Morgunblaðið - 21.10.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993
11
Gestaleikur í Þjóðleikhúsinu
Spánskir dansar o g Flamenco
_________Listdans______________
Ólafur Ólafsson
Gestaleikur frá Sevilla: Flamenco.
Dansarar: Gabriela Gutarra, Juan
Polvillo.
Söngur: José Manuel Pico Lopez.
Gítarleikur og söngur: Antonio
Bernal.
Klapp: Leil Gutarra.
Danshöfundar: Gabriela Gutarra,
Juan Polvillo.
Þjóðleikhúsið, október 1993.
Það eru fá lönd, sem geta státað
af jafnríkri dansmenningu og Spánn.
Dansinn er þjóðargersemi Spánverja
og Flamenco er nánast vörumerki
landsins. Hann er markvisst notaður
í baráttunni um athygli og til að laða
ferðamenn til Spánár. Reyndar má á
Spáni (og í öðrum löndum) finna út-
vatnaða dansa, sem kenndir eru við
Flamenco og oftar en ekki eru sniðn-
ir að þörfum og kröfum skemmtiiðn-
aðarins. Þá er menningararfur og
metnaður oft látinn víkja. Því var það
ánægjulegt að verða vitni að stórkost-
legum spönskum dansi og Flamenco
í Þjóðleikhúsinu, þar sem fóru verð-
ugir fulltrúar spánskrar menningar
og góðir listamenn í söng og dansi.
Spánskir dansarar og Flamenco
eru dansaðir af tjáningarþörf. Söng-
urinn, ljóðin og hrynjandin í tónlist-
inni eru samofin dansinum og tján-
ingunni. Dansinn er miðill, þar sem
líkaminn er notaður til að segja frá.
Tilfinningin þarf að berast frá gólf-
inu, um líkamann til hjartans og það-
an til áhorfandans. Þannig lætur
góður Flamenco engan ósnortinn,
heldur hrífur og heillar.
Aðalgestur Þjóðleikhússins, Gabri-
ela Gutarra, hefur hlotið góð um-
mæli sem túlkandi spánskra dansa.
Hún hefur sótt menntun sína til
fremstu Flamencodansara. Hún er
ung, en hefur samt náð verulegum
tökum á dansinum, sem er annað og
meira en stapp í gólfið og eitthvert
handapat út í loftið. Öll líkamsstaðan
skiptir máli og líkaminn í heild sem
eitt hljóðfæri. Þetta mátti strax sjá
í upphafsatriði sýningarinnar „Alger-
ias de Cadiz“, þar sem handahreyf-
ingar Gutarra og líkamsbeiting henn-
ar var hrífandi. Gutarra var með tvo
aðra eindansa á efnisskránni; „La
Farruca" (sem reyndar er karldans)
og „Martinete y Seguiriya“. Bæði
þessi atriði voru flutt af innlifun og
glæsileik. Dansstíllinn krefst mun
meira af dansaranum en bara tækni
og úthalds. Túlkun og leikræn tjáning
verða líka að vera til staðar.
Einn karldansari, Juan Polvillo, var
með Gutarra í för. Sýningin er kynnt
sem gestaleikur hennar. Hún þarf að
standast væntingar, sem hún gerir á
sannfærandi máta. En Juan Polvillo
kom mér á óvart, því hér var á ferð-
inni albesti Flamencodansari, sem ég
hef séð. Hann átti einn eindans,
„Soleá por Bulerias" sem var einna
mest „leikhúsið" í sýningunni. Stór-
kostleg tækni og karlmannleg reisn.
Reyndar dönsuðu þau aðeins saman
í einu atriði „Cana“. Spánskir dansar
hafa ríka hefð og eiga einar stöður
og form, líkt og klassíski ballettinn.
Það er samt makalaust, hvað hlut-
skipti -karldansarans er samt ólíkt í
tvídansi þessara listgreina. Á meðan
karldansari í klassískum dansi hefur
mátt lúta í lægra haldi fýrir kvend-
ansaranum og virkar oft aðeins sem
„lyftari og styðjari'“ (í tvídansinum
vel að merkja), hefur hann haldið
sjálfstæði sínu í spánska dansinum.
Og þrátt fýrir að dansararnir snertist
nánast ekki, þá er nálægð þeirra
engu minni.
Það er alltaf dálítið erfítt að horfa
á Flamenco á sviði. Sitja bara aðgerð-
arlaus í sæti sínu og horfa á. Lýsingu
var mjög lítið beitt í sýningunni.
Glæsilegir búningar nutu sín heldur
ekki nógu vel og það er alltaf erfitt
að dansa upp við svartan dimman
bakgrunn. Samt tókst listamönnun-
um að bræða hug og hjörtu áhorf-
enda þessa kvöldstund.
Mig grunar að þessi góða sýning
hafi farið framhjá mörgum og það
er miður. Það hefði mátt kynna hana
mun betur, því hún var góð landkynn-
ing og gott dæmi um það, hvernig
þjóðleg lsit getur auðgað mannlífið.
Skelltu þér I helgarferð með SAS!
Fargjöldin gilda til 31. mars 1994
Keflavík - Kaupmannahöfn 27.500 Keflavík - Kalmar 32.520
Keflavík - Osló 27.500 Keflavík - Váxjö 32.520
Keflavík - Stavanger 29.140 Keflavík - Vesterás 32.520
Keflavík - Bergen 29.140 Keflavík - Örebro 32.520
Keflavík - Kristiansand 29.140 Keflavík - Helsinki 33.190*
Keflavík - Stokkhólmur.... 27.500 Keflavík - Tampere 33.190*
Keflavík - Gautaborg 27.500 Keflavík - Turku 33.190*
Keflavík - Malmö 29.140 Keflavík - Hamborg 29.140
Keflavík - Norrköping 32.520 Keflavík - Frankfurt 29.140
Keflavík - Jönköping 32.520 Keflavík - París 29.140
Lágmarksdvöl aðfararnótt sunnudags, hámarksdvöl 4 nætur. *Hámarksdvöl 4 dagar. Börn og unglingar frá 2ja tii 12 ára fá 50% afslátt.
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína
eða söluskrifstofu SAS.
M/SAS
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11
P42.61/SÍA