Morgunblaðið - 11.09.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR ÍÍ. SEPTEMBER 1993
HANDKNATTLEIKUR
Páll Þórólfsson lék mjög vel gegn Egyptum í gærkvöldi og gerði sjö mörk
úr jafn mörgum skottilraunum. Páll lék einnig mjög vel í fyrsta leiknum gegn
Grikkjum.
Sjö þjóðum boðið á hand-
boltamót næsta haust
| IJjandknattleikssambandið hefur ákveðið að halda átta landa mót,
® ■ Reykjavík Intemational, í nóvember á næsta ári og verður það
prufukeyrsla fyrir heimsmeistarakeppnina sem hér fer fram 1995.
Þegar hefur sjö erlendum landsliðum verið boðin þátttaka á mótin'u.
Það em landslið Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Þýskalands, Sviss,
Spánar og Frakklands.
FRJALSIÞROTTIR
Búbka og Farmer-
Palrick stigahæst
SERGEJ Búbka, stangarstökkvarinn frábæri frá Úkraínu og
bandaríska hlaupakonan Sandra Farmer-Patrick sigruðu ístiga-
keppni alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Sfðasta stigamót sum-
i arsins fór fram í London í gærkvöldi. Þau hlutu hvort um sig
130.000 íverðlaun í gærkvöldi, andvirði tæplega 9 milljón króna.
lan Zelezny, spjótkastari frá
■— Tékklandi, var talinn sigur-
stranglegastur í karlaflokki og kom
sér í góða stöðu um stundarsakir
með því að kasta 88,28 m á vellin-
um í Crystal Palace í gærkvöldi.
En Búbka hafði betur, skv. stigaút-
reikningum, eftir að hafa stökkið
6,05 m í stangarstökkinu. Hann
reyndi siðan að halda upp á daginn
með því að bæta eigið heimsmet,
sem er 6,13 m, og var aðeins hárs-
breidd frá því að fara yfír 6,14 m.
Keppnin hjá kvenfólkinu var
einnig gríðarlega spennandi. Far-
mer-Patrick tryggði sér sigur í síð-
ustu hlaupagrein kvöldsins, 400 m
| grindahlaupi. Hún hafði betur í
keppni við bresku stúlkuna Sally
Gunnell. Gunnell setti heimsmet er
hún sigraði á heimsmeistaramótinu
í Stuttgart á dögunum og þá varð
Farmer-Patrick í öðru sæti. í gær
hljóp bandaríska stúlkan á 53,69
sek. en Gunnell á 53,82.
Heimsmeistarinn og methafinn
Noureddine Morceli frá Alsír sigr-
aði örugglega í 1.500 m hlaupi;
[ hljóp siðasta hringinn á 53,62 sek.
og vegalengdina á 3:31,60 mín.
Aðeins hann sjálfur hefur náð betri
tíma i ár.
Breski heimsmeistarinn og met-
hafínn í 110 m grindahlaupi, Colin
Jackson sigraði á 13,14 sek. Annar
Breti, David Grindley, sigraði í 400
m hlaupi á 44,81 sek.; varð á und-
an Bandaríkjamönnunum Butch
Reynolds heimsmethafa, sem hljóp
á 44,96 og Quincy Watts, ólympíu-
meistara á 45,06.
Sonia O’Sullivan, írlandi, sigraði
i 3.000 m hlaupi kvenna á 8:38,12
mín. en Yvonne Murray, Bretlandi,
varð önnur á 8:41,99. Gwen Torr-
ence, Bandaríkjunum, varð hlu-
skörpust í 100 m hlaupi á 11,03.
Irina Privalova, Rússlandi, varð
önnur á 11,09 sek.
Lars Riedel, Þýskalandi, kastaði
kringlunni lengst, 64,90 m, Maria
Mutola, frá; Mozambik, sigraði í
1.500 m hlaupi kvenna á 1:57,35
og Leroy Burrell, Bandaríkjunum
sigi'aði í 100 m hlaupi karla á 10,28
sek.
Stefka Kostadinova, Búlgaríu,
fór hæst í hástökki kvenna, 1,98
Alarei lent
i óðni eins
— sagði Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari eftir frækileg-
an sigur á Egyptum, 26:25, í heimsmeistarakeppninni **
ÍSLENDIIMGAR unnu mjög mikilvægan sigur, 26:25, á Egyptum
í heimsmeistarakeppni leikmanna 21 árs og yngri í handknattleik
í gærkvöldi f Egyptalandi. íslendingar hafa nú sigrað í báðum
leikjum sínum á mótinu til þessa, eru efstir í D-riðli og mæta
Rúmenum í síðasta leik riðilsins í kvöld. Þorbergur Aðalsteins-
son, landsliðsþjálfari, sagðist í gærkvöldi aldrei hafa upplifað
annað eins og það sem gerðist eftir að sigur íslands var í höfn.
Lætin í áhorfendum, sem hann taldi hafa verið á bilinu 13-15
þúsund, hafi verið slík að íslendingarnir hafi hreinlega verið í
lífshættu.
Eg hef aldrei upplifað annað eins
fyrr, þó ferillinn sé orðinn
langur. Fólkið var gjörsamlega
tryllt eftir leikinn. Við vorum í lífs-
hættu. Það grýtti vatnsflöskum nið-
ur á völlinn í okkur, eins kílós þung-
um flöskum. Við urðum að fara í
lögreglufylgd til búningsklefans og
urðum að hlaupa þangað fyrir neð-
an svæðið þar sem flestir áhorfend-
ur voru,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi. Hann sagði íslend-
ingana hafa læst sig inní búnings-
klefa í eina klukkustund, og síðan
hefði verið hlaupið út í rútu, sem
kom alveg upp að dyrum íþrótta-
hallarinnar. Hann sagði að þegar
leikmenn voru komnir út úr salnum
hafi öll ljós verið slökkt til að reyna
að róa áhorfendurna.
„Ég tel það gífurlegt þrekvirki
hjá strákunum að sigra í leiknum,
því lætin í höllinni voru alveg hrika-
leg. Það er enginn smá skóli fyrir
‘þá að spila við þessar aðstæður.“
Þorbergur sagði íslenska liðið
hafa byijað á að leika flata vörn,
sem gengið hefði vel. „Við kom-
umst í 5:2 og síðan í 7:4. Þeir kom-
ust svo í 9:8 og þegar staðan var
þannig og 24 mínútur búnar fékk
Sergej Búbka fagnaði sigri í stiga-
keppni alþjóða fijálsíþróttasambands-
ins í gærkvöldi.
m, og Patrick Sang frá Kenýa vann
3.000 m hindrunarhlaup á 8:15.53
mín. Frankie Fredericks, Namibíu,
sigraði í 200 m hlaupi á 20.34 sek.,
John Regis, Bretlandi, varð annar
á sama tíma og þriðji varð Michael
Johnson, Bandaríkjunum á 20,41
sek.
Dagur [Sigurðsson] rautt spjald og
var því útilokaður frá leiknum."
Dagur fékk þarna þriðju tveggja
mínútna brottvísun sína í leiknum.
Þorbergur sagði þá þriðju hafa ver-
ið fullkomnlega réttmæta, en hinar
tvær ákaflega vafasamar, svo ekki
sé meira sagt. Staðan í leikhléi var
13:11 fyrir Egypta.
Staffan Holmquist, formaður
sænska handkattleikssambandsins,
var eftirlitsmaður á leiknum og
sagðist Þorbergur hafa rætt við
hann í leikhléinu. „Dómaramir voru
frá Sviss og þeir höfðu verið mjög
slakir í fyrri hálfleik, enda pressan
mikil á þá. Mínir strákar voru rekn-
ir fímm sinnum út af en Egyptarn-
ir bara einu sinni. Ég hellti mér
yfir Staffan Holmquist; sagði að
þetta gengi ekki svona. Hann talaði
við dómarana í hálfleiknum og það
var eins og nýir menn hefðu komið
til að dæma seinni hálfleikinn."
Þorbergur sagði það hafa verið
gífurlegt áfall að missa Dag Sig-
urðsson út af í fyrri hálfleiknum.
Hann hafði leikið vel og stjórnaði
sóknarleiknum af röggsemi, eins
og í fyrsta leiknum. Aron Kristjáns-
son tók stöðu Dags og stóð sig
vel. „Ég setti Erling Richardsson í
Evrópusambandið vísaði Marseille
úr Evrópukeppninni sl. mánu-
dag, vegna meintra mútugreiðslna
fyrir deildarleik sl. vor. Tapie kærði
ákvörðun UEFA til dómstóls í Bem
í Sviss, þar sem UEFA hefur aðset-
ur, og féll dómur franska liðinu í
hag. En Tapie fór síðan að fyrirmæl-
um FIFA, eftir að hótun barst um
alþjóðlegt leikbann á frönsk lið. Tapie
tók ákvörðun sína „með heill fran-
skrar knattspyrnu í huga,“ eins og
það var orðað. Hann tilkynnti FIFA
ákvörðun sína með símbréfí á meðan
fram fór neyðarfundur um málið í
bakvarðarstöðuna í vörninni í stað-
inn fyrir Dag, en seint í leiknum
breytti ég vörninni, lét Aron aka
einn Egyptann úr umferð þegar
staðan var 17:15 fyrir þá og kortér
eftir, og það gekk vel.“ Staðan
breyttist úr 15:17 í 18:17 fýrir ís-
land, og var það í fyrsta skipti í
hálfleiknum, sem strákarnir kqmust
yfir. Egyptar jöfnuðu en ísland
komst í 20:18, Egyptar jöfnuðu enn
en ísland komst í 23:20; síðan stóð
23:22, 24:22 og 24:23. Island gerði
þá tvö mörk í röð, komst í 26:23,
en heimamenn gerðu tvö síðustu
mörkin.
Páll Þórólfsson gerði 7 mörk úr
7 skotum í leiknum í gærkvöldi og
lék mjög vel, Patrekur Jóhannesson
gerði 6 mörk, þar af 2 úr vítum,
Olafur Stefánsson, Aron Kristjáns-
son og Jason Ólafsson 3 hver, Sig-
fús Sigurðsson 2, og þeir Dagur
Sigurðsson og Róbert Þór Sighvats-
son 1 hvor. Ingvar Ragnarsson stóð
í markinu allan tímann og varði 11
skot.
„Egypska liðið er mjög gott, eitt
besta liðið hérna í keppninni. Ný^
verðum við að reyna að halda okk-
ur á beinu brautinni — við erum
komnir yfir erfiðasta hjallann, en
þó eru enn þrír erfiðir eftir,“ sagði
Þorbergur. Strákarnir leika gegn
Rúmenum í kvöld og líklegustu
andstæðingarnir í milliriðli eru
Svíar, Portúgalir og Argentínu-
menn. Svíar eru með 4 stig eftir
tveggja marka sigur á Austurríki
og eins marks sigur á Argentínu.
Portúgal gerði jafntefli við Argent-
ínu og vann Austurríki. Portúgal
og Svíþjóð mætast í kvöld.
höfuðstöðvum FIFA í Zúrich i Sviss,
þar sem saman voru komnir forystu-
menn FIFA og UEFA auk, forseta
franska knattspyrnusambandsins.
Niðurstaða málsins er því sú að
Evrópumeistarar Marseilie fá ekki
tækifæri til að veija titil sinn, en lið
Mónakó kemur inn í Evrópukeppni
meistaraliða í staðinn sem fulltrúi
Frakklands, og mætir því gríska lið-
inu AEK frá Aþenu í fyrstu umferð
á miðvikudaginn.
Auxerre tekur sæti Mónakó í
UEFA-keppninni og mætir spænska
félaginu Tenerife.
2.DEILD KVENNA
Haukar upp með Hetti
Haukar úr Hafnarfirði tryggðu sér í gærkvöldi rétt til að leika í 1.
deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar, er liðið sigraði Reyni frá
Sandgerði 6:0 á heimavelli sínum. Höttur frá Egilsstöðum, sem hafði
þegar tryggt sér sigur í 2. deild kvenna, gerði í gærkvöldi jafntefli,
1:1,,við lið Dalvíkur fyrir norðan. Þetta voru síðustu leikir deildarinnar.
KNATTSPYRNA
Tapie hætti við máls-'
sókn eftir hótun FIFA
BERNARD Tapie, forseti f ranska knattspy rnuliðsins Marseille,
féll í gær frá málssókn sinni gegn Knattspyrnusambandi Evrópu
(UEFA) skv. kröfu alþjóða sambandsins (FIFA). Frakkar anda þar
með léttar, því FIFA hafði hótað að setja félags- og landslið
þeirra í leikbann, færi Tapie ekki að fyrirmælum UEFA. Þá óttuð-
ust Frakkar jafnvel, að héldi Tapie uppteknum hætti, myndi FIFA
endurskoða ákvörðun sína um að halda úrslitakeppni heims-
meistaramótsins árið 1998 í Frakklandi.