Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 20

Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík haldið um helgina Átta bjóða sig fram Ámi Ingi Stefánsson Böðvar Jónsson Guðjón Ómar Hauksson Ingólfur Bárðarson PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík vegna væntanlegra sveitarstjórnarkosninga í vor, fer fram laugardaginn 29. jan- úar. Átta frambjóðendur gefa kosta á sér og er prófkjörið opið öllum stuðningsmönnum flokksins sem náð hafa kosningaraldri á kjördag. Kosið er í Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, í Njarðvík og hefst kjörfundur kl. 10 og lýkur kl. 22. Jakob Sigvaldi Sigurðsson Jónína A. Sanders Kristbjörn Albertsson Valþór Söring Jónsson Frambjóendur eru í stafrófsröð: Árni Ingi Stefánsson fram- kvæmdastjóri, Holtsgötu 48, Njarð- vík. Árni er 39 ára og starfar sem framkvæmdastjóri Dverghamra sf. Hann er nú 1. varamaður í bæjar- stjórn Njarðvíkur. Eiginkona Árna er Halldóra Húnbogadóttir og eiga Borgarstjóri um framsetningu á skuldum borgarsjóðs Tæknilegt atriði að telja með skuldir bílastæðasjóðs Borgarhagfræðingur segist einn bera ábyrgð á mistökunum BORGARSTJÓRI segir það nánast tæknilegt atriði að telja skuld- ir bílastæðasjóðs með heildarskuldum borgarsjóðs eins og gert hafi verið við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun borgarinnar fyr- ir árið 1994. Fulltrúar minnihlutans í borgarsijórn hafa vakið athygli á að heildarskuldir séu um milljarði lægri um síðustu áramót en fram hafi komið í ræðu borgarsíjóra. Eggert Jónsson borgarhagfræðingur, segist einn bera ábyrgð á þeim mistökum að bæta skuldum bílastæðasjóðs við heildarskuld borgarsjóðs. „Mér finnst þetta vera dæmigert upphlaup hjá minnihlutanum og þá einkanlega hjá Sigrúnu Magnúsdótt- ur,“ sagði Markús Örn Antonsson borgarstjóri. „Þetta eru vinnubrögð sem hún er vel þekkt að hér á borgarstjórnarvettvangi. Málið var upplýst á fundi borgarráðs á þriðju- dag í þessari viku og það er ‘ljóst að borgarhagfræðingi varð það á að telja skuldir bílastæðasjóðs með heildarskuldum borgarsjóðs. Þetta er nánast tæknilegt atriði því bíla- stæðasjóður var meðtalinn í borgar- sjóðnum til skamms tíma og það eru mjög náin tengsl þarna á milli því að borgarsjóður er ábyrgur fyrir öll- um skuldbindingum bílastæðasjóðs. Þessi skuld bílastæðasjóðs nemur um 760 milljónum króna sem er sú upphæð sem þarna er um að ræða. Það er síður en svo að minnihlutinn hafi komið niður á einhvern fjársjóð þó að þessi skekkja hafi verið í fram- setningu á tölum. Þetta eru skuldir sem borgin verður að standa skil á og borgarsjóður verður að greiða ef bílastæðasjóður hefur ekki tekjur til þess að greiða af sínum skuldbind- ingum sjálfur." í frétt frá Eggerti Jónssyni borg- arhagfræðingi kemur fram að hon- um hafi orðið á þau mistök að bæta skuldum bílastæðasjóðs við heildar- skuld borgarsjóðs eins og hann hafi greint frá á fundi borgarráðs. Tekið er fram að tölur ársins 1993 séu byggðar á áætlunum og að þær muni ekki liggja ■ endanlega fyrir fyrr en í ársreikningi. Menn geti hins vegar haft ólíkar skoðanir á því hvort eðlilegt sé að telja skuldir bíla- stæðasjóðs þar með, þar sem hann sé öðrum borgarfyrirtækjum tengd- ari borgarsjóði, sem ber ábyrgð á öllum skuldbindingum hans. Þá segir: „Mér finnst hinsvegar leitt, að Sigrún Magnúsdóttir skuli hafa vegið svo ómaklega að borgar- stjóra eftir að ég hafði upplýst hana um ábyrgð mína á mistökunum á fundi borgarráðs 25. þ.m. Borgar- stjóri átti að geta treyst upplýsingum mínum um áætlaðar heildarskuldir um síðustu áramót," segir í frétt frá borgarhagfræðingi. þau þrjá syni. Böðvar Jónsson fasteignasölu- maður. Böðvar er 25 ára og býr á Brekkustíg 33b, Njarðvík. Hann Iauk stúdentsprófi 1988 og starfar í dag sem fasteignasölumaður á Eignamiðlun Suðurnesja. Unnusta Böðvars er Anna Karlsdóttir Taylor og eiga þau einn son. Guðjón Omar Hauksson fulltrúi. Guðjón er fæddur í Reykjavík 9. mars 1948. Hann lauk prófi frá Gagnfræðaskólanum við Lindargötu í Reykjavík 1963, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík. Guðjón stundaði nám í markaðsfræðum, verslunarstjórn, bókhaldi o.fl. Guð- jón stundaði verslunarstörf frá 1964 til 1985, þar af sem verslunarstjóri í 9 ár og kaupmaður í 7 ár. Starf- aði við bókhald í 3 ár, sem starfar nú sem fulltrúi umhverfisdeildar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Sam- býliskona Guðjóns er Guðný Jóns- dóttir. Ingólfur Bárðarson rafverktaki, Hólagötu 45, Njarðvík, 56 ára. Ing- ólfur er fæddur og uppalinn í Njarð- vík. Hann lauk iðnskólanámi og sveinsprófi 1962 og fékk rafverk- takaleyfi og landslöggildingu 1965. Síðan hefur Ingólfur verið sjálfstæð- ur verktaki. Hann hefur verið bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 1982 og forseti bæjarstjórnar í þijú ár og er það í dag. Eiginkona Ingólfs er Halldóra Jóna Guðmundsdóttir og eiga þau fimm börn. Jakob Sigvaldi Sigurðsson vél- virkjameistari, Kirkjubraut 1, Njarð- vík. Jakob er fæddur 3. janúar 1935. Jakob lauk iðnnámi í vélvirkjun frá Iðnskólanum í Keflavík 1969. Eigin- kona Jakobs er Jónína Margrét Her- mannsdóttir. Jónína A. Sanders hjúkrunar- fræðingur, Lágmóa 7, Njarðvík. Hún er hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrun- arskóla íslands 1985, lauk fram- haldsnámi í svæfingar- og gjör- gæsluhjúkrun í Svíþjóð 1988, BSc. prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Islands 1993. Unnið við hjúkrun bæði í Svíþjóð og á íslandi, nú síðast í afleysingum sem hjúkrunarforstjóri við Heilsugæslustöð Suðurnesja í Grindavík. Fyrir hjúkrunarnám vann Jónína hjá íslenskum markaði í flug- stöðinni á Keflavíkurflugvelli í fimm ár og í tvö ár sem gjaldkeri hjá' Rafveitu Njarðvíkur. Jónína er gift Jóni Benediktssyni lækni og á einn son. Kristbjörn Albertsson kennari og bæjarfulltrúi. Kristbjörn er 49 ára og býr í Fífumóa lb í Njarðvík. Hann starfar sem kennari við Grunnskólann í Njarðvík. Kristbjörn hefur verið bæjarfulltrúi í Njarðvík síðan 1990 og átt sæti í bæjarráði. Valþór Söring Jónsson, Njarðvík- urbraut 1, Njarðvík. Hann er 40 ára og starfar sem yfirverkstjóri. Valþór er bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflok- Eiginkona Valþórs er Hálldóra Lúthersdóttir börn. og eiga þau fjögur Vöruskiptin hagstæð árið 1993 í DESEMBERMANUÐI sl. voru fluttar út vörur fyrir tæpa 9,3 miHj- arða kr. og inn fyrir röska 8,4 miiljarða kr. fob. Vöruskiptin í desem- ber voru því hagstæð um 0,8 milljarða kr. en í desember 1992 voru þau óhagstæð um 3,3 milljarða kr. fob á sama gengi, segir í frétt frá Hagstofu Islands. Allt árið 1993 voru fluttar út vör- ur fyrir 94,7 milljarða króna en inn fyrir 82,6 milljarða króna fob. Vöru- skiptajöfnuðurinn á árinu var því hagstæður um 12,1 milljarð kr. en árið áður var hann óhagstæður um 0,4_ milljarða kr. á föstu gengi. Árið 1993 var verðmæti vöruút- flutningsins nær hið sama á föstu gengi og árið áður. Sjávarafurðir voru 79% alls útflutningsins og var verðmæti þeirra um 2% minna en árið 1992. Útflutningur á áli var 5% minni en útflutningur kísiljárns 39% meiri á föstu gengi en árið áður. Útflutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skipum og flugvélum) var 2% minna í janúar-desember 1993 en árið áður. Heildarverðmæti vöruinnflutn- ingsins árið 1993 var 14% minna á föstu gengi en árið áður. Innflutning- ur sérstakrar fjárfestingarvöru (skip, flugvélar, Landsvirkjun) varð innan við þriðjungur af því sem hann var árið 1992. Innflutningur til stóriðju varð 12% minni en árið næsta á undan og olíuinnflutningur 4% minni. Að þessum liðum frátöldum reynist annar innflutningur'hafa orðið 9% minni en á árinu 1992. Fiskréttaverksmiðja í Garðinum vill nýta möguleika EES Lánasjóðir iðnaðarins vísa fiskinum frá sér FYRIRTÆKI sem er að byggja upp fiskréttaverksmiðju til fram- leiðslu á tilbúnum fiskréttum í neytendaumbúðir, meðal annars til að nýta möguleika sem opnast hafa á Evrópska efnahagssvæð- inu, hefur átt í erfiðleikum með að fá stofnlán vegna véla- kaupa. Að sögn annars eigandans vísa sjóðir iðnaðarins fyrirtæk- inu frá sér þar sem það sé sjávarútvegsfyrirtæki og Fiskveiða- sjóður gefur þau svör að hann hafi ekki peninga aflögu til að lána í slíka starfsemi. Stjórnendur Iðnþróunarsjóðs og Fiskveiða- sjóðs segjast hafa heimildir til að veita stofnlán til fullvinnslu á fiskréttum og Iðnlánasjóður segir að verkefnið sé nálægt starf- sviði sínu. Hins vegar þurfi að uppfylla ýmis skilyrði. Víðir hf. í Garði hóf í vetur fram- leiðslu á súpum og ýmsum fiskrétt- um, aðallega fískrúllum, í neytenda- pakkningum. Vörumar hafa hingað til aðallega verið seldar á innan- landsmarkaði, bæði í mötuneyti og verslanir, og líkað vel að sögn Jó- hannesar S. Guðmundssonar ann- ars eigenda Víðis hf. Fyrirtækið er jafnframt að undirbúa markaðs- sókn erlendis^ í samvinnu við Út- flutningsráð íslands. Vegna tolia- lækkana sem urðu á þessum vörum við opnun Evrópska efnahagssvæð- isins er litið sérstaklega til Evrópu- markaðar og hafa Bretar m.a. sýnt áhuga á vörum frá Víði hf. Jóhannes sagði að fjármögnunin væri erfíð. Fengist hefði stuðningur frá Eignarhaldsfélagi Suðumesja og einnig styrkur frá Atvinnuleysis- tryggingasjóði til að veita nokkrum mönnum vinnu um tíma. Hins veg- ar hefðu ekki fengist stofnlán til vélakaupa og væri það fyrirtækinu erfitt að þurfa að binda mikið fé í vélum í upphafi rekstrar. Jóhannes sagði að starfsmaður Iðnþróunar- sjóðs hefði synjað um lán til véla- kaupa og það án þess að bera erind- ið undir stjórn sjóðsins sem þó væri skylt. Þær skýringar hefðu fengist að fyrirtækið stundaði físk- vinnslu og Iðnþróunarsjóður lánaði ekki í fiskinn. Sagðist Jóhannes telja það furðulega afstöðu því físk- réttaframleiðslan væri matvælaiðn- aður. Hann sagði að einnig hefði fengist neikvætt svar frá Iðnlána- sjóði en málið hefði verið tekið aft- ur upp og væri nú til athugunar. Þá hefðu þau svör fengist hjá Fisk- veiðasjóði að þar væm engir pen- ingar til að lána í þetta vegna leng- ingar á lánum sjávarútvegsins. Heimild til lánveitinga Stjórnendur sjóðanna ræða ekki einstakar lánsumsóknir. Þorvarður Alfonsson, framkvæmdastjóri Iðn- þróunarsjóðs, sagði að sjóðurinn lánaði til iðnaðar í víðtækum skiln- ingi þess orðs, hann gæti lánað til nánast allrar arðbærrar atvinnu- starfsemi. Kannaðist hann ekki við að hafa fengið lánsumsóknir frá fiskréttaframleiðslu en hins vegar hefði sjóðurinn lánað nokkrum fyr- irtækjum sem hafa farið út í að pakka fískflökum í neytendaum- búðir. Taldi Þorvarður að sjóðurinn myndi sýna því áhuga ef hann fengi beiðni um að fjármagna fískrétta- verksmiðju, að því tilskyldu að starfsmenn sjóðsins fengju trú á stjórnendum fyrirtækisins og fjár- hagslegu heilbrigði þess. Bragi Hannesson, forstjóri Iðn- lánasjóðs, sagði að Iðnlánasjóður væri sjóður iðnaðarins og sam- kvæmt reglum hans hefði fiskiðnað- urinn fallið utan verksviðs hans. Hins vegar væri áhugi á að opna sjóðinn meira og yrði unnið að því í kjölfar laga um lánastofnanir, aðrar en banka og sparisjóði, sem sett voru undir lok síðasta árs. Bragi viðurkenndi að pökkun á fiski í neytendaumbúðir félli nálægt starfssviði sjóðsins en hann hefði fengið lítið af slíkum umsóknum. Hann sagði að meginþorri þeirra fyrirtækja sem fengju synjun við lánsumsóknum uppfylltu ekki skil- yrði sjóðsins um eigið fé. Sjóðurinn mæti fyrirtæki út frá rekstri og afkomu og væri miðað við að eigið fé væri almennt ekki minna en 15%. Mörg fyrirtæki næðu ekki þessu marki enda væri lítið eigið fé íslenskra fyrirtækja eitt af meg- invandamálum í íslensku efnahags- lífí. Svavar Ármannsson, aðstoðar- forstjóri Fiskveiðasjóðs íslands, sagði að sjóðnum væri heimilt að veita lán til framleiðslu fiskrétta í neytendaumbúðir. Nokkuð væri um að frystihús hefðu bætt við sig full- vinnslulínum og taldi hann líklegt að Fiskveiðasjóður hefði í einhveij- um tilvikum veitt lán til slíks. Svav- ar sagði að ekki hefði reynt á um- sóknir til fiskréttaverksmiðja að undanförnu en það yrði að athuga mjög vel ef til þess kæmi. Sagði har.n að lánveitingar færu eftir því hvernig sjóðnum litist á verkefnið, hvað veð væru örugg og rekstur fyrirtækisins góður, og hvað sjóður- inn hefði mikið fé til útlána. Svavar sagði að Fiskveiðasjóður þyrfti stöðugt að taka ný lán til að fjár- magna starfsemina, jafnvel þó eng- ar lánveitingar væru, því erlend lán sjóðsins væru til mun styttri tíma en þau ián sem sjóðurinn veitti. Hins vegar væri aðgangur hans að fjármagni takmarkaður og þyrfti að setja verkefni í forgangsröð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.