Morgunblaðið - 18.09.1993, Síða 31

Morgunblaðið - 18.09.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 31 Morgunblaðið/Þorkell Hinn íslenski Elvis var Þorsteinn Eggertsson kallaður og hann sýndi góða Elvistakta á Rokk-93. í baksýn sést gamla rokklandsliðið. Gamlar rokkstjörnur rifja upp rokkárin Skemmtanir Guðm. Sv. Hermannsson Hefðbundnar vetrarskemmtanir stóru dans- og veitingahús- anna eru hafnar og að þessu sinni ríður Hótel Island á vaðið með upp- rifjun á íslensku rokkárunurri, Rokk- 93. þetta er í raun ný uppfærsla á skemmtun sem færð var upp á Broadway fyrir 10 árum og vakti þá mikla lukku. Þar tróðu upp marg- ir þeirra íslensku rokksöngvara sem komu fram á sjónarsviðið í lok sjötta og byijun sjöunda áratugarins og nú, 10 árum síðar, stíga þessar ís- lensku rokkstjömur aftur fram á sviði. Það er greinilegt að nú árar ekki fyrir íburðarmiklár skemmtidagskrár og það sést meðal annars á því verð- ið á Rokk-93 er nokkru lægra en til dæmis á Hljómaskemmtuninni sem sett var upp á Hótel íslandi fyrir réttu ári. Enda er mun minna lagt í umbúnað þessarar skemmtunar eij svipaðra á undanförnum árum. Þeg1- ar undirritaður fór á Rokk-93 síðasta laugardagskvöld var engin efnisskrá til staðar og enginn prentaður mat- seðill enda var aðeins um einn for- rétt, einn aðalrétt og einn eftirrétt að ræða. Hins vegar var boðið upp á ágætan vínlista þar sem flestir ættu að gefa fundið borðvín í verð- flokki við sitt hæfi. Forrétturinn var léttreyktir sjávar- réttir með sinnepssósu. Þetta var nokkuð vel heppnaður réttur; Reyk- bragðið af fiskinum var nokkuð áber- andi en samt milt. í aðalrétt var lam- basteik með koníakssveppasósu. Þótt þarna sé eldað fyrir nokkur hundruð manns í einu var kjötið gott og pass- lega steikt. Á eftir var kaffn's. Við hjónin vorum sammáia um að þetta hefði verið ágætis máltíð þótt hún væri ekki sérlega spennandi. Þá hófst skemmtidagskráin... Að borðhaldi loknu hófst skemmti- dagskráin. Þorgeir Ástvaldsson var sögumaður og kynnti söngvarana lít- illega áður en þeir hófu upp raust sína. Þeir sem komu fram voru Þor- Siggi Johnny brá sér meðal ann- ars í gervi Louis Armstrongs. steinn Eggertsson, Astrid Jensdóttir, Þór Nielsen, Siggi Johnny, Anna Vilhjálms, Mjöll Hólm, Stefán Jóns- son, Einar Júlíusson og Berti Möller. Fleiri voru auglýstir en engiri skýring var á hvers vegna þá vantaði. Nokkrir söngvaranna syngja enn dægurlög að staðaldri en í öðrum heyrist sjaldnar. Áhugamennirnir í hópnum stóðu sig þó að mati undir- ritaðs engu síður en atvinnumennim- ir á sviði Hótels íslands. Að öðrum ólöstuðum sýndi Siggi Johnny þó mestu tilþrifin, einkum þegar hann brá' sér í gervi Louis Ármstrongs. Hljómsveit undir stjóm Gunnars Þórðarsonar tók góðan þátt í dag- skránni og á eftir léku styrktir Hljómar fyrir dansi. Heildarsvipurinn á skemmtuninni var fagmannlegur þótt hún hefði ef til mátt vera aðeins tilþrifameiri. Þetta var þó ágætis skemmtun og flestir ættu að geta átt notalegt kvöld með gömlu rokkstjörnunum á Hótel íslandi. COSPER HOTELVORUR * * A * * HEILDVERSLUN Borgartúni 29, sími 617790, fax 617794 VEITINGAMENN - MA TREIÐSL, UMENN Hr. Jurgen Eisemuth matreiðslumeistari svarar fyrirspurnum og eldar mat í ofninum. Missið ekki af kynningu á BECK gufuofninum frá Þýskalandi á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll 15.-19. sept. NÚ ERU 10 AR SIÐAN STORSYNINGIN ROKK '83 SLÓ SVO RÆKILEGA í GEGN Á CROADW/ir AF ÞVÍ TILEFNI OG VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA SETJUM VIÐ UPP SÝNINGUNA ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ A HOTEL ISLANDI KYNNIR ER ÞORGEIR ÁSTVALDSSON. GAMLA ROKKLANDSLIÐIÐ ÁSAMT STÓRHUÓMSVEIT GUNNARS ÞÓRpARSONAR SEM SKIPA: Næstu sýningar 18. sept. 2. okt. 16. okt. 23. okt. Ásgeir Steingrímssön - He&’'Mouer Miða- og borðapantanir milli kl. 13.00 -17.0( alla daga í S - 68 71 11 ^UVITUIt/^ K M4TSEÐILL Sjóvarréttatrío m/si ★ FRÆGASTA HUÓMSVEIT ★ ALLRATÍMA HLJÓMAR LEIKA FYRIR DANSIÁSAMT ★ ROKKSTJÖRNUNUM ★ TILKL3.00 Verð kr. 3.900.- m/sýningu og mat Verð kr. 1.500,- m/sýningu Verð kr. 1.000,- eftir sýningu Lambahneíusteik m/bakaðri kortöflu Kaffiís m/shi ROKKSTJÖRNURNAR TILVALIÐ FYRIR T.D VINNUSTAÐAHÓPA FÉLAGASAMTÖK 0G SAUMAKLÚBBA Þór Nielsen Harold G. Haralas Stetan Jonsson MjöllHólm Garðar Guðmunds. JMtovgpiiifrlatoife MetsöluHad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.