Morgunblaðið - 28.01.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
15
Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar og Atli Heimir Sveinsson
eftir Stefán Edelstein
i
Atli Heimir Sveinsson skrifar
grein í laugardagsblað Morgun-
blaðsins þar sem hann fjallar um
tónleika Sinfóníuhljómsveitar æsk-
unnar (SÆ) 14. janúar sl. Yfir-
skrift greinarinnar er „SÆ og
Zukofsky".
Atli Heimir hefur ýmislegt við
þessa tónleika að athuga. Hann
harmar að Paul Zukofsky (PZ)
hafi ekki verið við stjórnvölinn í
þetta sinn. Segir síðan að þetta
hafi verið „þokkalegir tónleikar,
en ekki um framför að ræða hjá
SÆ og tæplega þó. Það hafi vant-
að „smitandi eldmóð og andlegt
gneistaflug PZ“.
Mér sýnist að AHS skrifi gegn
betri vitund. Þetta voru mjög góð-
ir tónleikar, reyndar frábærir og
sannarlega bæði djarfir í verkefna-
| vali (ekki síður en hjá PZ) og spil-
aðir af eldmóði sem stjórnandanum
Christopher Adey tókst að yfirfæra
á SÆ. Eitt var áberandi á þessum
tónleikum. Mikil leikgleði ríkti hjá
þessu unga tónlistarfólki sem Adey
hafði greinilega tekist að tendra
og strengirnir léku á mjög blæ-
brigðaríkan hátt. Segir það ekki
„Mér sýnist að AHS
skrifi gegn betri vitund.
Þetta voru mjög góðir
tónleikar, reyndar frá-
bærir og sannarlega
bæði djarfir í verk-
efnavali (ekki síður en
hjá PZ) og spilaðir af
eldmóði sem stjórnand-
anum Christopher Ad-
ey tókst að yfirfæra á
SÆ.“
sitt? (Hins vegar saknaði maður
þess hjá PZ hve strengirnir spiluðu
stundum dauft og blæbrigðalítið
og hve hljómsveitarstjórnin gat
verið hlutlaus og dauf.)
Að halda því fram að viðbrögð
áheyrenda hafi verið „moðvolg“
eru ósannindi. Öllu heldur fengu
SÆ og Adey dynjandi viðtökur og
sýndu áheyrendur óspart hrifningu
sína m.a. með því að rísa úr sætum
og hylla SÆ og stjórnandann.
AHS reynir að gera lítið úr
stjórnandanum (en hefja jafnframt
PZ til skýjanna). Sannleikurinn er
Stefán Edelstein
sá að Christopher Adey er mjög
fær og virtur stjórnandi. Hann er
einn af aðalstjórnendum National
Youth Orchestra of Great Britain
(sem er „super SÆ“ Breta, þ.e.
ijóminn af u.þ.b. 60 æskuhljóm-
sveitum landsins), auk þess að
stjórna reglulega Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Royal Academy of Music
og BBC Scottish Symphony Orc-
hestra. Hann stjórnar og hefur
stjórnað öllum helstu sinfóníu-
hljómsveitum (LPO og LSO
o.s.frv.) Lundúnarborgar og
Barbican og Royal Festival Halls
auk þess að hafa stjómað hljóm-
sveitum í flestum löndum Evrópu
og í Bandaríkjunum. Um saman-
burð á stjómunarferli Christopher
Adey og Paul Zukofsky er því best
að segja sem minnst.
Ef við hins vegar beram saman
uppalandann Adey við uppaland-
ann Zukofsky eingöngu út frá
þessum tónleikum segir það sitt
að Adey nær þessum frábæra
árangri og þessari miklu leikgleði
út úr SÆ við erfiðari skilyrði (t.d.
skemmri æfingatíma) með jafnerf-
iðum viðfangsefnum og Zukofsky
hefur látið leika til þessa.
Látum það vera þótt AHS sé
að níða niður erlendan stjórnanda
sem getur ekki borið hönd fyrir
höfuð sér. Ósmekklegast sýnist
mér þó sú ósanngirni sem hann
sýnir því unga tónlistarfólki sem
skipar raðir SÆ með því að láta
það ekki njóta þess að fá viður-
kenningu fyrir það sem frábærlega
vel var gert en láta að því liggja
að þetta hafi verið frekar slöpp
spilamennska.
Ég leyfi mér að halda því fram
að hið unga upprennandi tónlistar-
fólk sem er í SÆ hafi gott af að
kynnast vinnubrögðum fleiri
(góðra) stjómenda en PZ, að það
örvi það til aukinna listrænna dáða,
sé áhugahvetjandi og spennandi.
Að sami stjórnandi, hvort sem
hann heitir Paul Zukofsky eða eitt-
hvað annað, eigi einn að stjórna
öllum tónleikum SÆ áram saman
eða jafnvel um ókomna framtíð er
fáránlegt. Það væri jafn fáránlegt
í hvaða annarri hljómsveit sem er,
enda tíðkast hreinlega ekki slík
vinnubrögð í öðram löndum.
Þessir tónleikar voru því góð og
þörf tilbreyting. Vonandi verður
framhald á.
Höfundur er skólastjóri
Tónmenntaskóla Reykjavíkur og
sat um árabil í sljóm SÆ.
• Duplo
• Pappírsraðarar margar stærðir
• Brotvélar
• Skurðarhnífar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33-105 Reykjavík
Símar624631 ■ 624699
>
>
I
I
I
»
I
I
óbilandi traust
RÆSIR HF
SOLUAÐILAR: Akranes: Bílás sf., Þjóðbraut 1, sími 93-12622. Isafjörður: Bílatangi hf., Suðurgötu 9,
sími 94-3800. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, sími 96-26300. Egilsstaöir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c
sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: Bílasala Keflavíkur,
Hafnargötu 90, sími 92-14444. Notaöir bilar: Bílahöllin hf., Bíldshöföa 5, sími 91-674949.
Nú er tækifæri til að eignast Mazda 323
fólksbíl á einstöku verði:
Mazda 323 3 dyra á 998.000.- kr.*
Mazda 323 4 dyra á 1.098.000.- kr*
*staðgr. með ryðvöm og skráningu.
Amm saman hefur MAZDA staðið sig
frábærlega í evrópskum könnunum á
bilanatíðni og rekstrarkostnaði fólks-
bifreiða en kostir MAZDA koma einnig
fram í aksturseiginleikum og þægindum.
Hagstætt kaupverð MAZDA kemur sér vel
nú. Lág bilanatíðni og lítill rekstrar-
kostnaður nýtist þér til frambúðar.
Hafðu samband við sölu- og umboðs-
menn okkar sem veita þér allar nánari
upplvsingar.
k