Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
17
S VR hf. er kom-
ið til að vera
eftir Svein Andra
Sveinsson
Á fjölmennri borgarmálaráð-
stefnu Sjálfstæðisflokksins sem
haldin var árið 1992 var samþykkt
einróma að breyta Strætisvögnum
Reykjavíkur í hlutafélag. Það kom
í hlut undirritáðs og borgarstjór-
ans í Reykjavík, Markúsar Amar
Antonssonar, að hrinda þessum
vilja sjálfstæðismanna í fram-
kvæmd.
Aldrei var gert ráð fyrir því að
breyting þessi gengi í gegn háv-
aðalaust, enda um að ræða póli-
tískt grundvallaratriði. Pólitískir
andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins, hvort sem þá er að finna í
BSRB eða minnihlutaflokkunum,
hafa rekið harðvítugan áróður
gegn þessari breytingu. Hefur
ósannindum og blekkingum bein-
línis verið beitt áróðrinum til fram-
dráttar.
Fullyrt hefur verið að þjónusta
almenningsvagna versni við breyt-
inguna. Svo er ekki. Þvert á móti
hafa verið teknar mikilvægar
ákvarðanir er lúta að því að bæta
þjónustuna; hafinn er næturakstur
strætisvagna um helgar, innan tíð-
ar verður tíðni strætisvagna aukin
á annatíma og unnt verður að
kaupa Græna kort.ið með greiðslu-
korti.
Fullyrt hefur verið að breytingin
leiddi til hækkunar fargjalda. Svo
er ekki; þvert á móti hefur hið
nýja hlutafélag ákveðið að bjóða
áskrifendum að græna kortinu
veralegan afslátt.
Fullyrt hefur verið að þar eð
framlög til almenningssamgangna
hafi farið úr 150 milljónum 1993
í 190 milljónir 1994 hafi breyting-
in í hlutafélag misheppnast. Þessu
er reyndar þveröfugt farið; munur-
inn skýrist m.a. í nýrri áætlunar-
leið, leið 14, sem kostar nettó um
10-20 milljónir, miklum viðhalds-
framkvæmdum við Hlemm og ekki
síst 30 milljóna kr. fjármagns-
kostnaði sem SVR hf. ber vegna
fjárfestinga. Þessi kostnaður var
áður borinn af borgarsjóði, en nú
greiðir SVR 30 milljónir 4 ári til
borgarsjóðs.
Fullyrt hefur verið að laun
starfsfólks og kjör skerðist við
breytinguna. Hið rétta er að allir
þeir starfsmenn sem voru fast-
ráðnir hjá SVR og fengu endur-
ráðningu hjá SVR hf. halda ná-
kvæmlega sömu launum og
óbreyttum kjörum. Lífeyrisréttindi
batna frá því sem var. Þetta eru
eldfastar staðreyndir.
Ástæðulaust er að óttast póli-
tískan áróður andstæðinganna
vegna SVR, því þar stendur ekki
steinn yfir steini. Það hefur náðst
veruleg rekstrarhagræðing hjá
SVR á síðustu árum og sú hagræð-
ing mun halda áfram með þeim
breytingum sem gerðar hafa verið
á rekstrinum. Sú hagræðing hefur
og mun skila sér til allra skatt-
greiðenda í borginni. Þannig er
sjálfstæðisstefnan í framkvæmd.
Sjálfstæðisstefnan er of brýn til
Sveinn Andri Sveinsson
„Sjálfstæðisstefnan er
of brýn til þess að þeir
sem framfylgja henni
eða styðja hlaupi undan
merkjum þegar póli-
tískir andstæðingar
breytinganna hafa sem
hæst.“
þess að þeir sem framfylgja henni
eða styðja hlaupi undan merkjum
þegar pólitískir andstæðingar
breytinganna hafa sem hæst. Hún
þolir pólitíska ágjöf og brýnt er
að stökkva ekki frá borði við smá
öldurót. Sjálfstæðisstefnan er þess
virði að haldið sé fast í hana.
Höfundur er borgarfulltrúi og
formaður stjómarnefndar um
almenningssamgöngur.
Skatthlutfall í
staðgreiðslu breytist
frá 1. feb. '94
Skatthlutfall — 41,84%
Skatthlutfall staðgreiðslu fyrir febrúar
- desember 1994 verður 41,84%.
Persónuafsláttur, sjómannaafsláttur
og skatthlutfall barna hefur verið
auglýst áður.
Athygli er vakin á
upplýsingatöflu
ríkisskattstjóra sem
birtist á laugardögum
í Morgunblaðinu.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
ODiÐmnjswu rBnwiMKjniB.
0 0 _______
hver í sínum flokki
LADA ‘ss LAD A •- LAD ALADA
SAFIR
1500cc - 5gíra
Frá 558.000 kr.
140.000 kr. út
og 14.114 kr.
í 36 mánuði
SKUTBILL
1500cc - 5gíra Lux
Frá 647.000 kr.
162.000 kr. út
og 16.323 kr.
í 36 mónuði
SAMARA
1500cc - 5gíra
Frá 694.000 kr.
174.000 kr. út
og 17.476 kr.
í 36 mánuði
SPORT
1600cc - 5gíra
Frá 798.000 kr.
200.000,- kr. út
og 20.048 kr.
í 36 mánuði
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tlllit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum.
AI AK IiAlMI I i rK KOSTIK!
JÍSMíCi'