Morgunblaðið - 15.12.1993, Page 14

Morgunblaðið - 15.12.1993, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 Heimur Harúns eða Khattam Shúd Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Salman Rusdie: Harún og Sagnahafið Hannes Sigurðsson þýddi Útg. ísafold 1993. Rithöfundinn Salman Rusdie hefur undarlega sérstöðu í margra hugum; bók eftir hann var bönnuð víða í löndum múslíma og Kho- meini erkiklerkur í íran dæmdi hann réttdræpan fyrir Söngva Sat- ans vegna þess að þar væri farið óvirðulegum og óviðurkvæmileg- um orðum um trúna. Síðan hefur Rusdie meira og minna farið huldu höfði og verið undir vemd breskra stjórnvalda. Nú deila menn hins vegar um hvort Khomeini hafí nokkum tíma tekið þátt í þessari bannfæringu, hann hafí verið meðvitundarlaus að kalla eða gersamlega elliær og ekkert vitað hvað var að gerast svo það hafi jafnvel verið fyrir at- beina núverandi forseta landsins Rafsanjani sem bannfæringin var útgefin á sínum tíma. Þetta var ekki síður ruglað og skringilegt vegna þess að þó allir hafí heyrt um Söngva Satans hafa færri lesið bókina og þeir sem hafa lesið hana sjá ekkert réttlæt- anlegt við þessi ofsafengnu við- brögð. Þó ætla mætti að einangrun sem Salman Rusdie hefur búið við og sú aðstaða sem hann hefur mátt sætta sig við, rændi hann ritgleði og sköpunargáfu er eitthvað annað að sjá af nýjustu bók hans Harúr og Sagnahafið sem Isafold hefur sent frá sér í afbragðssnjallri þýð- ingu Hannesar Sigurðssonar. Þar segir frá sorgmæddu borg- inni Alifbay og þó allt sé raunalegt þar er þó 'sem betur fer einn skemmtilegur maður í bænum Rashíd Khalífa. Hann er feikilegur sögumaður og frásagnargleði hans er frægt ekki bara í óhamingju- sömu borginni heldur og vítt og breitt um landið svo eftir honum er kallað m.a. þegar pólitíkusar þurfa að slá sér upp hjá kjósendum og afla sér fylgis. Rashíd veit hvemig hann getur stöðugt end- umýjast, þá fær hann sér sopa úr hinu mikla Sagnahafi og þá færist hann allur í aukana. Harún sonurinn er seigur og sniðugur strákur og Soraja kona hans lifa þarna góðu lífi með Keis- aranum af Bla-bla sem er heimilis- faðirinn og í sama húsi búa kyndug hjón og eilítið gransamleg án þess að augljóst sé af hveiju, þau Seng- úptahjónin. Það gerist svo einn góðan veður- dag og næstum því samtímis að allt í einu missir Rashíd sagnagáf- una og út úr honum kemur ekkert nema krúnk og Soraja hleypur í burtu með hinum ógeðfellda herra Sengúpta. Nú era góð ráð dýr og Harún safnar liði kynlegra liðsmanna .og þeir fara í langa ferð - sem kannski stendur þó ekki yfir nema augna- blik - því hann hefur komist að raun um að fólið Khattam-Shúd Á djúpmiðum með almennskunnar Salman Rusdie hefur ákveðið að menga Sagnahaf- ið sem er uppspretta allra sagna og eitra það og hann svífst einskis í baráttunni. Það má lesa sögu Salmans Rushdie eins og dæmisögu og hörkulega á þjóðfélag sem er að úrkynjast, þar sem ráðist er gegn fornum og klassískum gildum, það má lesa hana sem sögu þar sem háð er grimmileg barátta góðs og ills. Og hið góða sigrar hvernig sem á allt er litið því fyrir mikið harð- fylgi Harúns og hinna kyndugu vina hans tekst að bjarga Sagna- hafinu og kveða hin illu öfl endan- lega í kútinn. Sagan er því margbrotin og heillandi og þó skömm sé frá að segja hafði ég ekki grænan gran um að Salman Rushdie gæti meira að segja verið alveg drepfyndin. Og þýðandi á ekki minnstan þátt í því hve sagan nær miklu og góðu flugi. Spor í myrkri Békmenntir Sigrún Klara Hannesdóttir Þorgrímur Þráinsson: Spor í myrkri. Fróði 1993. Binni situr í strætó þegar blá- ókunnug stúlka sest við hlið hans og byijar að lesa í lófa hans. Sag- an hefur engan aðdraganda, les- andi er hrifinn inn í einkennilegan söguþráð án vífilengna og frásögn- in er svo grípandi að ekki er hægt að leggja hana frá sér fyrr en að lestri loknum. Sex kunningjar, þijár stelpur og þrír strákar, fara í útilegu á af- skekkt eyðibýli á Snæfellsnesi eina helgi. Binni, strákurinn úr strætó, og Sóla, stelpan sem tók í hönd hans í strætó, era tvö úr hópnum og era aðalsöguhetjumar. Sóla er skyggn og hagar sér á margan hátt undarlega, eða öllu heldur — höfundur leyfír sér að láta hana gera hluti sem venjulegir unglingar mundu ekki gera. Binni er bældur og feiminn og á í erfiðleikum með sjálfan sig en hinir krakkamir, Melka og Kría, Hebbi og Trausti, eru krakkar eins og maður á að vænta í unglingasögum. Dálítið upptekin af kynlífí og kossum, reyna að sýnast klár og sæt og rétt eins og páfuglar breiða þau út fallegu fjaðrimar sínar. Umhverfið er tilvalið fyrir dulúð- uga sögu þar sem draugagangur og alls kyns dulræn fyrirbrigði gætu átt sér stað.,Þar gerast und- arlegir atburðir sem tengja ungl- ingana mjög sterkum böndum. Sóla er í aðalhlutverki en hinir krakkamir hafa sínu hlutverki að gegna. Sóla stýrir sögunni og leið- ir alla krakkana undir lok sögunn- ar til að opna sig og segja frá sín- um dýpstu leyndarmálum og sjá sig í nýju ljósi. Ef til vill era vanda- málin sem börnin hafa upplifað fullmikil til að vera sannfærandi, en sem betur fer hegða þau sér fullkomlega eðlilega á heimleiðinni og geyma reynsluna hvert fyrir sig. Talsmátinn í sögunni er léttur og kíminn. Unglingarnir era mjög opnir í umræðum sínum og tala „ýkt“ mál. Orðanotkun er óvenju- leg og orðatiltæki vel til þéss fallin að auðga íslenskuna enda ungling- ar oft frábærir orðasmiðir. Mér finnst gaman að sjá talað um „hug- arflugur“ og „krampuð“ andlit. Umræðuefnin eru alls kyns hlutir sem eflaust falla í lesendahópi þessarar bókar mjög vel í geð. Ég hygg að höfundur vilji í þess- ari sögu koma á framfæri vissum boðskap en hann gerir það þannig að ekki skaðar söguna. Hann lætur Sólu hamra á því að menn eigi að vera þakklátir fyrir það góða sem hendir þá, allt sem illt kemur fyrir er til að þroska einstaklinginn og sjálfvíg er aldrei lausn. Vandamál- in era til að leysa þau. Kápan er gerð af Helga Sigurðs- syni. Hún í gráum tónum, mjög í Bókmenntir Þorgrímur Þráinsson anda sögunnar með alvarlegum unglinga-andlitum og skuggalegu húsi í baksýn. Þetta er ein besta kápumynd á unglingabók sem ég hef séð lengi. Einar Falur Ingólfsson Eysteinn Björnsson: Dagnætur. Bókaútgáfan Norðurljós. Ljóð, 70 bls. Kápumynd eftir Ingiberg Magnússon. Titillinn Dagnætur á ágætlega við ljóðabók Eysteins Björnssonar, og gefur tóninn, því ljóðin falla mörg á rómantískan hátt um kvöld, myrkur og einsemd. Þá leikur náttúran líka stórt hlutverk, mild náttúruorð og náttúruskynjanir, eins og heiti bók- arhlutanna þriggja bera vitni um: Andvari, Sólfar og Blikur. Ljóðaheiti á borð við Sumarnótt, Haust, Minn- ing og Ég elska þig segja líka sitt- hvað um efnið. Skáldið er á hefðbundnum slóð- um, er að fást við kunnuglegar til- fínningar og stemmningar. En ljóðin eru engu að síður ólík í byggingu og stíl. í sumum beitir Éysteinn óspart ljóðrænum myndhverfingum og litorðum — sækir þar sitthvað til skálda eins og Snorra Hjartarsonar og Steins Steinarr — en gerir það stundum á annaðhvort svo upphaf- inn eða venjulegan hátt að ljóðin falla flöt. Þannig bregður á einum stað fyrir gulu haustlaufi (33), „Ég elska þig sumarnótt" (15) segir ljóð- mælandinn annarsstaðar, og hann á líka gamla mynd af rökkrinu: „Mjúkt sem silki/sveipar rökkrið/mig skikkju sinni“ (38). Allt er þetta kunnuglegt og bætir engu við það ljóðmál sem við eigum. En í ljóðun- um, sem yfirleitt eru fínleg og ágæt- lega byggð, má líka finna persónu- legri tök á myndmáli, eins og þar sem „þoka í gilinu/grætur steinum" (10). Styttri ljóðin eru yfirleitt betri, og best þau þar sem rómantískri náttúrusýninni, sem er eins og til- beiðsla til æðri máttarvalda, er kom- ið til skila á látlausan hátt, en ekki upphafínn. Bæn er gott dæmi: Leyfðu mér að líta enn eitt sinn eldrauða frjóhnappa fjallafurunnar sjá duftið sáldrast er ég strýk hið græna hár finna ilminn af fingrunum í ferðalok. Eysteini tekst vel upp þegar hann nær á einfaldan hátt að skapa óvissu eða undrun. Þannig er það í Gisti- stað, þar sem ljóðmælandinn vaknar undir súð, vindur fer um húsið, og hann veltir fyrir sér hvort hann hafí komið þar áður. Annarsstaðar vill hann leggjast til svefns í helli risa: „fínna hárin rísa á höfði mér/þegar hann byltir sér/bíða í ofvæni/eftir að hann vakni“ (51). En það ljóð sem hvað mest stingur í stúf er um leið eitt það athyglisverðasta, Til Edith Bókmenntir Sigrún Klara Hannesdóttir Guðmundur Ólafsson. Emil og Skundi - Ævintýri með afa. Vaka Helgafell. 1993 Þetta er þriðja saga höfundar um Emil og hundinn hans Skunda. Fyrsta bókin fékk íslensku bama- bókaverðlaunin enda einstaklega vekjandi saga. Síðari sögurnar eru sjálfstætt framhald af þeirri fyrstu. Emil er nú orðinn tæpra þrettán ára og ferðinni er heitið til Emils aía í Ólafsfirði. Með honum í för er vin- ur hans Gústi sem er ári eldri með systur sína Gunnu sem er fímm ára. Emil á nú litla systur og allt fjöl- skyldulífið með besta móti. Þau 'éiga að fá að vera um skeið hjá afa. Sagan er látlaus frásögn af hvers- dagslegum atburðum, ferðinni í rút- unni norður þar sem Gunna leikur heilmikið hlutverk sem skemmtilegum orðatiltækjum og er hún skemmti- kraftur sögunnar. Eftir að norður kemur fara þau í veiðitúr. Gunna syndir „skrifsund" af þvílíkum krafti að dygði í í heila skáldsögu og þau njósna um afa og ökumanninn á rauða Skódanum. Spennandi og skemmti- legt atvik verður þegar þau fara í útilegu og Gústi verður að fara yfír fjall til að sækja hjálp. Eflaust hefði mátt vinna betur úr því ferðalagi en frá því er sagt eins og í fjarlægð. Þessi saga er lipurlega skrifuð en hún skilur lítið eftir. Emil er mjög barnalegur eftir aldri og gerir lítið annað en að gráta þegar eitthvað bjátar á. Hann hefur minni framtaks- semi nú sem smápatti í fyrstu sög- unni. Höfundur hefur ekki látið hann þroskast með aldrinum. Ur því svo er ekki hefði jafnvel verið betra að hafa aðra söguhetju í þessari bók en þann Emil sem við kynntumst í fyrstu bókinni. A Sumarferð til Olafsfjarðar Guðmundur Ólafsson Eysteinn Björnsson Piaf; þar sem einhver óræður galdur er bak við orðin: Ég iðrast bara eins Edith að ég skyldi ekki fara burt meðan ég gat enn gengið Mörg ljóð bókarinnar virðast ekki vera mikið annað en orð, sem raðað hefur verið saman af vandvirkni. Sem dæmi má taka Hugarró: „Ein- rúm innri kyrrð/alvídd/varðeldur sálarinnar/sem vísar veginn/til guðs“. Það er ekki nóg að orðin séu skáldleg, þau þurfa að segja eitthvað og ná sambandi við lesandann. Bók- in hefði orðið sterkari ef hún hefði verið grisjuð af nokkrum boðskap- ar-, ákalls- eða ástarljóðunum; text- um með rauðum vörum, þar sem kveikt er í hrossaflugum eða Guð spurður um hlutverk. Eins og flest önnur skáld gera einhverntíman, þá veltir Eysteinn fyrir sér hinni erfiðu glímu við orð- in. Ljóðið Örvænting er um þá bar- áttu, um mann sem vill losna úr átökunum en getur það ekki, hann verður að beijast. Þetta er: „maður sem kyrkir/sitt kærasta barn“, og hann „byrlar þeim eitur/sem ann hann hvað mest“. En skáldið rífur síðan niður þessa mynd með þeirri fýlulegu staðhæfíngu, að á meðan: „pissa menningarvitarnir/hver utan í annan“. Ljóðskáldið mætti skerpa ljóð sín og skýra, og skera burtu þau sem ekki lifna. Því eins og sum ljóðanna eru ágæt, þá vantar Eystein enn persónulegan tón sem getur borið uppi heila bók, sérstakan tón eins og til dæmis þann sem er í ljóðinu um Edith Piaf. Það.er ekki nóg að kunna að fara snyrtilega með orð og þekkja skáldskap annarra til hlít- ar; tónninn þarf að vera persónuleg- ur og sannur, og í ljóðunum líf- Þangað til svo verður er Eysteinn eins og Skáldið í samnefndu ljóði hans, en það „hefur engin svör á bálreiðum höndum/ og dorgar á djúpmiðum meðalmennskunnar". -------------»-♦ ♦--------- Nýjar bækur ■ „Aldrei aftur“. Þórey Frið- björnsdóttir hefur sent frá sér unglingaskáldsöguna Aldrei aftur. Þórey hefur áður þýtt fjölda bóka, en þessi er bók er frumraun hennar. A bókarkápu segir m.a.: „Þau vora systkini. Hún var sextán ára og ástfangin. Hann var átján ára og í leit að sjálfum sér. Og svo var það Jói. Hann vildi vera meira en bara einhver vei\julegur gaur. En heimurinn reyndist miklu harðari en þau óraði fyrir. Hvað ef ástin var ekki sú sem hún sýndist? Hvað ef það varð allt í einu of dýrkeypt að vera svalur? Gat maður yfírleitt dáið fyrir tvítugt?" Útgefandi er Klettaútgáfan. Bókin kostar 1.950 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.