Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993
29
A að lögbinda
hj ólreiðahjálma?
eftir Ómar Smára
*
Armannsson
Ég skil vel áhuga og góðan vilja
þeirra manna, sem vilja láta lög-
binda notkun hjálma við hjólreið-
ar. Hjálmarnir geta óneitanlega
komið í veg fyrir skaða og meiðsli
og þess vegna á að vera sjálfsagt
að beina þeim tilmælum til fólks
að nota hjálma við hjólreiðar ör-
yggisins vegna. Auk þess á að
vera sjálfsagt að ala börn upp við
að nota hjálma. Þegar fram líða
stundir sér fólk hversu sjálfsagt
það er að allt hjólreiðafólk noti
hjálma. Hugmyndin um lögleið-
ingu er góð, en hvernig á að fram-
fylgja með virkum hætti laga-
ákvæðum um undantekningalausa
skyldunotkun hjólreiðafólks á
hjálmum? Ég fæ ekki séð að það
sé hægt.
A t.d. að beita viðurlögum ef
ákvæði laganna verða ekki virt?
Hvernig? Hver eiga viðurlögin að
vera? Eiga þau að gilda jafnt
gagnvart börnum og fullorðnum?
Til hvaða viðbragða á að grípa
láti fólk ekki segjast? Hjólreiða-
hjálmar hafa verið lögbundnir á
fáum stöðum erlendis, en þar hafa
komið upp vandkvæði varðandi
fylgnina. Miklum mun vænlegra
til árangurs og almennrar þátt-
töku er að sýna fólki fram á með
skynsamlegum rökum að það
borgi sig að nota hjálma hvort sem
er á reiðhjóli eða hestbaki. Slíkt á
helst ekki að lögbinda. Sumt er
og verður alltaf spurning um heil-
brigða skynsemi. Þessi þáttur á
að nást fram með virkum og já-
kvæðum áróðri, ekki lögbindingu.
Um lögbindingu og notkun hjól-
reiðahjálma gilda aðrar reglur en
um notkun öryggisbelta, sem til
staðar eru í hverri bifreið. Þá gilda
og önnur sjónarmið varðandi lög-
bindingu ökuljósanotkunar allan
sólarhringinn. Börnin verður ekki
hægt að beita viðurlögum fyrir að
hunsa ákvæði um lögskyldunotkun
reiðhjólahjálma. Ovirðing þeirra
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
T
ytsx
{lCÍ
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
SERPANTANIR
& 0 I -’*Eiorgartúni 29
Awil sími 620640
Ómar Smári Ármannsson
„Börnin verður ekki
hægt að beita viðurlög-
um fyrir að hunsa
ákvæði um lögskyldu-
notkun reiðhjóla-
hjálma. Óvirðing þeirra
fyrir lögunum vex í
réttu hlutfalli við fjölda
óframkvæmanlegra
lagaákvæða..
fyrir lögunum vex í réttu hlutfalli
við fjölda óframkvæmanlegra
lagaákvæða.
Höfundur er aðstoðar yfirlögregl-
uþjónn íReykjavik.
RETTARSTEMMNINC
I HAFNARFIRPI
ÞAt> VERÐUR MIKIP FJÖR Á ÞJÓÐLECUM RÉTTARDEÚI
í HAFNARFIRÐI LAUCARDAúINN 11. SEPTEMBER
ÞECAR STÓRFJÖLSKYLDAN KEMUR SAMAN
OC SKEMMTIR SÉR FRAM EFTIR KVÖLDI.
HÁTÍÐIN HEFST KL. 14 Á ÞVÍ AÐ HESTAMENN OC HUNDAR REKA FJÁRHÓP
FRÁ EN6IDAL NIÐUR REYKJAVÍKURVEG OC HRAUNBRÚN INN Á
VÍÐISTAÐATÚN UNDIR STJÓRN FJALLKÓN6S. JÓNA ÓSK, FORSETI
BÆJARSTJÓRNAR KEMUR RÍÐANDI 06 SETUR HÁTÍÐINA Á
VÍÐISTAÐATÚNI. (AÐGANGUR ÓKEYPIS)
ÞARVERÐUR:
• FJÁRDRÁTTUR “jjw
• VAL LÍFLAMBA
• HRÚTASÝNINÓ
• BÖRN AF LEIKSKÓLANUM
6ARÐAVÖLLUM SYNGJA
SVEITASÖNGVA
• UNGIR FÉLAGAR ÚR NÝJA
DANSSKÓLANUM DANSA
GÖMLU DANSANA
GLÆSILEG HESTASYNING
HESTAUPPBOD SEM JÓN
GUDMUNDSSON
Á REYKJUM STJÓRNAR
GLÍMUSÝNING
• HARMONIKKULEIKUR
• HESTAKERRUFERÐIR FYRIR BÖRN
OG ÞEIM BODIÐ Á HESTBAK
• ÁVÖRP
Félag eldri borgara í Víðistaöasókn sér um veitingar að gömlum sið og
heldur uppi ærlegri réttarstemmningu í tjaldi.
Frábær réttartilboð á ljúffengum lambakjötsréttum á veitingahúsunum
Gafl-inn (tvíréttað á 770 kr. Gildir líka sunnudag) og Fjörugarðinum
(réttarsteik með bakaðri kartöflu á 1.200 kr.).
Blysför hestamannafélagsins Sörla frá Víðistaðatúni um Vesturgötu og
Strandgötu að Kænunni við smábátahöfnina hefst kl. 21.00.
Dans og söngur í Fjörunesinu, sem liggur við flotbryggjuna við Strandgötu,
frá kl. 20.00-22.00
Réttarsigling á góðu verði kl. 22.00-23.30.
Um kvöldið verða tvö réttarböll. Það verður dansað í Kænunni frá kl. 22.00
þar sem Capri tríó leikur gömlu dansana og ódýr og holl miðnæturkjötsúpa
stendur gestum til boða. Einnig verður stiginn dans í Firðinum frá kl. 23.00
við undirleik hljómsveitarinnar Upplyftingar. Gestum verður boðið upp á
drykki frá Eldhaka frá ki. 23.00-00.30.
Flugeldasýning á mibnætti vib höfnina.
Allir eru hvattir til að mæta, jafnvel í þjóðlegum búningum, lopapeysum,
gúmmískóm og öbru sem tilheyrir alvöru réttum.
KÆNAN
VEITINGASTOFA
JÓRUKRAIN
F.
JORUJNES
HESTALEIGAN LAXNESI
F
FERÐASKRIFSTOFAN
FERÐABÆR
Udllngohð/ið
CAPt-mn
FERÐAMÁLANEFND
HAFNARFJARÐAR
UTIVIST
Hallveigarstíg 1 • simi 614330
Dagsferðir sunnudaginn
12.september
Kl. 08.00 Básar við Þórsmörk.
Stansað i um 3 klst. Verð kr.
2.000/2.200.
Kl. 10.30 Þingvallagangan 3.
áfangi. Gengiö verður frá Vil-
borgarkeldu austan í Mosfells-
heiði og farin gamla leiðin um
Hallveg á Þingvelli ca 12 km löng
leiö. Verð kr. 1.500/1.700.
Brottför í ferðirnar er frá BSÍ,
bensínsölu. Frítt fyrir börn 15
ára og yngri i fylgd fullorðinna.
Haustlita- og grillveislu-
ferð íBása 17.- 19. sept.
Nú fer Þórsmörkin og Goðaland-
ið að skarta sínum fegurstu lit-
um. Fjölbreyttar gönguferðir
með fararstjórum. Sameiginleg
grillveisla og kvöldvaka á laugar-
dagskvöld.
Miðasala á skrifstofu Útivistar,
opið frá kl. 12-17.
Útivist.
M VEGURtNN
" Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Samkoma í kvöld fyrir ungt fólk
(16 ára og eldri) kl. 21.00.
Allir velkomnir.
SlttÚ ouglýsingor
Nýja
postulakirkjan,
Ármúla 23,
2. hæð
Guðsþjónusta sunnudag, 12.
sept., kl. 11.00. Holger Kirsc-
hen, prestur messar. Hópur frá
Bremen i heimsókn. Ritningar-
orð: „Sá sem trúir er eigi óðlát-
ur“ (úr Jesaja 28:16).
Verið velkomin í hús Drottins!
Kaffisala
verður í kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58-60, á morgun,
sunnudag kl. 14.30-18.00.
Tekið verður á móti kökum frá
kl. 11.00 sunnudag. Allur ágóði
rennurtil starfs kristniboðssam-
bandsins í Afríku.
Kristniboðsfélag karla.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Dagsferðir um helgina:
Laugardag 11. sept. kl. OS.
Hagavatn - Mosaskarð. Ekið
verður áleiðis að Hagavatni og
gengið þaðan suður í Mosa-
skarð, þar sem bíllinn tekur hóp-
inn. Verð 2.500.
Sunnudagur 12. sept. kl. 10.30.
Víðiker - Hvalvatn - Botnsdal-
ur. Gangan hefst við Víðiker, síð-
an liggur leiðin að Hvalvatni og
niður í Botnsdal í Hvalfirði.
Verð kr. 1.400.
Kl. 13. Brynjudalur - Hrísháls
- Botnsdalur, þjóðleið. Ekið í
Brynjudal og gengin gömul þjóð-
leið yfir Hrísháls, sem skilur að
Botnsdal og Brynjudal.
Verð kr. 1.100.
Brottför er frá Umferðarmiö-
stöðinni, austanmegin og Mörk-
inni 6.
Ferðafélag Islands.
Samkoma f kvöld kl. 20.30.
Gestur okkar er Judy Lynn frá
Bandaríkjunum.
Hvítasunnukirkjan
Ffladeifía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Miðvikudagur:
Skrefið kl. 18.00.
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.