Morgunblaðið - 30.11.1993, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
1111...........
■
fta'OFESdlONAL:
fclk r
fréttum
AFMÆLI
Morgunblaðiö/Ami Sæberg
Afmælisbarnið Bragi Hlíðberg gat ekki annað en hlegið þegar félag-
ar hans spiluðu „Tumi fer á fætur“. Við hlið hans stendur eiginkon-
an, Ingrid. F.v. eru þeir Hilmar Hjartarson, Þorvaldur Bjömsson
og Þosteinn Þorsteinsson.
Spilað fyrir Braga
Hlíðberg* í morgnnsárið
Klukkan níu að morgni sl.
fostudag í beljandi rigningu
og slagviðri mættu ellefu félagar
úr Félagi harmonikuunnenda í
Reykjavík fyrir utan heimili Braga
Hlíðberg harmonikuleikara. Til-
efni var 'sjötugsafmæli kappans
og vildu félagar hans því koma
honum á óvart með nikkumar sín-
ar.
Kona Braga, Ingrid Hlíðbérg,
var með í samsærinu en afmælis-
barnið gmnaði ekkert. Bragi tók
uppákomunni með stóískri ró og
kom brosandi út á tröppurnar þeg-
ar félagarnir spiluðu lagið „Tumi
fer á fætur“. Síðan var afmælis-
söngurinn spilaður og þegar hon-
um var lokið var öllum boðið inn
í morgunkaffí. Nágrannakonu,
sem hafði komið til að fylgjast
meðj var einnig boðið inn.
„Eg var að ppkrast með kaff-
ið,“ sagði Ingrid þegar inn var
komið og bætti við að hún hefði
óttast mest að Bragi kæmi auga
á félaga sína út um gluggann.
Hann kvaðst hins vegar ekki hafa
grunað neitt. „Þetta var mjög
skemmtileg uppákoma. Ég hef
heyrt um að sungið væri fyrir fé-
laga í karlakórum, en mér datt
aldrei í hug að mínir menn kæmu
og spiluðu á harmonikurnar. Ekki
síst vegna þess að veðurspáin var
afleit.“
Félagið er elsta harmonikufé-
lagið á íslandi, var stofnað 1947
og í því eru nú um 150 manns.
Að sögn Hilmars Hjartarsonar for-
manns er þetta í fyrsta skipti sem
einhveijir innan félgsins taka sig
saman og koma öðrum félaga á
óvart á afmælisdaginn.
Nýja stjórnin ásamt formanni Svd. kvenna í Reykjavík^ Ingibjörgu
B. Sveinsdóttur (t.v.). Við hlið hennar stendur Birna E. Oskarsdóttir
nýkjörinn formaður, Sigurlaug Bjarnadóttir, Helga Runólfsdóttir,
Helga E. Kristjánsdóttir, Ásta Björg Kristjónsdóttir, Soffía Guð-
mundsdóttir, Jóhanna Runólfsdóttir, Kristín Unnur Ásgeirsdóttir og
Halldóra Emilsdóttir.
FELAGASAMTÖK
Ný slysavama-
deild stofnuð
ASeltjamamesi hefur nýverið
verið stofnuð sLysavamadeild
kvenna. Á stofnfundinn mættu
áttatíu manns bæði félagar og gest-
ir. Formaður var kjörin Bima E.
Óskarsdóttir. Sagði hún að mark-
mið hinnar nýju deildar væri að
vinna að slysavömum í bæjarfélag-
inu ásamt því að styrkja starf björg-
unarsveitarinnar. Myndin var tekin
á fundinum þegar formaður Slysa-
vamadeildar kvenna í Reykjavík,
Ingibjörg B. Sveinsdóttir, færði
nýkjörinni stjórn deildarinnar blóm.
SAMSKIPTI
Víkingamir heilluðu kennarann
Morgunblaðið/Emilía
Iris Grossmann, grunnskóla-
kennari í Berlín vill koma á
bréfaskriftum á milli íslenskra
og þýskra skólanema.
um, hvorki veður- né_ fréttakortum
og fólk veit lítið um ísland. Það er
einfaldlega einangrað frá Evrópu.“
Heimilisfang skóla Irisar er:
Clay-Oberschule
Bildhauerweg 9
D 12355 Berlin.
Víkingar hafa átt fastan sess í
hjarta Irisar Grossmann,
gmnnskólakennara í Berlín, frá því
að hún var lítil stúlka. Hún hefur
heimsótt landið í þrígang og upp-
numin sagt nemendum sínum frá
því sem fyrir augu ber í norðrinu.
Hún segir Þjóðveija hins vegar vita
afar lítið um hið einangraða ísland
og hyggst nú koma á tengslum ís-
lenskra og þýskra nemenda á
ensku. Með því vonast hún til að
slá tvær, ef ekki fleiri, flugur í einu
höggi; halda tengslum sínum við
ísland, kynna nemendunum landið,
æfa þá í ensku og fá þá til að skapa
hluti og gefa eitthvað af sér.
Hreinleikinn mikilfenglegur
Iris kom fyrst til íslands árið
1991 og hreifst af landinu, þrátt
fyrir að henni virtust íslendingar
vera heldur kuldalegt fólk. „Það var
sérstaklega hreinleiki landsins sem
varð svo áberandi í samanburði við
Berlín þar sem allt er svo yfírhlaðið
og að fara í hundana. Ég kom aft-
ur ári seinna til að leita uppi ís-
lenska skóla til að eiga samskipti
við í gegnum tölvunet. Árangurinn
af þeirri ferð var enginn og þegar
ég sneri aftur heim var búið að fjar-
lægja tölvurnar vegna niðurskurðar
sem er í vesturhlutanum vegna
uppbyggingarinnar í austri. Ég
hafði komið á samskiptum nemenda
minna við Noreg og til að halda
þeim áfram skrifuðu þau bréf. Það
reyndist miklu betri og persónu-
legri leið og krakkarnir hafa um
nóg að skrifa, poppstjörnur og þess
háttar. Þá hef ég einnig fengið þau
til að mála myndir, búa til pappír
og umslög og senda til Noregs, sem
hefur gengið vel. Þau bíða í ofvæni
eftir svari.“
ísland lítið í fréttum
Iris kennir ensku, myndlist og
þýsku fyrir útlendinga í Berlín en
í skólanum eru böm af 27 þjóðern-
um. Hún segist vera ákafur blaða-
lesandi og fylgjast vel með fréttum.
Hefur henni mnnið til rifja hversu
lítið er fjallað um ísland í Evrópu
en frá því að hún kom hingað fyrst
hefur hún starfað með íslendingafé-
laginu í Berlín. „ísland komst í
fréttimar í kringum leiðtogafund-
inn 1986 og svo ekki söguna meir.
Landið er ekki inni á neinum kort-
BORGARKRINGLUNNI
SÍMI677230
\
.. «
0
TAGHeuer
SWISS MADE SINCE 1860
COSPER
rlB
\L5S7
BL
COSPER
Hafð’ekki áhyggjur, elskan, ég fékk ágætt sæti.
MeísölubUk) á hverjum degi!