Morgunblaðið - 28.01.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
23
Umhverfisráðherra segir flutning veiðistjóra prófstein
Ákvörðunin brýtur
ekki í bága við lög
FULLYRÐINGAR sem heyrst
hafa í fjölmiðlum um að ákvörðun
um flutning’ embættis veiðistjóra
til Akureyrar tengist ágreiningi
við aðila innan þess eru ósannar
með öllu, segir Ossur Skarphéð-
insson, umhverfisráðherra. „Þetta
er þvættingur sem ég nenni ekki
að ræða, svo fráleitt er það að
tengja þetta tvennt,“ segir Ossur.
„Slíkar sögur koma mér hins veg-
ar ekkert á óvart, kom ekki ein-
mitt slík umræða upp á sínum tíma
þegar Skógrækt ríkisins var flutt
austur á land?“ Starfsmenn veiði-
sljóraembættis eru í Félagi ís-
lenskra náttúrufræðinga og í
Kjarafélagi viðskipta- og hag-
fræðinga og óskuðu félögin eftir
að BHMR athugaði réttarstöðu
starfsmanna og hvort flutningur-
inn sé lögmætur. Birgir Björn Sig-
urjónsson, framkvæmdastjóri
BHMR, segir að að álitið sé nú í
vinnslu hjá laganefnd og eigi nið-
urstaða að liggja fyrir í dag, föstu-
dag.
Ossur segir að áður en ákvörðun
var tekin um flutninginn hafi allar
hliðar hans verið kannaðar og ljóst
sé að ákvörðunin bijóti ekki á neinn
hátt í bága við lög. Hugmyndin sé
heldur ekki ný af nálinni og hafi
honum verið kynntar hugmyndir í
fyrstu viku sinni í ráðherraembætti
sem höfðu verið ræddar innan þess
um að sameina embætti veiðistjóra
Náttúrufræðistofnun íslands. „í des-
ember sl. tókum við yfir Náttúru-
fræðistofnun Norðurlands með sér-
stökum lögum, sem varð þar með
að Setri Náttúrfræðistofnunar Is-
lands á Akureyri. Þar eru mjög góð-
ir vísindamenn á grasafræðisviði,.
auk jarðfræðings, en hins vegar eng-
inn dýrafræðingur og stofnunin því
of lítil og veik í alla staði. Ljóst var
að hægt væri að styrkja stofnuna
verulega með því að bæta við hana
veiðideild, þar sem sætu þrír mennt-
aðir sérfræðingur á þessu sviði í
framtíðinni. Þá væri þetta orðin
mótuð stofnun sem sinnt geti alhliða
náttúrurannsóknum," segir Össur.
Prófsteinn á flutninga
Starfsmenn embættis veiðistjóra,
sem eru fjórir talsins, hafa gagnrýnt
ákvörðun umhverfisráðherra opiner-
lega, og m.a. kvartað yfjr skorti á
samráði við starfsmenn. Össur segir
að þegar flytja eigi stofnanir út á
land sé það pólitísk ákvörðun sem
ráðuneytið taki sjálft. Þegar slík
ákvörðun hafi verið tekin í grundvall-
aratriðum, sé hins vegar eðlilegt að
haft sé samráð við starfsmenn við-
komandi stofnunar eða stofnana um
hvernig haga eigi flutningunum.
„Þetta á við um hversu langan tíma
menn þurfa að fá til að gera upp
Davíð heim-
sækir höfuð-
stöðvar Rauða
krossins
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra, heimsótti höfuðstöðvar Al-
þjóðaráðs Rauða krossins (ICRC)
í Genf í gær.
í fréttatilkynningu frá Alþjóðaráð-
inu segir að forseti ráðsins, Cornelio
Sommaruga, hafi tekið á móti ís-
lenska forsætisráðherranum og látið
í ljós þakklæti fyrir þann stuðning
sem Rauði kross íslands veitti Al-
þjóðaráðinu með fjárframlögum og
mannafla sem starfaði á vegum ráðs-
ins á átakasvæðum víða um heim.
Þá segir að þeir Davíð Oddsson
og Sommaruga hafi rætt ástandið í
Bosníu Herzegóvínu og þær hörm-
ungar sem hið langvinna stríð þar
leiddi yfir fólk.
hug sinn hvort þeir hyggist flytja,
hvenær eðlilegt er að flutningum
stofnunarinnar sé endanlega lokið til
nýs umhverfis, ásamt öðru sem því
tengist og ýmsum skilyrðum starfs-
manna. Embætti veiðistjóra sinnir
verkefnum sem tengjast að verulegu
marki landsbyggðinni. Þess vegna
er eðlilegt að slík stofnun sé staðsett
þar. Engin stofnun ríkisins sem ég
veit um er jafn vel faliin til flutninga
og þessi, og það er kristaltært í mín-
um huga að gangi ekki að flytja
stofnun af þessu tagi út á lands-
byggðina, er rétt að menn hætti öll-
um hugleiðingum um að flytja stofn-
anir frá höfuðborgarsvæðinu. Þetta
er prófsteinn á hugmyndina um að
flytja ákveðnar stofnanir héðan,“
segir Össur.
Morgunblaðið/Kristinn
Sundkennsla ífrostinu
LÍFIÐ gengur sinn vanagang í kuldanum. Myndin var tekin í Laugar-
•dalslauginni í vikunni þegar María Guðmundsdóttir kenndi 6. bekk S
í Laugarnesskóla sund.
SVEIN ANDRA15. SÆTI
Ráðdeild í borgarrekstri
Reykjavíkurborg er stórt og vel rekið fyrirtæki. Það er
einkenni vel rekins fyrirtækis að það bregst við samdrætti
með endurskipulagningu rekstrar og hagræðingu. Sést það
glöggt á 200 milljóna króna lækkun á rekstrarkostnaði SYR.
SVEINN ANDRI SVEINSSON, borgarfulltrúi hefur lagt
áherslu á að á næsta kjörtímabili verði brugðist við
samdrættinum þannig:
1. Verkefni á vegum borgarinnar verði boðin út í meira
mæli en nú tíðkast.
2. Breytt verði rekstrarformi borgarfyrirtækja í eiginlegum
rekstri þannig að rekstur verði nútímalegri.
3. Gerðar verði tilraunir með rammafjármögnun borgar-
stofnana, þar sem völd stjómenda og ábyrgð verði aukin.
Við neðangreindir sjálfstæðismenn lýsum yiir stuðningi okkar við framboð
SVEINS ANDRA SVEINSSONAR borgarfulltrúa í 5. sæti:
Agnar Fr. Svanbjömsson, verslunarmaður
Andri Teitsson, verkfræðingur
Ari Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Amar Jónsson, stjórnmálafræðingur
Atli Atlason, viðskiptafræðingur
Ámi Oddur Þórðarsson, viðskiptafræðingur
Ásgeir Bolli Kristinsson, káupmaður
Áshildur Bragadóttir, stjómmálafræðingur
Franz Jezorski, fasteignasali
Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri
Gísli Pálsson, verkfræðingur
Guðmundur Baldursson, tjármálastjóri
Guðmundur Magnússon, prófessor
Gylfí Sigfússon, fjármálastjóri
Hildur Hauksdóttir, auglýsingastjóri
Hilmar Böðvarsson, framkvæmdastjóri
Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður
Jóhanna Gunnarsdóttir, lögfræðingur
Jón Sigfússon, viðskiptafræðingur
Knútur Hallsson, fyrrv. ráðuneytisstjóri
Lúðvíg Árni Sveinsson, rekstrarhagfræðingur
Magnús Jónasson, framkvæmdastjóri
Sigurður Friðriksson, viðskiptafræðingur
Svanbjöm Thoroddsen, hagfræðingur
Sveinbjöm Sævar Ragnarsson, forstjóri
Torfi Dan Sævarsson, verkfræðingur
Tómas Jónsson, héraðsdómslögmaður