Morgunblaðið - 17.11.1993, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1993
Nýjar bækur
Ljóðabók eftir
Eystein Bjömsson
DAGNÆTUR heitir nýútkomin
ljóðabók eftir Eystein Björnsson.
I kynningu útgefanda segir:
„Fyrsta ljóðið, Sumarnótt, vísar í
heiti bókarinnar og tekur höfundur-
inn upp þennan þráð og spinnur í
fleiri ljóðum í fyrsta hlutanum, And-
vara. í öðrum og þriðja hluta, Sólf-
ari og Blikum, slær höfundur á aðra
strengi og endurspeglar heiti kaf-
lanna þær breytingar sem verða á
einum sólarhring, hið ytra og hið
innra“.
Dagnætur er fyrsta Ijóðabók Ey-
steins Bjömssonar. Eftir hann liggur
skáldsagan Bergnuminn, sem kom
út 1989.
Bókaútgáfan Norðurljós gefur út.
Ljóðabókin er 70 bls. Offsetfjölritun
hf. prentaði. Ingiberg Magnússon
gerði kápu. Bókin kostar 1.824 krón-
ur. Eysteinn Björnsson
Nýjar bækur
Ljóð Steingríms
frá Nesi í Aðaldal
ÚT ER komin bókin Grímur gætti
sauða, eftir Steingrím Baldvins-
son frá Nesi í Aðaldal.
Bókin inniheldur samnefnt Ijóð,
myndskreytt af Þorra Hringssyni,
en Heigi Hálfdanarson ritaði inn-
gang. Kvæðið er frásögn af sann-
sögulegum atburði þar sem Þorgrím-
ur Pétursson, afí höfundar, lenti í
snjóflóði með fjárhóp og bjargaðist
naumlega fyrir harðfylgi.
Hinn 29. október voru 100 ár lið-
in frá fæðingu Steingríms og er
bókin gefin út að tilhlutan bama
hans til að minnast þess.
Útgefandi er prenthúsið Tröð á
Húsavík. Prentsmiðjan Oddi hf. sá
um vinnslu bókarinnar sem er 48
síður í flauelsbandi og fáanleg í
Steingrímur Baldvinsson
helstu bókaverslunum. Bókin kostar
2.200 krónur.
I
041 C A 04 07fl U^RUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjori .
k I I vv'b I 0 /V KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.lóggilturfasteignasali
Margskonar hagkvæm eignaskipti - leitið upplýsinga.
Vesturborgin - hagkvæm skipti
3ja herb. íb. óskast á skrá. Þarf að vera á 1. eða 2. hæð, t.d. á Hög-
um, Melum eða í nágr. Skipti möguleg á einbhúsi í nágr.
Fjöldi traustra kaupenda á skrá
sem óska eftir einbýlish., raðh., sérhæðum, íb. með bílskúrum og sérstak-
lega óskast eignir í gamla bænum og nágr. Margskonar eignaskipti.
• • •
Viðskiptum hjá okkur
fylgir ráðgjöf
og traustar upplýsingar.
Opið á laugardaginn.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGm7eGM8 SÍMAR 21150-21370
Til sölu er þetta hús á
Reykjavíkurflug’velli
i
i
I
Húsið er 112 m2og byggt árið 1987.
Möguleiki er á að flytja húsið annað.
Allar upplýsingar veitir Sturla Haraldsson hjá Landsbanka
Islands, útlánastýringardeild, Austurstræti 11, s. 606282.
Tilboð leggist inn á sama stað.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Ása Björk Ólafsdóttir
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Í Galleríi Sævars Karls við
Bankastræti er nú hafín fyrsta
einkasýning ungrar listakonu, sem
sýnir þar litlar höggmyndir, sem
hún hefur ýmist steypt úr gifsi og
sandi eða steypu, sandi og jafnvel
marmarasalla. Asa Björk Ólafs-
dóttir útskrifaðist frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands vorið
1992; en hefur auk dvalarinnar
þar stundað nám í tækniteiknun
við Iðnskólann í Reykjavík og í
fatahönnun við finnska og breska
. skóla, svo segja má að hún hafi
leitað á ólík svið listrænnar sköp-
unar til að styrkja eigi starfs-
grunn.
Fyrstu einkasýningu sinni hefur
Ása Björk gefíð yfirskriftina
„Magdalena“, en það er jafnframt
heitið á stærsta verki hennar hér.
Þar sem uppistaða sýningarinnar
eru nokkrir krossar og tólf minni
verk sem öll heita „María“, er ljóst
að listakonan hefur hér sett fram
sterkar tilvísanir til kristinna
tákna, þar sem þessi nöfn hafa
sérstaka merkingu.
Fjöldi listamanna og kvenna
hefur í gegnum tíðina tekist á við
tákngildi konunnar, bæði í trúar-
legum og siðferðilegum skilningi.
Edvard Munch var gagntekinn
(eða heltekinn, hvort orðið sem
menn kjósa að nota) af konunni
og þeim þremur meginhlutverkum,
sem hann sá í henni — hina sak-
lausu meyju, hið glæsta og hættu-
lega kvendi freistingarinnar, og
hina umhyggjusömu móður.
Myndhöggvarar hafa einnig notað
kvenímyndina sem tákngerð
Ása Björk Ólafsdóttir
ýmissa tilfinninga eða mannlegra
eiginleika í gegnum tíðina, ekki
síður en vettvang holdlegra fýsna,
og er einfaldast að vísa til yfir-
standandi sýningar á verkum Áug-
uste Rodin í því sambandi.
María Magdalena er hin fallna
kona, freistarinn, sem hlýtur end-
urreisn fyrir náð Krists; nafnið
María tengist einnig hinni útvöldu
móður Krists, þannig að Ása Björk
vísar hér í tvo ólíka þættir goð-
sagnarinnar um konuna. „Maríu“-
myndirnar á sýningunni bera ótví-
rætt með sér merki freistarans;
þetta eru gróflega unnir líkamar,
án höfuðs eða handleggja, og við
fyrstu sýn eru í raun stór og fram-
stæð brjóst einu sértæku merkin
um að þetta séu myndir af kven-
legum verum, sem þannig hafa
breyst í afmynduð kyntákn. Verk-
unum er síðan raðan upp þannig
að ljós og skuggar skapa örlítið
mismunandi ímyndir fyrir hvert
verk, en heildarsvipurinn er svip-
aður; einkuiji vex myndin „Magda-
lena“ (nr. 1) fyrir tilstilli lýsingar-
innar.
Þó að þannigvirðist í fyrstu um
einfalda myndgerð að ræða, kem-
ur í ljós að listakonan hefur einnig
unnið sitt verk með annan mögu-
leika í huga. Frá ákveðnu sjónar-
horni verða þessar litlu „Maríu“-
myndir að reðurtáknum, eins og
sést glögglega á plakati sýningar-
innar; þannig hittir karlmaðurinn
sjálfan sig fyrir, og hugsanleg
vopn hneykslunar snúast í höndum
hans.
Á gólfið hefur Ása Björk lagt
flata nokkra krossa, einn þeirra
brotinn á táknrænan hátt, og hina
greypta litlum og óræðum tákn-
myndum. Einfaldleiki þeirra er í
mikilli andstöðu við ýktar „Mar-
íu“-myndirnar, og ímyndir trúar-
innar og holdlegra fýsna þannig
settar í ögrandi andstöðu.
Hér er á ferðinni ejnföld en
áhugaverð sýning, sem höfðar til
hugans ekki síður en augans.
Listakonan segir í sýningarskrá:
„Tími er huglægur og það er trúin
líka. Hvernig við upplifum þetta
tvennt er einstaklingsbundið og
þó háð viðmiðunum okkar og þeim
gildum sem umhverfí okkar
krefst.“ Góð myndlist er bundin
svipuðum takmörkum; áhrif henn-
ar markast af siðum og venjum
sem hafa mótað einstaklinginn
ekki síður en innri gildum lista-
verksins.
Sýning Ásu Bjarkar Ólafsdóttur
í Galleríi Sævars Karls í Banka-
stræti 9 stendur til þriðjudagsins
30. nóvember.
Nýjar bækur
■ Út er komin bókin endurminn-
inga- og viðtalsbókinLífsgleði II,
viðtöl og frásagnir eftir Þóri S.
Guðbergsson. í bókinni ræðir höf-
undur við Aðalheiði Bjamfreðsdótt-
ur, Áslaugu S. Jensdóttur, Einar J.
Gíslason, Kristinn Þ. Hallsson, Pétur
Sigurðsson, Sigfús Halldórsson og
Sigríður Rósu Kristmundsdóttur.
I kynningu útgefanda segir: „í
forvitnilegum og áhugaverðum frá-
sögnum.sjö íslendinga kennir margra
grasa og ólíkra viðhorfa þar sem
51500
Hafnarfjörður
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir
Hafnfirðinga 60 ára og eldri, á
4. hæð ca 63 fm. Áhv. bygg-
sjóður ca 3,2 millj. Verð 7,8
millj.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Trönuhraun
Til sölu og/eða leigu efri hæð
ca 350 fm. Hentugt sem
kennsluhúsnæði, verslunar-
og/eða skrifsthúsnæði. Nánari
uppl. á skrifst.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hœð, Hfj.,
II símar 51500 og 51601.
þeir segja frá viðburðaríku lífi,
skemmtilegum og ógleymanlegum
persónum, gildi trúar og jákvæðs lífs-
stíls."
Útgefandi er Hörpuútgáfan.
Þórir S. Guðbergsson skráði við-
tölin og bjó til prentunar. Lífs-
gleði er 184 bls. Prentuð i Odda
hf. Ljósmyndir eru teknar af Ljós-
myndastofunni Nærmynd og Ljós-
myndasafni Páls á Akureyri. Bók-
in kostar 2.990 krónur.
■ Tvær harðspjaldabækur fyrir
yngstu börnin eru komnar út og
heita þær Vinirnir í skóginum og
Eitt ár í skóginum. Bækurnar eru
þýddar úr ítölsku.
í kynningu útgefanda segir:
Þetta eru fallegar litmyndabækur
þar sem sagðar eru sögur af dýrun-
um í skóginum sem búa saman í
sátt og samlyndi. Vinirnir í skógin-
um er sagan af því þegar haldinn
var sumarskóli fyrir alla ungana
og skólgareldurinn geisaði.
Eitt ár í skóginum er falleg lýs-
ing á því hvernig skógurinn og íbú-
ar hans breytast eftir árstíðum, frá
byrjun ársins og allt fram til jóla.
Iðunn gefur bækurnar út.
Bækurnar eru prentaðar á Ítalíu.
Verð hvorrar bókar er 580 kr.
■ Skáldsagan Lítiil heimur
eftir breska rithöfundinn David
Lodge er komin út. Lodge er virt-
ur bókmenntafræðingur og hefur
ritað allmargar bækur um það efni.
Hann hefur einnig ritað nokkrar
skáldsögur. Lítili heimur er þekkt-
asta verk hans.
f kynningu útgefanda segir: í
bókinni segir frá háskólaborgurum
sem ^eru á þönum vítt og breitt um
heiminn frá einni bókmenntaráð-
stefnu til annarrar. Þessi fyndna
saga lýsir hinum litla heimi þeirra
á háðskan og galsafenginn hátt,
metingi og Qandskap keppinauta í
fræðunum, ótrúlegustu ævintýrum,
furðulegum tilviljunum og þrot-
lausri leit eins fölskvalauss pilts að
draumadísinni.
Mál og menning gefur út.
Sverrir Hólmarsson þýddi. Bókin
er 331 bls og er unnin í prent-
smiðjunni Odda hf. Kápu hannaði
Ingihjörg Eyþórsdóttir. BoKÍn
kostar 2.980 krónur.
■ Adda og litli bróðir, önnur
bókin í röð Öddubóka þeirra Jennu
og Hreiðars, hefur verið endurút-
gefín.
í kynningu útgefanda segir: „Sag-
an hefst í kauptúninu hennar Öddu
þar sem alltaf er nóg að starfa hjá
börnunum bæði innan skólans og
utan — skemmtilegir leikfélagar þó
að ekki séu þeir allir jafnmeðfærileg-
ir og Adda alls ekki barnanna best.“
Óddubækurnar eru meðal vinsælli
barnabóka eftir íslenska höfunda.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið. Bókin er 87 bls. og er prent-
uð hjá. Odda hf. Hún kostar 1.295
krónur.
■ Ný spurningabók eftir Ragn-
heiði Erlu Bjarnadóttur er komin
út. Bók þessi er með sama gniði og
fyrri bók Ragnheiðar Erlu, „Gettu
nú“ sem kom út fyrir síðustu jól. í
bókinni eru um 700 spurningar sett-
ar fram með sama hætti og í spurn-
ingakeppni framhandsskólanna. Efni
bókarinnar er ætlað lesendum á öll-
um aldri og spurningarnar ýmist létt-
ar eða þungar um hina ólíklegustu
efnisflokka.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Enn máttu geta ... ef þig þyrstir í
spumingar og þú ert viðþolslaus. Ef
þig langar að spyrja foreldra þína
spjörunum úr. Spumingamar eru um
700, sem fyrr em vísbendingaspurn-
ingamar í þremur þyngdarflokkum.
Útgefandi er Hörpuútgáfan.
Spurningabókinn Gettu enn ... er
144 bls. Káputeikningu gerði
Brian Pilkington. Prentvinnsla og
bókband er unnið í Prentsmiðju
Arna Valdimarssonar. Bókin kost-
ar 1.690 krónur.
Jenna Jensdóttir og Hreiðar
Stefánsson.