Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993
Hjón á Sauðárkróki ættleiddu dreng í Moskvu
Rúmt ár í bar-
áttu við kerfið
„Hæstánægð með að málið skuli
loksins í höfn,“ segir faðirinn
HJÓNIN Jóhann Ingólfsson og Hrönn Pétursdóttir á Sauð-
árkróki koma væntanlega heim frá Moskvu á þriðjudag
með árs gamlan son sem þau hafa ættleitt. Rúmlega ár tók
að fá málið í gegnum kerfið í Rússlandi en það mun nú I
höfn ekki hvað síst vegna aðstoðar íslenska sendiráðsins.
„Við erum hæstánægð með að málið skuli loksins í höfn
enda búin að bíða lengi,“ segir Jóhann. „Strákurinn er
eins og hver annar íslendingur og mjög vel haldinn.“ Synin-
um hefur þegar verið gefið nafn og heitir hann Pétur Örn.
Er Morgunblaðið hringdi í hjón-
in í Moskvu voru þau búin að fá
drenginn til sín en hann kemur
úr sárafátækri fjölskyldu og var
vistaður á barnaheimili. „Það var
greinilega mjög vel hugsað um
börnin á þessu heimili að öllu leyti
og það kom okkur nokkuð á óvart
því við bjuggumst ekki við slíku
miðað við fréttaflutning af ástandi
mála hér,“ segir Jóhann.
Önnur lönd komu til greina
Að sögn Jóhanns hafa þau hjón-
in reynt að ættleiða barn undan-
farið hálft annað ár. Útilokað er
að ættleiða íslensk börn og því
leituðu þau til landa í Austur-Evr-
ópu. Auk Rússlands komu Rúmen-
ía, Tékkland og Slóvakía til greina.
„Sendiráðið hér hefur verið okkur
mjög innan handar og við kunnum
þeim bestu þakkir fyrir,“ segir
Jóhann. „Megnið af þessu rúma
ári fór í allskonar pappírsvinnu og
bréfaskriftir til Rússlands en þeg-
ar sú skriffinnska var að baki Iiðu
rúmlega tveir mánuðir þar til við
fengum Pétur Örn í hendur.“
Eftir er að útvega vegabréf fyr-
ir drenginn en þau hafa fengið
vilyrði fyrir því að það komi á
mánudag og síðan eiga þau þrjú
bókað flug frá Moskvu á þriðju-
dag.
Jóhann rekur bifreiðaverkstæði
á Sauðárkróki og þar hefur kona
hans unnið á skrifstofunni.
Borgey hf. á Hornafirði selur togara með 1.464 tonna kvóta
Kirkjusandur kaupir Stokks-
nesið og leigir til Samherja
KIRKJUSANDUR hf., sem Landsbankinn eignaðist að fullu með
yfirtöku eignarhaldsfélagsins Hamla á eignum Sambandsins,
keypti í gær togarann Stokksnes af Borgey hf. á Hornafirði með
1.464 þorskígildistonna kvóta fyrir 332 milljónir króna, að sögn
Halldórs Árnasonar framkvæmdastjóra Borgeyjar.
Auglýsingaskilti Qar-
lægð við Laugaveg
LÖGREGLA fjarlægði öll gangstéttaauglýsingaskilti við Laugaveginn
í gær. Blindur maður sem átti leið niður Laugaveginn á fimmtudag
datt um eitt slíkt skilti og voru skiltin fjarlægð í kjölfarið.
Samkvæmt lögreglusamþykkt er
óheimilt að setja upp auglýsinga-
skilti á gangstéttum nema með sam-
þykki borgaryfirvalda, að sögn Óm-
ars Smára Ármannssonar, aðstoðar-
yfirlögregluþjóns.
Hann benti einnig á að samkvæmt
umferðarlögum sé lögreglustjóra
heimilt að fjarlægja auglýsingaskilti
sem sett eru upp í óleyfi og geti trufl-
að umferð. Lögreglan í Reykjavík
mun fjarlægja auglýsir.gaskilti af
gangstéttum um alla borgina næstu
daga.
Kirkjusandur hefur jafnframt
leigt Samherja hf. á Akureyri skip-
ið í einn mánuð. að því er Þor-
steinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samheija, staðfesti
við Morgunblaðið í gær. Þorsteinn
sagði að í leigusamningnum væri
ákvæði um forkaupsrétt Samheija
á skipinu en hann vildi að öðru
leyti ekki upplýsa um efni samn-
ingsins.
Borgey skuldar 1.411 milljónir
króna
Stokksnes, sem er 431 brúttó-
lestar skuttogari, smíðaður árið
1974, átti að halda úr Höfn á
Hornafirði á flóðinu í gærkvöldi
og er stefnt að afhendingu til
Samheijamanna á Akureyri á
sunnudag.
Borgey hf. hefur undanfarna
rúma þijá mánuði haft greiðslu-
stöðvun til að endurskipuleggja
fjárhag fyrirtækisins sem skuldar
um 1.411 milljónir króna, að sögn
Halldórs Árnasonar framkvæmda-
stjóra. Greiðslustöðvunartíminn
rennur út á miðvikudag og verður
þá óskað eftir framlengingu til
tveggja mánaða til viðbótar. Hall-
dór sagði að nú væri unnið að
gerð frumvarps til nauðasamninga
sem borið yrði undir lánardrottna
í samningum sem gerðu ráð fyrir
að gefínn yrði eftir hluti skulda.
Halldór vildi ekki upplýsa hve
mikilli eftirgjöf skulda stefnt væri
að.
Yfirtaka skulda og
staðgreiðsla
Halldór sagði að kaupverð
skipsins hefði .verið greitt með
staðgreiðslu og yfirtöku skulda en
vildi ekki greina frá upphæðum í
því sambandi né heldur aðdrag-
anda viðskiptanna við Kirkjusand
hf., sem Landsbankinn eignaðist
að fullu við stofnun Hamla hf.
Halldór sagði að Borgey mundi
ráðstafa kaupverðinu til að greiða
niður skuldir. Þær eignir sem eftir
standa í Borgey eru tveir bátar
með 2.400 þorskígildistonna
kvóta, auk fiskvinnsluhúss. Um
380 tonn af kvóta Stokksnessins
eru í þorski, rúm 200 í ýsu og um
800 tonn í karfa. Halldór Ámason
sagði að samningarnir gerðu ráð
fyrir að fjórum yfírmönnum úr 15
manna áhöfn Stokksnessins byðist
vinna meðan skipið væri hjá Sam-
heija.
Þorsteinn Már Baldvinsson
sagði í gærkvöldi að viðskiptin við
Kirkjusand hefði borið brátt að og
væru nýfrágengin. Hann vildi ekki
tjá sig um hvernig Samheiji hygð-
ist færa sér Stokksnesið og veiði-
heimildir þess í nyt en fyrir gerir
Samheiji út 6 skip.
f dag
Skinkumál
Innflutningsbannið lögieysa, segir
starfandi viðskiptaráðherra 16
íslendingar í ísrael_____________
Hvað segja þeir um samkomulag
ísraelsstjórnar við PLO 20
Ævintýralegur sigur
21 árs landslið Islands átti fótum
fjör að launa eftir nauman sigur á
heimamönnum í heimsmeistara-
mótinu í handknattleik í Egypta-
landi 43
Leiðari
Hvaða lög gilda? 22
gnrgnnbUMt
Lesbók
► Líf og list Gunnlaugs Scheving
á árunum í Grindavík, Hafnar-
firði og Reykjavík - Bræðravíg á
Sturlungaöld - Bessastaðir -
Kveldúlfur og frystingin
Menning/Listir
► Jón Ásgeirsson lofar flutning-
inn á Orfeus - Diddú kveður í bili
- Sýningar í Nýlistasafninu
Slátrun
hafin
SLÁTRUN er hafin á nokkr-
um stöðum á landinu, um er
að ræða heimagengið fé en
göngur standa nú sem hæst.
Að sögn Andrésar Jóhannes-
sonar yfirkjötmatsmanns er
útlit fyrir að dilkakjöt verði
gott í haust, hvorki of feitt
né horað.
Slátrun hófst á Hvammstanga
um mánaðamótin og var fallþungi
dilka að meðaltali um 16 kíló. í
vikunni hófst siðan slátrun á Vest-
urlandi, fyrir norðan og austan.
Slátrun hófst í sláturhúsinu á
Fossvöllum sjöunda september
síðastliðinn, slátrað er 900 fjár á
dag. Reiknað er með að slátra þar
rúmlega 33 þúsund lömbum í
haust sem er fjölgun uppá 10
þúsund frá síðasta hausti en það
á þá -skýringu að svo margir
bændur tóku nýtt fé í fyrrahaust.
Sláturhúsin á Suðurlandi byija
slátrun 20. september.
Þótt sumarið hafi verið kalt
norðanlands og þurrt fyrir sunnan
hefur það hentað sauðkindinni
ágætlega, að sögn Andrésar.
„Hún vill nýgræðing frekar en
fullsprottið gras og það hefur
verið spretta í allt sumar,“ sagði
Andrés.
Að sögn Hilmars Kristenssonar
verslunarstjóra Miðvangs í
Hafnarfirði er sama verð á slátr-
inu og í fyrra, 566 krónur.
Morgunblaðið/Bjami
Slátursala
ANNA B. Jóhannesdóttir afgreiðslustúlka í Miðvangi hafði nóg
að gera við að afgreiða nýtt slátur í gær.
Bermúda-
skálin til
Hollands
HOLLENDINGAR tóku í
gærkvöldi við Bermúda-
skálinni sem íslendingar
hafa varðveitt síðustu
tvö ár, en Hollendingar
unnu Norðmenn í úrslita-
leik heimsmeistaramóts-
ins í brids.
Sigur Hollendinga var
nokkuð öruggur og þeir höfðu
yfir allan úrslitaleikinn, sem
stóð í þijá daga. Lokatölurnar
voru 350 stig gegn 315. Hol-
lensku heimsmeistararnir
heita Bauke Muller, Wubbo
de Bauer, Eenri Leufkens,
Berry Westra, Jan Westerhof
og Piet Jansen.
Líkt og íslendingar fyrir
tveimur árum komust Hol-
lendingar á heimsmeistara-
mótið með því að ná 4. sæti
á Evrópumóti í brids.
Sjá bls. 14:
„Bandaríska...“
Festi troll-
ið í botni
MUMMI NK 46 festi veiðar-
færin í botni og var hætt
kominn út af Borgarfirði
eystra síðdegis í gær. Um
80 gráðu halli var kominn á
batinn þegar skipverjar
náðu að höggva á togvírana
og rétta hann við.
Mummi er 29 tonn og var á
rækjuveiðum þegar óhappið varð.
Var vatn komið í vélarrúmið og
véhn aflvana þegar loks tókst að
rétta bátinn við. Landhelgisgæslan
og Björgunarsveitin Sveinungi á
Borgarfirði voru í viðbragðsstöðu.
Mummi hélt þegar til heimahafnar
á Neskaupstað.