Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
3
Þingsályktunartillaga á Alþingi
Heimilt verði að nota
fánann í auglýsingar
GUÐMUNDUR Hallvarðsson og
Árni R. Árnason, þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, hafa lagt
fram tillögu til þingsályktunar
á Alþingi um að forsætisráð-
herra skipi fimm manna nefnd
til að endurskoða ákvæði laga
um þjóðfána íslendinga. Vilja
þingmennirnir að heimilt verði
að nota þjóðfánann á umbúðir
varnings og í auglýsingar á vör-
um.
í greinargerð með tillögunni
segja þingmennirnir að núgildandi
lagaákvæði sem banna notkun
þjóðfánans á umbúðir eða í auglýs-
ingar á vörum eigi ekki lengur við
nein rök að styðjast og benda á
að gæðavörur íslenskrar fram-
leiðslu, sem til útflutnings séú
ætlaðar, geti og eigi að bera glögg
einkenni íslands. Einnig leggja
þeir til að fulltrúar útflutningsráðs
og ferðamála eigi aðild að nefnd-
Fánann á vörur
TVEIR þingmenn Sjálfstæðis-
flokks vilja heimila að þjóðfáninn
verði notaður í auglýsingar á
vörum.
inni sem endurskoði lögin.
„Flutningsmenn telja það í
hæsta máta eðlilegt og við hæfi
að t.d. bæklingar til kynningar á
landi og þjóð og til upplýsingar
fyrir ferðamenn séu áprentaðir
með íslenska þjóðfánanum," segir
í greinargerð tillögunnar.
Læknar mega reka sjálfstæða starf-
semi innan sjúkrahúsa
Legudögum myndi fækka
og rekstrargjöld lækka
ENGIN lagaleg fyrirstaða er fyrir því að læknar reki sjálfstæða
starfsemi í húsnæði ríkisspítala, ef um meðhöndlun á dagsjúklingum
er að ræða, segir Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðismála-
ráðuneytinu. Gunnar Þór Jónsson, prófessors í slysalækningum, seg-
ir sjálfstæða starfsemi lækna mögulega á sjúkrahúsunum og myndu
þeir þá taka ákveðið gjald, e.t.v. 40-50% af innkomu fyrir aðstöð-
-una. „Þá vaknar hins vegar sú spurning hvort ríkið eigi fyrst að
borga rekstur spítalans af fjárlögum og síðan að borga í meðferð
sjúklinga gegnum Tryggingastofnun," segir Gunnar Þór.
Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir
slysa-og bæklunardeildar Borgar-
spítala, segir að þrátt fyrir að þörf-
in sé mest eftir leguplássi á bæklun-
arlækningadeild vegna lokana
deilda, sé einnig þörf á bættu að-
gengi að skurðstofum og ef læknar
tækju að sér dagsjúklinga myndi
ástandið skána á báðum sviðum.
„Stefnan er að gera eins mikið og
hægt er af dagskurðlækningum.
Ef að t.d. 500 aðgerðir væru teknar
út úr hefðbundnum rekstri spítal-
anna og legudögum myndi fækka
í sama hlutfalli, ættu rekstrargjöld
að lækka að sama skapi. Ávinning-
inn væri þá hægt að flytja yfir á
aðra þætti," segir Brynjólfur.
Gunijar Þór segir að rekstur
Landakots og St. Jósefsspítala hafí
verið með ofangreindum hætti ára-
tugum saman, en einnig séu sam-
svarandi fordæmi að finna utan
spítala á ýmsum stöðum í bænum,
s.s. Læknamiðstöðinni í Glæsibæ
og Læknahúsinu við Síðumúla, og
aðgerðir af umræddum toga hafi
verið gerðar víðar, t.d. á Fæðingar-
heimilinu á sínum tíma.
FRUMSVNING UM HELGINA
WS6&H8k Opíð laugardag og sunnudag kl. 12-16 ■■■
TWINGO ER SMÁBÍLL FRAMTÍÐARINNAR -SÁ SEM FÆR
BÍLASPEKÚLANTA TIL AÐ HUGSA. 3.43 METRA STUTTUR,
55 HESTAR, 6 6ÍRAR (ÞAR AF EINN AFTURÁBAK).
ÞETTA GEFUR ÖÐRUM ÓTAL ÁSTÆÐUR TIL AÐ BLIKNA
AF ÖFUND. Ö6RUNIN 6ENGUR LEN6RA. VE6NA
LÍFLE6RA LITA ER ENDALAUST SKE66RÆTT UM
TWIN60. AÐ INNAN Ö6RAR HANN HEFÐBUNDNUM
FORMUM. TWIN60 ER FULLUR NÝJUN6A, LÍKA í VERDI
SEM ER KR. 838.000,- EÐA MINNA.
TWIN60 ER EINS 06 ÞÚ: ÁKVEÐINN
06 BARA TIL í EINNI ÚT6ÁFU - ÞEIRRI BESTU!
ðrr&gp -
YKTUR SMABILL
Bílaumboðið hf. renault
Krókháisi L 110 Reykjavík, sími 686633 á