Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
Hóta
árásum
*
á Israela
FÉLAGAR í Fatah-hreyfingu
Yassers Arafats, leiðtoga Frels-
issamtaka Palestínumanna
(PLO), sögðust í gær ætla að
hefja að nýju árásir á ísraela
til að mótmæla drápi á Palest-
ínumanni, sem ísraelsk stjórn-
völd höfðu heitið sakaruppgjöf.
Þúsundir manna tóku þátt í
mótmælagöngu á Gaza-svæð-
inu í gær vegna dráps á 23 ára
félaga í Fatah-hreyfingunni,
Ahmed Abu al-Reesh. Palest-
ínskir heimildarmenn segja að
Abu al-Reesh hafí orðið fyrir
skoti á sunnudag þegar hann
fylgdist með skotbardaga milli
óeinkennisklæddra hermanna
og tveggja eftirlýstra her-
manna sem flúðu.
Vísindamenn
skutu á lík
BYSSUKÚLUM var skotið í
höfuð, fætur og þjóhnappa
mannslíka á háskólasjúkrahúsi
í Hamborg vegna vísindarann-
sókna í tengslum við morðmál
á áttunda áratugnum, að sögn
embættismanna í Bonn í gær.
Mótmæli í
Rúmeníu
RÚMLEGA 40.000 Rúmenar
efndu til mótmæla í Búkarest
og fleiri borgum í Rúmeníu í
gær vegna óánægju með efna-
hagsástandið í landinu og
kröfðust þess að stjórn landsins
og Ion Iliescu segðu af sér.
Pawlak velur
fegurðardís
WALDEMAR Pavlak, forsætis-
ráðherra Póllands, tilnefndi í
gær 23 ára gamla fyrrverandi
fegurðardrottningu sem frétta-
fulltrúa sinn og hunsaði mót-
mæli þeirra sem sögðu hana
of reynslulitla fyrir starfið.
Konan varð Ungfrú Pólland í
fyrra og komst í úrslit alþjóð-
legu fegðurðarsamkeppninnar
Ungfrú Heimur sama ár.
Fjölskylda
Escobars heim
STJÓRN Þýskalands ákvað í
gær að senda fjölskyldu
kólombíska eiturlyfjabarónsins
Pablos Escobars aftur til
Kólombíu. Fjölskyldan hafði
óskað eftir hæli í Þýskalandi
sem pólitískir flóttamenn.
Reuter.
Umsetinn flokksleiðtogi
CHRISTOPH Bergner, leiðtogi CDU á þingi Sachsen-Anhalt, ryðst í gegnum hóp fréttamanna til að
komast á flokkstjórnarfund CDU í Bonn í gær.
Sviss
6,5% virðis-
aukaskattur
samþykktur
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
SVISSLENDINGAR samþykktu í
þjóðaratkvæðagreiðslu um helg-
ina að 6,5% virðisaukaskattur
verði lagður á neysluvörur og
þjónustu frá og með 1995.
Þjóðin hefur fellt tillögu um virð-
isaukaskatt þrisvar sinnum frá 1977
en í þetta sinn greiddu 66,7% kjós-
enda atkvæði með virðisaukaskatti
og 33,3% á móti. 44% þjóðarinnar
tóku þátt í atkvæðagreiðslunni.
Tillaga um bann á tóbaks- og
áfengisauglýsingum var felld með
tæpum 75% atkvæða. Ríkisstjórnin
var á móti tillögunni og ráðherrar
tóku þátt í kosningaáróðrinum gegn
henni. Helstu röksemdir með tóbaks-
og áfengisauglýsingum voru að mikl-
ar og nytsamar tekjur fengjust af
þeim.
Allir ráðherrar í Sachsen-Anhalt í Þýskalandi láta af embætti
Sakaðir um að taka sér
hærri laun en leyfílegt er
FJÓRIR helstu ráðherrar ríkisstjórnar sambandslandsins Sac-
hsen-Anhalt, í austurhluta Þýskalands, sögðu af sér embætti
um helgina og í kjölfar þess ákvað öll stjórn sambandslandsins
að láta af embætti. Meðal þeirra sem sögðu af sér í upphafi var
Werner Miinch forsætisráðherra. Hafði ríkisendurskoðun Þýska-
lands gert athugasemd við að ráðherrarnir fjórir hefðu greitt
sér hærri laun en leyfilegt er á undanförnum árum. Ráðherrarn-
ir sögðust ekki telja sig hafa gerst brotlega við lög en að þeir
hefðu samt sem áður tekið ákvörðun um afsögn.
Kristilegir demókratar fara
með völdin í Sachsen-Anhalt og
var málið tekið fyrir á flokk-
stjórnarfundi í Bonn í gær. Var
því lýst yfir að honum loknum að
ekki yrði efnt til kosninga í sam-
bandslandinu þrátt fyrir afsagnir
ráðherranna þar sem til stæði að
kjósa á næsta ári. Samstarfs-
flokkur CDU f Sachsen-Anhalt,
Frjálsi demókrataflokkurinn, gaf
þó í skyn að hugsanlega myndi
hann telja kosningar nú þegar
betri kost en að bíða fram í júní.
Ráðherrarnir fjórir voru allir
vestur-þýskir að uppruna og
gagnrýndu fréttaskýrendur úr
austurhluta landsins stjórnmála-
menn úr vesturhlutanum harðlega
fyrir að láta greipar sópa um al-
mannafé á sama tíma og þeir
skæru niður útgjöld til allra ann-
arra málaflokka. „Ríkisendur-
skoðun hefur gert opinbert að
Werner Munch og vestrænu ráð-
herrarnir hans eru ekkert annað
en fégráðugir braskarar,“ sagði
Berliner Zeitung í leiðara á fors-
íðu.
Blöð í vesturhluta landsins voru
líka gagnrýnin. Die Welt sagði
Munch hafa fallið í þá djúpu gjá
sem enn skildi að austur- og vest-
urhluta Þýskalands og Frankfurt-
er Ailgemeine Zeitung sagði það
vera hneyksli þegar stjórnmála-
menn reyndu að lifa hátt, ekki
síst í augum íbúa austurhlutans.
Þetta er annað áfallið fyrir CDU
á innan við viku en síðastliðinn
fimmtudag tilkynnti Steffen Heit-
mann, forsetaefni flokksins, að
hann gæfi ekki kost á sér í forseta-
kosningum á næsta ári.
Þing-
kona
ofsótt
FYRSTA kon-
an sem kjörin
hefur verið á
þing Jórdaníu
hótaði í gær að
höfða mál gegn
jórdönskum
dagblöðum ef
þau héldu
áfram að birta
skopteikningar
af henni létt-
klæddri. Mynd-
in var tekin af
konunni, Touj-
an al-Faisal, í
þingsalnum.
Frakkar að mildast
í GATT-málunum
París, Kuala Lumpur. Reuter.
TILKYNNING TIL TEKKAREIKNINGSHAFA
Hinn 6. desember 1993 tekur samtímabókun tékka gildi, sem er
nýr áfangi í tékkamálum hér á landi. Samtímabókun tékka hefur
það í för með sér að bókun tékka, sem innstæða eða heimild er
fyrir, verður endanleg þegar tékka er framvísað í banka eða
sparisjóði. Samkvæmt núverandi bókunaraðferð bókast tékkar í
lok dagsins í tékkanúmeraröð þar sem lægsta númer hefur
< forgang, þótt sá tékki kunni að hafa verið innleystur síðastur allra
I tékka dagsins. Þess er vænst að samtímabókun tékka mælist vel
| fyrir hjá viðskiptamönnum banka og sparisjóða.
x
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
ALAIN Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, sem hefur verið harð-
línumaður í GATT-málum og í andstöðunni við Bandaríkjamenn,
hefur nú snúið við blaðinu að sumu leyti og segir, að Frakkar muni
hagnast meira en tapa á nýjum GATT-samningum. Búist er við, að
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, leggi hart að Francois Mitterr-
and, forseta Frakklands, og Edouard Balladur, forsætisráðherra
Frakklands, að samþykkja GATT og hætta andbandarískum áróðri,
sem er farinn að valda einangrun Frakka innan Evrópubandalagsins.
I viðtali við fjármálablaðið Les
Echos lagði Juppe áherslu á holl áhrif
GATT-samnings á staðnað efnahags-
lífið í Frakklandi og í allri Evrópu og
kvaðst vera farinn að hafa áhyggjur
af andevrópskum og vemdarstefnutil-
hneigingum í landi sínu. Sagði hann,
að koma yrði bændum í skilning um,
að Frakkar sem þjóð gætu ekki ann-
að en tapað á því að múra sig inni.
Eina sneiðin til Bandaríkjastjómar
var sú, að ætti GATT-samningum að
ljúka fyrir 15. desember, yrði hún að
fallast á stofnun sérstakrar eftirlits-
stofnunar með þeim. Juppe er aðal-
samningamaður Frakka í GATT-við-
ræðunum og framkvæmdastjóri Gaul-
listaflokksins, sem hingað til hefur
verið hvað andsnúnastur GATT.
Kohl þrýstir á Frakka
Kohl, kanslari Þýskalands, mun í
dag fara til fundar við franska ráða-
menn og er yfirlýstur tilgangur hans
að efla samstöðu Þjóðveija og
Frakka í lokahrinu GATT-viðræðn-
anna. Eftir heimildum er hins vegar
haft, að Kohl ætli að leggja hart
að þeim Balladur forsætisráðherra
og Mitterrand forseta að fallast á
nýjan GATT-samning. Franskir
embættismenn hafa síðustu daga
lagt áherslu á, að samstaða sé nú
innan EB í GATT-málum en sagt
er, að leggi Bandaríkjastjórn fram
tilboð í Iandbúnaðarmálum nú í vik-
unni, sem önnur ríki en Frakkland
vilji fallast á, þá muni Frakkar ein-
angrast á nýjan leik. Richard Need-
ham, viðskiptaráðherra Bretlands,
sagði í Malasíu í gær, að yrði stífni
Frakka til að koma í veg fyrir
GATT-samninga, myndi það alvar-
leg áhrif innan Evrópubandalagsins.