Morgunblaðið - 11.09.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993
41__
Framleiðslustyrkur, laun
eða félagsleg aðstoð?
Frá Birgi Hermannssyni:
SIJ undarlega staða er nú komin
upp að styrkir ríkisins til bænda
eru ríkisleyndarmál. Ekki má gefa
upp hvað hvert býli fær í greiðslur
á mánuði, það heitir víst að hnýs-
ast í persónulega hagi. Tölvunefnd
og landbúnaðarapparatið segja því
lok og læs; annað er aðför að per-
sónufrelsinu. Þessar tölur er þó
hægt að reikna út með hliðsjón
af leyfílegri framleiðslu, þannig
að ekki er ljóst hvaða tilgangi
bannið þjónar, nema ef verá skyldi
að menn álykti sem svo að enginn
nenni að hafa fyrir slíkum útreik-
ingum. Ekki nenni ég því, svo
mikið er víst. Enda hef ég í sjálfu
sér engan áhuga á því að vita
hvað hvert býli fær fyrir sig.
Það sem ég hef áhuga á er sá
hugsunargangur sem liggur að
baki banninu. Það er eðlilegt og
sjálfsagt að liggja á upplýsingum
um félagslega aðstoð til einstakl-
inga, enda er þar um að ræða
afkomustyrki eða tryggingabæt-
ur. Slíkt hlítir almennum reglum
ÁMÓTI
KJÖTINNFLUTN-
INGI
GUÐMUNDUR hringdi til að
lýsa undrun sinni á innflutningi
Hagkaups á dönsku skinkunni,
ekki síst vegna þess að Svíar
og aðrir kaupendur danskra
landbúnaðarvara hafa kvartað
yfír sýkingu í kjötinu. „Við ís-
lendingar eigum nóg af kjöti,
og er okkur ekki meiri akkur í
því að fá hreint kjöt þó að það
sé örlítið dýrara, en ódýrt, sjúkt
kjöt?“
TAPAÐ/FUNDIÐ
Myndavél tapaðist
KODAK-myndavél, einnota
(blá, græn og hvít) gleymdist
við klifurgrind við Víðidalsskóla
í Hafnarfírði 8. september sl.
Þegar eigandinn kom að leita
hennar var hún horfín. í henni
og kemur engum við nema ein-
staklingum sem um ræðir og þeirri
stofnun sem aðstoðina veitir. Bein-
greiðslur til bænda eru hins vegar
ekki afkomustyrkur, heldur fram-
leiðslustyrkur. Bændur verða ein-
att mjög móðgaðir ef öðru er hald-
ið fram. Ef lögbýli er veittur styrk-
ur til framleiðslu eins og hveiju
öðru fyrirtæki, hvað er þá athuga-
vert við það að skattgreiðendur
þessa lands og fulltrúar þeirra
hafí greinargóðar upplýsingar um
það hvaða býli fái þá styrki og
hversu háar upphæðir hvert um
sig fær?
Sú mikla leynd sem hvílir yfír
þessum styrkjum bendir til þess
að forystumenn bænda líti á bein-
greiðslurnar sem launauppbót frá
ríkinu eða sem félagslega aðstoð.
Bændur sóu því hálfgerðir ríkis-
starfsmenn og ekki er verið að
auglýsa á torgum hvað þeir fá í
laun, eða vegna slæmra kjara
bænda sé eðlilegt að veita þeim
framfærsluaðstoð. Auðvitað er
þetta kjarni málsins. Bændur gera
er átekin fílma frá ferð erlendis
sem engum kemur til góða öðr-
um en eigandanum, ungi stúlku
sem saknar fílmunnar sárt.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 52557.
GÆLUDÝR
Grár högni týndur
GRÁR þriggja ára gamall högni,
mjósleginn með stór eyru, er
týndur. Hann heitir Megas og
er með rauða hálsól. Megas er
nýfluttur úr Hafnarfírði til
Reykjavíkur og ratar örugglega
ekki heim til sín. Ef einhver
hefur séð hann vinsamlega
hringi hann í síma 811848, hans
er sárlega saknað.
Kettlingur fæst gefins
GRÁR og hvítur fresskettlingur,
þriggja mánaða, fæst gefins,
einungis á gott heimili. Upplýs-
ingar i síma 32142.
samning við ríkið ejns og hveijir
aðrir starfsmenn þess og tryggja
sér greiðslur mörg ár fram í tím-
ann. Allt er þetta síðan réttlætt
með tilvísun til bágra kjara
bændastéttarinnar.
Sé þetta rétt ber auðvitað að
afnema öll tengsl á milli fram-
leiðslu og greiðslna til bænda. í
framhaldinu ber síðan að gefa
framleiðslu og verðlag frjálst. í
öllu falli er núverandi leynimakks-
kerfi ekki bændastéttinni sæm-
andi.
BIRGIR HERMANNSSON
aðstoðarmaður ráðherra
umhverfisráðuneytinu
Vonarstræti 4, Reykjavík
LEIÐRÉTTIN G AR
Guðbjörn en
ekki Guðjón
í viðtali við hjónin Önnu Maríu
Guðbergsson og Emanuelle Ganci í
Ferðablaði í gær misritaðist nafn föð-
ur Önnu Man'u. Hann hét Guðbjörn
Guðbergsson en ekki Guðjón eins og
mishermt var. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Ráðhúsið fékk
viðurkenningu
í frétt í Morgunblaðinu 8. septem-
ber um viðurkenningar Lagnafélags-
ins kom ekki fram, að það var Ráð-
hús Reykjavíkur sem hlaut viðurkenn-
ingu félagsins fyrir lofsvert lagnaverk
1992 og fengu eigandi, hönnuðir og
verktakar viðurkenningarskjal. Að
mati viðurkenningamefndar félagsins
hefur Ráðhúsið eitt af fullkomnasta
loftræstikerfi á landinu, frágangur
pípulagningarmanna og blikksmiða
er til fyrirmyndar, vinna rafvirkja og
frágangur á töfluskápum er einnig
lofsverður og hússtjórnarkerfið er til
fyrirmyndar.
Stórveiði orðum
aukin
Kristján Gíslason setti sig í sam-
band við Morgunblaðið og sagði frá-
sögn af stórvéiði sinni í þættinum
„Eru þeir að fá ’ann?“ í blaðinu 10.
september vera stórlega orðum
aukna. Hann hefði veitt tíu laxa en
ekki yfir tuttugu stykki. Heildarveiði
dagsins á svæðinu hefði hins vegar
verið 22 laxar. Hann hefði dregið einn
21 punds fisk, en sá næsti hefði verið
14 pund. Aðrir laxar hefðu verið
smáir.
VELVAKANDI
r
Japanskar skylmingar
Kennarar
Tryggvi Sigurðsson, 4. dan
Ingólfur Björgvinsson, 2. dan
Upplýsingar í síma 32921
og 35783.
MEISHINKAN
V J
V^terkurog
V3 hagkvæmur
auglýsingamiðill!
BÝÐUR YKKUR VELKOMIN
Óvenju fallegt, hagkvæmt
og vel staðsett
■ r
g\sdheimu/ó
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 30 • SÍMI 623544
Matvöra-
markaður
á Miðbakka
L
1. Fiskmarkaður:
Nýr fiskur þ.á m. búri og háfur, saltfiskur, siginn fiskur,
reykturfiskur, rækjur, humar, skeldýr, harðfiskur, hákarl,
íslenskir matþörungar o.fl. o.fl.
2. Ávaxta- og grænmetistorg:
Á boðstólum allt fáanlegt grænmeti og ávextir.
3. Veitingabúð:
Léttar veitingar, kaffi og með þvi.
4. Leiktæki fyrir börnin:
Járnbrautin og krabbakerin vinsælu.
5. Stuttar sjóferðir:
Frá Miðbakka frá kl. 14 til 17.
Gerið góð kaup á markaðstorginu og njótið
veitinga og skemmtunar í heiinæmu sjávarlofti.
Opið iaugardaga og sunnudaga kl. 10.00-17.00.
REYKJAVIKURHOFN
HAFNARHÚSI TRYGGVAGÖTU 17
101 REYKJAVlK SlMI (91) 28211