Morgunblaðið - 07.01.1994, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994
23
Móðir
Clintons
látin
VIRGINA Kelley, móðir Bills
Clintons, forseta Bandaríkj-
anna, lést í
gærmorgun
á heimili sínu
í Hot Springs
í Arkansas.
Hún var sjö-
tug að aldri.
Fyrir nokkr-
um árum
gekkst hún
undir aðgerð
vegna bijóstakrabbameins en
það hafði tekið sig upp aftur.
Þau mæðginin, Kelley og Clint-
on, voru ávallt mjög náin en
faðir hans, Bill Blythe, lést af
slysförum meðan hann var enn
í móðurkviði. Kelley var fjór-
gift.
Ræðast aftur
við í Taba
TILKYNNT var í gær að samn-
ingamenn ísraela og Frelsis-
samtaka Palestínumanna
(PLO) myndu freista þess á ný
að leiða til lykta ágreining sem
tafið hefur framkvæmd friðar-
samkomulags frá 13. septem-
ber. Hefja þeir viðræður í Taba
í Egyptalandi á sunnudag eða
mánudag.
Börn sæta
órétti
BÖRN sæta pyntingum, nauðg-
unum, aftökum og hvers kyns
mannréttindabrotum í mörgum
löndum þrátt fyrir barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna um
réttindi barna sem tók gildi
fyrir fjórum árum, að sögn
mannréttindasamtakanna Am-
nesty International.
Borgað fyrir
uppljóstranir
DREGIÐ hefur úr smáglæpum
og fíkniefnaneyslu nemenda í
Reseda-menntaskólanum í Los
Angeles. Ástæðan er sögð sú
að skólastjómin hefur veitt
nemendum peningaverðlaun
fyrir að ljóstra upp um sam-
stúdenta sína.
Spilling í
leyniþjónustu
GERARDO Di Pasquale, einn
af fyrrum yfirmönnum ítölsku
leyniþjónustunnar, SISDE, var
handtékinn í gær en hann er
talinn hafa átt aðild að gífur-
legum fjárdrætti yfirmanna
stofnunarinnar. Oscar Luigi
Scalfaro forseti og Nicoila
Mancino innanríkisráðherra
hafa verið hreinsaðir af því að
eiga aðild að spillingannálum
tengdum SISDE.
Rífast um
símaklefa
HART er deilt um rauðan síma-
klefa í þorpinu Hemingford
Grey norður af London og hef-
ur John Major forsætisráðherra
dregist inn í málið. Hann bjó
um tíma í þorpinu sem er í kjör-
dæmi hans. Leituðu nokkrir
þorpsbúar eftir liðsinni hans við
að finna klefanum, sem var
samkomustaður háværra ung-
linga, nýjan stað. Varð hann
við því og skrifaði Breska sím-
afélaginu. Málið komst í há-
mæli og hefur mikill meirihluti
þorparanna risið gegn þessum
áformum og vill að ekki verði
hreyft við símaklefanum.
! Pí5r) SSfl .'!it Íj*x.(íl.4ei 7 !
Virginia Kelley
Davíð Oddsson um Litháa og NATO
Yniis Mið-Evrópuríki
ft'aniar í biðröðinni
„I sjálfu sér hefur ekki verið tekin afstaða til þessarar umsóknar
neins staðar í NATO-löndum. Hún kom bara í gær eða fyrradag,“
sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra er hann var spurður um af-
stöðu ríkissljórnarinnar til aðildarumsóknar Litháa að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO), sem sagt var á forsíðu Morgunblaðsins í gær.
Davíð sagði að óskir fyrrum Var-
sjárbandalagsríkja um að þær fái
inngöngu i NATO yrðu ræddar á
leiðtogafundi bandalagsins í Brussel
á mánudag og þriðjudag. „Ég býst
Tip O’Neill
Tip O’Neill
þingfor-
seti látinn
Boston. Reuter.
THOMAS O’Neill fyrrum forseti
fulitrúadeildar Bandaríkjaþings
lést í gær á sjúkrahúsi í Boston
af völdum hjartaáfalls. Hann var
á 82. aldursári og hafði háð langt
sjúkdómsstríð, m.a. gengist undir
nokkrar skurðaðgerðir vegna
krabbameins.
O’Neill gekk jafnan undir viðurnefn-
inu „Tip“. Hann tók sæti Johns F.
Kennedys í fulltrúadeildinni árið
1952 og sat þar fyrir demókratá-
flokkinn til ársins 1986. Á þeim tíma
var hann þingforseti frá 1977 þar
til hann dró sig í hlé 1986. Áður
hafði Tip O’Neill setið á löggjafar-
samkundu Massachusetts. Heima-
bær hans var Cambridge og var hann
kominn af verkamönnum, faðir hans
var múrari.
Að forseta Bandaríkjanna frátöld-
um var O’Neill áhrifamesti stjóm-
málamaður Bandaríkjanna. í sjálf-
sævisögu sem út kom eftir að hann
hvarf af þingi lýsir hann ýmsum
átökum sem fylgdu þingforsetastarf-
inu og vakti bókin mikla athygli. Þá
eru fræg ummæli hans um Ronald
Reagan sem hann sagði hafa verið
lélegur forseti en hefði getað orðið
góður kóngur.
nú við að á þessu stig máls sé það
ofan á að leita samstarfs með til-
teknum hætti sem gæti svo síðar
meir þróast inn í einhvers konar
aðild en hún sem slík sé ekki tíma-
bær á þessu augnabliki. Ég býst'við
að það verði niðurstaðan en vil þó
ekki tjá mig of mikið um málið áður
en fundurinn er haldinn," sagði Dav-
íð Oddsson.
Varðandi stækkun NATO sagði
forsætisráðherra að ríkisstjórnin
hefði ekki fjallað sérstaklega um það
mál. „Ég býst við því að menn hefðu
talið að ýmis Mið-Evrópuríki væru
framar Litháum á lista yfir hugsan-
leg ný aðildarríki. En umsóknin seg-
ir auðvitað þá sögu að þessar þjóðir
eru nokkuð órólegar yfir þróuninni
í Rússlandi. Reyndar hefur mér líka
borist bréf frá Rúmeníuforseta svip-
aðs eðlis þar sem hann fer fram á
stuðning við inngöngu þeirra í Atl-
antshafsbandalagið," sagði Davíð
Oddson að lokum.
HÓRDKA
Skíðaskór
Bioflex 40
dömuskór - kr. 7650
Verteck 55
herraskór - kr. 10950
5% staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum
greiddum innan 7 daga.
mmúTiLíFmm
GLÆSIBÆ. SÍMI812922
EGLA bréfabinctt
KJÖLFESTA
ÍGÓÐU
SKIPULAGI
<
Við sendum þér bækling óskir þú þess ,
X
með myndum af íjölbreyttu úrvali okkar af
þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan
getur þú pantað það sem hentar fyrirtæki þínu
og færð sendinguna.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
CEMSJr-
Hallarmúla • Kringlunni • Austurstræti