Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994 49 Opið bréf til ritsljóra Morgunblaðsins Frá George J. Grosman: LAUGARDAGINN 15. janúar sl. birtir þú „pólitíska" skopmynd af Amal Quase, sem er ekki einungis móðgandi fyrir Amal eða hvaða sómakæra manneskju sem sér myndina, heldur ekki síður fyrir blaðið þitt, útbreiddasta dagblað á íslandi. Að leggjast svo lágt sem að birta klisjur sem lýsa kynþátta- hatri, eins og teiknari ykkar gerir sig sekan um þegar hann dregur upp mynd af Amal, berbijósta í strápilsi, að hræra í stórum potti með sjóðandi vatni, tilbúin til mann- ætuveislu, minnir á teikningar nas- ista af gyðingum í þýskum blöðum á §órða áratugnum. Myndin er augljóslega óviðeigandi og móðg- andi, en einnig einkennandi fyrir mun útbreiddari meinsemd. Þrátt fýrir að þorri íslendinga sé vandað og sómakært fólk, virðist sú tálsýn vera ríkjandi að við lifum í einskon- ar einangrun, verndaðri af dular- krafti, (hulduveröld) þar sem at- hafnir, sem væru óhugsandi annars staðar (eins og teiknimyndir sem - lýsa kynþáttahatri), skipti ekki máli. Það ríkir afskiptaleysi, eins og teiknimyndir, brandarar eða hreinlega meiðingar séu í raun ekki skaðlegar svo lengi sem aðrir en „við“ heyra þær ekki eða sjá. Ég Allir Finnar takið eftir! Frá Saga Hellmann: KJÓSIÐ frambjóðanda númer þrjú í forsetakosningunum, Elisabeth Rehn, varnarmálaráðherra. Hjálpið Finnum að láta meira bera á sér, að fá sína Vigdísi. SAGA HELLMANN „Pro Elisabeth" Lapsjard Finnlandi leyfi mér að benda á að hegðun af þessu tagi er mjög röng og skaðleg og fyrir mitt leyti neita ég að taka þátt í henni. Allar mannverur hafa jafnan rétt á sömu virðingu, réttindum og reisn. Það er allt í lagi að gera grín að stjórnmálamönnum, gera gys að frægu fólki, en ekki ef grín- ið snýst um að sverta mannorð manneskjunnar á grundvelli kyn- þáttar. Ég myndi sannarlega ekki kæra mig um að opna Morgunblað- ið og sjá skopmynd af gyðingum Frá Guðrúnu Markúsdóttur: ITC hefur starfað um árabil hér á íslandi. Þetta eru samtök sem hafa unnið markvisst að því að styrkja og styðja einstaklinginn í þjálfun sinni til þess að nýta hæfileika sína. Þetta eru þjálfunarsamtök í mann- legum samskiptum. Við viljum hafa áhrif á gang mála í kringum okkur, en oft þurf- um við að víkja fýrir öðrum sem heyrist hærra í. í ITC öðlumst við kjark og reynslu sem nýtist vel í lífinu. Við lærum fundarsköp og ræðu- mennsku og hittum skemmtilegt fólk. Þetta er allt sjálfsnám, við lærum af þeim sem eru reynslunni ríkari. Við lærum að skipuleggja tíma okkar og að vinna eftir áætl- un. Við búum öll yfir hæfileikum, en þeir nýtast ekki öllum eins vel. ITC starfar í 15-30 manna deild- um um Iand allt. Samtökin eru öll- um opin. Þetta eru ekki góðgerðar- samtök sem standa fýrir fjáröflun. Stjómunarstörf em mikill hluti af okkar starfi, enginn situr lengur en eitt ár í embætti, við læmm fundarsköp í ITC. Kannast þú ekki við að hafa staðið frammi fyrir því að þig vanti bæði kjark og þor til að standa fyrir máli þínu, eða ör- með risastórt og bogið nef, eða Austurlandabúa með rifu fyrir aug- um, illgirnislegt glott á vörum, eða indíána með móhíkanahárgreiðslu að flá höfuðleður af hvítum manni. Mig langar ekki að sjá svarta mann- eskju sýnda nakta og glottandi í tilhlökkun yfír mannætumáltíð. Með sæmd blaðs þíns í huga ættir þú að láta vera að birta slíkt æru- meiðandi rusl í framtíðinni. GEORGE J. GROSMAN, MA, Vífilsgötu 10, Reykjavík. yggi til að taka við stjórn í félaginu þínu? Ef svo er þá er ITC vettvang- ur fyrir þig. GUÐRÚN MARKÚSDÓTTIR, grannskólakennari. Gagnasafn Morgxmblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu verður framvegis varð- veitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Pennavinir ÞÝSKUR 25 ára karlmaður með margvísleg áhugamál: Andreas Riidig, Irisstrasse 9, 4100 Duisburg 28, Germany. SAUTJÁN ára finnsk stúlka með áhuga á íþróttum og tónlist: Taina Siitari, Metjátie 5, 51900 Uuva, Finland. TVÍTUG Ghanastúlka, námsmaður, með áhuga á ferðalögum, tónlist, ljósmyndun, íþróttum o.fl.: Rita Foreigner, P.O. Box 236, Agona-Swedru, Ghana. FIMMTÁN ára japönsk stúlka með tónlistaráhuga: Shinobu Yokota, 101 Jinya-cho Aza Esashi-cho, Hiyama-gun Hokkaido, 043 Japan. FRÁ Hjaltlandi skrifar 43 ára kona sem býr í litlu fískiþorpi og hefur áhuga á tónlist, bókmenntum, fu- glaskoðun og útivist: Brenda Finegan, 16 Houll Road, Scalloway, Shetland, United Kingdom. FINNSK 25 ára stúlka með áhuga á tónlist, bókmenntum og bréfa- skriftum m.m.: Seya Tahvanainen, Tohimyárventie 83 C 19, 82140 Kiihtelysvaara, Finland. SEXTÁN ára Ghanapiltur, skóla- piltur, með áhuga á íþróttum og ferðalögum: Mike Foreigner, P.O. Box 236, Agona-Swedru, Ghana. LEIÐRÉTTING Ég minnist þín Rétt er að taka fram að kvæðið sem birtist með minningargrein um Unni D. K. Rafnsdóttur á blaðsíðu 37 í Morgunblaðinu í gær (Ég minn- ist þín um daga og dimmar næt- ur ...) er eftir Asmund skáld Jóns- son frá Skúfstöðum og kom út í bók hans Skýjafar, kvæði, Steind- órsprent, Reykjavík, 1936. VELVAKANDI HAFA ÍSLENDINGAR GLEYMT KURTEISINNI? KONA sem vinnur í móttöku hringdi til Velvakanda og furð- aði sig á því að það virtist sem íslendingar kynnu ekki að bíða eftir afgreiðslu. Starf hennar felst í því að taka móti fólki, en oftar en ekki virðist fólk ekki taka tillit til þess ef hún er í símanum eða að afgreiða aðra. Það ryðst inn og upp að skrif- borðinu og talar jafnvel við hana þótt augljóst sé að hún er upp- tekin í síma. Þetta getur verið mjög óþægilegt og truflandi fyr- ir þann sem fyrir þessu verður og jafnvel tafið enn frekar fyrir afgreiðslu. TAPAÐ/FUNDIÐ Frakki tekinn í misgripum í erfidrykkju KONA hringdi til Velvakanda, alveg miður sín, því fyrir rúmum tveimur vikum tók hún frakka, sem ekki var hennar, í erfi- drykkju, annaðhvort í Víðistaða- kirkju eða í Gaflinum. Frakkinn hennar var dökkblár gaberdín- frakki, en frakkinn sem hún fór með heim var svartur karl- mannsfrakki frá Christian Dior, ákaflega vandaður og merktur með silfurskildi. Kannist einhver við það að hafa týnt frakkanum sínum á öðrum hvorum staðnum er hann vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 51740. Myndavél fannst LÍTIL myndavél fannst á bíla- planinu við Kötlufell á nýár- snótt. Upplýsingar í síma 673147. Lyklakippa fannst LYKLAKIPPA, eftirlíking af bakpoka, með einum lykli fannst í Seljahverfí í byijun janúar. Upplýsingar í síma 670443. Eyrnalokkur tapaðist SERSTAKUR grænn eyrna- lokkur úr sæsorfnu gleri tapað- ist í Þjóðleikhúskjallaranum rétt eftir áramót. Finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 41199. GÆLUDÝR Hundur á flækingi í Grímsnesi SVARTUR og hvítur stór hund- ur af collie-kyni kom blautur og hrakinn og baðst gistingar á Brjánsstöðum í Grímsnesi 15. janúar sl. Þetta er líklega gam- all hundur, kurteis og vel van- inn. Möguleiki er að hann hafi villst frá sumarbústað í grennd- inni. Upplýsingar gefur Sonja í síma 98-64451. Hvolpar í heimilisleit FIMM íslensk-skoskir hvolpar, sem fæddust á aðfangadag, fást á góð heimili strax. Upplýsingar í síma 675306. Þjálfunarsamtökin ITC KJÓSUM KATRÍNU GUNNARSDÓTTUR ÁGÆTU SJÁLFSTÆÐISMENN! Kjósum Katrínu Gunnarsdóttur í 6. sætið í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þann 30. og 31. janúar. Kosningaskrifstofa Katrínar er í Skipholti 35 ‘S 81 33 50 og 81 33 69 ÞORBERG ADAJLSTEINSSON Kosningaskrifstofa að Faxafeni 10(2. hæð) Sími 88 70 88 Próf kjör Sjólf stæöisf lokksins 30. og 31. janúor. Kjósum Axel Eiríksson í 6. tíl 9. sæti. „Axel er hæfileikaríkur hugsjónamaður og störf hans einkennast af heiðarleika, drengskap, ákveðni og elju sem þarf til að ná árangri í erfiöum borgarstjórnar- málum." Helga Hannesdóttir, barnageðlæknir. Kosningaskrifstofa er á Laugateigi 33 (vinnustofa). Símar 884533,870706 og 884534. & & Mest seldu amerísku dýnurnar Marco HÚSGAGNAVERSLUN Langholtsvegi 111, sími 680 690. 5* Metsolukku) á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.