Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
19
Um löggæslumálin,
aö gefnu tilefni
eftir Gunnar Jóhann
Birgisson
í Morgunblaðinu í gær ritar Eg-
ill Sigurðsson bréf til þess að koma
á framfæri stuðningi við hugmyndir
mínar um að flytja forræði löggæslu-
mála í borginni frá ríki til borgarinn-
ar. Um leið og ég vil þakka Agli
stuðninginn, bið ég' Morgunblaðið
að koma eftirfarandi á framfæri í
þessu sambandi.
Ástæðan fyrir því að ég tel yfír-
stjóm löggæslumála í borginni betur
komna hjá borgarstjórn en ríkinu
er sú að ég er sannfærður um að
með því kjörnir fulltrúa Reykvíkinga
fái aukin áhrif í þeim efnum verði
auðveldara en hjá fjarlægu ríkisvaldi
að beina mannafla og fjármunum
lögreglunnar sérstaklega að þeim
málefnum sem Reykvíkingar telja
brýnast að tekist sé á við hveiju
sinni. Undir stjórn Reykjavíkurborg-
ar sem er ábyrg gagnvart Reykvík-
ingum sjálfum er líklegra að iögð
verði áhersla á að lögregla í borg-
inni hafi ávallt yfir að ráða þeim
mannafla og tækjakosti sem nauð-
synlegur er til þess að hún geti sinn
verkefnum sínum. Margir telja að
undir stjórn ríkisvaldsins hafí því
miður orðið misbrestur á því þrátt
fyrir góðan vilja löggæslumanna.
Sjálfur tel ég mig þekkja lög-
gæslumál í Reykjavík allvel, því auk
þess að vera starfandi lögmaður í
borginni starfaði ég á háskólaárum
mínum sem sumarmaður í lögregl-
unni og vann þá meðal annars við
löggæsju á götum borgarinnar. Ég
get fullvissað Egil Sigurðsson og
Gunnar Jóhann Birgisson
aðra lesendur um það að eftir þau
kynni veit ég að það traust sem
Reykvíkingar bera til lögreglu sinnar
er verðskuldað. Ég er sannfærður
um að nái sú hugmynd fram að
ganga að sveitarfélögin fái forræði
löggæslumála verður það til þess að
efla enn frekar það traust og einnig
gæti það orðið til þess að reynsla
og viðhorfa lögreglumanna nýtist
betur við ákvarðanir um stjórnun
löggæslunnar.
Höfundur er lögmaður í Reykjavík
og þátttakandi í prófkjöri
sjáifstæðismanna í borginni.
Hörð
kosningabarátta
krefst sterkra
frambjóðenda
Inga Jóna Þórðardóttir
Rétt
kona á
réttum
stað
Inga í
2. sætið
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Baldur Guðlaugsson
endurkjörinn formaður
STJÓRN Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík var öll endur-
kjörin á aðalfundi sem haldinn var laugardaginn 22. janúar sl.
Fundurinn var haldinn í lok kjör-
dæmisþings reykvískra sjálfstæðis-
manna. Á aðalfundinum var minnst
látinna félaga, flutt skýrsla um störf
ráðsins á starfsárinu, kosnir fulltrú-
ar í flokksráð og rætt um stjórn-
málaviðhorf, borgarstjórnarkosn-
ingarnar í vor og kosningarstarfíð
framundan. Fundarstjóri var Magn-
ús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjórnar.
Baldur Guðlaugsson var kjörinn
formaður og auk hans voru kjörnir
til setu í stjórn þau Árni Sigfússon,
Garðar Ingvarsson, Gunnar Jóhann
Birgisson, Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir og Kjartan Gunnarsson.
Auk framangreindra sitja í stjórn
fulltrúaráðsins formenn allra sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, 17 að
tölu.
Úrslit kosninga geta ráðist
af vali í prófkjöri. Höfum
þetta í huga þegar við
veljum framboðslista fyrir
kosningarnar í vor og
stillum upp sigurlista!
Stuðningsmenn
Ingu Jónu Þórðardóttur
Skrifstofa stuðningsmanna,
Vesturgötu 2, (Alafoss-
húsinu). Símar 16560 og
16561. Opið 10-22.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1984-1 .fl. 1988- 1.fl.A6 ár 1989- 1 .fl.D 01.02.94 - 01.08.94 01.02.94 - 01.02.95 10.02.94 kr. 64.468,70 kr. 26.563,80 kr. 20.671,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1994.
SEÐLABANKIÍSLANDS
--------------------------\
Útsala - Útsala
50-70% afslóttur til
mánaðamóta.
Verslunin f lytur.
Verslunin okkar
Strandgötu 9, s. 651588,
Hafnarfirði.
V__________________________)
RevkjarvíKurvegi 72
Hafnarfirði