Morgunblaðið - 15.12.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
11
Hinn 16. desember verða haldnir árlegir barrokktónleikar á jóla-
föstu í Laugarneskirkju.
Barrokktónleikar
í Laugameskirkju
ÁRLEGIR barokktónleikar á jólaföstu verða haldnir í Laugarnes-
kirkju 16. desember. Leikin verða verk eftir F. Couperin, G.Ph.
Telemann, J.Chr. Bach og J.B. Loeillet.
Sigurður Flosason.
Tíminn er dökka hliðin á svona
múltífúski eins og ég stunda. Auðvit-
að gengur það út á að hafa í sig og á
- ég vildi bara spila og semja ef ég
ætti þess kost. En það er einfaldlega
ekki vinnandi vegur að lifa af djass-
tónlist á íslandi. Og raunar alls stað-
ar erfitt. Það er næstum ekki til að
menn labbi inn á staði hér og spili
svona vafningalaust og óhátíðiega."
Hér er eitthvað fyrir Hannes
„Til að hlutirnir komist í kring
þarf heilmikið skipulag og fjármögn-
un sem getur þýtt ýmsar fórnir. í
djassinum hérlendis gera menn
nefnilega flest að eigin frumkvæði.
Þar veltur allt á hvort menn hafist
sjálfir að. Ég held að Hannes Hólm-
steinn Gissuararson ætti að snúa sér
að djasstónlist, hún er hinn eini sanni
vettvangur frjálshyggju og einka-
framtaks á íslandi."
Hvað vinda þeir sér í þessir fram-
takssömu djassgeggjarar? Tónleika,
svarar Sigurður, alls konar tónleika-
verkefni. Nýja piatan kom þannig til
að hann hélt tónleika á Listahátíð í
Hafnarfírði og fór síðan með félögum
sínum út um land. „Þetta var tíu
daga verkefni/með sex tónleikum
og upptökum í stúdíói. Áður þurfti
margra mánaða vinnu við símann
og tölvuna. Ég gat gert þetta en nú
kemur að því sem er heldur blóðugt;
þannig er það ekki með alla; það er
töluvert af tónlistarmönnum sem
ekki hafa aðstöðu eða uppburði til
svona nokkurs. Þess vegna fínnst
mér að það ætti að vera á íslandi
apparat fyrir djass, klassík aðra en
Sinfóníuna og jafnvel ósöluvænlega
rokktónlist. Til að auðvelda tónleika-
hald, útgáfu og kynningu, hér heima
og í útlöndum. Þetta bráðvantar.
Nú er ég ekki að tala um neitt
stórt og óviðráðanlegt heldur litla
skrifstofu með ákveðið fjármagn þar
sem fólk getur komið, sett fram
hugmyndir og óskað eftir aðstoð. Til
dæmis útvíkkun á Islenskri tónverk-
amiðstöð, þar sem þegar eru hafnar
tilraunir í þessa átt. Þó að ágætt sé
að berjast fyrir íslensku tónlistarhúsi
fínnst mér ekki mega gleymast hveij-
ir halda við tónlistarlífi þjóðarinnar.
Það er svona fólk eins og ég og hóp-
ar eins og Kammersveit Reykjavíkur
og Blásarakvintettinn og kórar og
lúðrasveitir. Það verður svolítið að
hjálpa þessu fólki til að halda áfram.“
Nákvæmlega réttu mennirnir
Gengið á lagið hefur orðið til af
tónsköpun Sigurðar og samvinnu
hans við þá Eyþór Gunnarsson píanó-
leikara, Pétur Östlund trommara,
Ulf Adáker trompetleikara og Lenn-
art Ginman bassaleikara. Elstu lögin
á diskinum eru sex til sjö ára gömul
en um helmingurinn saminn á þessu
ári. Sigurður fékk listamannalaun í
hálft ár og nýtti tímann til þess ama
og raunar ýmissa fleiri tónlistarverk-
efna. Síðan fékk hann til liðs við sig
þá fjórmenninga, gamla félaga ef frá
er talinn sá sem plokkar bassann,
Honum heyrði Sigurður í á plötu og
fannst að hér væri réttur maður.
„Svo hringdi ég í hann og bauð að
vera með, sem hann þáði, það er
geysilega mikiivægt að finna ná-
kvæmlega réttu mennina. Ég held
að það hafi tekist á þessum diski,
hafði lengi ætlað að koma frá mér
eigin tónlist á föstu formi og hlýt
að vera ánægður með útkomuna.
Músíkin er persónuleg eins og ég
minntist á í upphafí og hún er von-
andi skemmtileg. Af ólíkum uppruna,
með alls konar stemmningu. En allt-
af með stemmningu."
Þ.Þ.
Listamennirnir sem koma fram
eru Camilla Söderberg, Ragnheiður
Haraldsdóttir, Martial Nardeau,
Guðrún Sigríður Birgisdóttir, Peter
Tompkins, Svava Bernharðsdóttir,
Judith Þorbergsson, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir, Snorri Örn Snorrason
og Elín Guðmundsdóttir og leika
þau á upprunaleg hljóðfæri.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30 og
em u.þ.b. klukkustundar langir.
Aðgangseyrir er 800 kr., 500 kr.
fyrir nema og ókeypis fyrir börn.
Höfundar
lesa úr verk-
um sínum
HÖFUNDAR Almenna bókafé-
lagsins munu lesa úr verkum sín-
um á veitingahúsinu 22 í kvöld,
miðvikudagskvöld 15. desember,
kl. 21.
Eftirtaldir höfundar munu kynna
verk sín: Illugi Jökulsson — skáld-
söguna Barnið mitt, barnið, Einar
Már Guðmundsson — skáldsöguna
Engla alheimsins, og Jóhanna Kris-
tjónsdóttir mun kynna Perlur og
steina, árin með Jökli.
Allir em velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Nýjar bækur
Ég hugsa eins og þið, ljóðabók
Ásdísar Jennu Ástráðsdóttur, er
komin í þriðju prentun. Bókin kom
fyrst úr 1990 og
vakti athygli.
Ásdís Jenna
hefur ekki stjóm á
hreyfingum handa
og fóta, en stjóm-
ar rafmagnshjóla-
stól og ritar á tölvu
með því að styðja
á takka með hök-
unni. Hún stundar *®2na
nú háskólanám. Astraðsdottir
Út er komin bókin Veður á ís-
landi í 100 ár eftir Trausta Jónsson
veðurfræðing. Bókin er uppsláttar-
rit og hefur að geyma mikinn fróð-
leik. I bókinni er yfírlit yfir veðurfar
hvers mánaðar frá árinu 1893 til
1993. Hvert ár fær umfjöllun á einni
opnu bókarinnar og er hæsta og
lægsta hitastig, fjöldi sólskinsstunda,
mesta og minnsta úrkoma og ríkj-
andi vindáttir meðal þess sem skráð
er fyrir hvern mánuð. Þá fylgir lýs-
ing á tíðarfari mánaðarins í heild,
sem og lýsing á veðurfarinu yfir árið.
Einnig er getið veðurmeta í ein-
stökum mánuðum og yfír árið í heild,
auk þess sem helstu óveður, mann-
og fjárskaðar, hafískomur, jarð-
skjálftar og eldsumbrot eru tíunduð.
Á hverri opnu er ljósmynd frá
þeim tíma sem fjaliað er um, með
fróðleiksmolum er tengjast megin-
efni bókarinnar.
h
Útgefandi er ísafold. Bókin er
237 bls. að stærð, í stóru broti og
kostar 3.490 krónur.
gæðanrn vegrn!
að sjálfsögðu!
s|l|
% v v % E ff f) TirfcttjV- ‘ ' ' ’