Morgunblaðið - 21.10.1993, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 21.10.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBBR 1993 47 HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA - sagðiZdravko Zovko, þjálfari Króata ísland - Króatía 24:22 Morgunblaðið/Bjami Það tókst! JULIUS Jónasson faðmar Dag Sigurðsson að sér eftir að sigurinn var í höfn. Júlíus stóð sig frábærlega eftir að hann stillti fallbyssuna. Geir Sveinsson er til hægri. Möguleiki á Portúgals- férð án efa raunhæfur ISLENDINGAR sýndu f gærkvöldi að þeir eiga að geta komist í úrslitakeppni fyrstu Evrópukeppni landsliða í handknattleik, sem fram fer næsta vor. Til að það takmark náist er fyrst og f remst nauðsynlegt að sigra í heimaleikjunum og það tókst í þeim fyrsta; 24:22 gegn Króatíu í Hafnarfirði í gærkvöldi. Króatfska liðið er mjög sterkt, bæði sýndu geysigóðan handbolta á köflum en íslend- ingar höfðu betur og fögnuðu mikilvægum sigri, lífsnauðsynlegum reyndar. Sigurvilji íslendinga var meiri og þeir hafa nú þrjú stig eftirtvo leiki. Króatamir virkuðu sterkari fram- an af leiknum og um miðjan hálfleikinn skoruðu íslendingar ekki ■mnm mark í u.b.þ. átta Skapti mínútur. Liðið virk- Hallgrímsson aði ekki sannfær- skrífar andi, sóknarleikur- inn var hálf þung- lamalegur og vörnin opnaðist heldur illa. En svo réttu „strákarnir" úr kútnum, jöfnuðu og komust yfir. Þeir léku frábærlega síðari hluta fyrri hálfleiksins og forystan var tvö mörk í hléinu, 13:11. Snjallt herbragð Eftir erfiðan fyrri part greip Þor- bergur til þess ráðs síðari helming fyrri hálfleiksins að láta Dag Sig- urðsson taka hinn frábæra Puc, aðal skyttu Króata, úr umferð, og það gafst afbragðsvel, svo ekki sé rneira sagt. Puc þessi er besti maður liðs- ins, og þegar hans naut ekki al- mennilega við í sóknarleiknum urðu félagar hans á stundum hálf ráða- lausir. Það hefur væntanlega ekki bætt úr skák að aðal örvhenta skytta liðsins, Saracevic, kom ekki til lands- ins, þannig að enn meira átti að mæða á Puc en venjulega. Islendingar hófu seinni hálfleikinn af sama krafti og þeir luku þeim fyrri og komust fljótlega fjórum mörkum yfír, 15:11. En þá var Héð- ■nn tvívegis rekinn af velli með stuttu millibili, Króatarnir nýttu sér liðs- muninn og höfðu jafnað nánast áður eri nokkur náði að depla auga. Þarna sýndi sig að gegn jafn sterku liði og Króatíu má ekki missa einbeiting- una í sóknarleiknum; svo snjallir andstæðingar geta verið snöggir að færa sér öll mistök í nyt. Leikurinn var í járnum lengst af í seinni hálfleiknum, íslendingar þó ætíð með forystu — nema hvað Kró- atar náðu að jafna 15:15, 16:16, 17:17, 20:20 og 21:21 — og það var Júlíus Jónasson sem sá að mestu leyti um að skora. Króatar, sem beittu svokallaðri pýramídavörn (3-2-1) í fyrri hálfleiknum — komu mjög langt út á móti íslendingum — léku ekki eins framarlega eftir hlé, heldur beittu nánast 5-1 vörn, þar sem einn kom út til að trufla sókna- raðgerðir íslendinga og tók jafnvel einn úr umferð á köflum, annað hvort Héðin eða Júlíus. Breytingin var satt að segja furðuleg, því það Leikgleði og sigurvilji gerðu gæfumuninn - sagði GeirSveinsson, fyrirliði íslands Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson voru ekki með gegn Finnum, en komu nú inn og hafði endurkoma þeirra mikið að segja, en þeir verða einnig með í seinni leiknum gegn Króötum og báðum leikj- unum gegn Hvít-Rússum. „Eftir að hafa horft á Króatana vissi ég að við gætum sigrað þá með því að spila rétt úr þvl sem við höfðum,“ sagði Geir. „Landsliðið hefur verið í löngu fríi og spurningin var hvort það væri gott eða slæmt. Við studdum fríið, töldum það af hinu góða og það kom á daginn. Leikgleðin og sigurviljinn voru fyrir hendi og gerðu gæfumun- inn.“ Geir sagði að útlitið hefði ekki verið sem best, þegar ísland var þremur mörkum undir, 8:5, „en við ætluðum ekki að gefast upp. Á þessum kafla studdum við Guðmund í markinu ekki nógu vel, en við tókum okkur saman í andlitinu og sýndum að við getum. Það hefði ekki verið skömm að tapa fyrir þessu liði, því það er virkilega sterkt, en við drógum úr því vígtennurnar með því að skipta I 5-1 vörn." var greinilegt að þessi vörn hentaði íslendingum betur. og Júlíus raðaði inn mörkum. Hver þrumufleygur hans á fætur öðrum þandi út netam- öskvana. Júlíus var Iengi í gang, gerði ekki fyrsta mark sitt fyrr en um fimm mín. voru eftir af fyrri háifleik, en eftir að hann setti á fullt var drengurinn óstöðvandi og hefur varla leikið betur í landsleik. Guðmundur Hrafnkelsson varði mjög vel, ekki sérlega mörg skot, en erfið. Valdimar lék stærsta hlut- verkið í fyrri hálfleiknum, hélt liðinu allt að því á floti ásamt Guðmundi markverði, með sex mörkum, þar af fjórum úr horninu. Fleiri léku vel; Geir var sterkur í vörn og stóð í ströngu á línunni, þó svo hann hafi ekki oft fengið boltann og Dag- ur, sem reyndar skaut ekki vel, skil- aði varnarhlutverkinu af stakri prýði. Lítur vel út Strákarnir sýndu í gærkvöldi svo ekki vérður um villst að möguleikinn á að fara í úrslitakeppninni er fyrir hendi. Það var reyndar slæmt að gera aðeins jafntefli í Finnlandi í fyrsta leiknum, en nú er aðeins einn leikur eftir erlendis — gegn Króatlu — því HSÍ keypti útileikina gegn Hvlt-Rússum og Búlgörum hingað heim. Hvít-Rússar tóku Finna reynd- ar I kennslustund I vikúnni, en Kró- atar gerðu jafntefli gegn Hvít-Rúss- um I Minsk, þannig að ef allt verður með felldu ætti að vera mögulegt að ná hagstæð úrslit gegn Rússun- um hér heima og það gæti, þegar upp er staðið, reynst mikilvæg kænska af hálfu HSÍ að hafa náð „útileiknum" gegn þeim hingað. Góð frammistaða I þeim leikjum er lykill íslands að úrslitakeppninni, þvi við- ureignirnar gegn Finnum og Búlgör- um hérlendis eiga að vinnast örugg- lega. Zdravko Zovko, þjálfari Króatíu, sagðist hafa átt von á erfiðum leik og það hefði komið á daginn. „Við vissum að ísland er með eitt besta lið I heimi og þrátt fyrir að við séum líka á meðal þeirra bestu gerðum við ekki ráð fyrir sigri þó að því hafi verið stefnt. Ég bjóst við betri leik hjá okkur; við áttum I vandræðum I vörninni og það veikti okkur sálfræðilega að vend án Zlatko Saracevic I sókninni, en hann komst ekki frá Frakklandi. Hins vegar fengum við tækifæri til að gera betur, en einbeitinguna vantaði og mistök fylgdu I kjölfar- ið.“ Zovko sagði að úrslitin hefðu verið sanngjörn. Hann sagðist ekki leggja það I vana sinn að ræða um dómara, en ástæða væri til að vekja athygli á mikilvægi þess að hæf- ustu dómarar væru á mikilvægum leikjum I stórmóti sem þessu. „Dóm- ararnir að þessu sinni voru ekki vandanum vaxnir þó ég kenni þeim ekki um hvernig fór. Þetta ér eitt atriði, sem skipuleggjendur mótsins verða að taka á. Annað er tímasetn»- ing leikjanna. Við eigum erfitt með að fá atvinnumenn okkar lausa og ég er viss um að ísland á við sama ,vandamál að stríða." Hann sagði Hvít-Rússa taka áhættu með því að leika báða leik- ina hér á landi, því þeir væru I baráttu við Króata og íslendinga um tvö efstu sætin. „Ég óska Is- lendingum til hamingju með sigur- inn, en úrslitin I riðlinum ráðast I Zagreb.“ SÓKNAR NÝTING ÍSLAND KRÓATÍA Mðrk Sóknir % / Mðrk Sóknir % 13 25 52 F.h 11 25 44 11 25 44 SJt 1Í 24 46 24 50 48 Alls 22 49 45 9(19) ' Langskot 5(17) : 4(4) Gegnumbrot 1 (3) : . 4(6) Hraðauppniaup 6 (7) I 4(9) Horn 1(3) 1 0(1) Lfna 6(9) 3(41 VW 3{: STAÐAN Fj. leikja U J T Mörk Stig H-RUSSLAND 4 3 1 0 134: 84 7 KROATIA 5 3 1 1 131: 109 7 1SLAND 2 1 1 0 47: 45 3 FINNLAND 3 0 1 2 74: 91 1 BULGARÍA 4 0 0 4 72: 129 0 Kaplakriki, Evrópukeppni landsliða í handknattleik, miðvikudaginn 20. október 1993. Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:3, 5:4, 5:8, 8:9, 11:10, 13:11, 15:11, 15:15, 16:15, 16:17, 19:17, 20:18, 20:20, 21:21, 23:21, 24:21, 24:22. íslands: Júlíus Jónasson 9, Valdimar Grímsson 9/3, Héðinn Gilsson, Ólafur Stefánsson, Dagur Sigurðsson, Geir Sveinsson, Konráð Olavson, Einar Gunnar Sigurðs- son. Gunnar Beinteinsson og Gústaf Bjarnason komu ekki inná. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 10/1 (þar af 1/1 til mótherja) Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Króatíu: Iztok Puc 5, Nenad Kljaic 5, Vladimir Jelcic 5/1, Slavko Goluza 3/2, Alvaro Nacinovic 2, Ivica Obrvan 1, Ratko Tomlijanovic 1. Varin skot: Tonci Peribonio 10/1 (þar af 1 til mótheija). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Jos Nigra og Jean-Marie Spartz frá Lúxem- borg. Áhorfendur: 1.500 Urslitin ráðastí Zagreb

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.