Morgunblaðið - 17.11.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.11.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1993 17 Hausar af útselskópum sóttir í Skjaldabjamarvík Trékyllisvík. Morgunblaðið/Vilmundur Hansen Hausar í pokum VALGEIR Benediktsson og Oli Halldórsson með poka með hausunum í. Sýslumaðurinn í Strandasýslu bannaði myndatökur af hausunum. SYSLUMAÐURINN í Stranda- sýslu sendi tvo menn norður í Skjaldabjarnarvík til að sækja sýni vegna kópadrápsins þar. Talið er að a.m.k. fjörutíu kóp- ar hafi verið drepnir og neðri kjálki þeirra sagaður burt. Hræ kópanna lágu í fjörunni og ekkert hafði verið gert til að urða þá. Hringormanefnd styður þessar veiðar með því að greiða fyrir innlagða kjálka. I Frétíaritari Morgunblaðsins náði tali af Valgeiri Benediktssyni og Óla Halldórssyni þegar þeir komu heim úr ferðinni. Að sögn þeirra fundu þeir aðeins tvo dauða útselskópa í fjörunni og var búið að saga neðri kjálkann af þeim báðum. Greinilegt var að annar þeirra hafði verið stung- inn í brjóstið með stórum hnífí eða sveðju. Þeir sögðu að sárið hafi verið um 10 cm langt. Hirtu þeir hausinn af kópunum og verða þeir notaðir við rannsókn málsins. íbúar á Dröng- um höfðu áður tekið tvo hausa, þann- ig að fjórir hausar verða sendir til rannsókna. Alls voru um fjörutíu dauðir kópar í fjörunni fyrir viku en flestir þeirra höfðu skolast burt. Óla og Valgeiri var ekið að Hvalá í Ófeigsfirði og þaðan gengu þeir að Dröngum. Þeir voru síðan fluttir á báti frá Dröngum út í Skaufasel og þaðan gengu þeir í Skjaldabjamarvík. Þegar þeir höfðu tekið sýni og kannað aðstæður fóru þeir svo sömu leið til baka. Sögðu þeir að ferðin hafi verið erfið og tví- sýnt veður um tíma. Hreppstjórinn í Arneshreppi hafði reynt í viku án árangurs að sækja sýni, þegar ákveð- ið var að senda menn gangandi. Flestir kópanna stungnir Að sögn Drangamanna voru allir kóparnir, sem fundust við Þúfurnar sunnan megin í Skjaldabjarnarvík, stungnir eða skomir. Aftur á móti var hluti þeirra sem fannst norðan til í víkinni skotinn. Menn hafa verið að furðá sig á veiðiaðferðinni. Yfir- leitt eru kópar skotnir í hausinn eða rotaðir með kylfu. Það þekkist ekki að menn stingi þá með hnífí eða skeri þá á háls. Leiddar hafa verið líkur að því að þetta hafi verið gert til þess að ekki heyrðust skothvellir að Dröngum, en þeir liggja sunnan við Skjaldabjarnarvík. En eins og einn viðmælandinn benti á, þá hefði heyrst jafn lítið til þeirra ef þessir menn hefðu bara rotað þá. Mikil fjölgun útsela Óli og Valgeir sögðust hafa orðið varir við mikinn fjölda kópa á leið- inni og eru allir hér í sveit sammála því að útsel hafi fjölgað gríðarlega undanfarna áratugi. Utselur kæpir á haustin og eru kóparnir hjálparlausir fyrstu dagana. Eftir fæðingu fitna þeir mjög fljótt af urtumjólkinni og fara þeir ekki í sjó vegna spiks. Þeg- ar kópurinn fer að dökkna yfirgefur urtan þá, léttast þeir þá mjög fljótt og að_ lokum rekur hungrið þá í sjó- inn. A þeim tíma sem þeir liggja á landi eru þeir því auðveld bráð. - V. Hansen Islenskt Monopoly- spil kemur út í dag Kringlan dýrasta gatan í spilinu ÍSLENSK gerð Monopoly, upp- runalegrar __ útgáfu Matador, kemur út á Islandi í dag. Peter J.B. Salmon, framkvæmdasljóri Eskifells, segir að spilið sé að ýmsu leyti ólíkt Matador þó það sé leikið á svipaðan hátt. Allt að átta manns, frá átta ára aldri, geta spilað spilið í einu. Hvers kyns fasteignir ganga kaupum og sölum i spilinu og er Kringlan dýrasta gatan svo eitthvað sé nefnt. í Matador er Austurstræti hins vegar dýr- asta gatan. Peter sagði að spilið væri að ýmsu leyti sérstætt, t.d. væru ekki í því lestarstöðvareitir eins og í erlendum útgáfum þar sem ekki væru lestir hér á landi. í staðinn hefðu verið valin ýmis fyrirtæki og bankar og má í því sambandi nefna Nýheija, Vátiyggingafélag íslands, Flugleiðir og Islands- banka. Leitað til fasteignasala Ekki eru heldur sömu götur í boði í Monopoly og Matador. Peter sagði að leitað hefði verið til sér- fræðinga til að verðleggja dýrustu göturnar. „Við höfðum einfaldlega samband við nokkra fasteignasala og spurðum þá hvaða götur væru dýrastar. Útúr því fengum við að Kringlan væri dýrust, næst kæmu Mjóddin, Fenin, Miðbærinn og svo ódýrari götur. Af þeim völdum við nokkrar götur í nýju hverfunum, t.d. Grafarvogi og Hraunbæ,“ sagði Peter og gat þess jafnframt PETER segir að Monopoly sé eitt vinsælasta spil í heimi. Til gamans má geta þess að frá því fjöldaframleiðsla hófst hafa yfir 3.200.000.000 græn hús verið framleidd. Lengsta skráða spilið tók 1.680 klukku- stundir eða 70 sólarhringa. að ekki væri aðeins spilað með bílum í Moriopoly eins og Matador. „Leikmenn eru með alls konar litla hluti úr málmi eins og t.d. skó, hund, húfu, skip, straujárn og fing- urbjörg," sagði hann. Af öðru sem skilur Monopoly frá Matador má nefna að í spilinu er sérstakur samfélagssjóður, áhætta, lukkuhorn o.fl. 150 milljónir spila Bandaríkjamaðurinn Charles B. Darrow hannaði fyrsta Monopoly- spilið árið 1934. Nú hafa selst yfir 150 milljónir eintaka í 28 löndum út um allan heim. Heimsmeistara- keppni í Monopoly er haldin á hveiju ári. DAGSFERÐ 1. DESEMBER Viö gefum fólki einstakt tækífæri til aó skreppa og sjá Dublin I jölabúningi i eins dags feró þann 1. desember. Farió veröur frá Keflavík kl. 7:00 og lent í Dublin kl. 9:15. Þaðan er ekió tíE Buriington HóteBsins sem veróur samastaður okkar yfír daginn. Athugió, aóeins þessi eina dagsferö. Samviniiiiferúir-Laiiilsj/ii Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 -69 1010 • Innanlandsferðir S. 91 -6910 70*Símbróf 91 -2 77 96 / 69 10 95 »1616x2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður. Reykjavikurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55 Keflavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 - 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Simbréf 93 -1 11 95 Akuroyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 -1 10 35 Vestmannaeyjar. Vestmannabraut 38 • S. 98 - 1 12 71 • Slmbróf 98 -1 27 92 OATXAS* EUROCARD HVlTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.