Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994 41 STJÖRNUR Ormarnir hans Tony Curtis Hin bandaríska Peggy heldur því fram að tvíburarnir Gregory og David séu synir leikar- ans Tony Curtis. Sjálfur hefur hann aldrei viðurkennt að vera faðir þeirra en að öllum líkindum hefur hann komið nálægt kon- unni, því þegar hún varð ófrísk greiddi hann hennf 10 þúsund dollara í eingreiðslu, sem voru miklir peningar þá. Þegar Peggy hitti Tony var hann 42 ára og tvífráskilinn, en hún tæplega 18 ára. „Við sváfum ekki saman fyrr en daginn eftir að ég varð 18 ára,“ segir Peggy, sem var 19 ára þegar drengirnir fæddust. Hún segir að Tony hafi sýnt henni lífið í Hollywood og Las Vegas, en síðan varð hann að fara í tökur. „Ég fékk áfall þegar ég heyrði að hann hefði kvænst Leslie Allen meðan á tök- um stóð,“ er haft eftir Peggy. „Stuttu síðar uppgötvaði ég að ég var ófrísk." Hún sá sér ekki fært að annast tvíburana og voru þeir því ætt- leiddir. Nú hefur hún haft upp á þeim aftur, en þeir hafa aldrei hitt föður sinn. Tony Curtis hefur ekki gengist við sonunum en greiddi móðurinni á sínum tíma fúlgu fjár. A neðri myndinni sést Peggy ásamt sonunum Gregory og David, sem nú eru orðnir 25 ára. Guðmundur Hrafnkelsson hefur spilað 218 landsleiki fyrir íslands hönd. IÞROTTIR Iþróttamaður Vals árið 1993 Guðmundur Hrafnkelsson markmaður Vals og lands- liðsins í handknattleik var út- nefndur íþróttamaður Vals 1993. Á árinu hlaut hann — ásamt félög- um sínum í meistaraflokki Vals í handknattleik — íslands-, bikar- og deildartitil ásamt því að verða meistari meistaranna 1993. Guð- mundur var einnig valinn hand- knattleiksmaður ársins af HKÍ. Þá varð hann í 4. sæti í vali íþróttamanns ársins sem valinn er af íþróttafréttamönnum. Guð- mundur hefur spilað samtals 218 landsleiki fyrir Islands hönd. NAM Tamningamenn í jámingaprófi Félag tamningamanna gekkst um helgina fyrir námskeiði í járningum og í lokin þreyttu nem- endur próf þar sem þurfti að járna tvo fætur. Var námskeiðið haldið í rúmgóðum húsakynnum hestamið- stöðvarinnar Hindisvíkur í Mos- fellsbæ. Til að hljóta inngöngu í Félag tamningamanna þarf að þreyta þijú próf. í fyrsta lagi er um að ræða frumtamningu á þrem- ur ótömdum trippum, annar hlutinh er próf í dómum á kynbótahrossum og þriðji hlutinn er járningapróf. Prófdómari var sá kunni hesta- maður Sigurður Sæmundsson, sem er meistari í faginu. Hann lærði á sínum tíma í Svíþjóð og starfaði þar við járningar um árabil. Kenn- ari var Valdimar Kristinsson. Ellefu nemendur þreyttu prófið en ekki er ljóst hvort allir hafi náð, því eft- ir er að skila inn ritgerð sem gildir um 40%. En járningarnar gengu vel fyrir sig og létt var yfir mann- skapnum þótt gr.eina hefði mátt örlítinn prófskrekk í byijun. Var úthellt miklum svita og sjá mátti einn og einn sáran putta en allt lukkaðist þetta vel og ekki annað að sjá en tamningamennirnir hefðu gaman af þessari prófraun. Brúnin að léttast á próftökunum enda farið að hilla undir lok verk- efnisins, frá vinstri talið Sólveig Ólafsdóttir, Páll Bragi Hólmarsson, María Dóra Þórarinsdóttir, Sigurður Jökulsson, Gunnar Tryggva- son, Steinar Alfreðsson, Betina Rasmussen, Ólafur Kristjánsson, Róbert Petersen, Steingrímur, Snorri Dal Sveinsson, Sigurður Sæ- mundsson prófdómari og Valdimar Kristinsson kennari. Staðlaðar sundlaugar fyrir sveitarfélög, félagasamtök og einstaklinga. Getum boðið hina þekktu „Myrtha“ sundlaugar frá A & T Europe, nú úr ryðfríu stáli með 25 ára ábyrgð. Gerum föst verðtilboð. Upplýsingar á skrífstofunni. 0$ cUiúi vei. ° ÁRMÚLI 38, 108 REYKJAVÍK. SÍMI 91-689517. FAX 91-686014. Skálatúnsheimilið 40 í tilefni 40 ára afmælis Skálatúnsheimilisins verður opið hús í Skálatúni laugardaginn 29. janúar nk. frá kl. 14 til 17. Allar deildir verða opnar ásamt vinnustofum, þar verður sölusýning áframleiðslu heimilismanna. Allir velunnarar og eldri starfsmenn eru hjartanlega velkomnir. Kaffiveitingar. Mosfellsbæ ÚTSALA 10 - 60% AFSLÁTTUR Vetrarfatnaður, skíðagallar, dúnúlpur, íþróttaskór, íþróttagallar o.fl. OPIÐ laugardag kl.10 16 »hummel^ SPORTBÚÐIN Ármúla 40 • Simi 813555 og 813655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.