Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
Greiðslustöðvun Hafarnarins hf.
Hlutafé Akranesbæj-
ar um 100 milljónir
í ábyrgð fyrir um 78 milljónum kr.
AKRANESBÆR á 42% hlut í Haferninum hf. á Akranesi en fyrirtæk-
ið hefur fengið heimild til greiðslustöðvunar í þrjár vikur. Að sögn
Gísla Gíslasonar bæjarstjóra, er hlutur bæjarsjóðs um 100 milljónir
króna auk tæpra 78 milljóna króna ábyrgðar vegna togarakaupa.
Er bærinn stáersti hluthafi fyrirtækisins með 42% eignarhlut. Leitað
hefur verið til banka og sjóða eftir aðstoð við misjafnar undirtektir.
Sagði Gísli að ábyrgðin væri að
mati manna nægjanlega tryggð eins
og sakir stæðu með veði í togurum
fyrirtækisins Höfðavík og Sæfara.
„Bærinn kemur að þessu máli á
tvennan hátt,“ sagði hann. „Ann-
arsvegar fjárhagslega gagnvart
ábyrgðum sem við verðum að
tryggja að falli helst ekki á bæinn
eða þá að minnsta kosti þannig ef
svo fer að tekin verði ákvörðun um
það sérst'aklega af hálfu bæjarins
sem lið í endurskipulagningu fyrir-
tækisins. Hins vegar er það spurn-
ingin um atvinnu fólks og er það
skylda okkar að reyna að sjá til
þess að sem fæstir missi vinnuna.
Þegar hafa tapast atvinnutækifæri
eftir að Sæfara var lagt og má segja
að þar verði ekki snúið við.“
Víða vandi
Gísli sagðist vilja benda á í fram-
haldi af þeirri umræðu sem átt hefði
sér stað um Vestfirði, Suðurnes og
Byggðastofnun um að stofnunin
útvegi þeim fé, að ástandið væri
^svipað og þar víða annarsstaðar á
landinu og ástæða fyrir stjórnvöld
að kanna það nánar. „Við erum
með tvö fyrirtæki Haförninn og
Þorgeir og Ellert milli handanna,
svo við stöndum í stórræðum í at-
vinnumálum," sagði hann.
Morgunblaðið/Kristinn
Stækkurí hjá Eimskip
ÞESSA dagana er unnið að stækkun athafnasvæðis Eimskips í Sunda-
höfn, en félagið fékk nýlega lóð til afnota vestanmegin við núver-
andi svæði. Að sögn Knúts Haukssonar hjá Eimskip er verið að tengja
svæðin saman og stækka gámasvæði í kringum frystigeymslu og
setja upp tengla þar fyrir frystigáma.
Fiskveiðasjóður
Ekki verið
reynt að
svíkja út lán
MÁR Elísson, forstjóri Fiskveiða-
sjóðs íslands, segist ekki vita til
þess að reynt hafi verið að svílqa
út hærri lán úr sjóðnum vegna
skipakaupa en menn hafi átt rétt
á. Færeyska landsþingið hefur
farið fram á það við forsætisráð-
herra Dana að hann láti fara fram
rannsókn á því hvort fé hafi verið
svikið út úr landstjórninni vegna
skipakaupa, með vitund færeysku
bankanna.
Már Elísson segir að Fiskveiða-
sjóður fái kostnaðarverð, matsverð
og tryggingarverð skipanna og láni
út á þá upphæð sem sé lægst og því
sé minni hætta á því að menn geti
svikið út peninga en þar sem ein
viðmiðun sé. Hann sagði að Fisk-
veiðasjóður hefði eigin matsmenn til
að meta verðmæti skipanna og
starfsfólk hans hefði mikla reynslu
og þekkingu á þessu sviði.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 30. NOVEMBER
YFIRLIT: Alldjúp lægð við Reykjanes hreyfist norðnorðaustur.
STORMVIÐVORUN: Búist er við stormi á Austurmiðum, Austfjarðamið-
um, Suðausturmiðum, Norðurdjúpi, Austurdjúpi, Færeyjadjúpi, Suðaust-
urdiúpi og Suðvesturdjúpi.
SPA: Allhvöss norðanátt með éljum vestaniands, en suðvestankaldi eða
-stinningskaldi og bjartviðri norðaustan- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðan- og norðvestan-
kaldi og fremur svalt. Smáél um norðan- og vestanvert landið en ann-
ars þurrt. Víða léttskýjað á Suðausturlandi og Austfjöröum.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Allhvöss norðlæg átt. Snjókoma eöa éljagang-
ur um norðanvert landið en þurrt og víða léttskýjað syðra. Frost um
allt land.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
O £
Heiðskírt Léttskýjað
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
o
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
A
Skýjað
Alskýjað
V V V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
V Súld
Þoka
riig..
FÆRÐA VEGUM: <KI.17.30ígær)
Vegir á landinu eru víðast greiðfærir. Þó er víða nokkur hálka á heiðum,
einkum á vestanverðu landinu og á Vestfjörðum. Þá er ófært um Dynjand-
isheiði fyrir vestan og þungfært um Eyrarfjall.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyr!
Reykjavík
hiti veftur
8 alskýjað
8 skúr
Björgvin 0 léttskýjað
Heloinki •í-4 6kýjaft
Kaupmannahöfn 0 rigning
Narssarssuaq +11 léttakýjað
Nuuk +10 iéttskýjað
Ósló +4 kornsnjór
Stokkhólmur 0 alskýjað
Þórshöfn 7 þokumóða
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 1 þokumóða
Barcelona
Berlfn •f4 þokumóða
Chicago +3 snjókoma
Feneyjar 4 skýjað
Frankfurt +2 hálfskýjað
Glasgow 4 mistur
Hamborg 0 hátfskýjað
London 4 skýjað
Los Angeles 12 þoka
Lúxemborg +2 skýjað
Madrtd 8 þoka
Malaga
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +1 léttskýjað
NewYork 4 heiðskírt
Orlando 8 léttskýjað
Parfe +1 léttskýjað
Madelra 20 léttakýjað
Róm 16 rigning
Vín +4 snjókoma
Washington 2 heíðskírt
Winnipeg +18 fsnálsr
ÍDAGkl. 12.00
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.30 í gær)
Tvímenningur Bridssambands Evrópu
Islenskt bridspar
varð í sjötta sæti
ÍSLENSK bridspar, Arnór Ragnarsson og Karl Hermannsson, varð
í 6. sæti í sínum riðli og i 20. sæti í heildina, i tvímenningi sem spil-
aður var samtímis um alla Evrópu fyrir skömmu. Alls tóku 10 þús-
und pör þátt í mótinu.
Mótið, sem kennt er við Philip
Morris, er spilað samtímis í bridsfé-
lögum í öllum aðildarlöndum Brids-
sambands Evrópu. Þeir Arnór og
Karl spiluðu mótið í Keflavík og
fengu 69,14% skor sem er mjög
hátt. Þátttakendum var skipt í tvo
riðla og dugði skor íslendinganna
þeim í 6. sæti í sínum riðli en efstir
í riðlinum og um leið í mótinu urðu
Danirnir Jesper Thomsen og Svend
Novrup með 77,44% skor.
í hinum riðlinum urðu sigurveg-
arar Betti og Molinier frá Frakk-
landi með 74,92% skor. Þar náðu
14 pör hærri skor en Amór og
Karl svo þeir teljast í 20. sæti í
heildina.
Alls spiluðu 20 þúsund spilarar
um alla Evrópu þátt í mótinu. Á
íslandi tóku um 20% af öllum með-
limum Bridgesambands íslands þátt
í keppninni og þátttakan var aðeins
hlutfallslega meiri í ísrael og Tyrk-
landi.
Kolareykur yfir Reykjavík
SÉÐ AF vatnsgeyminum á Háaleiti yfir Reykjavík á árunum
1930 til 1940 þegar flest hús í borginni voru kynnt með kolum
eða olíu.
Fimmtíu ár frá teng-
ingu við Reykjalund
STJÓRN veitustofnana Reylyavíkurborgar hefur ákveðið að gefa
Listasafni Einars Jónssonar jafnvirði 1,5 milljóna króna til upphit-
unar hússins næstu árin en fimmtíu ár erú liðin síðan Hnitbjörg
fyrst húsa var tengt við hitaveitu frá Reykjum í Mosfellssveit.
Jafnframt hefur verið ákveðið
að minnast afmælisins með því
að aðstoða Vinnuheimilið á
Reykjalundi við kaup á bifreið sem
nota á til flutnings fatlaðra sjúkl-
inga milli húsa.
Hugmyndin um hitaveitu fyrir
Reykjavík fæddist í upphafi þriðja
áratugarins og um sumarið 1930
var farið að líta til Reykja í Mos-
fellssveit sem forðabús fyrir hita-
veitu Reykjavíkur. Samningur við
eigendur jarðanna Reykja,
Reykjahvols og Blómvangs um
heimild til rannsókna og forkaups-
réttar á heitu vatni til handa Reyk-
víkingum var samþykktur í bæjar-
stjórn 6. júlí 1933. Tilraunaboran-
ir hófust strax á því ári og endan-
legur samningur um kaup á jarð-
hitaréttindum var samþykktur ár-
ið 1935. Alls voru boraðar 32
holur á Reykjum og samanlögð
dýpt þeirra var hálfur ellefti kíló-
metri.