Morgunblaðið - 17.11.1993, Page 20

Morgunblaðið - 17.11.1993, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1993 Þjóðverj- ar semja í Kína HELMUT Kohl Þýskalands- kanslari, sem er í heimsókn í Kína, var í gær viðstaddur und- irritun nýrra viðskiptasamn- inga er nema alls um 125 millj- örðum kr. Þjóðveijar munu m.a. leggja neðanjarðaijárn- brautir í Guangzhou á suður- ströndinni og Kínveijar kaupa sex Airbus-farþegaþotur. Einn- ig voru undirritaðir ýmsir auka- samningar upp á rúma 60 millj- arða er sumir munu gagnast samstarfsríkjum Þýskalands í Evrópu. Trúlausu vitni vísað frá KÆRU á hendur miðaldra manni á eynni Tasmaníu í Ástr- alíu fyrir meint kynferðislegt ofbeldi gegn 12 ára dreng hef- ur verið vísað frá. Ástæðan er sú að dómarinn taldi sannað að drengurinn tryði ekki á Guð, gerði sér enga grein fyrir því að Guð „gæti refsað honum í þessu lífi eða næsta“. Drengur- inn gæti því ekki lagt hönd á helga bók og heitið því að segja sannleikann fyrir rétti. Risaflugvél ferst í Iran LEITARMENN í þyrlum komu í gær auga á brak úr rúss- neskri flutningaflugvél sem fórst fyrr um daginn með 17 manns innanborðs í fjalllendi í suð-austurhluta Irans. Ekki var vitað hvort nokkur komst lífs af. Vélin var af gerðinni An- 124 sem mun vera stærsta flugvél í heimi. Bossi stefnt fyrir meiðyrði UMBERTO Bossi, leiðtogi Norðursambandsins, á yfir höfði sér rannsókn vegna meintra meiðyrða og svika- mála, að sögn ítalska útvarps- ins. Ríkissaksóknari mun kanna hvort ástæða sé til máls- höfðunar á hendur Bossi fyrir þau ummæli hans í september sl. að líf dómara sem reyndu að bendla Norðursambandið við mútumál væri ekki nema 300 líra virði, þ.e. andvirði einnar byssukúlu. Eurovision af sviðinu ANDREW Lloyd Webber til- kynnti í gær að hætt yrði sýn- ingum á gamanleiknum Euro- vision, sem fékk afar slæma dóma í breskum dagblöðum í síðustu viku. Lloyd Webber er framleiðandi Eurovision, en höfundur og leikstjóri Tim Luscombe. Reuter Fingraför Oswalds á morðvopni LJÓSMYNDIR sem nýlega hafa komið fram staðfesta að fingraför Lee Harveys Oswalds fundust á rifflinum sem notaður var við morðið á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta í Dallas, höfuðstað Texas, árið 1963. Vincent Scalice, fyrrum yfirmaður fingrafaradeildar lögreglunnar í New York, sagðist í fyrradag, eftir að hafa skoðað nýju myndirnar, ekki í neinum vafa, fingraför Oswalds væru á gikkshúsi riffilsins. Við vitnaleiðslur á Bandaríkjaþingi 1978 staðhæfði hann að fingraför Osw- alds hefðu ekki verið að finna á morðvopninu. I gærkvöldi var sýndur sjónvarpsþáttur, Frontline, um Oswald í Bandaríkjunum en við undirbúning þáttarins komu myndirnar í ljós. Meðfylgjandi mynd var tekin i Dallas nokkrum sekúndum áður en Kennedy var myrtur 22. nóvember 1963. Bandaríkin Marg'ii’ vildu leigja legið Houston. Reuter. UNG kona bauð leg sitt til leigu og fékk mun betri viðbrögð en hún þorði að vona því hundruð manns svöruðu auglýsingu hennar sem komið var fyrir meðfram hraðbraut í Houston. í gær höfðu allt að 300 manns hringt í lögfræðing konunnar sem sögð er vera gift og móðir 12 ára drengs. Hún er sögð með háskóla- gráðu í líffræði og í doktorsnámi. Aldur hennar var ekki gefinn upp og sagt að leigugjald fyrir legið væri samkomulagsatriði. Á auglýsingaskiltinu stóð: „Leg til leigu. Menntuð, heilbrigð, um- hyggjusöm leigumóðir föl.“ Fyrir- spurnum var vísað á númer lög- fræðings konunnar og sagði hann að fyrirspurnir hefðu borist víða að, m.a. frá Ástralíu og Hollandi. Leigumóðir tekur að sér að ganga með og ala barn annarra, annað hvort með því að hennar eigið egg hefur verið fijóvgað eða fóstursvísi sem hún á engan þátt í hefur verið komið fyrir í legi hennar. Aðferðin er umdeild sakir þess að í nokkrum tilvikum af þessu tagi hefur leigumóður snúist hugur á meðgöngunni og viljað halda barninu sjálf eftir fæðingu. Leiðtogar stríðandi fylkinga í Bosníu hittast í Genf Rætt hvernig koma megi íbúum til bjargar í vetur Sarajevo, Genf. Reuter. Reuter Vetur í Sarajevo VETUR er genginn í garð í Bosniu og er óttast að þúsundir manna kunni að láta lífið úr kulda og hungri í vetur. Myndin er tekin í kirlgugarði i Sarajevo þar sem verið er að bera enn eitt fórnarlamb stríðsins til grafar. Khasbúla- tov leiðist í fangelsi Moskvu. Reuter. RÚSLAN Khasbúlatov, fyrrum forseti rússneska fulltrúaþingsins, segir fangelsun sína tímasóun þar sem hann sé saklaus, að þvi er haft var eftir lögfræðingi hans, Vladímir Fomítsjev, í gær. Hefur hann mótmælt fangelsun sinni til ríkissaksóknara og segir hana stangast á við friðhelgi hans sem þingmanns. Khasbúlatov var ásamt Alexander Rútskoj varaforseta forsprakki upp- reisnarmanna sem brotnir voru á bak aftur og fangelsaðir 4. október sl. Eiga þeir yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi fyrir að stofna til upp- þots. Að sögn Fomítsjevs leiðist hon- um að geta ekki unnið neitt gagn- legt í steininum. „Hann er við góða heilsu og hefur ekki lagst í þung- lyndi, hann er of skynsamur til þess,“ sagði Fomítsjev. Rússneskt blað hafði í síðasta mánuði eftir manni sem sá Khasbúlatov og Rútskoj í fangelsi að þingforsetinn fyrrverandi væri andlegt og líkamlegt skar. Bróðir Khasbúlatovs, Jamlíkhan, sagði /níerfax-fréttastofunni í gær að safnað hefði verið nógu mörgum undirskriftum til þess að þingforset- inn færi fram við þingkosningamar í Kákasuslýðveldinu Dagestan. Starfsmaður kjörstjómar sagði hins vegar að framboð Khasbúlatovs væri ekki á dagskrá þar sem hann væri á lista yfír menn sem Jeltsín hefði svipt kosningarétti með tilskipun. LEIÐTOGAR múshma, Króata og Serba hafa samþykkt að hitt- ast í Genf á morgun, fímmtudag, til að ræða hvernig koma megi um þremur milljónum manna í Bosníu til bjargar, nú er vetur er genginn í garð. Lýstu fulltrúar hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) því yfir að þeim kæmi á óvart ef leiðtogarnir nýttu ekki tæki- færið til að ræða friðarsamkomu- lag. Ottast er að þúsundir manna láti lífið úr kulda og hungri í Bosníu í vetur. Alija Izetbegoviv, forseti Bosníu, Radovan Karadzic, leiðtogi Bosníu- Serba og Mate Boban, leiðtogi Bos- níu-Króata, munu ræðast við í Genf en ekki er ljóst hvort að herforingj- ar þeirra verði með í för. Það er Sadako Ogata, yfirmaður Flóttta- mannastofnunar SÞ, sem boðar til fundarins. Leiðtogamir hafa ekki ræðst við í um tvo mánuði. Vetur er nú genginn í garð í Bosníu og veður svo slæmt að fresta varð því að fljúga með vistir til Mostar í gær. Harðir bardagar voru í gær við borgirnar Olovo og Var- es, en múslimar hafa þær enn á valdi sínu. Verður Bretum stefnt? Mohamed Sacirbey, sendiherra Bosníu hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði á mánudag að Bosnía hyggð- ist stefna Bretlandi fyrir brot á al- þjóðasamþykkt um þjóðarmorð frá 1949, þar sem Bretar lögðust gegn því að vopnasölubanni SÞ á Bosníu yrði aflétt. BESTU KAUPIN I LAMBAKJOTI SKROkkUR Af msm f LOkkS LAíABAklÖTI. AÁTTÚRULC6A 60TT - í niESTU vcRSLun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.