Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
47
VELVAKANDI
PENINGAR
TÖPUÐUST
UMTALSVERÐ peningaupphæð
í umslagi tapaðist þriðjudaginn
7. desember fyrir utan Búnaðar-
bankann í Garðabæ. Vinsamlega
skilist gegn fundarlaunum í Bún-
aðarbankann.
MEIRA AF
ÍSLENSKRI
TÓNLIST
KONA hringdi til Velvakanda og
vildi koma þeim skilaboðum til
útvarpsstöðvanna að þær spiluðu
meira af íslenskri tónlist núna
fyrir jólin, því við eigum svo mik-
ið til af frambærilegum lista-
mönnum á því sviði.
JÓLASMJÖRIÐ ER
NÝTT
VEGNA pistils í Velvakanda sl.
þriðjudag um fúlt jólasmjör vill
Þorsteinn Karlsson, fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs Osta-
og smjörsölunnar, taka það fram,
að jólasmjörið, sem nú er selt,
er fyrsta flokks smjör og ekki
eldra en annað smjör sem selt er
í verslunum. Hann benti einnig
á það, að nauðsynlegt væri að
bræða smjörið við vægan hita
því annars kæmi þessi sterka
lykt sem konan talaði um í pistl-
inum. Þegar smjör er brætt við
of háan hita verða viss efnahvörf
sem valda þessari lykt.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Eyrnalokkur tapaðist
SILFUREYRNALOKKUR med
svörtum steini tapaðist á Ömmu
Lú sl. laugardagskvöld. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 657237.
Poki med handavinnu
tapaðist
PLASTPOKI tapaðist frá Hvíta
bandinu og inn á Hlemm og í
honum var rauður trefill og út-
saumaður dúkur. Vinsamlegast
hringið í síma 20618 eda 41255.
Píanóbækur töpuðust
ÞRJÁR píanóbækur í plastpoka
merktum Cosmo töpuðust í
strætisvagnabiðskýlinu í Lækjar-
götu hjá Alþingishúsinu um miðj-
an sl. föstudag. Hafi einhver
fundið þennan poka er hann vin-
samlega beðinn að hringja í síma
628424.
Karlmannsúr fannst
VANDAÐ karlmannsúr með ól
fannst á Lækjartorgi aðfaranótt
sl. laugardags. Sá sem hefur tap-
að úri á þessum tíma hafi sam-
band við Svein í síma 660557.
Verður úrið þá afhent gegn full-
kominni lýsingu á því.
Gleraugu fundust
GLERAUGU í tvílitri stálum-
gjörð fundust á Skúlagötu fyrir
nokkru. Eigandi má hringja í
síma 618744 á milli kl. 8 og 19
á daginn.
GÆLUDÝR
Puddle-hundur
TVEGGJA ára puddle-hundur
fæst gefins á gott heimili. Ætt-
bókarskírteini fylgir. Upplýs-
ingar í síma 11851.
Gleymum ekki
náunganum
Frá Friðriki Ásmundssyni Brekk-
a n:
Þegar jólin nálgast eykst sam-
kennd og vinir skrifast á og hafa
samband með öðrum hætti. Fjöl-
miðlar í efnaðri ríkjum heimsins
fyllast auglýsingaglingri og gylli-
boðum og öllum þegnum viðkom-
andi landa er veitt gullið tækifæri
til þess að steypa sér í ævarandi
fjárhagslega glötun með tilheyrandi
raðgreiðslum og kostakjörum.
Þessvegna þótti mér rétt í tilefni
af jólahátíð og fyrir marga erfitt
tímabil að staldra við og birta út-
drátt úr bréfi er mér barst nýverið
frá miðaldra hjónum í Belgrad,
höfuðborg Serbíu. Bréfkorn þetta
lýsir í hnotskurn erfiðleikum þeirra,
sem enn hafa atvinnu í landi sem
eyðir öllu umframfjármagni sínu í
stríðsrekstur.
Ofurverðbólga er í landinu og
man ég að fyrir um átta árum
mátti fylla benzíntank fyrir um 50
dínara, sem er gjaldmiðillinn í Serb-
íu. En bréfið sem mér barst fyrir
fáeinum dögum var frímerkt með
sex milljónum sjöhundruð og sjö-
þúsund og fimmhundruð_ dínara
burðargjald (6.707.500). í hitteð-
fyrra kostaði súpudiskur á meðal-
veitingastað í Belgrad um eina
milljón dínara, (1.000.000) en í dag
um átján milljónir eða jafnvel 20
milljón dínara (20.000.000) og
eflaust er súpan orðin útþynnt í
þokkabót. Belgradbúar hafa þó heil
hús og rúm að sofa í á meðan millj-
ónir annarra í ríkjasambandinu
fyrrverandi hvíla annaðhvort í fros-
inni gröf eða eru á vergangi vegna
styijaldarinnar.
Bréfritari tekur sem dæmi að
mánaðarlaun hans duga núorðið
fyrir einni tannkremstúbu og er
unnið frá sjö að morgni til sjö að
kveldi.
Eg veit af reynslu að það þýðir
lítið að segja einhveijum sem ekki
hafa kynnst ástandi af þessu tagi
frá hörmungunum, en ég læt þessar
línur samt róa svona til þess að
minna okkur á að stutt getur verið
milli gleði og sorgar og gott getur
verið'að eiga varasjóð en ekki fylla
öll háaloft og herbergi af forgengi-
legum varningi.
Þá mætti minna á að vandinn
hefur knúið dyra einnig hér á landi
og mætti leggja innlendu hjálpar-
starfi lið um þessi jól og áfram eft-
ir jól.
Að þessu sögðu læt ég hér fylgja
úrdrátt úr bréfi frá Belgrad.
„Efnahagsástandið hefur náð al-
gjörum botni. Til dæmis dugar
mánaðarkaup okkar aðeins fyrir
einni tannkremstúbu. Samgöngur
eru í ólestri og áætlanir óregluleg-
ar. Á hveijum degi fer ég fótgang-
andi marga kílómetra til og frá
vinnu. Er ekki sagt að það sé heilsu-
samlegt að ganga? Hér ríkir mat-
arskortur, engin lyf né aðrar vörur.
Rafmagnið hverfur oft og það er
kalt í húsunum, vinnunni, skólun-
um. Glæpir hafa stóraukist. Tvö-
hundruð og fimmtíu dómarar hafa
hætt störfum og tekið upp aðra
iðju og vinna jafnvel sumir sem
svartamarkaðsbraskarar á götum
úti. Geturðu ímyndað þér annað
eins ástand? Stundum finnst mér
eins og allt sé orðið eins og í „Ani-
mal Farm“ eftir George Orwell.
íbúðin okkar er til sölu. Við verðum
að yfirgefa þetta fallega svæði en
við höfum í raun enga möguleika
til að láta þann draum rætast. Ég
veit að það er mjög erfitt, jafnvel
vonlaust að reyna það héðan. Við
myndum geta unnið við hvað sem
er hvar sem er og við myndum
gera okkar besta fyrir það land sem
myndi veita okkur hæli. Ég hef svo
miklar áhyggjur af fjölskyldu minni,
en takk fyrir þína hjálp. Gleðileg
jól.“
FRIÐRIK ÁSMUNDSSON
BREKKAN,
Mímisvegi 6,
Reykjavík.
Pennavimr
Sautján ára finnsk stúlka með
áhuga á íþróttum og ljósmyndun:
Hanna Lyytikainen,
Hulluksentie 2 i 18,
02430 Masala,
Finland.
Frá Ghana skrifar 25 ára stúlka
með áhuga á ferðalögum og tónlist:
Akosua Essel,
P.O. Box 390,
Cape Coast,
Ghana.
Sextán ára norsk stúlka með
áhuga á tónlist, eróbík o.fl., vill
skrifast á við 15-18 ára drengi eða
stúlkur:
Cecilie Hulbekkmo,
Skogbrynet 14,
8612 Andfiská,
Norway.
Ástralskur 48 ára karlmaður með
áhuga á dansi, kvikmyndum, tón-
list, ferðalögum og matargerð:
Magnus Kaye,
P.O. Box 45,
Moonee Ponds,
Vic. 3039,
Australia.
LEIÐRÉTTIN G
Matur og
matgerð
I Morgunblaðinu á laugardag 11.
desember, birtist í þættinum Matur
og matgerð uppskrift af finnsku
kökubrauði. í uppskriftinni kom
fram meinleg villa. í stað 200 gr
hveitis eiga að vera 400 gr. Þetta
deig er þó laust í sér og erfitt að
hnoða það.
Kristín Gestsdóttir.
I D A G
10-18—
KRINGMN
STJÖRNUKORT
Skemmtileg gjöi
Persóntilýsing, framtíðarkort, karmakort, samskiptakort.
Sjálfsþekking er íorsenda velgengni.
Gunnlaugur Guömundsson,
Stjörnuspekistöðin, Kjörgctrði,
Laugavegi 59, sími 10377.
riUDDSKÓLI RAFriS QEIRDALS
NVÐÐNÁM
1 'lz árs nám hefst 10. janúar nk.
Hægt er að velja um dagnám eða kvöldnám.
Upplýsingarog skráning í símum 676612/686612
alla virka daga.
Smiðshöfða 10,112 Reykjavík.
Skrifborðsstólar
Ný sending - mikii úrvnl
Teg. Rodi
kr. 2.980,- stgr.
Teg. Megara
kr. 7.300,- stgr.
Teg. Parma
kr. 11.300,-stgr.
Visa-Euro raógreióslur
CJQQIQEJEZD
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
\ 7