Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
74 pör tóku þátt í afmælismóti Soffíu Guðmundsdóttur í brids
Afmælisbaraið
lenti í 14. sæti
„Ég ER mjög glöð yfir hversu vel þetta tókst, þetta var afskap-
lega eftirminnilegt og gaman,“ sagði Soffía Guðmundsdóttir sem
í tilefni af 75 ára afmæli sínu hélt bridsmót í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri um helgina. Mikill áhugi var fyrir mótinu og
mættu 74 pör til keppninnar.
Við veisluborðið
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SOFFÍA Guðmundsdóttir við veisluborð sitt á bridsmóti sem hún
hélt í tilefni af 75 ára afmæli sínu. Spilað var báða dagana um
helgina og þátttakendum og gestum boðið i veglegt kaffi báða
dagana, sem hátt í 400 manns þáðu.
Soffía spilaði með félaga sínum,
Jóni Inga Bjömssyni og höfnuðu
þau í 14. sæti á mótinu. „Ég verð
að sætta' mig við þessi úrslit, þó
ég hafi oft komist ofar, en það
var gaman að það skyldu vera
Akureyringar sem unnu þetta
mót,“ sagði hún, en þeir Reynir
Helgason og Sigurbjörn Haralds-
son, sem var fermdur síðasta vor
báru sigur úr býtum.
Hátt á fjórða hundrað í kaffi
Bæði á laugardag og sunnudag
var þátttakendum, áhorfendum
og öðrum boðið í afmæliskaffi og
hefur fjölskylda hennar haft í
nógu að snúast dagana fyrir af-
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa
sagði að nú væri verið að undirbúa
fundinn með einkavæðingarnefnd-
inni, en þar ætti að kynna stöðu
mála. Útgerðarfélag Akureyringa
keypti meirihluta í Mecklenburger
Hochseefischerei á fyrri hluta þessa
árs, eða 60%, en Mecklenburger
fylki, Rostockborg og Rostockhöfn
Pexrör
með súrefniskápu
til vatnslagna,
í geislahitun,
og miðstöðvarlagna.
QrJ3Ct3
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
mælið, en allt brauð var heima-
bakað. Hátt á fjórða hundrað
manns þáðu afmæliskaffi, „en ég
á samt nóg eftir, þarf örugglega
ekkert að baka til jólanna. Eg
kæri mig ekki um að skammta
naumt þegar ég býð í kaffi, þann-
ig að ég á ævinlega eitthvað af-
gangs,“ sagði Soffía.
Soffíu bárust fjöldi gjafa m.a.
frá bridsfélögum, en hún leysti
einnig alla þátttakendur á mótinu
út með gjöf; gaf hverjum og einum
spilastokk. „Mér voru gefin þessi
spil, ég ákvað að gefa keppendum
þau til minningar um mótið,“
sagði hún.
Soffía hefur strax fengið tilboð
eiga félagið á móti ÚA. Fyrirtækið
gerir út 8 frystitogara og er heildar-
brúttórúmlestatala þeirra tæplega
17 þúsund tonn. Sjö skipanna eru
smíðuð árið 1987, en eitt er eldra,
11 ára gamalt síldar- og makríl-
vinnsluskip.
Gengið á eigið fé
Gunnar sagði að þær áætlanir
Hjólabretta-
pallur fauk á
hópferðabíl
HJÓLABRETTAPALLUR við
Hafnarstræti 82 tókst á loft þeg-
ar vindur var hvað mestur á
sunnudagsmorgun og hafnaði
hann á hópferðabíl sem stóð
skammt frá þeim stað þar sem
pallurinn var.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar
á Akureyri fór vindur upp í 58
hnúta í mestu hviðunum á sunnu-
dag, en önnur óhöpp urðu þó ekki.
Ekki urðu verulegar skemmdir á
rútunni í árekstrinum við rútuna.
Lögreglan á Akureyri klippti
númer af 7 bílum á sunnudag, en
þeir höfðu ekki verið færðir til aðal-
skoðunar á réttum tíma. Á undan-
förnum vikum hafa númer verið
klippt af nokkrum tugum bíla.
Einn ökumaður var tekin á 100
kílómetra á Hlíðarbraut á sunnu-
dag, en þar er hámarkshraði 50
kílómetrar. Þá var tilkynnt um
rúðubrot til lögreglu og hún hafði
nokkur afskipti af ölvuðu fólki svo
sem vant er.
um að skipaleggja 75 ára afmæli
kunningjakonu sinnar en því hafn-
aði hún og aðspurð um hvort hún
væri byijuð að huga að áttræðis-
sem gerðar hefðu verið varðandi
rekstur þýska fyrirtækisins hefðu
ekki gengið eftir og ástæða þess
væri fyrst og fremst miklar verð-
lækkanir á afurðum að undanförnu,
en fleiri þættir spiluðu einnig inn í
að hlutirnir hefðu ekki farið eins
og áætlað hafði verið. Fyrirtækið
hefði tapað umtalsverðum fjárhæð-
um á árinu og til að mæta þeirri
stöðu sem upp er komin í rekstri
þess hefur einn togaranna verið
settur á söluskrá, en að sögn Gunn-
ars er í kaupsamningi ákvæði um
að heimilt sé að selja tvö skipanna.
Eigið fé félagsins sem lagt var upp
með í aprílbyijun var 1.200 milljón-
ir og hefur gengið nokkuð á það í
afmælinu sagði hún þegar ákveð-
ið að því yrði tekið með ró. „Þá
ætla ég ekkert að gera, bara hafa
það rólegt."
hallarekstri síðustu mánaða.
„Við ætlum að gera grein fyrir
þessari stöðu á fundi með einka-
væðingarnefndinni úti í Þýskalandi
í næstu viku, mánudaginn 6. desem-
ber. Það er verið að skoða ýmsa
möguleika og við ætlum að freista
þess að finna vænlega leið út úr
vandanum," sagði Gunnar.
Ingi tekur við
Ingi Björnsson sem verið hefur
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri síðustu
ár hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Mecklenburger Hochseefisch-
erei og tekur hann við starfinu eft-
ir áramótin.
Erfitt
að halda
svellinu
opnu
ERFIÐLEGA hefur gengið að
halda skautasvellinu á Akureyri
opnu síðustu daga í þeirri hrinu
lægða sem yfir hafa gengið. Um
helgina skemmdist svellið lítil-
lega, en það þynntist nyög þar
sem hlýtt var í veðri.
Magnús Finnsson hjá Skautafélagi
Akureyrar sagði að á ýmsu hefði
gengið frá því svellið var opnað, en
miðað við aðstæður mætti þó segja
að furðanlega vel hefði tekist að
halda því opnu.
Um helgina skemmdist svellið lítil-
lega, í það komu pollar og það þynnt-
ist á köflum helst til of mikið. Magn-
ús sagði að skautafélagsmenn
myndu þurfa smátíma til að koma
því í lag, en ef vel gengi ætti að
vera hægt að opna svellið í kvöld,
þriðjudagskvöld. „Þegar við sjáum
fyrir endann á þessari lægðahrinu
ætlum við að gera átak í að auglýsa
svellið, við höfum í hyggju að kynna
það í skólum og reyna að fá hingað
hópa sem við síðan getum boðið leið-
sögn,“ sagði Magnús.
Glasgow-stemmning
„Við viljum endilega kynna þessa
íþrótt fyrir fólki í nágrannabyggðum
okkar,“ sagði Magnús og benti á í
tilefni tíðra verslunarferða fólks úr
nágrenni Akureyrar til bæjarins að
í verslunarmiðstöð einni í Glasgow
væri skautasvell sem viðskiptavinir
gætu brugðið sér á.
Skósöfnun
að ljúka
SKÓSÖFNUN hefur staðið yfir í
Vöruhúsi KEA að undanförnu,
en lokadagur átaksins er á morg-
un 1. desember.
í tilefni af skósöfnuninni hefur
gám verið komið fyrir framan við
Vöruhúsið og þangað getur fólk
komið með þá sem sem það hyggst
gefa í söfnunina, en þeir skór sem
þannig safnast verða sendir til þró-
unarlanda.
Skósöfnunin hefur staðið á annan
mánuð og höfðu safnast hátt í 6.000
pör í síðustu viku. í fullan gám
þarf um það bil eitt par af hveijum
bæjarbúa á Akureyri.
-----» ♦ ♦----
Krislján árit-
ar í Bókvali
KRISTJÁN Jóhannsson, tenór
áritar geisladisk sinn „Af Iífi og
sál“ í Bókvali, Kaupvangsstræti 4
á Akureyri á morgun, miðvikudag-
inn 1. desember frá kl. 16 til 18.
Kristján áritaði yfir þijú hundruð
geisladiska í bókabúð Máls og menn-
ingar síðastliðinn sunnudag, en disk-
urinn er einn sá söluhæsti á íslenska
markaðnum um þessar mundir.
Vegna anna Kristjáns verður þetta
eina áritun hans á Norðurlandi, en
tekið verður við pöntunum í bóka-
búðinni, Bókvali.
-----♦ ♦ ♦
■SYSTRAKVÖLD verður haldið
í Glerárkirkju í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 30. nóvember, og hefst það
kl. 20.30. í hádeginu á morgun, frá
kl. 12 til 13, verður kyrrðarstund
í kirkjunni sem lýkur með léttum
sameiginlegum hádegisverði. Fyrir-
bænastund verður kl. 18.15 á
fimmtudag, 2. desember.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Lúðrasveitamót
NORÐURLANDSMÓT skólalúðrasveita var haldið á Akureyri um
helgina, en því lauk með tónleikum á sunnudaginn. Tónlistarskólinn
á Akureyri og Foreldrafélag blásaradeilda skólans stóðu fyrir mótinu.
Áætlanir um rekstur Mecklenburger Hochseefischerei hafa ekki staðist
Fundað verður með einka-
væðinganefndinni í næstu viku
GUNNAR Ragnars framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa
og Halldór Jónsson formaður stjórnar félagsins og fleiri munu ræða
stöðu þýska fyrirtækisins Mecklenburger Hochseefischerei, sem ÚA
á meirihluta í, á fundi með þýsku einkavæðingarnefndinni á mánu-
dag í næstu viku. Áætlanir um rekstur félagsins hafa ekki staðist
og hefur það tapað umtalsverðum fjárhæðum. Ingi Björnsson tekur
við stöðu framkvæmdasljóra fyrirtækisins um áramótin.