Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
19
Það er því e.t.v. ástæða til að
spyrja hver sé hlutur óbeinna ríkis-
framlaga annars vegar og kaup-
skerðingar sjómanna hins vegar, í
eignaaukningu stærri útgerðanna.
Verður aftur snúið?
Eftir tíu ár með kvótakerfi og
þijú ár með fullu frelsi til að fram-
selja veiðiheimildir, er ástæða til að
litast um og spyija hvort kerfið hafi
náð tilgangi sínum. Eitt aðalmarkm-
iðið var að minnka veiðigetu flotans
og laga hann að stærð fiskistofna.
Fljótt á iitið benda tölur um tonna-
fjölda og vélarafl flotans síðustu tíu
árin til að veiðigetan hafi lítið sem
ekkert minnkað. Meðalstórum bát-
um og minni togurum hefur fækk-
að, en fjölgun stórra togara og smá-
báta vegur upp á móti. Aftur á
móti hefur kerfið haft stórar hliðar-
verkanir, það hefur fært til mikil
verðmæti í sjávarútvegi og breytt
þar valdahlutföllum langt umfram
það sem menn sáu fyrir þegar kerf-
inu var komið á. Sjómannasamtökin
virðast nú tilbúin að láta reyna á
hvort ekki verði aftur snúið.
Því er oft haldið fram, að þótt
kvótakerfið sé gallað, þá geti enginn
bent á annan raunhæfan valkost.
Það sé til að mynda ekkert réttlæti
í að láta útgerðina borga veiðigjald
fyrir kvóta sem hún er búin að borga
fullt verð fyrir. Það sé heldur ekki
hægt að gera verðmæti, sem eru
veðsett fyrir tugi milljarða, verðlaus
á einu bretti. Niðurstaða Hæstarétt-
ar um að afskrifa megi kvóta um
20% á ári leiðir þó hugann að hug-
mynd sem Snjólfur Ólafsson hefur
sett fram (1990), um kvótakerfi þar
sem kvótar fyrnast um 10-25% á
ári. Ríkið eignast þar með kvótann
jafnóðum og hann er afskrifaður hjá
útgerðinni, og leigir hann svo út
aftur á markaðsverði eða úthlutar
honum á einhvern annan hátt sem
menn koma sér saman um.
Ef til vill hefur Hæstiréttur haft
þessar bakdyr í huga.
Hötundur er þjóðfélagsfræðingur.
Um fj ármagnsflutninga
eftír Gunnar
Tómasson
Á fundi með fréttamönnum 29.
október sl. taldi forsætisráðherra, að
„opnun landamæra fyrir fjármagns-
flutningum væri forsenda aðgerða
[í vaxtamálum]" en þar voru kynnt-
ar, enda væri „aðgerðin valdníðsla
ef menn hefðu ekki möguleika á að
ávaxta fé silt annars staðar ef þeim
líka ekki kjör ríkisins“.
Hér er fulldjúpt í árinni tekið
Stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins hefur um nær hálfrar aldar skeið
heimilað aðildarríkjum að sníða sér
stakk eftir vexti á sviði fjármagns-
flutninga, jafnframt því sem Stofn-
skráin hefur skuldbundið ísland og
önnur aðildarríki til þess að afnema
gjaldeyrishöft á sviði innflutnings
vöru og þjónustu.
í árslok 1992 jafngilti skuldastaða
hins opinbera, bankakerfis, og fjár-
festingalánasjóða við útlönd samtals
um 50% af þjóðarframleiðslu ársins
1992, og var nánast óbreytt frá stöð-
inni í árslok 1989 (49%). Frá faglegu
sjónarmiði er því ótvírætt, að ís-
lenzka hagkerfið er ekki aflögufært
með fjármagn.
„Slík staða bankakerf-
isins er óviðunandi með
öllu og leyfir ekki auk-
inn útflutning fjár-
magns, eins og yfir-
stjórn íslenzkra pen-
ingamála hlýtur að
skilja.“
Gjaldeyrisstaða bankakerfisins, að
meðtöldum „gjaldeyrisvarasjóði"
seðlabanka, var neikvæð um 8.000
milljónir króna um síðustu áramót.
Slik staða bankakerfisins er óviðun-
andi með öllu og leyfir ekki aukinn
útflutning fjármagns, eins og yfir-
stjórn íslenzkra peningamála hlýtur
að skilja.
Fijálsir fjármagnsflutningar eru
vitaskuld af hinu góða. Hins vegar
blasir við mikill og margslunginn
fortíðarvandi á vettvangi íslenzkra
peningamála vegna óhaminnar út-
lánaþenslu síðustu tvo áratugina,
sem verður að færa til betri vegar
áður en forsendur fyrir slíku frelsi
geta talist vera fyrir hendi.
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, minnist
Gunnar Tómasson
á hliðstæðan vanda þar í landi í end-
urminningum sínum, sem nýlega
komu út: „Við eigum langt í land
með að endurrreisa traustan gjaldm-
iðil. Án slíks gjaldmiðils eigum við
fárra góðra kosta völ. Hann er horn-
steinn heilbrigðs stjórnarfars."
Höfundur er hagfræðingur.
Fyrirlestur um rúss-
nesku kosningarnar
ARNOR Hannibalsson, prófessor við heimspekideild Háskóla ís-
lands, mun halda fyrirlestur fimmtudaginn 16. desember hjá Orat-
or, félagfi laganema, um rússnesku stjórnarskrána og nýafstaðnar
kosninar í Rússlandi. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.15 í stofu 201 í
Lögbergi.
Arnór nam heimspeki m.a. í stjórnmála. Fyrirlesturinn er öllum
Moskvu og þekkir vel til rússneskra opinn.
■ AÐ VENTUKVÖLD Félags
eldri borgara í Kópavogi verður
fimmtudaginn 16. desember kl. 20 í
félagsheimilinu Gjábakka, Fann-
borg 8. Hugvekju flytur sr. Ægir
Fr. Sigurgerisson, sóknarprestur
Kársnesprestakalls og Guðný Ein-
arsdóttir o.fl. syngja. Þá flytur sr.
Einar Gíslason frá Filadelfíu hug-
vekju og sr. Jón Hj. Jónsson o.fl.
frá SDA syngja við undirleik Sól-
veigar Jónsdóttur. Loks flytur sr.
Jón Hj. Jónsson hugvekju og kvöld-
inu lýkur með söng og fjöldasöng,
o.fl. undir stjórn Jóns Hj. Jónssonar
við undirleik Sólveigar Jónsdóttur.
ÖRBYLGJUOFNAR
MW-330 18.690,-stgr.
17 Itr. m/850W nýtanlegri
orku, 5-þrepa styrkstillingu og
snúningsdiski.
MW-400 23.390,- stgi\~
17 Itr. m/800W nýtanlegri
orku, 1000W grillelementi,
5- þrepa styrkstillingu og
snúningsdiski.
MW-800 31.470,-stgr.
26 Itr. m/850W nýtanlegri
orku, 1500W grillelementi,
6- þrepa styrkstillingu og
snúningsdiski.
MW-860F 35.900,- stgr.
26 Itr. m/850W nýtanlegri
orku, 1500W grillelementi,
1 500W blásturselementi og
snúningsdiski.
fallegur - fjölhæfur - fljótur
/FOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Æ A
landinu
„Hressilegt skammdeglslnnlcgg“
Á landinu bláa
Jónas Árnason
... Kætumst meðan kostur er. Ekkl svo
afleit skllaboð í svartasla skammdeglnu
og vísl er að brúnir margra eiga eftir að
lyflast við liressilega frásögn Jónasar
Árnasonar. Þetla eru afar skemmlilegar
frásagnir, fuilar af kímni. lilýju og
lífsgleði."
(Sigríður Albertsdðuir. DV24. II. '03)
,, Skáld h icrdagslífslns “
Sóldagar, nóðasafn.
Guðmundur Ingi Krlstjánsson . “Kvæði Guð-
mundar Inga eru orl mcð reglubundinni og
taklfastri en þó allaiafna mjúkri hrynjandl.
Bragarliáltur fellur jafnan að efrii. Guð-
mundur Ingi er skáld hverdagslífslns. Ekkert
íslenskt skáld hefnr ort meira né betur um
dagleg störf bóndans."
(Erlendur Jónsson. Mbl. 18. II. '93)
..nj.
„Læsllegar minningar"
Lífsgleði
I’órir S. Guöbergsson. skráði
„Ég get sagt það sama um þessa bók og ég
sagði um bók Þóris í fýrra; að liún hafi
örugglcga að geyma mikilvægari boðskap en
margar þeirra bóka sem munu vekja meiri
athygli fyrir þessi jól.“
(Gunnlaugur A. Jónssón, DV 27.11. ‘93)
„ Góður Iwimilismatur“
Mulrciösliibók Margrélar
„Uppskriftir Margrétar eru líka góðar að því
leyti að börnum falla þær yfirleitt, réttirnlr
eru ekki of bragðsterkir eða framandi. Þetta
er venjulegur heimilismatur sem hægt er að
elda þegar heim er komið úr vinnu ... Bókin
lendir framarlcga í hillu hjá mér."
GuðbjðrgR. Guðmundsd. Mbl. 9.12093
„Álla raddlr tír elnum dal"
Raddir dalsins
Systkinin frá Grafardal
„Bókin er að stærstum hluta svana-
söngur eins og falleg kápan utan
um hana ber með sér. Lífshrynjandi
þessara systkina er yndisleg og það
eru þessi kvæði líka."
(Jón özur Snormon, Mbl. 24. II. '93)
,,/ínu;gJuJegustu tídindi
ársins fyrlr lióðavinl“
í andóllmi
l’ólsk mítímnljóð
Geirlaugur Magnússon. þýddi
„Að öilu samanlögðu er
safnbókln í andófinu einhver
ánægjulegustu tíðindi ársins
fyr ir ljóðavini. Pólsku
Ijóðunum fylgir ferskur gustur
sem gott er að kynnast."
(Hrafn Jöknlsson. Dressan 18. 11 93)
Tii móður niinnar
Ljóö 88 höfunda
Sigurður Skúlason bjó til
prentunar.
„Fegurstu kvæði" sem
íslensk skáld hafa ort til
mæðra sinna og um þær.
„Skennnlilcg spurnlngabók"
Gettu cnn
Ragnheiður Erla Bjarnadóttir
„Það sem fyrst vekur athygli þegar bókin
er lesin yflr er hversu fjölbreyttar
spurningarnar eru. Ragnheiður virðist
vera jafn vel lieiina á ólrúlega Ijölbreyttu
sviði. .. Vel unnið ... Hún á eftir að
auka áhuga barna og unglinga á ýmsu því
sem skiptlr máli í veröldinni."
(Siguröur Helgason. DV 1.12.'93)
„lir mörgu að moða“
Lausavísur 1400- 1900
Safnað hel'ur Sveinbjörn
Beinteinsson
Hér eru saman komnar meira en
900 vísur, Þv'i má gera ráð fyrir að
þetta safn Svelnbjarnar þyki
mörgum forvitnilegt.
(Halldór Kiistiánsson.
Tfmlnn 25:11. '93)
li5TOPyÚT€SÁFAil
STEKKJARHOLT 8-10 - 300 AKRANES
SÍÐUMÚLI 29 - 108 REYKJAVlK