Morgunblaðið - 21.10.1993, Síða 18

Morgunblaðið - 21.10.1993, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 Fyrirlestur um náttúrulegar málningavörur og yfirborsefni á Hótel Loftleiðum HJÓNIN Rosi B. Carlsen og Freddy Carlsen komu nýlega til lands- ins í því skyni að halda fyrirlestur um náttúrulegar málningavör- ur og yfirborðsefni. Fyrirlesturinn verður haldinn að Hótel Loft- leiðum nk. laugardag kl. 10-18. í fréttatilkynningu sem Daglegu lífí hefur borist segir að kynnt verði 100% náttúruleg málninga-og yfir- borðsefni sem fáanleg séu hér á landi. „Þetta er námskeið um heil- næm húsakynni og eiginleika Livos náttúrulegra málningavara og ann- ara yfirborðsefna. Samkvæmt upp- lýsingum frá samtökum gegn asma og ofnæmi, hefur tíðni þessara sjúk- dóma aukist um 40% hér á landi á síðustu áratugum. Rosi og Freddy munu fjalla um tengsl milli ýmissa sjúkdóma og umhverfisþátta. Þau eru í forsvari fyrir fyrirtæki sem á undanfömum 20 ámm hefur þróað 90 vörutegundir til að meðhöndla yfirborð innan dyra sem utan, sem skaða hvorki heilsu né vistkerfi," segir meðal annars í tilkynningunni. Hluti af málverki í Lasacaux-hellinum, sem málað var með náttúru- legum litum fyrir um 20 þúsund árum að því er talið er. Föt seld í heimahúsi ÞAÐ hafa margir farið á svo- kallaða Tupperware kynningu í heimahúsum en nú er líka far- ið að bjóða upp á fatakynningu í heimahúsum og heitir merkið sem verið er að selja Friendtex. Sölumenn mæta á staðinn með sýnishom af öllu því sem í bækl- ingi fyrirtækisins er og þá geta verðandi viðskiptavinir handfjatlað vöruna áður en þeir panta. Um er að ræða flíkur úr ekta efnum, ull og bómull og kemur fatnaðurinn frá Danmörku. Friendtex fatnaður er kynntur á þennan hátt í Nor- egi, Svíþjóð, í Finnlandi, Þýska- landi, Hollandi, í Danmörku og hér á landi. Nýr listi kemur tvisvar á ári og af og til koma aðrar nýjungar. Ókeypis básar íKolaporti fyrir heimilislistmuni „ VIÐ höfum áhuga á að auka enn frekar úrval af heimavinnu og heimilislist í víðasta skilningi. Þess vegna bjóðum við söluaðil- um þeirra ókeypis sölubása á sunnudaginn," segir Jens Ing- ólfsson hjá Kolaportinu. Undanfarið hafa söluborð fyrir heimaunninn vaming verið á lægra leiguverði en aðrir básar, eða 1.245 krónur hver lengdarmetri. „Við emm sannfærð um að gestir mark- aðstorgsins kunni vel að meta heimagerða hluti auk þess sem sala þeirra getur verið góð tekjulind fyr- ir þá sem era laghentir. “ ■ cy< Hv að kostar [júklingurinn heima? Kjötog Fjarðar- Nóa- Hag- Garða- fiskur kaup tún kaup kaup Kr./kg Bónus Holtakjúklingar 610 610 610 610 Klettakjúklingar 599 595 610 ísfuglskjúklingar 588 598 Kraftkjúklingar 599 Móakjúklingur 569 Holtakjúklingalæri 799 799 799 Klettakjúklingalæri 953 Móakjúklingalæri 739 Holtakjúklingabringur 1.069 Klettakjúklingabringur 953 Móakjúklingabringur 879 Holtakjúklingavængir 589 589 589 i Kjúl VIKUNNAR I di ngai *eru þrisvar sinnum ódýrari í Kaupmannahöfn en í Reykjavík ALGENGT meðalverð á heilum, frosnum kjúklingum út úr búð hér á höfuðborgarsvæðinu er nálægt 600 krónum kílóið. Á sama tíma borgum við að meðaltali 450-490 krónur fyrir kílóið af ýsuflökum og ef lambakjöt er keypt í skrokkum kostar kílóið af nýslátruðu um 480 krónur. Jón Ásgeir Jóhann- esson í Bónus hefur verið að athuga innkaupsverð á kjúkling- um erlendis og hann segist geta selt útlenda kjúklinga á 135 krónur kílóið út úr Bónus. Kjúklingar eru mun ódýari erlendis en hérlendis ef marka má þá verðkönnun, sem Daglegt líf lét gera í fjóram borgum er- lendis. Þar var verðið frá 127 krónum kílóið í London og vel að merkja var verðkönnunin er- lendis ekki gerð í ódýrum stór- mörkuðum. Hjá versluninni Vegamót á Seltjarnarnesi eru kjúklingar seldir á 498 krónur kílóið. Skýr- ingin er, að söígn eigandans, sú að um annan flokk er að ræða, hann fær góðan staðgreiðsluaf- slátt og leggur lítið á vöruna. Það vakti einnig athygli okkar á ferð um bæinn hversu hag- stætt er að kaupa unghænur. Þær eru iðulega á 285 krónur kílóið og hjá Nóatúni voru ung- hænur á tilboðsverði á 199 krón- ur stykkið. Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna, segist ekki sjá neitt sem rétt- læti svo hátt kjúklingaverð hér á landi. „Þessi mikli verðmunur kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Við höfum lengi vitað að kjúkl- ingar væru seldir á allt of háu verði hér á landi og það er jafnó- þolandi í dag eins og það hefur alltaf verið. Krafan um innflutn- ing landbúnaðarafurða kemur til með að njóta vaxandi stuðnings ef ekki verður breyting til batn- aðar. Það má vissulega finna ákveðna þætti, sem skýra ein- hvern verðmun, og ég tek fylli- lega undir kröfu kjúklinga- bænda um afnám fóðurbæti- skatts. Hinsvegar skýrir 25% gjald á fóður ekki þetta háa verð til neytenda. Ég hlýt að gera kröfu um að. kjúklinga- bændur líti í eigin barm,“ segir Jóhannes. Að sögn Bjarna Ásgeirs Jóns- sonar formanns kjúklingabænda eru til skýringar á þessum verð- mun erlendis og hér. „Grannur- inn er að íslenskir kjúklinga- bændur eru með lélegri stofna en bændur erlendis og verið er Hvað kostar Kr./kg kjúklingurinn ytra? London Kaupmannahöfn New York Zurich 127* 200 229 365 London var um tilboðsverö að ræða, venju- lega kostar kg. um 150 kr. að vinna í að laga stofna hér á landi.“ Þá fullyrðir Bjarni Ás- geir að fóðurverð sé mun hærra hér en annarsstaðar í heiminum. „Algengt verð á kílói erlendis er 15-20 krónur á meðan ís- lenskir kjúklingabændur borga um 35 krónur á kílóið.“ Þá seg- ir hann að kjúklingar af lélegum stofnum éti meira en kjúklingar af góðum stofnum. Því væri kostnaður við fóður meiri hér en annars staðar. Svipaðan tæknibúnað þarf að hafa í 10.000 kjúklinga húsi og 50.000 kjúklinga húsi og fámennið hér á landi og smæð kjúklingabænda á því þátt í þessum verðmun líka. Enginn skattur er lagður á matvæli í London en hér á landi er hann 24,5% og Bjarni Ásgeir segir að danskir bændur fái til að mynda langtíma stofnlán en það sé ekki veitt hér á landi nema upp að vissu marki. „Kjúklingabændur greiða bú- vörugjöld en fá ekki langtímalán að sama skapi.“ Bjarni Ásgeir bendir á að ís- lenskur kjúklingabúskapur gangi illa, ekki síst vegna harðr- ar samkeppni á milli kjúklinga- bænda og samkeppni við annað kjöt á markaðnum. Hann segir að það heildsöluverð sem kjúkl- ingabændur gefi upp standist sjaldan, mikill afsláttur sé oft veittur af því verði. ■ grg/ji

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.