Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994 Tíðarfar hamlað flugsamgöngum í janúar 4 dagar fallið úr og oft hluti úr degi Nokkur samdráttur í farþegaflutningum ÞAÐ sem af er árinu hefur flug milli Akureyrar og Reykjavíkur fallið niður í fjóra daga, en að meðaltali fellur flug á þessari flug- leið niður 6-7 daga yfir allt árið. Auk þess hefur flug oft fallið niður hluta úr degi. Á síðasta ári fækkað farþegum Flugleiða um 1,2% á flugleiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur, en 16% fækk- un varð á milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Örlítil fjölgun varð á Sauðárkróksleiðinni. „Janúarmánuður hefur verið okkur býsna erfiður og þó hann sé ekki liðinn hafa þegar fallið niður 4 dagar sem ekki hefur ver- ið hægt að fljúga og það er mikið þegar til þess er litið að það falla að jafnaði ekki niður nema 6-7 dagar á ári. Þá hefur oft komið fyrir að flogið hefur verið að morgninum og síðan orðið ófært, eða þá að leiðin hafa ekki opnast fyrir en undir kvöld, þannig að þetta hefur verið mjög erfitt," sagði Bergþór Erlingsson um- dæmisstjóri Flugleiða á Norður- landi. Bíllinn helsti keppinauturinn Á síðasta ári fækkaði farþegum á flugleiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur um rúm ellefu hundr- uð, en til og frá Akureyri voru fluttir alls 94.649 farþegar á liðnu ári. Mest var fækkun farþega á leiðinni milli Húsavíkur og Reykja- víkur en þeim fækkaði um tæplega 1.700 eða 16%. Um 1,2% fjölgun farþega var að ræða á leiðinni milli Sauðárkróks og Réykjavíkur. Alls var Norðurland með um 45% hlutdeild í innanlandsflugi Flug- leiða á síðasta ári. Bergþór sagði að helsta skýr- ingin á 1,7% samdrætti í farþega- flutningum Flugleiða til Norður- lands væri samkeppni við bílinn, en í kjölfar þess að bæði vegir og bílar hafa batnað kysu margar að ferðast með bílum milli landshluta fremur en að fljúga. „Við reynum að bregðast við þessu með því að bjóða upp á mikla tíðni flugferða," sagði Bergþór. Ejjólfur sýn- ir í Galleríi AllraHanda EYJÓLFUR Einarsson list- málari opnar málverkasýn- ingu í Gallerí AlIraHanda í Grófargili á Akureyri næst- komandi laugardag, 29. jan- úar. Hann opnaði sýningu í Sólon íslandus um síðustu helgi og skiptir því myndefninu milli tveggja sýningarstaða, en syðra sýnir hann stór olíumálverk og fyrir norðan eru vatnsiitamyndir sem Eyjólfur vann að í Helskinki haustið 1992 og er landslagið þar í fyrirrúmi. Eyjólfur á að baki langan feril í myndlist, hann nam við Kon- unglegu listaakademíuna í Kaup- mannahöfn á árunum 1962 til 1966. Hann hefur haldið margar einkasýningar og er sýningin í Gallerí AIlraHanda sú 17. í röð- inni og þriðja málverkasýning hans á Akureyri. Sýningin stend- ur yfir til 12. febrúar næstkom- andi. Morgunblaðið/Rúnar Þór Tómstundamiðstöð UNNIÐ er að því að opna tómstundamiðstöð fyrir atvinnulausa í húsnæði sem Landsbankinn á Glerá- reyrum þar sem áður var skóverksmiðja og í gær kom hópur fólks til að hreinsa þar til. Tómstundamiðstöð fyrir atvinnulausa komið á fót UNNIÐ er að því að opna tómstundamiðstöð fyrir atvinnulausa í rúmlega 900 fermetra húsnæði þar sem skóverksmiðjan Strikið var til húsa á Gleráreyrum. Þar er gert ráð fyrir að verði fjölbreytt starfsemi, námskeið, fyrirlestrar og fleira auk þess sem fólk getur stundað hvers konar tómstundaiðju. „Þetta er mjög spennandi og við hlökkum til að starfsemin hér hefj- ist,“ sagði Guðrún Antonsdóttir ein þeirra sem í gærdag vann við hrein- gerningar á húskynnunum, en reynt er að virkja þá sem hyggjast síðan notfæra sér tómstundamiðstöðina til að koma húsnæðinu í þokkalegt horf. Fjölbreytt starfsemi Gert er ráð fyrir að fólk geti notið leiðsagnar í ýmis konar hand- verki á staðnum, en fram hafa kom- ið hugmyndir um verkefni eins og bókband, smíðar, saumaskap, leir- munagerð, viðgerðir ýmis konar, tölvuvinnu og vefnaði en einnig verður aðstaða til að stunda íþrótt- ir og þá verður setustofa þar sem hægt verður að grípa í spil eða tefla. Loks má nefna að komið verður upp leikherbergi fyrir börn sem fylgja foreldrum sínum í tómstundastöð- ina. Hermann Sigtryggsson íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur unnið að undirbúningi málsins, en að mið- stöðinni standa íþrótta- og tóm- stundaráð á Akureyri, Félagsmála- stofnun og Akureyrarbær. Hann sagði að hugmyndin væri sú að þeir sem hygðust notfæra sér að- stöðuna myndu byggja starfsemina upp og færi það eftir áhuga þátttak- enda hvað gert yrði, en í næstu viku verður gerð skoðanakönnum meðal atvinnulausra um hvað þeir helst kjósa að verði í boði í tóm- stundamiðstöðinni. „Þetta fer af stað í rólegheitum, en við væntum þess að fólk hafi áhuga á að nýta sér þessa aðstöðu. Hér er mikið atvinnuleysi og það er ástand sem er viðvarandi, því miður loka margir sem búa við at- vinnuleysi sig inni, en fólk verður að lifa áfram og þess vegna væntum við þess að það grípi þetta tæki- færi fegins hendi,“ sagði Hermann og gat þess að lokum að nú væru menn að reyna að útvega sér áhöld og tæki til að nota í miðstöðinni. MTC PENINGASKÁPAR Með kortalásum, tölvulásum og talnalásum. Verð frá kr. 29.810,- Fáanlegir með gólf- festingu og bjöliu TILVUTÆKI FURUVÖLLUM 5, AKUREYRI SÍMI 96-26100. ÍJU Tæknival SKEIFUNNI 17, REYKJAVIK SÍMI 91 -681 665. L STÍLL j ^JHHHHHHL^ A s LJöföar til Llfólks í öllum tarfsgreinum! 1 Mt Metframleiðsla í frystihúsi á síðasta ári ÚA þrátt fyrir minni afla Verðmæti framleiðslunnar nam röskum 2 milljörðum METFRAMLEIÐSLA var í frystihúsi Útgerðarfélags Akureyringa á liðnu ári, en verðmæti framleiðslunnar jókst um 28% milli ára. Fram- leiðsluverðmæti nam röskum 2 milljörðum króna á síðasta ári. Fram- leiðsluverðmæti frystitogara félagsins jókst um 11% milli ára þrátt fyrir aflasamdrátt. Kvóti togara ÚA hefur verið skorinn niður um 2.400 tonn á yfirstandandi fiskveiðiári og íþyngir nokkuð rekstri þess. Útlit er fyrir að hagnaður af rekstri félagsins á síðasta ári verði a.m.k. 50-60 milljónir króna. Rekstrartekjur á síðsta ári námu um 2,9 milljörðum króna og heildarveltan var um 3,7 milljarðar. Björgólfur Jóhannsson fjármála- stjóri Utgerðarfélags Akureyringa sagði að félagið hefði ekki farið varhluta af erfiðri stöðu í sjávarút- vegi, minnkandi aflakvóta, sam- drætti í afla og verðlækknunum á mikilvægum mörkuðum, en þrátt fyrir þessa erfíðu stöðu hefði ekki verið tap af rekstri félagsins í ára- bil og allt stefndi í að hagnaður yrði einnig af rekstri síðasta árs. 9000 tonn í 3.900 Skerðing þorskkvóta hefur komið sérlega þungt niður á reksti ÚA, en félagið hefur bætt sér hana upp með kaupum á kvóta. Árið 1988 var þorskkvóti togara ÚA um 9 þúsund tonn, en á yfirstandandi fiskveiðiári er hann 3.900 tonn, þó svo að varanlegur kvóti, um 1.100 tonrt, hafí verið keyptur á árinu. Aðhalds er gætt í rekstri í kjölfar þessa niðurskurðar og ráðstafanir gerðar til að afla nýrra veiðiheim- ilda auk þess sem leitað er leiða til að auka framleiðsluverðmæti afurð- anna, m.a. með því að vinna aflann í verðmætari pakkningar. Afli ísfisktogaranna 5 var 1,3% minni í fyrra en var árið á undan, en aflaverðmæti þeirra var tæplega 780 milljónir króna á móti 755 milljónum á árinu á undan. Frysti- togaranir 2 komu með afla að landi að verðmæti tæpar 800 milljónir króna miðað við 713 milljónir árið áður, þannig að verðmæti fram- Jeiðslunnar jókst um 11% milli ára þó að heildaraflinn væru um 600 tonnum minni á liðnu ári en því á undan. Heildarafli togaranna allra á síðasta ári var 20.787 tonn á móti 21.603 árið 1992. Verðmætið 2 milljarðar Aldrei í sögu Útgerðarfélags Akureyringa hefur verið framleitt jafn mikið í frystihúsi þess og á síðastliðnu ári, eða 7.769 tonn að verðmæti 2.003 milljónir króna en það er 28% aukning frá fyrra ári þegar framleidd voru 6.401 tonn í fiskvinnslunni að verðmæti 1.551 milljón króna. Framleiðsluaukningu landvinnslunnar í fyrra má að mestu skýra með kaupum á afla af öðrum veiðiskipum. Björgólfur sagði að fyllilega stæðust þær áætlanir um hagnað sem gerðar höfðu verið í útboðslýs- ingu félagsins í nóvember þegar boðið var út nýtt hlutafé, en þar hafði verið gert ráð fyrir 50-60 milljón króna hagnað og jafnvel gæti orðið um meiri hagnað að ræða, því nýliðinn desembermánuð- ur hefði verið einkar góður og ekki dottið niður dagur í vinnslunni, öfugt við það sem vanalega tíðkað- ist í þeim mánuði. Útivistardagair í Hlíðarfjalli FORMLEGUR opnunardagur nýhafinnar skíðatíðar verður í Hlíðarfjalli næsta sunnudag, 30. janúar og verður þá frítt í allar lyftur á svæðinu. Sérleyfisbílar Akureyrar aka skíðafólki í íjallið án gjaldtöku og skíðafólk úr Skíðaráði Akureyrar mun ?-kenna fólki á skíðum, svig og göngu án endurgjalds. Leiðbeint verður um hvernig skíðaáburður er notaður, barnaleikgarður verður opinn og almenningssvigbraut verður í Hjallabrekku. Loks mun Hjálparsveit skáta kynna starfsemi sína. i i í I I 1 I I I I I I I I í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.