Morgunblaðið - 30.11.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
25
Keppni í bardagalistum er í athugun hjá lögreglunni í Reykjavík
Lögreglurann-
sókn talin líkleg
LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykjavík hefur óskað eftir að könnuð
verði keppni í bardagalistum sem haldin var á vegum fyrirtækis-
ins Colob sl. sunnudag til að athuga hvort hún gefi tilefni til
lögreglurannsóknar. Þar var í fyrsta skipti barist opinberlega
í hnefaleikahring síðan hnefaleikar voru bannaðir hérlendis
1956. Elín Hallvarðsdóttir, deildarlögfræðingur hjá Lögreglunni
í Reykjavík sem annast málið, segir ýmislegt benda til þess að
um dulbúna hnefaleika hafi verið að ræða og að öllum líkindum
stefni i lögreglurannsókn.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins beinist skoðun
lögreglustjóraembættisins sér-
staklega að keppni í svokölluðu
skjaldböku-kung-fu („turtle
kung fu“) en keppendur voru
flestir um 6-12 ára gamlir og
börðust með hönskum sem svipar
mjög til þeirra hanska sem not-
aðir eru í hnefaleikum. Einnig
var keppt í öðrum austurlenskum
íþróttum eins og t.d. júdó, kar-
ate, fujaka-do, kung-fu, kick-box
og ninjutsu sem byggjast flestar
á harðneskjulegri bardagatækni,
s.s. höggum og spörkum í and-
stæðing.
Dulbúnir hnefaleikar
Elín Hallvarðsdóttir kveðst
hafa rætt við íþróttafulltrúa rík-
isins og framkvæmdastjóra
íþróttasambands íslands og að
við fyrstu sýn virðist keppnin sl.
sunnudag hafa verið dulbúnir
hnefaleikar. „Frekari rannsókn
inun leiða í ljós hvað þarna var
um að ræða og hvort lög um
bann gegn hnefaleikum hafi ver-
ið brotin," segir Elín og segir að
öllum líkindum stefna í lögreglu-
rannsókn. Hún segir að sam-
kvæmt lögum frá 1956 sé „bann-
að að nota og selja hnefaleiks-
glófa“ og einnig að kenna og
sýna hnefaleika, og megi sekta
menn fyrir að bijóta þau lög.
Ekki náðist í Guðna Guðnason,
eiganda Colob sem stóð fyrir
bardagakeppninni, í gær.
Hnefaleikar eða saklaus íþrótt?
TVEIR keppenda í bardagalistakeppni sem bardagalistastöðin
Colob stóð fyrir sl. sunnudag takast á, f.v. Svavar og Hnikarr
sem kepptu í þyngdarflokki undir 50 kílóum.
Áætlunarbifreið slapp naumlega undan grjóthruni á veginn í Gilsfirði
Hnullungamir komu á fljúg-
andi ferð niður fjallshlíðina
AÆTLUNARBÍLL frá Vestfjarðaleið á suðurleið varð næstum fyrir
grjóthruni á veginum í miðri hlíðinni á milli Olafsdals og botns Gils-
fjarðar um klukkan kortér yfir fjögur á sunnudag. Magnús Sigurgeirs-
son, bílstjóri rútunnar, segir að aurskriða hafi nýlega fallið þar á
veginn sem hann hafi verið drjúga stund að komast hjá.
„Þá sé ég tvo heljar mikla hnull- mig. Ferðin var svo rosaleg að stærri
unga koma á fljúgandi ferð niður steinninn snerti varla veginn heldur
fjallið, 10-15 metrum fyrir framan fór yfir hann í loftköstum, á að giska
Refsidómur þyngdur
vegna tékkafölsunar
íjárhæð samtals rúmlega 775 þúsund
kr. Var hún dæmd í 15 mánaða fang-
elsi, þar af 3 mánuðu óskilorðs-
bundna. Áfrýjaði hún þessum dómi
til Hæstaréttar og krafðist mildari
refsingar og að hún yrði að öllu leyti
skilorðsbundin. Ákæruvaldið krafist
þyngingar á refsingu, þannig að
stærri hluti hennar yrði ákvarðaður
óskilorðsbundinn.
HÆSTIRETTUR hefur þyngt
refsidóm yfir konu sem nokkrum
sinnum hefur verið dæmd fyrir
fölsun tékka. Hún hafði verið
dæmd í fimmtán mánaða fangelsi
í héraðsdómi, þar af þijá mánuði
óskilorðsbundna en áfrýjað þeim
dómi. Hæstiréttur dæmdi hana í
tólf mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi.
Konan hafði á árunum 1992 og
1993 ijórum sinnum hlotið skilorðs-
bundna refsidóma fyrir fjársvik og
skjalafals á árunum 1991 og 1992,
nær eingöngu með tékkum, áður en
til þessa máls kom. Nemur fjárhæð
þeirra tékka sem hún misfór með
samtals tæpum 589 þúsund kr. í
maí síðastliðnum var hún dæmd í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fleiri
tékkafalsanir á svipuðum tíma og
hefur hún þannig falsað tékka að
Eindreginn brotavilji
í dómi Hæstaréttar segir að þegar
litið sé til eindregins brotavilja
ákærðu, sem lýsi sér í hinum mörgu
brotum hennar, svo og til þeirra
hagsmuna, sem hún hafi raskað,
þyki verða að ákveða henni óskilorðs-
bundna refsingu, fangelsi í tólf mán-
uði. Konunni er einnig gert að greiða
áfrýjunarkostnað og málsvarnar-
laun.
Hross drápust í árekstri
Hvolsvelli.
FJÓRIR hestar drápust og farþegi
skarst í andliti þegar bíl var ekið
inní hrossahóp við Landvegamót
um áttaleytið á sunnudagskvöld.
Slysið varð með þeim hætti að
hrossastóð hafði sloppið úr girðingu
og var komið út á Suðurlandsveg.
Þegar verið var að reka hrossin aftur
í girðinguna kom bíllinn í suðurátt
eftir Landvegi. Bílstjórinn varð
hrossanna ekki var fyrr en hann lenti
á þeim og drápust tvö þeirra strax,
eitt þurfti að aflífa vegna fótbrots
en það íjórða fannst dautt á mánu-
dagsmorgun. Skyggni var lítið sem
ekkert þegar slysið átti sér stað og
að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
telur hún það hafi bjargað farþegun-
um að bifreiðin var stór af amerískri
gerð og farþegar í bílbeltum.
Farþeginn sem skarst í andliti fékk
glerbrotaregn yfir sig. Alls voru fjór-
ir í bílnum og hlutu þeir aðeins minni-
háttar skrámur. Bíllinn er talinn nær
ónýtur.
SÓK.
á hæð við framrúðu bílsins. Hinn
kom hægar niður og rúllaði yfir veg-
inn,“ segir Magnús.
Magnús kveðst halda að stærra
bjargið hafi verið um hálfur annar
metri í þvermáli en sá minni um
metri í þvermál. Ætla má að stærra
bjargið hafi verið um þijú tonn að
þyngd en hið minna tonni léttara.
„Eftir á þakkaði ég fyrir að hafa
verið svo lengi að hjakka í skriðunni
því annars hefði ég líklega verið á
punktinum sem gijótið féll á,“ segir
*
Ifarbann
vegna smygls
á fíkniefnum
39 ÁRA gömul þýsk kona var
handtekin við komu til landsins
á laugardag með um 2 kg. af
hassi, 245 grömm af amfetamíni
og 4,7 grömm af kókaini í fórum
sínum. Talið er víst að hún hafi
tekið að sér gegn greiðslu að
flytja efnið inn fyrir íslenska
aðila. Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur hafnað kröfu um gæslu-
varðhald yfir konunni en úr-
skurðað hana í farbann til 22.
desember.
Konan, sem er þýsk en hefur um
árabil verið búsett í Hollandi, kom
til landsins frá Amsterdam um
Kaupmannahöfn og lenti sarn-
kvæmt upplýsingum tollyfirvalda í
svokallaðri úrtaksskoðun tollgæsl-
unnar. Þá fundust 1.967 grömm
af hassi falin í ferðatösku hennar
og 245 grömm af amfetamíni á lík-
ama hennar. Einnig reyndist hún
hafa falið 4,7 grömm af kókaíni í
skóm sínum.
Konan var færð til yfirheyrslu í
Reykjavík og gerði fíkniefnalög-
reglan kröfu um gæsluvarðhald yfir
henni. Þeirri kröfu hafnaði Héraðs-
dómur Reykjavíkur en úrskurðaði
konuna í farbann til 22. desember
næstkomandi.
Magnús. Hann segir að „óhemju
rigning" hafi verið á þessum slóðum,
en aðeins farið að draga úr henni
þegar atvikið varð.
Þrír í bílnum
Magnús kveðst hafa áður orðið
sjónarvottur að gijóthruni á þessum
slóðum, en aldrei á viðlíka hraða og
afli sem á sunnudaginn. Tveir far-
þegar voru staddir í bifreiðinni auk
Magnúsar.
Magnús tilkynnti Vegagerðinni í
Búðadal um hrunið um fimmleytið
og var hefill frá henni búinn að ryðja
veginn um tveimur tímum síðar.
Frjáls fjöl-
miðlun ekki
í viðræðum
við TranSat
FRJÁLS fjölmiðlun hf. á ekki í
viðræðum við breska sjónvarps-
búnaðarfyrirtækið TranSat um
kaup á búnað til sjónvarpssend-
inga, að sögn Jónasar Kristjáns-
sonar ritsljóra DV.
Fram kom hér í blaðinu á sunnu-
dag að TranSat ætti í viðræðum við
auðugt íslensk einkafyrirtæki um
kaup á búnaði til örbylgjusendinga.
Jónas sagði að Fijáls fjölmiðlun
hefði sótt um útsendingarrás á hefð-
bunda tíðnisviðinu en fengið afsvar
frá fjarskiptaeftirlitinu. Það þýddi,
að ef fyrirtækið ætlaði að hefja sjón-
varpsútsendingar yrðu áskrifendur
að hafa önnur loftnet en þau hefð-
bundnu. „Það hefur mjög litla þýð-
ingu að taka upp hefðbundið sjón-
varp á tíðnisviði þar sem lítið er til
af loftnetum og ef þetta er endanleg
niðurstaða liggur okkur ekkert á í
bili að fara af stað,“ sagði Jónas.
------» -».4----
Óskaðeftir
viðræðum við
Norðmenn
JÓN Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra hefur sent Gro
Harlem Brundtland forsætisráð-
herra Noregs bréf þar sem farið
var fram á formlegar viðræður
við Norðmenn um veiðar í Bar-
entshafi og sjávarútvegsmál.
Utanríkisráðherra sagði í ríkisút-
varpinu á sunnudag að í bréfinu
væri óskað eftir viðræðum við Norð-
menn um þá ákvörðun íslensku ríkis-
stjórnarinnar að stefna að aðild ís-
lands að Svalbarðasamningnum.
Einnig hefði hann óskað eftir við-
tölum um samstarf innan Sameinuðu
þjóðanna, að því er varðar hafréttar-
þróunina. Loks óskuðu íslendingar
eftir viðræðum við Norðmenn um
hvern hlut þeir geti hugsað sér að
íslendingar eigi í framtíðinni að því
er varðar fiskveiðar á Barentshafinu,
með vísan til þeirra samninga sem
þeir hafa gert við aðrar fiskveiðiþjóð-
ir við Norður-Atlantshaf.
Fyrirhugað var að Jón Baldvin og
Brundtland hittust á fundi forustu-
manna norrænna jafnaðarmanna-
flokka í Ósló á sunnudag, en vegna
veikinda norska forsætisráðherrans
varð ekki af þeim fundi. Því skrifaði
utanríkisráðherra Gro Harlem
Brundtland persónulegt bréf.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
T0PPTIL80Ð
Kuldaskór
Verð 1.995,-
Stærðir: 30-41
Litir: Svartur, brúnn
Toppskórinn
VELTUSUNDI • SÍMI: 21212