Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
9
Franskar utskriftardragtir
frá stærö 34
Verð frá kr. 22.000,-
TESS
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
••J
MOULINEX
örbylgjuofnar með
snúningsdiski létta
heimilisstörfin í ys og erli
dagsins.
MOULINEX
örbylgjuofnar hraðvirk
heimilisaðstoð.
"^^^tTnæstu"
rnft^kiavB^ ssun.
I. GUÐMUNDSSON & Co. hf.
UMBOÐS OO HEILDVEfiSLUN
SlMI 91-24020 FAX 91-623145
m TIL WHtTUNAR!
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir '
30- 300 lítra, útvegum aðrarstærðir
frá 400-10.000 lítra.
ELFA-VARMEBARONEN
Hitatúba / rafketill 12kw, 230v.
1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt
að 1200kw.
ELFA-VORTICE
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið íslenskaraðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG ■
GREIÐSLUSKILMÁLAR. wKM"
Einar Farestvert & Co.hf.
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
í m
II
I í mörgum stæroum
i á tilboðsverði!
I
I
<1?
Vinnuvernd
í verki
Skeifan 3h - Sími: 81 26 70 - Fax: 68 04 70
Efnið sem að
utan kemur
Oddur Ólafsson segir
í Tímanum:
„Islenzka útvarpsfé-
lagið er búið að fá einka-
leyfi á að endurvarpa
dagskrám níu erlendra
sjónvarpsstöðva, sem eru
í gangi allan sólarhring-
inn. Þeim, sem ekki
borga félaginu, er bann-
að að horfa.
Fer þá að fara heldur
lítið fyrir einni rás Ríkis-
útvarpsins,' sem aukin-
heldur sendir ekki út
nema nokkra tíma á sól-
arhring.
Ekki virðist koma til
álita að nein ríkisstofnun,
svo sem útvarpið eða sím-
inn, sem í raun og sann
sér um alla dreifingu
sjónvarpsefnis, taki að
sér endurvarpið.
Islenzka útvarpsfélag-
inu eru skaffaðar allar
tiitækar sjónvarpsrásir
og er komið með eins
konar einokunaraðstöðu
til að skammta og sejja
nær allt sjónvarpsefni
sem til næst ofan úr him-
inhvolfunum. Tvær ís-
lenzkar stöðvar og níu
erlendar á móti einni rík-
isrás og annarri guðsrík-
isrás eru slíkir yfirburðir
að íslenzka útvarpsfélag-
ið er allt að því einrátt á
þessum mikilvæga fjöl-
miðlamarkaði. Byggist
það allt á leyfum. eða
nokkurs konar rásakvót-
um sem úthlutað er af
opinberum aðilum og
lenda nær allir í höndun-
uni á sama aðila. Tilviljun
eða vísvitandi útvegun á
einokun?...“
Bundið opin-
berum leyfum
„Lagaskylda er að
þýða allt erlent sjón-
Úr Tímanum sl. miðvikudag.
Hamingja
mæddrar þjóðar
„Mikil er sú hamingja mæddrar þjóðar í
fásinninu við Dumbshaf að fá sjónvarp
til að horfa á og stytta sér stundirnar,"
segir Oddur Ólafsson, aðstoðarritstjóri
Tímans. En böggull fylgir skammrifi eins
og fram kemur í eftirfarandi texta Odds.
„Þrettán dagskrár verða í boði samtím-
is.“ - „Byggist það allt á leyfum, eða
nokkurs konar rásakvótum sem úthlutað
er af opinberum aðilurn..."
varpsefni sem sent er út
hér á landi. Enginn veg-
ur verður að koma slíku
við þegar níu erlendar
rásir fara í gang samtím-
is, en tal þeirra er allt á
ensku...
Fjölþjóðlegt sjónvarp
um gervihnetti er stað-
reynd sem engan veginn
verður gengið framþjá,
rétt eins og lengi hefur
verið hægt að hhista á
útvarpsstöðvar hvað-
anæva úr heiminum og
hefur engum Vestur-
landabúa dottið í huga
að banna þær Ijósvaka-
sendingar eða móttöku
þeirra.
En þegar sjónvarpið
nær heimsútbreiðslu, er
farið að banna móttöku
og dreifingu á þeim dag-
skrám og svo að leyfa
sérstaklega að taka við
þeim og endurselja, eins
og nú á sér stað, og er
þá allt bundið opinberum
leyfum og svo nánast ein-
okun einkafyrirtækis á
hvað horfa má á gegn
gjaldi.
Það á ekkert síður við
um sjónvarp en annað,
að sá sem á völina situr
einnig uppi með kvölina.
Þrettán dagskrár verða
í boði samtímis þegar ís-
lenzku stöðvarnar eru að
störfum. Þá þarf maður
ekki aldeilis að láta sér
leiðast, að minnsta kosti
ekki fyrr en maður áttar
sig á að það er sama efn-
ið í næstum öllum stöðv-
unum.“
Flýja má í
faðm bókar-
innar
„Framleiðsla á sjón-
varpsefni er nefnilega á
eftir tækniþróuninni og
sama er hve stöðvum og
rásum fjölgar, þar tygg-
ur hver upp í annan. En
það er efni í annan þátt,
eins og þeir segja í sjón-
varpinu.
Ríkissjónvarpið með
nær alla sina dagskrá á
ensku er værukært og
seilist ekki í neinar nýjar
rásir né endurvörp, enda
fær það afnotagjöldin
þótt allir hætti að horfa
á það, þegar allt úrvalið
af sama efni næst á tólf
rásum öðrum.
Reynsla er af því að
eftir því sem sjónvarps-
dagskrám fjölgar eykst
bóklestur. Láti því guð
gott á vita, því með tíð
og tíma mun glápið
minnka í réttu hlutfalli
við íjölgun þeirra dag-
skráa, sem úr verður að
velja,“
Útbob ríkisvíxla
til 3, 6 og 12 mánaba
fer fram mibvikudaginn 1. desember
Nýtt útboð á ríkisvíxlum fer fram á
morgun. Um er að ræða 23. fl. 1993
A, B og C í eftirfarandi verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til 3, 6 og 12 mánaða
með gjalddaga 4. mars 1994, 3. júní
1994 og 2. desember 1994. Þessi
flokkur veröur skráður á Verðbréfa-
þingi Islands og er Seðlabanki Islands
viðskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir verða seldir með
tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu
er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í
meðalverð samþykktra tilboða er
1 millj. kr.
Löggiltum verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfamiðlurum, bönkum og
sparisjóðum gefst einum kostur á að
gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt
tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
ríkisvíxla eru hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá
og veita nánari upplýsingar. Jafnframt
er þeim sjálfum heimilt að bjóða í
vegið meðalverð samþykktra tilboða
(meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa
að hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14 á morgun, miðvikudaginn
1. desember. Tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
Athygli er vakin á því að
3. desember er gjalddagi á 17. fl.
ríkisvíxla sem gefinn var út
3. september 1993.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.