Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 44
<5»[| KJÖRBÓK
FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 Landsbanki Bk íslands SÍMaJsm Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Sjomenn eimr greiða auðlmdaskatt
segir formaður Sjómannasambandins
Félög leiti eftir
s verkfaUsheimild
SJÓMANNASAMBAND íslands hefur skorað á aðildarfélög sín að leita
verkfallsheimilda og í næsta viku verða samtökin með fundaherferð
um allt land vegna þvingaðra kvótakaupa sjómanna. Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambandsins, segir sjómenn einu stétt landsins sem
sé farin að greiða auðlindaskatt. Sá skattur renni beint í vasa útgerðar-
manna til kvótakaupa en þeir greiði hins vegar engan skatt af fram-
lagi sjómannanna. Að mati Skúla Eggerts Þórðarsonar, skattrannsókn-
arsljóra ríkisins, vantar skýr ákvæði í lög um skattalega meðferð á
framlagi sjómanna til kvótakaupa
Skúli Eggert segir að annað hvort
bæri að líta á framlag sjómanna til
kvótakaupa sem hluta af þeirra heild-
arlaunum eða þá að þeir ráðstöfuðu
hluta af launum sínum til útgerðar-
•*%innar með þessum hætti. „Það er
mitt mat að þegar menn ráðstafa
iaunum sínum til útgerðinnar með
þessum hætti þá séu þeir að leggja
fram ákveðinn hluta af launum sín-
um sem þeir ættu þá að hafa greitt
skatt af,“ sagði Skúli Eggert. Hann
sagði að það væri sjónarmið hvort
ekki þurfi að vera skýr ákvæði í lög-
um um þetta mál. „Það eru gífurleg
skattsvik í þjóðfélaginu sem talin eru
nema 11 milljörðum kr. Embætti
skattrannsóknarstjóra ríkisins hefur
að undanförnu einbeitt sér að svartri
atvinnustarfsemi og tvöföldum
skráningarkerfum og þessi atriði
hafa ekki verið á verkefnaskrá stofn-
unarinnar og eru frá sjónarhóli skatt-
svika ekki sérstakt forgangsverk-
efni,“ sagði Skúli Eggert.
Stórkostlegft brask
„Þarna er á ferðinni stórkostlegt
brask sem teygir anga sína bæði
skattalega og ekki síst í því sem
haft er af sjómönnum. Við teljum
að með þessu sé ein stétta manna
farin að borga auðlindaskatt en
borga það útgerðamönnum sem kom-
ast hjá því að greiða skatt af því,“
segir Óskar. „Þetta er tekið af þeirra
hlut sem annars myndi koma sem
1 _»skatttekjur til hins opinbera. Hvað
verður um þessar tekjur þegar út-
gerðin notar þær upp til kvótakaupa?
Það er afar þungt í sjómönnum og
við teljum að það sé vegið allharka-
lega að kjarasamningi sjómanna í
þessu efni. Nú hvetjum við öll sam-
bandsfélög Sjómannasambands ís-
lands að afla sér verkfallsheimildar
útgerða.
því þetta verður ekki brotið á bak
aftur nema með átökum að okkar
mati. Svo virðist sem í frumvarpi
sjávarútvegsráðherra sem nú er í
skoðun í þingflokkunum sé engu í
breytt varðandi svokallaðar kvótatil-
færslur útgerðarmanna," sagði Ósk-
ar.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra vildi ekki tjá sig um þetta
mál og heldur ekki Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra.
------»■ --------
Nýtt fang-
elsi á Litla-
Hrauni
FRAMKVÆMDANEFND í fang-
elsismálum hefur valið tillögu
arkitektanna Finns Björgvinsson-
ar og Hilmars Þórs Björnssonar
að nýbyggingum og endurbótum
á eldra húsnæði á Litla-Hrauni
úr hópi þriggja tillagna í lokaðri
samkeppni.
Haraldur Johannessen, fangelsis-
málastjóri, segir að áhersla verði
lögð á að flýta framkvæmdum við
byggingu nýs fangelsis. Áætlað er
að framkvæmdir heíjist upp úr ára-
mótum og verði lokið vorið 1995.
Ákveðið hefur verið að nýja fang-
elsið rísi við hliðina á núverandi
fangelsisbyggingum en verði ekki
tengt þeim.
Framkvæmdanefndin hefur
ákveðið að leita til þriggja verk-
fræðistofa eftir tilboðum i verkfræði-
þátt verksins.
Morgunblaðið/RAX
LIFSLEIKUR
Frumvarp til laga gegn
ofbeldiskvikmyndum
Beina þarf til sjónvarpsstöðva að draga úr ofbeldi í sjónvarpi
ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra hyggst leggja fram
frumvarp til nýrra laga gegn ofbeldiskvikmyndum. Menntamála-
ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið, að frumvarpið myndi
fyrst og fremst eiga að ná til kvikmyndahúsa, en sérstök ákvæði
gæti þurft að setja í útvarpslög til að stemma stigu við ofbeldi í
sjónvarpi hér á landi. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra telur
t fyllstu ástæðu til að beina því til sjónvarpsstöðva að draga úr
ofbeldi í dagskránni.
„Menn eiga einskis að láta
ófreistað til að draga úr þessum
ósóma,“ sagði Ólafur. Það væri
hins vegar alltaf spumingin hve-
nær sé tímabært fyrir stjómvöld
að hafa bein afskipti af sjónvarps-
kefni stöðvanna. Taldi hann eðlilegt
að útvarpslaganefnd sem nú er að
störfum ijalli um málið. „Það má
hugsa sér ýmsar leiðir til að knýja
sjónvarpsstöðvar til að gæta hófs
í þessum efnum þótt alltaf sé
spuming hvenær hið opinbera eigi
að grípa inn í,“ sagði hann. „Mér
finnst að vel mætti Ieggja þá
ábyrgð á ráðherra að beita þeim
viðurlögum sem yrðu að vera í út-
varpslögum eða á ábyrgð nefndar
sem kynni að verða komið á. Aðal-
atriðið er að finna leiðir sem duga.“
Ábyrgð sjónvarpsins
Þorsteinn Pálsson taldi að
áskorun bandaríska dómsmálaráð-
herrans í vikunni á hendur sjón-
varpsstöðvum um að þær dragi
verulega úr ofbelsisatriðum í dag-
skrá sinni ætti fyllsta rétt á sér.
Það væri fyrst og fremst undir
Bandaríkjamönnum komið að
draga úr framleiðslu ofbeldis-
mynda. Þá væri á verksviði þeirra
sem fara með málefni útvarpsins
að ákveða hvort ástæða sé til að
setja ákveðnari reglur um sjón-
varpsefni. „Best væri ef hægt yrði
að koma þeim sem ábyrgðina bera
í skilning um þá hættu sem hér
er á ferðum og um ábyrgðina sem
fylgir því að hafa réttindi til að
velja efni sem þjóðin horfir á í
jafn miklum mæli og í sjónvarpi,“
sagði hann.
Sjá frásögn bls. 4
Kjúklingabændur
Deilt um
greiðslur
Selfossi.
LOGI Jónsson hjá ísfugli hefur
sagt sig úr stjórn Félags kjúld-
ingabænda vegna óánægju
með það hvemig fyrirhugað
er að endurgreiða bændum
uppsafnaðan afgang af kjarn-
fóðurgjaldi.
Logi segist vilja að afgangur-
inn verði greiddur til bænda í
sömu hlutföllum og gjaldið var
tekið af bændum. Afgangurinn
var fluttur yfir í framleiðnisjóð
eftir tillögu frá embættismönnum
og þaðan á síðan að sögn Loga
að greiða út til bænda en þá
heitir það styrkur til framleiðni-
aukningar og kemur aðeins til
þeirra sem eru með framleiðslu
en ekki til þeirra sem hugsanlega
eru hættir en greiddu gjaldið.
Sig. Jóns.