Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Opnað fyrir innflutning búvara
Frá 1. janúar 1994:
Heimill innflutningur frá Evrópulöndum vegna tvíhliða
samnings íslands og EB.
1. Gegn verðjöfnunargjaldi: Kakóblandað jógúrt og óblandað
drykkjarjógúrt.
2. Tollfrjálst: Fimm tegundir afskorinna blóma á tímabilinu 1. des.
til 30. apríl, nellikur, lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og
paradísarfuglablóm.
3. Tollfrjálst: Tómatar, salat, gúrkur, paprika o.fl. grænmeti á tíma-
bilinu 1. nóv. til 15. mars.
Frá 1. júlí 1994:
Heimill innflutningur frá Evrópulöndum vegna gildis-
töku EES.
1. Gegn verðjöfnunargjaldi: Jógúrt með blönduðum ávöxtum.
2. Gegn verðjöfnunargjaldi: Smjörlíki sem inniheldur 10-15% mjólk-
urfitu.
Frá 1. júlí 1995:
Frjáls innflutningur vegna gildistöku GATT-samning-
anna.
1. Gegn svokölluðu tollaígildi: Allar búvörur nema hrátt kjöt af heil-
brigðisástæðum. Hægt verður að flytja inn soðið kjöt, til dæmis
skinku (457% tollaígildi), gerilsneydda mjólk (498%), ost (485%),
smjör og skyr. Allt grænmeti, til dæmis gúrkur (252%), kartöflur
og lifandi tré.
Búvörulagadeilan er enn í hnút í ríkisstjórninni
Deilt um súpur, mjólk-
urfítu og húsdýrafóður
Agi’einingnrinn snýst um hvort bæta eigi 30 tollflokkum á bannlistann
„ÞAÐ ERU allir sammála um hver niðurstaðan eigi að vera en menn
eru bara ekki sammála um hvaða leið þeir eigi að fara að henni,“
sagði einn af forystumönnum stjórnarliðsins í samtali við Morgunblað-
ið um deiluna sem staðið hefur alla vikuna innan ríkisstjórnarinnar
um búvörulagabreytinguna. Deilan snýst um það hvort bæta eigi fjölda
vörutegunda sem innihalda landbúnaðarhráefni, sem heimilt er að flytja
til landsins, á bannlistann sem samkomulag náðist um milli sljórn-
arflokkanna um seinustu helgi að fylgdi stjórnarfrumvarpinu. Alls er
um að ræða milli 20 og 30 tollflokka sem falla undir tollalögin og þar
með forræði fjármálaráðherra sem heimilt er að flytja til landsins á
grundvelli um það bil tíu milliríkjasamninga.
Samkomulag var um það í ríkis-
stjóm að lagt yrði fram lagafrum-
varp sl. mánudag um að innflutning-
ur á tilteknum landbúnaðarafurðum
sé óheimill, nema að fengnu leyfí
landbúnaðarráðherra, vegna Hæsta-
réttardómsins sem féll í skinkumál-
inu í seinustu viku. Er markmiðið
að tryggja í löggjöf að innflutningur
VEÐUR
IDAGkl. 12.00 »
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veöurspó kl. 16.30 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 28. JANUAR
YFIRLIT: Milli íslands og Noregs er allmíkiö 960 mb lágþrýstisvæði sem
þokast austur, en 1.032 mb hæð yfir Grænlandi. Dálítil lægð er að
myndast á Grænlandshafi og mun nálgast landið í nótt. Dýpkandi lægð
suðaustan af Nýfundnalandi hreyfist norðaustur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Austurmiðum, Austfjarðarmið-
um, Suðausturmiðum, Norðurdjúpi, Austurdjúpi, Færeyjadjúpi og Suð-
vesturdjúpi og mikilli ísingu á Norðurdjúpi.
SPÁ: Suðvestan- og vestanlands verður sunnan kaldi og snjómugga
með ströndinni og dregur úr frosti. Norðan- og austanlands gengur
norðanáttin niður og iéttir til, en áfram talsvert eða mikið frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hvöss austlæg átt. Snjókoma sunnanlands,
él austan til og á annesjum norðanlands en annars úrkomulítið. Víð
suðurströndina verður hltinn nálægt frostmarki en annars frost 2-6 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Hvöss norðanátt og él allra austast á landinu
en annars hæg vestlæg átt og léttskýjað. Frost 4-12 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 15.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o a
Heiðskírt Léttskýjað
/ / / * / *
/ / * /
/ r / / * /
Rigning Slydda
á A
Hálfskýjaö Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
* * ★
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
s Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Ki. 17.30 ígær)
Fært er um Hellisheiöi og Þrengsli og með Suðurströndinni til Hafnar,
en þar fyrir austan er ófært vegna veðurs. Fært er um Vesturland og
Snæfellsnes og um Heydal allt til Reykhóla en Brattabrekka ófær. A
sunnanverðum Vestfjörðum er fært milli Brjánslækjar, Patreksfjarðar
og Bíldudals. Fært er um Botnsheiði en Breiöadalsheiði er ófær. Fært
er til Hólmavíkur og um Steingrímsfjarðarheiði til ísafjarðar. A Norður-
landi er fært til Siglufjarðar og Akureyrar. Frá Akureyri er fært til Ólafs-
fjarðar, ófært um Vikurskarð v/veðurs. Þar fyrir austan er fært til Raufar-
hafnar, þó þungfært fyrir Tjörnes. Mývatns- og Möðrudalsöræfi eru ófær.
Á Norðausturlandi og Austfjörðum eru nánast allir vegir ófærir. Víöa
er nokkur skafrenningur og hálka á vegum landsins.
Á morgun er ráðgert að moka flesta vegi landsins ef veður leyfir.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
Akureyri
Reykjavik
Mti veftur
+10 skafrenningur
+9 léttskýjað
Bjönrfn
Helsinki
Kaupmannahöfn
Narssarssuaq
Nuuk
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
+2 úrkomaÍBrennd
+4 snjókoma
6 rlgning
+9 háifskýjað
+16 snjökoma
+6 hálfakýjað
+2 skýjað
1
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
New York
Orlando
Parfs
Madelra
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
17 heiöskírt
9 skúr
13 8kýjðö
7 rigning
+4 hagiél
8 léttskýjað
8 rigning
6 skúr
7 rigning
10 rigning
9 ióttskýjaö
6 rigning
8 heiðskfrt
16 heiðskfrt
16 léttskýjað
+27 ísnálar
+17 léttskýjað
19 skýjað
9 alskýjað
16 skýjað
14 heiðskfrt
7 rigning
+6 alskýjað
+10 8njókoma
tiltekinna land.búnaðarvara verði
háður leyfi fram að gildistöku Úr-
úgvæ-samnings GATT. Jafnframt
féllust ráðherrar á að þeirri aðferð
yrði beitt að þær landbúnaðarvörur
sem bannað er að flytja inn væru
taldar upp í viðauka með frumvarp-
inu, á bannlistanum svokallaða. Eftir
því. sem næst verður komist voru
ráðherrar ennfremur sammála um
að að á bannlistanum skyldi telja upp
sömu vöruflokka og eru í reglugerð
sem landbúnaðarráðherra setti á
seinasta ári um takmörkun á inn-
flutningi þessara vörutegunda. Þar
er m.a. um að ræða kjötvörur, egg,
mjólk, jógúrt smjör og aðrar vörur
með mjólkurfitu, unnar kjötvörur,
kalkúnakjöt, pasta með kjötfyllingu.
og pítsur.
Ágreiningurinn
Á mánudag kom í ljós að landbún-
aðarráðuneytinu þótti eðlilegt að við
þessa upptalningu á bannlistanum
bættust ennfremur vörutegundir sem
innihalda landbúnaðarhráefni, sem
ekki voru taldar upp í reglugerð ráð-
herrans. Ástæðan fyrir því væri sú
að til þess gæti komið að á þær
þyrfti að leggja verðjöfnunargjöld.
Hér er um að ræða ýmsar vörur sem
taldar eru upp í Bókun 3 sem fylgir
EES-samningríum en hún tekur gildi
síðar á þessu ári. Ráðherrar Alþýðu-
flokks voru þessu andvígir og ekkert
bólar enn á frumvarpinu í sölum
þingsins.
I utanríkis- og viðskiptaráðuneyti
er litið svo á að með þessu hafi land-
búnaðarráðherra verið að gera kröfu
um að allar hugsanlegar vörur sem
heimilt er að flytja til landsins og
sem innihálda landbúnaðarhráefni
verði settar á bannlistann en skv.
heimildum Morgunblaðsins var land-
búnaðarráðuneytið tilbúið til að sætt-
ast á að viðbótarlistinn tæki aðeins
til þeirra vörutegunda sem háðar eru
Bókun 3 í EES-samningnum. Þar er
m.a. um að ræða smjörlíkisvörur sem
innihalda 10-15% mjólkurfítu, pasta
og fl. vörutegundir. Mikill ágreining-
ur reis um þetta á milli ráðuneytanna
og tókst ekki að leysa hann þrátt
fyrir tilraun til sátta á fundi þriggja
ráðherra sl. miðvikudag.
Óttast að landbúnaðarnefnd
stöðvi málið
Það sjónarmið mun hafa ráðið
ferðinni hjá landbúnaðarráðherra að
enginn möguleiki væri á að koma
frumvarpinu í gegnum þingið ef ekki
væri ítarleg upptalning yfír vöru-
flokkana í viðauka frumvarpsins, auk
þess sem það væri andstætt allri
skynsemi að dreifa toilnúmerunum á
milli fleiri ráðuneyta og búa þannig
til tvöfalt kerfi um álagningu jöfnun-
argjalda. Viðskiptaráðherra leit svo
á að samkomulag væri milli stjórnar-
flokkanna um að hafa óbreytt ástand
í innflutningsmálum landbúnaðar-
vara þar til GATT-samningarnir taka
gildi og framlengja eingöngu bann
við innflutningi á þeim vörum sem
hafa verið bannaðar en heimila áfram
innflutning á vörum sem fijáls inn-
flutningur er á. Alþýðuflokksráð-
herrar voru algjörlega andsnúnir því
að taka upp leyfisveitingu á vörum
sem hafi notið innflutningsfrelsis
fram til þessa.
í raun hefur lagabreytingin þó
engin áhrif á heimildir til innflutn-
ings þessara vara á grundvelli frí-
verslunar- og milliríkjasamninga sem
ísland er aðili að. í grundvallaratrið-
um snýst deilan ekki um að setja
skorður við innflutningi einhverra
vara sem nú þegar er heimilt að flytja
inn til landsins eða verður heimilt
að flytja inn í gamræmi við skuld-
bindingar GATT. Hún snýst heldur
ekki um að opna fyrir heimild til
innflutnings einstakra vara umfram
það sem þegar hefur náðst sam-
komulag um í tengslum við EES og
GATT. Deilan snýst ekki nema að
takmörkuðu leyti um hver skuli hafa
forræði um ákvörðun verðjöfnunar-
gjalda við innflutning því skv. þeirri
breytingu sem gerð var á búvörulög-
unum í desember skal landbúnaðar-
ráðherra ákveða upphæð gjaldanna
í samráði við nefnd þriggja ráðu-
neyta.
Að sögn fjármálaráðherra er nú
verið að ræða hvort ekki sé heppi-
legra að gera breytingar á frumvarp-
inu og að það komi fram eftir helg-
ina í öðru formi en fyrirhugað var
og þá án upptalningar á öllum toll-
númerum yfír þær vörur sem háðar
verða leyfi til innflutnings.
í utanríkisráðuneytinu heldur þó
áfram vinna við að færa viðbótar-
bannlistanrí í lagabúning og bera
hann saman við tíu mismunandi milli-
ríkjasamninga og er gert ráð fyrir
að þeirri vinnu verði ekki lokið fyrr
en á sunnudag. „Þetta er ekki ágrein-
ingur um efni heldur um hvernig
þetta verði útfært, því þessar nýju
kröfur eru mjög flóknar í fram-
kvæmd. Það er engin þörf á að bæta
við bannlistann sem var í frumvarp-
inu vegna þess að ef það þyrfti ein-
hvem tíma að leggja verðjöfnunar-
gjöld á þessar vörur þá er nú þegar
heimild fyrir því í tollalögunum. Þetta
upphlaup snýst eingöngu um það að
landbúnaðarráðherra geti líka lagt á
þessi jöfnunargjöld en ekki bara fjár-
málaráðherra," sagði einn viðmæl-
enda blaðsins í utanríkisráðuneytinu.
Landakotsspítala
vantar 200 miUjónir
SAMKVÆMT ársskýrslu St, Jósefsspítala fyrir árið 1992 varð 480
milpna króna niðurskurður á framlagi til spitaians það ár til þess að
stofnunin var rekin með 96 milljóna króna halla. Fékk stofnunin 100
milljóna króna aukafjárveitingu i desember 1993 til að mæta hallanum.
Logi Guðbrandsson framkvæmdastjóri spítalans segir að fyrir þetta
ár vanti 200 milljónir svo endar nái saman.
Logi segií að rekstur spítalans
árið 1993 hafi skilað 20-25 milljóna
króna afgangi. Á þessu ári hafí stofn-
uninn verið úthlutað 947 milljónum
úr ríkissjóði og mikil óvissa sé um
reksturinn undir þessum kringum-
stæðum. Verði hann ekki dreginn
saman strax verði hugsanlega um
mikinn hallarekstur að ræða. Logi
segir fyrirhugaða sameiningu við
Borgarspítalann skila einhverri hag-
ræðingu en kostnaður við reksturinn
muni ekki enÖHega minnka. „Við
höfum sótt um aukafjárveitingu upp
á 200 milljónir og bíðum eftir svari
frá ráðuneytinu. Við eigum von því
á hverri stundu," segir Logi Guð-
brandsson framkvæmdastjóri.