Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
7
Blýmagn í blóði
fer minnkandi
MENGUN af völdum blýs er tæpast vandamál hér á landi og þéttni
blýs lítil í blóði manna, hefur minnkað að því er fram kemur í mæling-
um sem gerðar voru á Rannsóknastofu í lyfjafræði á árunum 1991-92
til samanburðar við sambærilegar blýmælingar í blóði fyrir 13-14
árum. Þetta kemur fram í skýrslu Þorkels Jóhannessonar læknis og
Svövu Þórðardóttur um mælingarnar.
í blóði lögreglumanna og strætis-
vagnastjóra reyndist þéttni blýs í
blóði ca. 3-4 sinnum minni en í fyrri
könnuninni, en magn blýs í blóði
stúdenta reyndist nú að meðaltali
einungis fimmtungur eða minna af
þéttni blýs í blóði sambærilegs stúd-
entahóps fyrir 13-14 árum. Á und-
anförnum árum hefur notkun blý-
snauðs bensíns farið ört vaxandi hér
á landi og nam árið 1991 alls 60%
af heildarnotkun bensíns til eldsneyt-
is og jafnframt hefur blýmagn í götu-
lofti í Reykjavík farið jafnt og þétt
minnkandf. í skýrslunni segir að
skoðanir hafi ætíð verið skiptar á
því að hve miklu leyti blý í andrúms-
lofti utandyra, en það er nær ein-
göngu að rekja til blýs í útblæstri
bifreiða, hefði áhrif á þéttni þess í
blóði. Nú sé þó talið, að a.m.k. gróft
samhengi sé milli magns blýs í and-
rúmslofti og þéttni þess í blóði. Jafn-
framt sé vitað að truflun á myndun
hemkjarna í blóðmerg sé ein næm-
asta vísbending um eiturhrif blýs í
líkamanum og allgott samhengi sé
milli þeirra eiturhrifa og þéttni blýs
í blóði. Vaxandi áhyggjur séu og af
því að lítið magn blýs geti skaðað
miðtaugakerfið í fóstrum og í ungum
börnum. Sé nú talið að magn blýs í
blóði eigi ekki að vera umfram 100
ng/ml (1 ng jafngildir billjónasta úr
grammi), ef sneiða eigi hjá eitur-
áhrifum að völdum blýs með öllu.
Árið 1978 lét eiturefnanefnd mæla
blý í blóði stúdenta, lögreglumanna
í götulögreglunni og strætisvagna-
stjóra og í framhaldr í nokkrum öðr-
um starfstéttum, auk þess sem reynt
var að meta blýmengun í götulofti í
Reykjavík og var ritgerð um niður-
stöður þeirra athugana birt árið
1979. Á undanförnum árum hefur
notkun blýsnauðs bensíns farið ört
vaxandi hér á landi og nam árið
1991 alls 60% af heildarnotkun bens-
íns til eldsneytis, segir í skýrslunni.
Jafnframt hefur magn blýs í öðru
bensíni verið minnkað. Jafnframt
hefur blýmagn í götulofti í Reykavík
farið jafnt og þétt minnkandi. Af
þessum sökum þótti því rétt að end-
Samanburður á býi í blóði
fólks í Reykjavík árin 1978
og 1992
250----------------------
blý, ng/ml af blóði
c
l I Stúdentar 1 CtJ c 'O g o r Stökkvitiðsmer 1
78 ’92 78 '92 78 ’92
urtaka ákvarðanir í blýi í blóði stúd-
enta, lögreglumanna og strætis-
vagnastjóra og kanna, hvort magn
blýs í blóði þeirra héfði minnkað í
samræmi við minna magn þess í lofti.
I blóði 7 af 12 stúdentum var þéttni
blýs á bilinu 20-39 ng/mg, en var
í blóði hinna fímm á bilinu 40-69
ng/ml. Þéttni blýs í blóði lögreglu-
manna og strætisvagnastjóra var
hins vegar í flestum tilfellum á bilinu
40-69 ng/ml og einungis í fjórum
tilfellum á bilinu 20-39 ng/ml. í
þessum hópum voru enn fremur fjór-
ir einstaklingar með blý í blóði á
bilinu 70-90 ng/ml. Var þéttni blýs
að meðaltali minnst í yngsta hópnum,
þ.e. innan við 30 ára, en var nokkru
meiri í næsta aldursflokki, 31-49
ára og mest í elsta flokknum, yfir
50 ára.
Frumvarp þingmamia Framsóknarflokks
Allur búvöruiimflutn-
ingur verði háður leyfi
Nýtur væntanlega meirihluta á þingi
segja flutningsmenn tillögunnar
TVEIR þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram lagafrumvarp
um að innflutningur á búvörum, unnum jafnt sem óunnum, og tilsvar-
andi vörum sem jafnframt eru framleiddar hér á landi, sé háður
samþykki landbúnaðarráðherra. Sama gildi um vörulíki þessara
vara. Segja þingmennirnir frumvarpið lagt fram til að eyða réttar-
óvissu i kjölfar skinkumálsins, þar sem ríkisstjómin sé ófær um að
ná samkomulagi um málið. Frumvarpið er samhljóða tillögu meiri
hluta landbúnaðarnefndar Alþingis frá síðasta vori, sem kom ekki
til umræðu á þingi, og segja flutningsmenn þvi að ætla megi að
meirihluti sé á Alþingi fyrir frumvarpinu.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson og
Guðni Ágústsson eru flutnings-
menn frumvarpsins. í greinargerð
með frumvarpinu segir, að ekkert
bóli á frumvarpi því sem ráðherrar
ríkisstjórnarinnar hafi boðað að
yrði lagt fram á þingi 25. janúar
sl, og átti að eyða réttaróvissu um
innflutning á landbúnaðarvörum.
Landbúnaðarnefnd þingsins hafi að
vísu séð frumvarpsdrög, sem gangi
í grundvallaratriðum út á það að
taka forræðið í málinu af landbún-
aðarráðherra en ekki hið gagn-
stæða eins og haldið hafi verið
fram, og ljóst sé að innan ríkis-
stjórnarinnar sé mikill ágreiningur
um málið.
Þingmeirihluti
Þingmennimir segja að vilji Al-
þingis hafi legið fyrir á vordögum
1993 og meirihluti hafi verið á þingi
fyrir breytingartillögur við búvöru-
lögin sem kom fram frá meirihluta
landbúnaðarnefndar. Forsætisráð-
herra hafi hins vegar slitið þingi
áður en málið var takið til af-
greiðslu á þingi. Nú sé tillagan flutt
óbreytt í formi lagafrumvarps í ljósi
þess að allir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks í landbúnað-
arnefnd hafi skrifað undir hana í
fyrra og verði því að ætla að þing-
meirihluti sé fyrir henni.
Ekkital-
in ástæða
til bensín-
lækkunar
FORSTJÓRAR Skeljungs og Esso
segja að ekki sé ástæða til að
lækka verð á bensíni og olíu hér
á landi nú, frekar en gert var um
áramót. Haldi olíuverð áfram að
lækka, eða núgildandi heims-
markaðsverð helst óbreytt, geti
hins vegar verið ástæða til að
endurskoða verðið að nokkrum
tíma liðnum.
Geir Magnússon, forstjóri Esso,
sagði að tilefni gæti orðið til lækk-
unar á næstunni, en þó bæri að hafa
í huga verðþróun dollars, sem vægi
á móti lækkandi olíuverði að ein-
hverjum hluta. Hann benti á að um
áramót hefði orðið mikil lækkun á
bensíni, eöa um 1,40 krónur á hvern
lítra. Það væri vissulega aðeins um
2% af útsöluverði bensíns, þar sem
fastar opinberar álögur drægju út
áhrifum lækkunarinnar, sem hefði í
raun numið 7% af hlut olíufélaganna
í verði hvers lítra. Þá væru olíufélög-
in ávallt með tveggja til þriggja
mánaða birgðir í landinu, svo lækkun
eða hækkun á heimsmarkaði skilaði
sér ekki hingað til lands fyrr en á
lengri tíma. Loks bæri að huga að
því, að verð á hveijum farmi væri
miðað við meðalverð þess mánaðar
sem farmurinn bærist hingað. Væri
verðið hátt lengst af mánuði, en
lækkaði mikið í mánaðarlok, hefði
sú lækkun ekki eins mikil áhrif og
ella vegna þessarar meðaltalsreglu.
Hráolían hefur lækkað
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, sagði að hann sæi ekki
fram á frekari lækkanir að svo
stöddu. Verð á gasolíu væri á sama
róli og þegar síðast var tekin ákvörð-
un um lækkun, en hráolían hefði
lækkað enn frekar. Sú lækkun skil-
aði sér hins vegar ekki strax í verði
á unnum olíuvörum. Kristinn benti
á, að í mars myndu olíuráðherrar
OPEC-ríkjanna hittast og þá kæmi
í ljós hvort eitthvað yrði dregið úr
framleiðslu í heiminum. Slíkur sam-
dráttur myndi hækka verðið. Haldist
framleiðslan hins vegar óbreytt væru
líkur á enn frekari lækkunum, sem
myndu skila sér hingað.
IDAG
Verð frá:
Bolir kr. 490,-
Skyrtur kr. 790,-
Ullarpeysur kr. 1.490,-
Ullarvesti kr. 1.590,-
Gallabuxur kr. 1.990,-
Úlpur kr. 4.990,-
Ullarblazer kr. 4.990,-
Jakkaföt kr. 4.990,-