Morgunblaðið - 30.11.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
37
Val
Súsönnu
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin:
Fanturinn - The Good Son
Leikstjóri Joseph Ruben. Hand-
rit Ian McEwan. Tónlist Elmer
Bernstein. Kvikmyndatökustjóri
John Lindley. Aðalleikendur
Macauley Culkin, Elijah Wood,
Wendy Crewson, David Morse.
Bandarísk. 20th Century Fox
1993.
Nýjasta mynd Joseps Rubens
(Sofið hjá óvininum) fjallar um hið
illa og góða í mannkindinni. Aðal-
sögupersónumar eru tveir ungir
drengir, systkinabörnin Mark
(Elijah Wood) og Henry (Macauley
Culkin). Sá fyrrnefndi ósköp eðli-
legur en hinn sannkallað illyrmi.
Þegar móðir Marks fellur frá er
honum komið fyrir um stundarsakir
hjá föðurbróður sínum og fjölskyldu
hans norður í Maine. Það lítur vel
út, frændfólkið besta fólk sem eiga
litla dóttur og drenginn Henry, sem
er á svipuðu reki og Mark.
Eða hvað? Mark kemst fljótlega
að því að jafnaldri hans er ekki
allur þar sem hann er séður. Undir
sakleysislegu og aðlaðandi yfir-
bragði býr ófreskja sem engu eirir,
með margt miður gott á rýrri sam-
viskunni. Mark reynir að koma
bæði foreldrum Henrys og sálfræð-
ing í þorpinu í skilning um sjúkt
sálarástand drengsins en talar fyrir
lokuðum eyrum. Þetta ágætisfólk
telur á hinn bóginn að ekki sé allt
sem skyldi hjá honum sjálfum, svo-
sem ekkert undarlegt, rétt eftir frá-
fall móðurinnar. Henry er því ein-
sog gangandi tímasprengja og nið-
urtalningin hafin.
Myndir sem Fanturinn eru ónota-
legar og þó hún jafnist ekki á við
þær bestu í þessum flokki, einsog
The Bad Seed (’56), þá er hún yfír
höfuð bæði voveifíleg og spenn-
andi. Ramminn er heldur kuldaleg-
ur við hæfí sögunnar. Lindley
stjómar tökunni vafningalaust líkt
og í fyrri myndum Rubens og tón-
list Elmers Bernsteins drungaleg
einsog efni standa til. Sagan er í
sjálfu sér góð þó hápunkturinn
minni óneitanlega á kjarna málsins
í hinni mögnuðu sögu Sophie’s
Choice, eftir William Styron. En Ian
McEwan lætur ekki vel að skrifa
kvikmyndagerðir bóka sinna, sbr.
The Comfort of Strangers. Ruben
er heldur enginn Hitchcock,- en ger-
ir fagmannlegar myndir og á ör-
ugglega eftir að gera heilsteyptari
verk en þetta og Sofið hjá óvinin-
um. Það vantar herslumuninn al-
ræmda í þær báðar, sem standa
The Stepfather, fyrstu mynd leik- x
stjórans sem vakti athygli, nokkuð •
að baki. Leikurinn er misjafn. Culk-
in ræður ekki sem skyldi við óberm-
ið Henry (tilvísun til fjöldamorðingj-
ans?) en Wood er greinilega gæddur
meiri túlkunarhæfíleikum. Gefur
myndinni sál ásamt Wendy Crew-
son sem allt að því heldur myndinni
saman með eftirminnilegum, hlýj-
um og sterkum leik í hlutverki Sú-
sönnu, móður Henrys. Ætti að fá
Óskarsverðlaunatilnefningu, í það
minnsta.
Bankaræn-
inginn
Basinger
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hetjan („The Real MaCoy“).
Leikstjóri: Russell Mulcahy. Að-
alhlutverk: Kim Basinger, Val
Kilmer, Terence Stamp.
í spennumyndinni Hetjan leikur
Kim Basinger hátæknivæddan
bankaræningja sem lenti í höndum
lögreglunnar fyrir sex árum en er
nú laus úr fangelsi. Hún kemst að
því að sonur hennar heldur að hún
sé dáin og húri kemst að því að
Terence Stamp, sem kom henni í
fangelsið, vill fá hana aftur til að
ræna fyrir sig banka. Skilorðsfull-
trúinn stendur með Stamp svo það
virðist engin leið útúr klemmunni,
sérstaklega eftir að þeir ræna syni
hennar.
Samkvæmt fréttum að utan af
kostnaðarsömum málaferlum Bas-
inger veitti henni ekkert af því að
ræna einn eða tvo banka en eins
og Hetjan sýnir svo ljóslega mundi
það ekkert eiga við hana. Leikkon-
unni fögru tekst aldrei að sannfæra
mann um að hún sé í hópi fremstu
bankaræningja heims. Hún getur
ekki gengið í hvaða hlutverk sem
er. Leikur hennar - það litla sem
til er af honum - minnir sífellt á
leikkonurnar í dagsápum sjónvarps-
ins. Hann er -allur á yfirborðinu,
fullkomin glansmynd, rétt eins og
hjá megninu af hasarmyndaleikur-
um_ yfirleitt.
Ástralski leikstjórinn Russell
Mulcahy, sem gerði Hálendings-
myndirnar, heldur um stjórnar-
taumana og ferst það ekki vel úr
hendi. Myndin er ágætlega tekin
eins og aðrar hans myndir en ef
hann hefur ætlað að gera spennu-
mynd um súpermömmu í kröggum
gleymdi hann spennunni, situr uppi
með ranga súpermömmu og það
sem verra er, gleymdi húrnomum.
Honum er hvergi fyrir að fara nema
í einstaka töktum Val Kilmers, sem
leikur galtóman þjóf er vingast við
Basinger og reynist henni hjálpar-
hella. Þessi ágæti leikari, sem hefur
þó annað stærsta hlutverk myndar-
innar, má kyngja því að hverfa úr
mýndmni löngum stundum svo fyr-
ir kemur að maður gleymir því að
hann er yfirleitt með í spilinu.
Stamp er aftur ágætur, tekur hlut-
verk sitt sæmilega alvarlega og
sleppur með skrekkinn.
Hetjan er þannig heldur lin has-
ar- og spennumynd sem hefur ekki
uppá neitt nýtt að bjóða og reynist
sjálfsagt skárri kostur innan um
meðalafþreyinguna á myndbanda-
leigum þangað sem henni virðist
fyrst og fremst stefnt.
<------------
Þessi
geysivinsæla og
fjölliæfa hrærivél er
alveg ómissandi við
aUan bakstur. w
Hún býðst nú
ásérstöku
jóiatilboðsverði!
• Allt í einum armi
> Blandari, grænmetiskvöm og hakkavél fylgja með
• Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar, brytjar, rífur, hakkar og sker
> íslenskur leiðarvísir og uppskriftahefti
llún er elskub og
dáð ajöUum!
Verð aðeins kr. 17.300,- (afb.verö)
kr. 16.435, - (staðgr.verö)
UMBOÐSMENN OKKAR ERU:
Akranes: Búðardalur.
Rafþjónusta Sigurdórs Ásubúð
Borgarnes:
Glitnir
Borgarfjörðun
Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur
Blómsturvellir
Grundarfiörður
ni Hall
Pólfinn
Blönduós:
HjÖrleifur Júlíusson Rafalda
R,
Húsavík:
Öryggi
Pórshöfn:
Noröurraf
Neskaupstaður
Sauðárkrókur Revðarfjörður.
Rafsjá Rarvélaverkst Áma E.
Guöni Hallgrímsson
Stykkishólmur.
Skipavík
Siglufiöröur
Torgio
Akureyri:
Ljósgjafinn
Ral
Egilsstaðir
Sveinn Guðmundsson
Breiðdalsvík:
Stefán N. Stefánsson
Höfn í Homafirði:
Kristall
Vestmannaeyjar.
Tréverk
Hvolsvöllur
Kaupfélag Rangæinga
Selfoss:
Árvirkinn
Garður
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík:
Ljósboginn
Viljir þú endingu og gæði - velur þú SIEMENS.
SMITH & NORLAND
SlMI 628300
N Ó A T Ú N I 4
p [mSii
Metsölublaóá hverjum degi!
MIKIL GÆÐI
Nýr VW Golf á aáeins T ,058.0
FYRIR
LÍTIÐ VERÐ
Það er ekki oft sem eðalvagn á
borð við VW Golf býðst á jafn
lágu verði og raun ber vitni:
1994 árgerSin af þessum
þýska gæðabíl kostar nú
aðeins 1.058.000 kr.
Volkswagen
HEKLA
Laugavegi 170 -174 • Sími 69 55 00
VERND
UMHVMUÍY
VinURKINNINO
lONIANAMOON