Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER'1993
39
Nokkrar vísur úr Kínaferð
eftir Halldór Blöndal
Áður en ég fór til Kína nú í byrjun október skaust ég heim
til vinar míns Kristjáns Karlssonar skálds og gaukaði hann
að mér bókinni „Poems of the Late T’ang“. Það er gott úrval
kínverskra (jóða þar sem línan er dregin við Tú Fú. Eg sakn-
aði auðvitað Lí Pós eða Lí Beis, eins og mér var kennt að
bera nafnið fram. En þann missi gat ég bætt mér í Peking.
Á langri flugleið til Kína var
þægilegt að gera sér það til dund-
urs að reyna að snúa litlu versi
yfir á íslensku eftir keisarann
Wu Tí Han (156-187 f.Kr.). Ég
hafði það fyrir framan mig í fjór-
um mismunandi þýðingum auk
þýðingar Esra Pounds, sem fór
eins og Matthíasi Jochumssyni að
geta ekki stillt sig um að sníða
frumkvæðið eftir sínum eigin hug-
myndum. Hjá Matthíasi Jochums-
syni er mér í þessu sambandi
minnisstæð þýðingin á Lorelei.
Til að byija með hrífst hann af
fegurð hennar, en brátt breytist
ljóðið í tröllkonuslag þegar hann
segir:
„Gullnu lokkana greiðir,
gelur foman brag,
rembdan við reginseiði,
rammasta galdralag".
Þarna var Gilitrutt lifandi kom-
in!
Þó vísuorðin væru ekki nema
sex í kínversku vísunni tók það
mig ferðina alla, einhveija stund
á hveijum degi, að verða sæmi-
lega sáttur við erindið eins og ég
skrifaði það niður á íslensku.
Það heyrist ei lengur skijáf í silkislæðum,
sest hefur ryk á græna jaði-stétt.
Fótatakið er hljóðnað; haustgul lauf
hverfast í smáa bingi og liggja kyrr
Hún sem ég elska hvílir undir þeim:
Fðlbleikt laufblað fest við hallardyr.
Þannig á ensku:
The rustling of the silk is discontinued,
Dust drifts over the courtyard,
• There is no sound of foot-fall, and the
leaves
Scurry into heaps and lie still,
And she the rejoicer of the heait is beneath
them:
A wet leaf that clings to the threshold.
Það kom brátt í ljós að gestgjöf-
um mínum þótti vænt um að ég
skyldi hafa hrifist af kvæðum kín-
versku skáldanna í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar. Ég gerði mér það
tii gamans í stuttri ræðu í hinni
fomfrægu borg Xi’an að fara með
drykkjuvísu Lí Beis í þýðingu
Helga fyrir gestgjafana og fékk
það að launum að þeir skenktu
mér hrísvín sem þeir sögðu að
væri af sama tagi og Lí Bei hafði
drukkið með skáldahópnum sín-
um. „Það er eins og þú finnur
mjög veikt,“ sögðu þeir. „Aðeins
3%“:
Við sitjum vinir saman hér við borð
og súpum vínið hvítt í góðu næði.
Við tökum út! Og Lí Bei leggur orð
til liðs við mig að yrkja snoturt kvæði.
Gestgjafar mínir urðu að láta
sér nægja þessa íslensku vísu sem
þakklætisvott fyrir vínið hvíta og
sögurnar um Lí Bei, en þeir kunnu
sig og skenktu mér í staðinn þijár
útgáfur af ljóðum Lí Beis á frum-
málinu!
Síðasti viðkomustaður okkar
var í Guang Zhou. Við fengum
gistingu í gestahúsi Kínverska
kommúnistaflokksins sem var í
fallegu umhverfi með iðgrænni
lótustjörn fyrir framan, sem gest-
gjafarnir höfðu gaman af að sýna
mér út af ljóðum Lí Beis.
Nú vorum við komin í nágrenni
Hong Kong og það leyndi sér
ekki að þar voru miklar breyting-
ar að gerast. Vega- og bygginga-
framkvæmdir voru hvarvetna í
fullum gangi og umferðin þyngri
en við höfðum áður átt að venj-
ast. Fjöldi reiðhjólanna hafði gert
mig standandi hissa um leið og
ég kom til Peking, en nú keyrði
um þverbak. Við vorum óratíma
að þokast áfram stuttan götuspöl
en þjólreiðamennirnir svifu til
Þessi mynd var tekin í garði móttökubústaðar vara forsætis ráð-
herra Kína, skömmu fyrir samtal Halldórs Blöndals við
varaforsætisráðherrann.
Halldór Blöndal og kona hans, Kristín Eymundsdóttir, í safni í
Kína, í þeirri deild sem fjallar um menningu og fornminjar frá
dögum Djengis Khans.
hliðar fyrir framan og aftan bif-
reiðina eins og þeim sýndist;
stundum stijált og stundum við-
stöðulaust.
Þar sem lótusblómin sér lyftu
úr lygnum og grænum sjó
flokkurinn okkur fjórum
fyrirtaks náttstað bjó.
í skutbíl var skammt í bæinn.
Það var skritið! Hann beit og sló
og þokaðist ekkert áfram
í öngstræti í Guang Zhou.
Aidrei ég áður vissi
annað eins hjólhestager:
Bílstjórinn sortnaði sjálfur
og sópaði framan úr sér.
Úr því ég var á annað borð
farinn að stæla Annes og eyjar
kaus ég að láta Jónas Hallgríms-
son um niðurlagið.
í þessari ágætu borg Guang
Zhou fengu þeir sér stuttan
göngutúr inn í borgina Halldór
Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri,
og Jón Birgir Jónsson, aðstoðar-
vegamálastjóri. Þar komu þeir á
matarmarkað og sáu m.a. hvar
flakari flakaði fisk af þvílíkri
leikni að eftir að flökin lágu á
báðar síður hélt hjarta fisksins
áfram að slá. Skömmu síðar söfn-
uðumst við saman á nýjan leik
og okkur var ekið til kvöldverðar
í skutbíl og það fór mjög fyrir
bijóstið á bæjarstjóra að ökumað-
urinn skyldi fara upp í fjórða og
jafnvel fímmta gír á hægum götu-
hraða borgarinnar á aðeins 1000
til 1500 snúningum, enda truflaði
vélarbankið hann. Og með því slæ
ég botninn í þessa stuttu upprifj-
un:
í iðandi fleklqum hrúgast að mér það
hyski:
Hjólhestamaurar í þéttum götuskóg.
Og hjarta bílsins bankar eins og í fiski
á borði flakarans í Guang Zhou.
Höfundur er
landbúnaðarráðherra.
t
•GÓLFHIRÐULÍNAN
• Jr
-fyrir gólfdúka
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Pað er allt að seljast upp!
F*ú getur ennþá komist með í ódýra ferð til einnar vinsælustu verslunar- og
menningarborgar Evrópu.
Fyrsta flokks gisting - spennandi skoðunarferðir - ævintýralegir
verslunarmöguleikar.
T'yagöu Þé
JJima' per **«
f4- °kt.
3l' °kt
1■ °kt.
nóv.
7 0 nÓV'
:?• nov.
7' nÓV‘
27 n°V’
nóv.
24- ^óv.
uPPse/f
'aus S®„
uPPse/t
s®f/ laus
.uPPselt
?rfá «®t/ ,
T us
Pppseit
ulUS Sæ"
uPPse/f
Verð trá
26.900
miðað við mann í tveggja
manna herbergi á Hótel
Country eða Crest
Vöruverð er svo ótrúlega lágt að
jafnvel Skotarnir flykkjast þangað til
að versla
Stærsta
verslunarmiðstöð
Evrópu
— og meira til!
B(D
*lnnifalið flug, gisting, morgunverður
og öll flugvallagjöld
65 22 66
Ferðaskrifstofan Alís, sími 652266, fax. 651 160
M 9208