Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 18

Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 sama; að græða peninga. Aðferð- irnar eru hins vegar ólíkar, hvar sem borið er niður. Bandaríska nálgunin er miklu brotakenndari og hampar einstaklingnum og ofur- huganum í viðskiptum. Japanirnir eru hins vegar þaulskipulagðir í sinni hópvinnu og grímulausu heild- arhyggju. Mér finnst mjög snjallt að draga þennan mismun fram í spennumynd." Ekki kynþáttahatur Hefur Rísandi sól pólitískan boð- skap eða þjóðfélagsgagnrýni fram að færa? „Flestar kvikmyndir hafa póli- tískan boðskap. Flestar myndir hafa einhvetja sýn á þjóðfélagið, sem hlýtur þá að vera pólitísk. Ef Rísandi sól segir eitthvað um bandarískt þjóðfélag er það að spillingin veður þar uppi og útlitið virðist ekki fara batn- andi. Sjálfur er ég hins vegar meiri bjartsýnismaður en svo að ég vilji taka undir þessa lýsingu." En hvað um þá gagn- rýni að myndin feli í kynþáttafordóma fordóma gagn- vart Japön- /,; um? „Þess- ar ásak- anir upphó- fust um leið og bókin kom út og lágu í loft- inu á með- an við vor- um að gera myndina. Ég held hins vegar að þær séu ástæðulausar. Kynþáttahatur er alls staðar - víðar en við viljum kannski viðurkenna. Ég held að það sé ekki upphafið á nokkurn háttt í þessari mynd - en kannski hef ég bara ferðazt of mik- ið og séð of margt.“ Það hefur vakið athygli sér RISANDI SOL SEANS eftir Ólof Þ. Stephensen „ÉG HEF leikið í bíómyndum í áratugi og nú fannst mér kominn tími til að fá pening- ana og virðinguna, sem fylgja því að fram- leiða kvikmyndir. Margir yngri lcikarar og framleiðendur þekkja ekki beztu aðferðina til að búa til góða bíómynd. f»að er of mikið um að fyrst sé samið handrit í hvelli, svo gangi menn frá öllum praktísku atriðunum, en lendi svo í því að umskrifa handritið í miðjum tökum,“ segir Sean Connery glott- andi og fullur af sjálfstrausti atvinnumanns- ins, er hann er spurður hvers vegna hann hafi byrjað að framleiöa bíómyndir, auk þess að leika í þeim. Connery fer með hlut verk ásamt Wesley Snipes í myndinni The Rising Sun eða Rísandi sól, sem frum- sýnd verður hér á landi um mánaðamótin. Hann er aukinheldur framkvæmdastjóri myndarinnar, en Philip Kaufman leik- stýrir. Connery ræddi í síðustu viku við blaðamenn nokkura evrópskra dagblaða í Lundúnum um gerð þessarar nýjustu kvik- myndar sinnar og sinn eigin feril, sem spannar meira en þrjátíu ár og yfir fjörutíu kvikmyndir. Skáldsaga Johns Crich- tons, The Rising Sun, vakti einkum athygli fyrir þá mynd, sem þar er dregin upp af ítökum Japana í bandarísku viðskipta- og þjóðlífí, en sagan Ijallar um tvo lögreglumenn, sem rannsaka morð á ungri stúlku í höfuðstöðvum japansks stórfyrirtækis í Los Angel- es og rekast oft á vegg, bæði hjá Japönum og bandarískum embætt- ismönnum, sem virðast handbendi þeirra fyrmefndu. Það er ekki nóg með að Connery sé framkvæmda- stjóri myndarinnar, ásamt því að leika annað aðalhlutverkið, því að Crichton hafði hann sem fyrirmynd er hann skapaði aðalsögupersónuna, lögreglumanninn John Connor. Jafnvel nafnið vísar til Connerys. Þeir Crichton eru ekki að vinna sam- an í fyrsta sinn, því að Crichton leikstýrði leikaranum skozka í Lest- arráninu mikla fyrir hálfum öðrum áratug. „Það er augljóslega auðveldara og þægilegra en venjulega," segir Connery, aðspurður hvemig það sé að leika hlutverk sem er sérstaklega skrifað fyrir hann. „Þetta er eigin- lega eins og að láta klæðskerasauma á sig hlutverk. Ég hef átt gott sam- band við Crichton í mörg ár, bæði sem vin og kvikmyndagerðarmann. Hitt er svo annað mál að ég vissi ekkert um þetta brall hans fyrr en ég opnaði bókina, las lýsinguna á persónunni og sá nafnið. Þá áttaði ég mig á að hann var að spauga með mig. En Crichton hafði unnið heimavinnuna sína og ég féllst á að taka að mér þetta auðvelda hlut- verk. Connor hefur dáiítið meira hár en ég og er Iíka gáfaðri, en þegar ég las bókina kannaðist ég við ýmis- legt frá sjálfum mér, þótt auðvitað sé líka margt ólíkt.“ Ólíkar aðferðir Japana Hver er skoðun Connerys á um- fjöllunarefni myndarinnar? Er hann sammála því að Japanir séu að gera innrás í bandarískt þjóðlíf og miði Skotinn heimsfrægi segir ad hlutverk sitt í kvikmyndinni Rísandi sól haffi verið klæð- skerasaumaö á sig, en hann var fyrirmynd að aðalsöguhetjunni að því að leggja heilar atvinnugrein- ar undir sig - þar á meðal kvik- myndaiðnaðinn? „Japanska innrás- in, til dæmis í kvikmyndaverin í Kalifomíu,. hefur fólgizt í því að Japanirnir hafa eytt ósköpunum öll- um af peningum í að kaupa upp fyrirtæki. Ég er ekki viss um að þeir hafi haft það upp úr þessari fjárfestingu sinni, sem eðlilegt gæti talizt. Ég held að venjulega séu þeir skipulagðari og útsjónarsamari en þeir hafa reynzt vera í kvik- myndabransanum. Kvikmyndaver- in, sem eru í eigu Japana, hafa ekki afrekað mikið, að Júragarðin- um frátöldum. Japanir eru alls ekki að taka yfir bandaríska kvikmynda- iðnaðinn og því síður eru myndim- ar, sem þeir láta búa til, Japansk- ar“. Þetta eru ósköp venjulegar amerískar bíómyndir, framleiddar af Ameríkönum." Connery segist hins vegar telja að á ýmsum öðrum sviðum hafi Japanir gerzt fullumsvifamiklir fyrir bandaríska almenningsálitið. I hug- um margra hafí Japanir snúið stríð- inu, sem þeir töpuðu á vígveliinum, upp í viðskiptastríð. í Rísandi sól sé meðal annars fjallað um þetta. „Það er mjög snjöll hugmynd að búa til hefðbundna spennumynd, morð- sögu, láta hana gerast í Los Angel- es, sem er höfuðvígi Japana í Banda- ríkjunum, og snúast um árekstra þeirra og Bandaríkjamanna og það hvernig þeir nálgast alla-hluti á ólík- an hátt. Markmið bandarískra og japanskra kaupsýslumanna er það

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.