Morgunblaðið - 24.10.1993, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
Jóhannes Guðmundsson
prentari — Minning
Fæddur 26. febrúar 1917
Dáinn 16. október 1993
Jóhannes var fæddur að Núpi í
Haukadal í Dalasýslu. Foreldrar
hans voru Guðmundur Guðmunds-
son, bóndi á Núpi, og kona hans,
Sólveig Ólafsdóttir. Faðir Jóhannes-
ar drukknaði árið 1926 í Grindavík
þar sem hann vann á vertíð.
Jóhannes kvæntist Kristínu Egg-
ertsdóttur árið 1945. Hún átti lengi
við mikil veikindi að stríða og lést
síðla árs 1967. Árið 1946 fæddist
þeim Jóhannesi og Kristínu dóttirin
Lára. Hún giftist Guðmundi A. Jó-
hannessyni verslunarstjóra hjá
Heklu hf. Þau Lára og Guðmundur
eignuðust fjögur böm, en misstu
eitt á unga aldri. Lára lést í apríl
á þessu ári.
Jóhannes fluttist til Reykjavíkur
nokkru fyrir stríð og stundaði í
nokkur ár ýmsa vinnu. Árið 1942
hóf hann nám í setningu í Víkings-
prenti hf. og lauk þar námi 1946.
Hann stundaði vélsetningu í Vík-
ingsprenti í fjölda ára að námi
loknu. Við vorum starfsfélagar í
áratugi. Jóhannes var mjög greind-
ur og víðlesinn. Hann var ákaflega
vandaður maður, orðheldinn, stund-
vís og prúðmenni. Okkur Jóhannesi
varð vel til yina þó að skoðanir
okkar, og þá sérstaklega í pólitík,
færu ekki alltaf saman.
Eftir að Kristín eiginkona Jó-
hannesar veiktist lá hún langdvöl-
um á sjúkrahúsum. Hún var í mörg
ár á Vífilstöðum. Á hveijum degi
heimsótti Jóhannes hana og þurfti
að taka þangað strætisvagna í
mörg ár áður en hann eignaðist
bifreið.
Eins og fram hefur komið varð
Jóhannes fyrir þungum áföllum í
lífinu og oft held ég honum hafi
ekki liðið vel. Þó held ég að hann
hafí átt sínar gleðistundir. Hann
eignaðist góðan og traustan
tengdason og barnabörn, sem hann
dáði mjög.
Ég sendi ástvinum hans innilegar
samúðarkveðjur.
Hörður Óskarsson.
Gjaman er það svo, þegar vinur
og ættingi hefur lokið lífsgöngu
sinni, að þá flýgur hugur manns til
baka. Staldrar maður gjaman við
þætti þá og hæfileika sem mest
verður opnuð ó morgun með vandoða
skó af heildsölulager fró Axel 0.
Einnig mikið úrval af
verksmiðjulager beint fró Portúgal.
Barnaskór - strigaskór - dömuskór - herraskór.
Stendur aðeins í 10 daga!
Skóverslunin Laugavegi 1 1 - Simi: 21675
990,-
Aðeins 4 verð:
1990,- 2490,- 2.
SKÓÚTSALA
voru áberandi í fari viðkomanda.
Svo er einnig nú.
Jóhannes Guðmundsson var
fæddur á Núpi í Haukadal í Dala-
sýslu hinn 26. febrúar 1917, sonur
hjónanna Guðmundar Guðmunds-
sonar bónda, frá Harmaendum í
Sauðafellsókn, f. 29. sept. 1879,
lést í fískiróðri í Grindavík 14.
mars 1926, og Sólveigar Ólafsdótt-
ur frá Bálknastöðum í Vestur-
Húnavatnssýslu, f. 15. okt. 1885,
d. 12. jan. 1936. Böm þeirra voru
níu og em þijú þeirra látin.
Eftir brottför Jóhannesar úr Döl-
um vann hann almenna vinnu í
Reykjavík, en 1. október 1942 hóf
hann prentnám í Víkingsprenti og
lauk sveinsprófí í hand- og vélsetn-
ingu 3. nóvember 1946, og stund-
aði þau störf upp frá því.
Hinn 9. júní 1945 gekk Jóhannes
að eiga systur okkar Jónínu Krist-
ínu Eggertsdóttur, sem fædd var
3. ágúst 1924 í Stykkishólmi, en
foreldrar hennar vom hjónin Egg-
ert Th. Grímsson, f. 26. júní 1891,
dáin 28. september 1969. Kristín
var þriðja bam þeirra af sex. Þau
stofnuðu heimili sitt, fyrst í Hrísa-
koti (Nesvegi 63) og síðar í Sörla-
skjóli 90.
Snemma gerðu gömul meiðsli
vart við sig hjá systur okkar, en
þeim fýlgdu langvarandi veikindi;
einkum þegar hún eignaðist þeirra
eina barn, sem skírt var Lára, f.
22. september 1946, en hún varð
mesti sólargeisli í lífi þeirra. Hjóna-
band þeirra var mjög hamingjusamt
og báru þau mikla virðingu hvort
fyrir öðm, enda mjög félagslynd.
En eftir ellefu ára sambúð veiktist
Kristín af alvarlegum sjúkdómi og
lést á Vífilsstöðum 4. desember
1967, eftir ellefu ára sjúkdómslegu.
Á þessum árum sýndi Jóhannes
hvaða mann hann hafði að geyma,
með einstakri rósemi sinni og
ómældri umhyggju og kærleika til
eiginkonu og heimilis, og Lám dótt-
ur þeirra, sem var hin mesta mann-
kostastúlka.
Lára gekk að eiga Guðmund Al-
bert Jóhannsson verslunarmann (f.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar átakinu „Börnin heim“
og varð ágóðinn 10.479 krónur. Þær heita Gyða Þorkelsdóttir, Harpa
Hrund Berndsen, Ásta Soffía Pétursdóttir og Herborg Drífa Jónas-
dóttir.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar krabbameinssjúkum
börnum og varð ágóðinn 2.100 krónur. Þær heita Helga Kolbeinsdótt-
ir, Helga Hrönn Lúðvíksdóttir og með þeim var Ingunn Guðmunds-
dóttir, en hana vantar á myndina.
KVENNADEILD
REYKJAVÍKURDEILDAR
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Kynningarfundur
verður haldinn miðvikudaginn 27. október kl.
20.00 í Hótel Lind, Rauðarárstíg 18.
Kynnt verða störf Kvennadeildar RRKÍ, í Sjúklinga-
bókasöfnum og sölubúðum deildarinnar í sjúkrahús-
um borgarinnar svo og heimsóknarþjónusta og fönd-
urstarfsemi deildarinnar. Allir, sem áhuga hafa á að
kynnast störfum Kvennadeildar RRKÍ eru velkomnir.
Sjúkravinir, sem ekki hafa sótt slíkt námskeið eru
sérstaklega beðnir um að mæta.
Vinsamlega skráið ykkur á námskeiðið
í síma 688-188.
Stjórnin.