Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993 15 Reykjavík og allir skólarnir okkar merktir inn á. Til hvers í ósköpun- um? Er ætlast til að maður hengi þetta upp á vegg? Halda borgaryfir- völd að kjósendum í borginni sé slík meðferð á fjármunum þeirra þóknanleg á sama tíma og fólk þarf að gjalda háu verði þá þjón- ustu sem verið er að kynna? Þessi sömu borgaryfirvöld hafa séð vandlega til þess að foreldrum forskólabarna er kerfisbundið neit- að um heilsdagsvistun. Það er þess- um sömu yfirvöldum að þakka að fólk víðs vegar um bæinn er í prívat- reddingum í hádeginu til að tryggja börnum sínum viðunandi öryggi meðan það stundar vinnu. Og það öryggi greiða foreldrar sannarlega dýru verði - félagslega og peninga- lega. Ef borginni skyldi einhvem tíma detta í huga að bjóða upp á heilsdagsvistun forskólabarna þá frábið ég mér slíka kynningarbækl- inga og ég er viss um að ég tala fyrir munn margra foreldra. Það er nákvæmlega jafn ögrandi og að keyra um á Benz en þykjast ekki hafa efni á stígvélum á krakkann sinn. „Ekkert er ókeypis“ „There is no such thing as a free dinner" er haft eftir þeim mæta manni Milton Friedman. Þetta er sannarlega rétt hjá honum, hugsaði ég með mér þegar ég neyddist til að afþakka heilsdagsskóla fyrir dóttur mína. Frændur Friedmans í borgarstjóm virðast líka hafa skilið að það er hápólitísk spuming hver borgar hvað, og fer það ekki milli mála þegar dagvistarmál eiga í hlut. Það er hins vegar spuming hversu langt sá skilningur þeirra nær. Það er nokkuð ljóst að kosningasjóðir Sjálfstæðisflokksins munu ekki greiða fínu auglýsinguna um heils- dagsskólana heldur ég og aðrir skattgreiðendur í Reykjavík. Af því tilefni finnst mér við Reykvíkingar eiga heimtingu á að vita hvað sá „dinner" meirihlutans hefur kostað okkur. í nafni lýðræðis. Friedman. Höfundur er foreldri. Nissan Sunny lækkar í verði Nýr og ódýr- ari Nissan Sunny sýndur um helgina NISSAN umboðið, Ingvar Helga- son hf., kynnir um helgina nýjan Nissan Sunny sem nú er fáanleg- ur með minni vél en verið hefur og því nokkru ódýrari en aðrar Sunny gerðir. Verðið er 995 þús- und krónur og er þar um að ræða þrennra dyra hlaðbak með 1400 rúmsentimetra og 87 hest- afla vél og er þessi bíll um 120 þúsund krónum ódýrari en Sunny með 1600 rúmsentimetra vél. Nissan Sunny með þessari 1400 rúmsentimetra vél er með vökva- og veltistýri og tveimur hátölurum en ekki með samlæsingu eða raf- drifnum rúðum. Fyrstu bílamir eru komnir til landsins og verða sýndar hjá umboðinu við Sævarhöfða milli kl. 14 og 17 laugardag og sunnu- dag. í fyrstunni verður eingöngu um þrennra dyra hlaðbaksútgáfuna að ræða en í nóvember er væntan- legur fernra dyra stallbakur. Þá sýnir Nissan umboðið um helgina nýja gerð af Nissan Sunny GTi, sem er fernra dyra stallbakur með 150 hestafla vél og kostar hann um 1.580 þúsund krónur en fram að þessu hefur þessi gerð eingöngu fengist tvennra dyra. Rétt og rangt um íslenskan landbúnað — nr.l af 8 Beingreiðslur eru ekki laun til bænda... Fullyrt er: Hið rétta er: Beingreiðslur fara beint í vasa bænda. Stór hluti bænda fær mánaðarlega yfir 400 þúsund króna ávísun frá ríkinu. Beingreiðslur eru enn eitt dæmi um bruðl í íslenskum landbúnaði sem þekkist hvergi annars staðar í heiminum. Beingreiðslur eru ekki eyðslufé bænda heldur renna þær tii búrekstrar þeirra; til áburðar, véla, kjarn- fóðurs, vinnulauna, afskrifta, viðhalds o.s.frv. Til skamms tíma runnu sömu fjármunir til afurða- stöðva sem niðurgreiðslur á heildsölustigi. Engum datt í hug að tala um þá peninga sem launagreiðslur til bænda. Tilgangurinn var og er enn hinn sami: Að lækka verð á lambakjöti og mjólkurvörum til neytenda. Beingreiðslur eru einungis greiddar á afurðir sem seljast á innanlandsmarkaði. Beingreiðslur eru framleiðslutengdar greiðslur og verða eðlilega misháar eftir því hve mikið er fram- leitt á hverju búi. Stærstu búin með hæstu bein- greiðslurnar eru í flestum tilfeilum svokölluð félags- bú, sem fleiri en ein fjölskylda byggir afkomu sína á. Að meðaltali renna rúmlega 100 þús. kr. á mánuði til hvers bús í nautgripa- og sauðfjárrækt. Beingreiðslur fara milliliðalaust til frumframleiðslunnar og þykja hagkvæm og einföld leið til að lækka verð á landbúnaðarvörum til neytenda. Þær hafa lengi tíðkast í Bandaríkjunum og á hinum Norðurlöndunum og í Evrópubandalaginu er verið að taka upp beingreiðslur í stað annarra greiðslna. í GATT-viðræðunum, þar sem fjallað er m.a. um alþjóðleg viðskipti með landbúnaðar- vörur, er litið á það sem mikilvægt framfaraspor að beingreiðslur leysi niðurgreiðslur af hólmi. ... heldur breytt form á niðurgreiðslum sem lækkar verð til íslenskra neytenda. ISLENSKIR BÆNDUR :■ -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.