Morgunblaðið - 18.09.1993, Síða 19

Morgunblaðið - 18.09.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 19 Sex líffæri grædd í fimm ára stúlku Er þungt haldin eftir líffæragjöf New York, Pittsburgh. The Daily Telegraph., Reuter. LAURA Davies, fimm ára stúlka frá Bretlandi, var ekki úr lífs- hættu í gær eftir að hún hafði gengist undir 15 klukkutíma að- gerð þar sem grædd voru í hana sex líffæri. Aðgerðin var gerð á barnaspítalanum í Pittsburgh í Bandaríkjunum og var önnur til- raunin til að bjarga lífi Lauru. Grædd voru í hana þarmar (smá- þarmar og digurgirni), lifur, magi, bæði nýru og bris. Fyrir ári síðar var smágirni og lifur grætt í Lauru en sú aðgerð heppnaðist ekki sem skyldi og því var ákveðið að framkvæma um- fangsmeiri líffæraflutninga. Fjögur börn hafa gengist undir þarma-, maga-, lifrar- og brisígræðslu og eru þau öll á lífi. Þetta er hins veg- ar í fyrsta skipti sem nýru eru einn- ig flutt við þessar aðstæður. Laura Davies fæddist með sjúk- dóminn gastroschisis, sem gerir henni ókleift að melta fæðu. Henni hefur því verið gefin næring í æð en það skaðaði lifrina og því var Líffæraþeginn LAURA Davies á blaðamanna- fundi fyrr í mánuðinum. Hún er pkki úr lífshættu eftir líffæraíg- ræðlsuna á fimmtudag. eina leiðin til að bjarga lífi hennar að græða hluta meltingarvegsins og nýja lifur í hana. Nágrannar hennar stóðu fyrir fjársöfnun til að senda hana til Bandaríkjanna og Fahd, konungur Saudi-Arabíu, bætti um betur er hann frétti ai veikindum Lauru. Sikiley Mafían myrðir prest Róm, Palermo. Reuter. ** JÓHANNES Páll páfi gagnrýndi í gær harðlega morð mafíunnar á prestinum Guiseppe Fuglisi á miðvikudagskvöld og hvatti glæpasam- tökin til að hætta að úthella blóði saklausra. Fuglisi, sem var skotinn í hnakkann fyrir utan heimili sitt í Palermo á Sikiley, hafði oft gagnrýnt mafíuna í ræðum sínum og varað ungt fólk við að ganga til liðs við samtökin. Þúsundir Sikileyinga vottuðu hinum látna virð- ingu sína í gær. „Þetta er gjörbylting hvað varðar vinnubrögð mafíunnar. Við verðum að bregðast mjög harkalega við. Viðbrögðin eiga að vera þau sömu og ef um stóra mafíuárás hefði verið að ræða,“ sagði öldungadeild- arþingmaðurinn Luciano Violante, formaður þeirrar nefndar ítalska þingsins sem hefur baráttuna gegn mafíunni með höndum. Morðið á Fuglisi er fyrsta mafíu- morðið á presti í fimmtán ár og sögðu leiðtogar kirkjunnar á Sikiley að þeir myndu ekki láta þetta hræða sig heldur herða baráttuna gegn mafíunni. Fjórir mánuðir eru nú liðnir frá því að Jóhannes Páll páfi fordæmdi mafíuna og hvatti kirkjuna til að beijast gegn henni. Telja margir fréttaskýrendur að morðið á Fuglisi hafi átt að vera viðvörun frá maf- íunni. Ranghugmyndir og hræðsla GEÐKLOFI veldur sinnuleysi og ranghugmyndum, einnig tíðum ofskynjunum og hræðsluáráttu, fólk verður oft ófært um að bjarga sér í lífsbaráttunni. Talið er að þriðjungur allra heimilis- lausra manna í Bandaríkjunum þjáist af þessum sjúkdómi. að geðklofi sé ekki einn sjúkdómur heldur flokkur sjúkdóma og þurfi hver tegund sitt lyf. En clozapine er ekki gallalaust. Lyfið var sett aftur á markaðinn 1989 eftir tveggja áratuga hlé. Það var upphaflega tekið af honum vegna þess að í ljós kom að það gat valdið sjaldgæfum blóðsjúk- dómi, agranulocytosis, sem veldur tjóni á hvítu blóðkornunum. Síðar kom í ljós að mjög fáir notendur fá blóðsjúkdóminn og þar að auki er hægt að berjast gegn honum með tíðum blóðrannsóknum. Helgi Kristbjarnarson, sérfræð- ingur á Landspítalanum, sagði í samtali við Morgunblaðið að clozap- ine hefði verið notað hér á landi í nær áratug, við hefðum verið langt á undan Bandaríkjamönnum og fleiri þjóðum í þessu tilliti. Áður hefðu menn notast við önnur lyf, þ. á m. klórprómazín, sem er skylt thorozine. Hann sagði að um 10% geðklofasjúklinga lifðu sjúkdóminn ekki af. Menn hefðu því metið það svo að ekki væri hægt að láta áður- nefnda hættu á blóðsjúkdómi, sem aðeins um einn af hundraði notenda fengi, koma í veg fyrir notkun clozapine hér á landi. Raddir hafna lyfjum Þótt það takist ef til vill að upp- götva lyf sem engum aukaverkun- um valda verður ekki hægt að út- rýma geðklofa, að sögn lækna. Venjulega hrakar sjúklingum ef þeir hætta að taka lyfin. Bent er á að þeir sem þjakaðir eru af ýmsum algengum sjúkdómum hneigist til að hætta að nota lyf þegar þeim er farið að líða vel. „Þessi hætta er enn meiri hjá geðklofasjúkling- um,“ segir Jerome Rogoff, prófess- or við læknadeild Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. „Ég er með sjúkl- inga sem neita jafnvel að nota sum lyfin, þeir segja að rödd hafi tjáð þeim að þau séu hættuleg". Hvað sem þessu líður eru flestir á því að nýju lyfin verði mjög til bóta, jafnt fyrir sjúklingana sem þá er rannsaka geðklofa. Hinir síð- arnefndu muni öðlast meiri og betri innsýn í leyndardóma veikinnar með því að kanna áhrif lyfjanna og tak- markanir þeirra. Samantekt: Krislján Jónsson. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 671800 Fjörug bílaviðskipti Vantar árg. '88 - '93 á staðinn, ekkert innigjald. Opið laugard. kl. 10 -17, sunnud. kl. 13 -18. VISA ISLAND NIIÐMERBKR.'ÍWÖ' sértkboð mm FULLORÐNIR KR. 2.250 BÖRN VNGRÍEN13ÁR^KR-— O 1993 HARLEM GLOBETROTTERS GEGN WASHINGTON GENERALS T K O h.f. LAUGARDALSHÖLLIN 14. OKT. 1993 KL. 20:30 ÍÞRÓTTAHÖLLIN AKUREYRI 13. OKT. 1993 KL. 20:00 ÍÞRÓTTAHÚSIÐ KAPLAKRIKA 12. OKT. 1993 KL. 20:30 Sölustaðir: STEINAR MYNDBANDALEIGA HAFNARFIRÐI STEINAR AUSTURSTRÆTI SKÍFAN KRINGLUNNI SPORTHÚSIÐ AKUREYRI UPPL. OG SALA MEÐ KREDITKORTUM: í SÍMA 99 66 33 Viö getum sjálf haft áhrif á velgengni okkar í starfi og starfsmöguleika meö því að afla okkur nauösynlegrar menntunar. Tölvuskóli Stjórnunarfélagsins og Nýherja býöur upp á alhliða nám í notkun einmenningstölvu- búnaðar sem nefnistTölvunotkun í fyrirtækjarekstri. Náminu er ætlaö að veita heildarsýn yfir möguleika einmenningstölva í rekstri Birna Eggerlsdóttir meö sjálfstæðan rekstur fyrirtækja og alhliða þjálfun í notkun þess búnaðar sem algengastur er í dag og um næstu framtíð. Útskrifaðir nemendur eru fjölhæfir starfsmenn, reiðubúnir aö nýta sér tölvur til lausnar á daglegum verkefnum og í stakk búnir til aö veita öörum tölvunotendum ráögjöt og aðstoð. Fjölhæfur starfsmaöur getur mætt síbreytilegum kröfum vinnumarkaðarins i dag. Kristján Þ. Sigfússon veitingamaöur Argentínu - steikhúsi * Ég rek lítiö auglýsingafyrirtæki ásamt öörum. Viö tókum aö okkur skiltagerö, glugga- og bílamerkingar, gerö nafnspjalda o.fl. Ég haföi ekki snert á tölvu áöur en ég fór í námiö en nota nú Coreldraw, ritvinnslu og önnur forrit tii aö vinna t.d. grafík og texta. Námiö hefur því komiö mér aö miklu gagni í sambandi viö mína aivinnu. Núna get óg unniö sjálfstætt og lesið mér til ef mig vantar einhverja ákveöna kunnáttu þar sem námiö veitti mér mjög góöa alhliöa undirstööu í notkun tölvu. Aö mínu mati var námskeiöið kærkomiö tækifæri til aö kynnast ofan í kjölinn helstu forritunum sem notuö eru á flestum nútímaskrifstofum. Ég haföi notaö Excel og Word í starfi mínu, en vegna sífelldrar tímaeklu bjóst ég ekki viö aö ná öllum sem þessi forrit bjóöa uppá nema á námskeiöi sem þessu. Eftir þessa vetrardvöl hjá Tölvuskólanum semur mór og tölvunni minni mun betur og heföi ég ekki viljaö missa af þeirri kennslu sem þarna fór fram. Kann ég frábærum kennurum hjá Tölvuskólanum bestu þakkir. Námskeiðcþættir Umbrot 24 klst. Grunnur 12 Klst. Gagnavinnsla 24 klst. Windows 24 klst. Nou . .i 12 klst. Ritvinnsla 36 klst. Tölvupóstur 3 klst. Tödureiknir 36 klst. Gerð kynningarefnis 12 klst. Myndvinnsla 21 klst. Jóla- og lokaverkefni 24 klst. Námiö er 228 klukkustundir (19 vikur) og hefst 4. október 1993 og lýkur 10. mars 1994. Kennsla fer fram aö Skaftahlíö 24, Reykjavík (húsi Nýherja) frá kl. 16.10 -19.10 fjóra daga í viku (mánud. til fimmtud.). Stjómunarfólag íslands STJÓRNUNARFÉLAGS (SLANDS OG NÝHERJA SKRANING I SIMUM 62 10 66 OG 69 77 69 <Ö> NÝHERJI AlUaf skrefi á undan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.