
hins illa. Þannig þekkjum við engla
Frá SigfúsiB. Valdimarssyni:
EINS OG kunnugt er tók Gísli
Sigurbjömsson við því brautryðj-
endastarfi föður síns að hlú að
gömlu fólki og hefir gert það af
frábærum dugnaði og kristilegum
kærleika svo undrun sætir. Niðjar
þeirra hjóna hafa svo orðið þeim
mikil hjálp á síðari árum þegar
kraftar hans hafa tekið að þverra,
þó hann standi enn á bak við þetta
allt.
Gísli hefir líka látið sig varða
margvíslega aðra hjálpar- og
menningarstarfsemi.
Það er einsdæmi að á sl. ári
nutu 640 aldraðir víðsvegar af
landinu ókeypis dvalar í 10 daga
í húsum Grundar í Hveragerði.
Ég vil fyúr hönd þeirra sem
dvöldu að Ásflöt 2 dagana 5.-15.
Guðs, þegar þeir verða á vegi okk-
ar.
Þeir sem standa fyrir þessari
tímabæru ráðstefnu segja að fljót-
lega dragi til tíðinda hér á jörðu.
Það er ég ekki í nokkrum vafa
um heldur. Kristur sagðist koma
aftur. Þegar hann kemur hefur
hann með sér launin, til að gjalda
hveijum eftir breytni hans hér í
heimi. Traustast er því að fara
eftir lögmáli Guðs, boðum Hans
og bönnum, svo við séum honum
velþóknanlegir í einu og öllu.
Lítum að lokum á þessi stór-
rrierkilegu orð, sem eru vel við
hæfí sem niðurlag þessarar grein-
ar: „... þeir sem dánir eru í trú
á Krist, munu fyrst upp rísa. Síðan
munum vér, sem eftir lifum, verða
ásamt þeim hrifnir burt í skýjum
til fundar við Drottin í loftinu. Og
síðan munum vér vera með Drottni
alla tíma.“ (1. Þessaloníkubréf
4:16-18.)
Megi sem flestir verða njótandi
þessa mikla viðburðar.
EINAR INGVI MAGNÚSSON,
Heiðargerði 35,
Reykjavík.
júlí sl. þakka innilega fyrir
ánægjulega dvöl þar sem okkur
mun verða ógleymanleg.
Við þökkum líka Gísla Páli og
öllu starfsfólkinu góða kynningu
og frábæra þjónustu. Það er aug-
ljóst hvemig Guð hefír blessað
þetta starf frá upphafí og að það
hefír verið unnið samkvæmt orð-
um postulans: „Og hvað sem þér
svo í orði eða verki, þá gjörið allt
í nafni Drottins Jesú, þakkandi
Guði föður fyrir hann.“ Kól. 3:17.
Við þökkum Guði fyrir þetta
starf sem unnið er af kærleika
Krists og biðjum hann að blessa
það og leiða framvegis sem hingað
til.
SIGFÚS B. VALDIMARSSON,
Pólgötu 6,
ísafirði.
Þakkir til Gísla
Sigurbj örnssonar
Víkveiji skrifar
Blaðinu hefur borist bréf þar sem
bent er á að „mannleg mis-
tök“ sé klaufaleg þýðing á orðunum
„human error“. Þó svo að nauðsyn-
legt sé að orðið „human“ fylgi í
enskunni sé það algjör óþarfi í ís-
lensku. „Mistök segja allt sem þarf
(enda hefur enginn heyrt um „dýrs-
leg mistök“),“ segir bréfritari. Ef
til vill eig' „mannleg mistök“ að
merkja vanrækslu eða slóðaskap.
Þessum sjónarmiðum er hér með
komið á framfæri. Um mistak, mis-
tök, segir í orðabók Menningar-
sjóðs: „Yfirsjón, klaufaskapur,
handvömm, e-ð rangt, óheppilegt;
vangá.“ Þarna eru notuð orð, sem
eru betri en „mannleg mistök" í
mörgum tilvikum.
Þá óskar bréfritari eftir að orðið
hentiflagg eða hentifáni, samanber
hentisemi, sé notað frekar en þæg-
indafáni þegar rætt er um „conveni-
ence flag“ á flutningaskipum.
XXX
Annar lesandi skrifar blaðinu og
bendir á klaufalegar villur í
auglýsingu í Barnablaðinu Æsk-
unni. Þar er skrifað Spausgstofan
og hljómsveit Geirmundar Valtýrs-
sonar. Skrifari vitnar til klausu í
Víkveija fyrir nokkru þar sem fjall-
að er um hroðvirknislega unninn
enskan texta í auglýsingabæklingi
og spyr hvort auglýsingar með ís-
lenskum texta séu eitthvað betri?
Ekki getur Víkverji dæmt um það,
en hvort tveggja á einfaldlega að
vera í lagi.
xxx
*
Arviss úthlutun á vegum
Reykjavíkurborgar til ein-
staklinga, fyrirtækja og stofnana,
sem sérstaklega vel hafa staðið að
fegrun og umhirðu á húsum, götum
og görðum, fór fram í gær, 18.
ágúst, á afmæli borgarinnar sam-
kvæmt venju. Þetta framtak
Reykjavíkur og annarra sveitarfé-
laga er mjög til fyrirmyndar. Viður-
kenningar fyrir ræktun fegrun og
snyrtimennsku eru hvatning til ann-
arra bæjarbúa til að bæta og fegra
umhverfí sitt, eins og formaður
Fegrunamefndar Hafnaifyarðar
sagði er veittar voru viðurkenningar
fyrir fagurt umhverfi í Hafnarfirði
á dögunum. Eins saknar Víkveiji
þó í þessu sambandi, það er að fyr-
ir nokkrum árum var hætt að velja
fallegasta garðinn og er það hvorki
gert í Reykjavík né Hafnarfirði.
Sklíkt val er örugglega umdeilt og
erfitt, en er nokkurs konar punktur
yfir i-ið þegar um viðurkenningar
fyrir umhverfi er að ræða.