Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 2
2 FRÉTTIR/INIULENT MORGUNBLÁÐIÐ SUNNÚDAGUR 24. OKTÓBER 1993_ __________EFNI
Morgunblaðið/Sverrir
Orkumál til umræðu
STARFSHÓPAR landsfundarins störfuðu í gærmorgun og hófst afgreiðsla ályktana eftir hádegið. A
myndinni eru fulltrúar í starfshópi um orkumál að bera saman bækur sínar.
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lýkur í Laugardalshöll í dag
Kosningunum sjónvarpað
Flugleiðir íhuga sam-
starf við Japani
Flugleiðir
reki Boe-
ing-757
FLUGLEIÐIR hf. hafa að undan-
förnu átt í viðræðum við jap-
anskt fjármögnunarfyrirtæki
um að taka að sér að rekstur á
Boeing-757 flugvél og finna
henni verkefni utan venjulegs
áætlunarflugs. Vélin verður
skipuð íslenskri áhöfn ef samn-
ingar nást.
Japanska fyrirtækið íjármagn-
aði flugvélina upphaflega fyrir ann-
að flugfélag en hefur tekið við
henni aftur. Hefur fyrirtækið að
undanfömu leitað aðila til að sjá
um rekstur vélarinnar og fínna
verkefni fyrir hana.
Einar Sigurðsson, forstöðumað-
ur upplýsingadeildar Flugleiða,
sagði að málið væri ennþá á við-
ræðustigi og myndi væntanlega
skýrast fljótlega. „Við höfum hug
á því að taka þátt í þessu með
samningi um að við sjáum um vél-
ina og leitum verkefna utan okkar
hefðbundna áætlanaflugs. Þetta
yrði því ekki viðbót við okkar flug-
áætlun og við erum að huga að
hvernig hægt sé að takmarka
áhættuna sem allra mest.“ Einar
sagði að öðru hvetju væru verkefni
í boði fyrir fluvélar af þessari gerð.
Flugleiðir gætu á þennan hátt nýtt
betur tæki og mannskap hjá félag-
inu.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í Morgunblaðinu í gær, að
hann teldi forsendur vera fyrir
raunvaxtalækkun og Seðlabankinn
geti notað svigrúm sem hann hafí
til að flýta fyrir því. í samtali við
Morgunblaðið sagði Jón Sigurðsson
að Seðlabankinn hefði þegar gert
nokkuð í þessa átt: Lækkað bindi-
skyldu og vexti gagnvart innláns-
STÖRF landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins i dag, sunnudag, hefj-
ast kl. 10 með umræðum og af-
greiðslu ályktana. Því næst verð-
ur kosið til miðstjórnar og lýkur
þessum lið kl. 12.
Umræðum og afgreiðslu álykt-
ana verður fram haldið kl. 13 og á
afgreiðslu stjómmálaályktunar að
vera lokið fyrir kl. 16.
stofnunum, beitt viðskiptum á verð-
bréfa- og peningamarkaði til þess
að ná fram vaxtalækkun á skamm-
tímamarkaði, gert vaxtaskipta-
samninga við banka og sparisjóði
og nú síðast lækkað vexti sína veru-
lega gagnvart innlánsstofnunum í
viðskiptum við bankann.
„Ég vona að þetta muni vera
innlegg í þá viðleitni að ná fram
Kl. 16 verður kosið til formanns
og varaformanns. Að loknu for-
manns- og varaformannskjöri verð-
ur fundi slitið. Sjónvarpað verður
beint frá kosningunum.
Á hádegi í gær höfðu um 1.200
landsfundarfulltrúar skilað kjör-
gögnum en starfsmenn landsfundar
töldu víst að sú tala ætti eftir að
hækka töluvert. Fyrir fundinn var
reiknað með 15-1600 fulltrúum.
raunvaxtalækkun en í raun og veru
er samt aðalvandinn í málinu mikil
lánsf|'áreftirspurn þrátt fyrir efna-
hagssamdrátt og þar kemur ekki
síst til eftirspum frá ríkinu. Þann
grundvallarvanda verður að takast
á við á þeim vettvangi og þar þarf
að koma mjög ákveðið átak af hálfu
ríkisins í fjármálum," sagði Jón.
Miðað við langtímavexti
Davíð sagði að eðlilegt markmið
væri að ná raunvöxtum niður í 5%.
Um það sagði Jón Sigurðsson, að
Ekkert var sjónvarpað frá lands-
fundinum sl. föstudag og sagði
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins að það
hefði verið af tæknilegum ástæðum.
Sjónvarpsútsendingar frá lands-
fundinum hefðu verið ákveðnar með
skömmum fyrirvara og búið hafi
verið að ráðstafa upptökubíl í annað
verkefni.
erfítt væri að ná fram slíkum tölu-
settum markmiðum með mark-
aðsaðgerðum í nákvæmum
greinum. „Ég bendi á að vextir
Seðlabankans sjálfs í viðskiptum
við innlánsstofnanir eru komnir
niður fyrir þetta þegar litið er á
raunvexti og þar með er hægt að
sjá að hann hefur beitt sínum eigin
vöxtum á þennan hátt, en síðan er
það vandinn, að í bankakerfinu er
ekki örugg tenging milli vaxta á
skammtímamarkaði og vaxta í
bankalánunum. Þar er viðmiðunin
miklu meira við langtímavextina,
spariskírteinavextina, og þar
komum við aftur að fjárþörf
ríkisins, þannig að enginn vafí er
að mikið þarf til að koma frá báðum
hliðum málsins,“ sagði Jón.
Framboð og eftirspurn
Stærstur hluti af fjármagni á
lánsfjármarkaði kemur frá lífeyris-
sjóðum sem stjórnað er af verka-
lýðshreyfingu og vinnuveitendum
sem hafa knúið á um raunvaxta-
lækkun. Jón Sigurðsson var spurður
hvort hann teldi eðlilegt að ætlast
til þess af þessum aðilum að þeir
lækkuðu ávöxtunarkröfuna á ráð-
stöfunarfé sínu burtséð frá eftir-
spurn. „Það eru auðvitað þeirra eig-
in ákvarðanir sem um er að tefla
og ég bendi á að vaxandi hluti af
þessu ráðstöfunarfé lífeyrissjóð-
anna fer núna gegnum verðbréfa-
markað sem ég tel af hinu góða.
Þar verður að haldast í hendur
framboð og eftirspum á skuldabréf-
um. Það má vera að hægt sé að
ná þarna fram breytingum með
þeim hætti sem þama er nefndur,
en grundvallarskilyrðin verða að
vera fyrir hendi því auðvitað geta
fjármunir þá leitað annað,“ sagði
Jón Sigurðsson.
Tilgangurinn helgar
meðalið
►Undanfama daga hefur athyglin
beinst að neikvæðum félagslegum
áhrifum fjárplógsvélanna sem
Rauði krossinn ásamt fleiri líknar-
félögum og Háskóli íslands hafa
bitist um, og ýmsar siðferðilegar
spumingar hafa vaknað. /10
Lífróður Sher-
vardnadze
►Blóðug borgarastyrjöld ríkir í
Georgíu og hættan er sú að allt
Kákasussvæðið logi í ófriði fari
uppreisnarmenn með sigur af
hólmi. /12
Sóknarhugur og sam-
takamáttur
►Haraldur Sumarliðason, for-
maður nýstofnaðra Samtaka iðn-
aðarins og forseti Landssambands
iðnaðarmanna, telur að vaxtar-
möguleikar atvinnulífsins felist í
innlendum iðnaði. /14
Rísandi sól Sean
Connerys
► Skotinn heimsfrægi segir að
hlutverk sitt í kvikmyndinni
Rísandi sól hafi verið klæðskera-
saumað á sig. /18
Veröld sem ég vil
► Gripið niður í Sögu Kvenrétt-
indafélags íslands 1907-1992 eft-
ir Sigríði Th. Erlendsdóttur en
sagan er að koma út um þessar
mundir./24
B
► 1-24
Réttlætistilfinning
►í miðri kreppunni beitti 18 ára
gangastúlka á Landsspítalanum,
Aðalheiður Hólm, sér fyrir stofnun
Starfsstúlknafélagsins Sóknar.
Síðar fluttist hún til Hollands, hef-
ur búið þar allt síðan og er meðal
annars móðir söngkonunnar Vict-
oriu Spans. í viðtali við Morgun-
blaðið lýsir hún merkilegu lífs-
hlaupi sínu. /1
Slóvenía er góöur
kostur
►Svava Bernharðsdóttir víóluleik-
ari og eiginmaður hennar, Matej
Sarc óbóleikari, ráðgera að fara
að ári til starfa í Slóveníu ./8
í vinnu hjá fólkfnu
►í heimsókn hjá Kristjáni Krist-
jánssyni í Wales þegar hann var
þar að hljóðrita þriðju breiðskífu
sína sem væntanleg er á næstu
vikum./lO
BÍLAR_____________
► 1-4
Toyota Celica
► Sagt 1994 árgerð þessa sport-
bíls sem kynntur var í Japan í síð-
ustu viku. /1
Renault Twingo
►Reynsluakstur á þessum nýstár-
lega franska smábíl sem vakið
hefur mikla athygli./2
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 13b
Kvikmyndahúsin 20 Fólk i fréttum 14b
Leiðari 22 Myndasögur 16b
Helgispjall 22 Brids 16b
Reykjavíkurbréf 22 Stjömuspá 16b
Minningar 30 Skák 16b
Útvarp/sjónvarp 40 Bló/dans 18b
Gárur 43 Bréf til blaðsins 20b
Mannlífsstr. Gb Velvakandi 20b
Kvikmyndir 12b Samsafnið 22b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-4
íslendingar keppa á heims-
meistaramóti landsliða í skák
BOÐ um þátttöku íslendinga í heimsmeistarakeppni landsliða í skák
barst Skáksambandi íslands óvænt í fyrrakvöld frá Alþjóða skáksam-
bandinu og fór íslenska liðið utan í gærmorgun. Fyrsta umferð
mótsins var tefld í gær í Luzern í Sviss þar sem mótið er alltaf
haldið á fjögurra ára fresti.
Rétt til þátttöku í mótinu hafa
þær þjóðir sem lenda í fimm efstu
sætunum á Ólympíumóti og sterk-
asta landslið hverrar heimsálfu, þ.e.
Asíu, Afríku, S-Ameríku, N-Amer-
íku og Evrópu. íslandi var boðin
þátttaka vegna forfalla egypska
landsliðsins á síðustu stundu en það
átti að keppa fyrir hönd Afríku.
íslenska liðið varð í sjötta sæti á
síðasta Ólympíumóti.
Að sögn Guðmundar G. Þórarins-
sonar, forseta skáksambandsins,
hafa íslendingar aldrei átt sveit í
þessari keppni þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir til að vera með. „Þó að
þetta hafí komið óvænt upp á voru
menn þeirrar skoðunar að slíku
tækifæri væri ekki hægt að sleppa.
Aðfaranótt laugardags fór því í að
skipuleggja för landsliðsins og leysa
mál sem þurfti að leysa vegna henn-
ar. Eitt þeirra er fjármögnun ferð-
arinnar," sagði Guðmundur.
Þjóðverjar í stað
Helga o g Hannesar
„í liðinu eru Jóhann Hjartarson,
Helgi Ólafsson, Hannes Hlífar Stef-
ánsson og Margeir Pétursson. í gær
hófst alþjóðlegt skákmót taflfélags-
ins Hellis í Gerðubergi og þar voru
skráðir til keppni Helgi Ólafsson
og Hannes Hlífar Stefánsson. Til
þess að íslendingar sem tefla á
mótinu eigi möguleika á titiláföng-
um verður það að vera í ákveðnum
styrkleikaflokki og hann næst m.a.
með því að hafa tvo stórmeistara
meðal keppenda. Þegar Helgi og
Hannes voru teknir- út úr mótinu
til að fara utan urðum við að út-
vega tvo stórmeistara í staðinn fyr-
ir þá til að keppa á mótinu. Aðfara-
nótt laugardags tókst að útvega tvo
Þjóðveija sem eru stórmeistarar og
keppa þeir í stað Helga og Hannes-
ar. Það eru þeir Philipp Schlosser
og Markus Stangl.
Landsliðin __ sem keppa eru frá
Rússlandi, Úzbekistan, Úkraínu,
Armeníu, Bandaríkjunum, Kúbu,
Kína, Sviss, Lettlandi og íslandi.
Keppt verður á fjórum borðum og
getur farið svo að þeir verði að tefla
allir fjórir samtímis án varamanns,"
sagði Guðmundur.
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri um möguleika á raunvaxtalækkun
Lánsfjáreftirspum rík-
isins er meginvandinn
JÓN Sigurðsson seðlabankastjóri segir að aðalvandinn við að ná
niður raunvöxtum sé lánsfjáreftirspurn rikisins og takast verði á
við þann grundvallarvanda. .