Morgunblaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994 i Allslierjargoðinn hlaut gröft í Saurbæjarkirkjugarði að eigin ósk Kveðjuat- höfnin á Akranesi SVEINBJÖRN Beinteinsson, bóndi, skáld og allsherjargoði var jarðsettur í gær að við- stöddu fjölmenni og hlaut hann gröft í kirkjugarðinum í Saurbæ að eigin ósk. Fyrir jarðsetninguna í gær var haldin kveðjuathöfn í safnaðar- heimili Akraneskirkju, Vinaminni. Þar flutti séra Jón Einarsson pró- fastur í Saurbæ minningarræðu og Jörmundur Ingi Hansen, for- stöðumaður Félags ásatrúar- manna, kveðjuorð. Kirkjukór Hallgrímskirkju í Saurbæ söng nokkur ættjarðarlög en organisti var Kristjana Höskuldsdóttir. Þá fluttu félagar í Kvæðamannafé- lagi íslands drápur og kvæði við athöfnina. Morgunblaðið/JG Lagður til hinstu hvílu SVEINBJÖRN Beinteinsson allsherjargoði lagður til hinstu hvílu í vígða mold.Trúfélagarr og sveit- ungar Sveinbjörns, báru kistuna. Séra Jón Einarsson, sem er lengst til hægri á myndinni, kastaði rekunum en Iengst til vinstri á myndinni má sjá Jörmund Inga Hansen, sem var tilnefndur forstöðu- maður Asatrúarmanna eftir fráfall Sveinbjörns, en nýr allsheijargoði verður útnefndur í sumar. Sameigin- legur vöru- lager spítala \ BORGARSPÍTALI og St. Jós- efsspítali, Landakoti, reka sam- eiginlega vörulager og innkaupa- deild frá og með 1. janúar sl. í frétt frá spítulunum segir að ' vörulager þeirra verði staðsettur i húsnæði Borgarspítalans og muni hin sameiginlega innkaupadeild yfirtaka þann vörulager sem sé til staðar í birgðastöðvum hvors spítala fyrir sig. Borgarspítalinn tekur að sér daglegan rekstur, bókhald og greiðslur fyrir reksturinn. Akvarðanir um útboð, afgreiðslu tilboða og aðrar meiriháttar rekstr- arákvarðanir verða teknar í samein- ingu af fulltrúum beggja spítalanna. Unnið hefur verið að framan- í greindri sameiningu sem og frekara samstarfi á öðrum sviðum í sam- ræmi við nefndarálit frá 2. mars i 1992. Að því nefndaráliti stóðu full- trúar spítalanna, Reykjavíkurborg- ar, fjármálaráðuneytis og heilbrigð- | is- og tryggingamálaráðuneytis. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG. 7. JANUAR YFIRLIT: Yfir Bretlandseyjum er 976 mb lægð sem þokast austur. Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.038 mb hæð en milli Labrador og Græn- lands er 960 mb lægð sem þokast austur og verður suður af Hvarfi l^?^Sfyretu°\ær8ur norðaustankaldi eða stinningskaidí á landinu. Él verða norðan til og á Austfjörðum en í öðrum landshlutum verður yfir- leitt lóttskýjað. Þegar líða tekur á morguninn vex vindur heldur af austri sunnanlands og vestan og síðdegis þykknar upp með allhvassri austan- átt vestanlands en austanstinningskalda suðaustantil. Frost verður um allt land en fer heldur minnkandi síðdegis. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austlæg átt á landinu, strekkingur og snjókoma eða slydda við suðurströndina, annars staðar mun hægari vindur og éi á stöku stað. Frost 0-8 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Aftur komin nokkuð hvöss norðaustanátt um mest allt land og áfram frost. Él við norður- og austurströndina en létt- skýjað á Suövestur- og Vesturlandi. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600. •Q ▼ Heiðskírt r r r r r r r r Rigning a Léttskýjað * / * * r r * r Slydda ■Q Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V 'v' Skúrir Slydduél * * * * * * * * Snjókoma V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Mjög góð færð er yfirieitt á þjóðvegum um sunnan- og vestanvert land- ið. Á Norðaustur- og Austurlandi er jeppafært um Sandvíkurheiði og Oddsskarð, einnig er færð verulega farin að þyngjast á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og er þar ekkert fólksbílafæri. Ofært er um Fjarðar- heiði, Vatnsskarð eystra og Breiðdalsheiði. Á Vestfjörðum er Klettsháls þungfær, jeppaslóð er yfir Breiðadals- og Botnsheiðar, en ófært um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavlk hitl +8 ■5-9 vsður úrk.ígrennd léttskýjað Bergen 1 skýjaö Helsinki +5 kornsnjór Kaupmarmahöfn vantar Narssarssuaq 1 aiskýjað Nuuk +2 skafrenningur Óaló 1 anjókoma Rtokkhólmur 1 rigning Þórshöfn 0 snjóél Algarve 7 alskýjað Amsterdam 7 skýjað Barcelona 13 rigníng Berlín 7 skýjað Chicago ■ri snjókoma Feneyjar 8 þokumóða Frankfurt 8 rigning og súld Glasgow 5 rigning Hamborg 6 skýjað London S alskýjað LosAngeles 11 skýjað Lúxemborg 6 rigning Madríd 5 alskýjað Malaga 12 rigning Mallorca 15 alskýjað Montreal +27 léttskýjað NewYork +7 alskýjað Orlando 4 heiðskírt Parfs 8 rlgning Madelra 18 súld Róm 14 skýjað Vín 11 skýjað Washington +2 alskýjað Winnipeg +26 snjókoma íDAG kl. 12.00 Heimikl: Veöuretofa íslands (Byggt ó veðurspá kl. 16.30 í gær) Færeyingar fá sömu fiskveiðikvóta áfram ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra og færeysk sljórnvöld náðu í gær samkomulagi um gagnkvæmar fiskveiðiheimildir þjóð- anna í ár. Færeyingar fá sömu fiskveiðikvóta hér við land og á síðasta ári. Sjávarútvegsráðherra hefur verið í Færeyjum undanfarna daga til að ræða fiskveiðiheimildirnar við Tom- as Aarebo sjávarútvegsráðherra og Maritu Petersen lögmann Færeyja. Samkomulag náðist í gær. „Niður- staðan er sú að þrátt fyrir miklar þrengingar hjá okkur verður kvót- anum haldið óbreyttum. Það þýðir 6.000 lesta heimildir þeirra í okkar fískveiðilögsögu. Þar af má þorskur ekki vera meira en 700 lestir og lúða ekki meira en 400 lestir. Við eigum kost á að veiða 2000 lestir af Hjaltlandssíld og hugsanlega einnig síld sem veiðist norður af Færeyjum og 1.000 lestir af makr- íl,“ sagði Þorsteinn í gær. íslending- ar hafa ekki nýtt síldar- og makrílk- vótann. Aðspurður hvort einhveijar líkur væru á því að það yrði gert í ár sagði Þorsteinn að um það væri ómögulegt að segja. „Mér fínnst rétt að menn kanni þessa möguleika og nýta okkur þá ef færi gefst. Það hefur til dæmis stundum verið mik- il veiði af Hjaltlandssíld. „Ég geri mér grein fyrir því að þetta er erfítt og ekki nema eðlilegt að sjómenn og útvegsmenn mót- mæli þessu miðað við þær aðstæður sem við búum við í dag. Ríkisstjóm- inni hefur hins vegar þótt sem við þyrftum að líta á þetta í stærra samhengi og til þess að viðhalda góðum tengslum við þessa bræðra- þjóð okkar. Við höfum einnig viljað líta til þess að þeirra erfíðleikar eru miklum mun stærri en okkar,“ sagði Þorsteinn. Færeyingar eru ánægðir með samkomulagið, samkyæmt frétt frá fréttaritara Morgunblaðsins í Fær- eyjum. Magnús V. Finnboga- son kennari látínn LÁTINN er í Reykjavík Magnús Víglundur Finnbogason mennta- skólakennari, 91 árs að aldri. Magnús fæddist í Skarfanesi á Landi 9. október 1902, sonur Finn- boga Höskuldssonar og Elísabetar Þórðardóttur. Magnús varð stúdent frá MR 1926 og lauk magistersprófí í íslenskum fræðum frá Háskóla ís- lands 1932. Hann var við fræðistörf í Uppsölum í Svíþjóð 1934, sóttr heimsmót kennara í Oxford 1953 og Manilu 1956 sem fulltrúi mennta- skóiakennara og barnaskólakenn- ara. Magnús var stundakennari og kennari við ýmsa skóla í Reykjavík 1929—1942. Hann kenndi íslensku og latínu við MR frá 1942 og var yfirkennari við skólann frá 1955. Hann var prófdómari í íslenskri málfræði við Háskóla íslands frá 1944. , Magnús sá um þáttinn íslenskt mál í Ríkisútvarpinu árið 1970. Hann var bókavörður við bókasafn Menntaskólans í Reykjavík frá 1973—1979. Magnús var einn stofn- enda Heimdallar, félags ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Magnús samdi Islenskji málfræði ásamt Marteini Magnússyni sem kom út 1940, samdi ritgerðir og 'greinar ýmislegs ‘ efais í Skírrti, MéhnTamál- ög dagblöð og þýddi Sögu Knúts Rasmussens eftir Kaj Birket-Smith árið 1935. Hann bjó til útgáfu Njálssögu 1944, Sturlunga sögu I—II 1946, Eddu Snorra Stur- lusonar 1952, Hrafnkels sögu Freys- goða 1953, Gunnlaugs sögu orms- tungu 1954 og Laxdæla sögu, 1957. Eiginkona Magnúsar var Kristín Elíníusardóttir, sem lést 1988. Þau áttú eina dóttur, Hjördísi Margréti "kennarai .. 1 I < ( ( I I (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.