Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Reuter
Stimpingará Vesturbakkanum
ÍSRAELSKIR hermenn eru hér að flytja burt með valdi nokkra landa sína, sem reyndu að ná undir sig
húsi skammt frá Hebron á Vesturbakkanum. Hétu þeir jafnframt að koma í veg fyrir samkomulag við
Palestínumenn og brottflutning ísraelsks herliðs frá Vesturbakkanum og Gaza. '
Litháar undir-
ritasamningum
friðarsamstarf
Brussel. Reuter.
ALGIRDAS Brazauskas, forseti Litháens, undirritaði í gær samning
við Atlantshafsbandalagið (NATO) um „Samstarf í þágu friðar“ og
sagði að Litháar vildu fullgilda aðild að NATO, Evrópubandalaginu
og Vestur-Evrópusambandinu.
Brazauskas sagði að aðild Eystra-
saltsríkjanna og Mið- og Austur-Evr-
ópuríkja að NATO, Evrópubandalag-
inu og Vestur-Evrópusambandinu
myndi örva umbótaþróunina í þess-
um löndum og í Rússlandi. „Við erum
sannfærðir um að það myndi styrkja
verulega áframhaldandi lýðræðisþró-
un í Rússlandi," sagði forsetinn á
fundi með sendiherrum NATO-ríkj-
anna.
Brazauskas ræddi ennfremur við
Jacques Delors, forseta fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalags-
ins, og óskaði eftir nánari tengslum
við bandalagið.
Amedeo de Franchis, aðstoðar-
framkvæmdastjóri NATO, fagnaði
samningi Litháa við bandalagið um
friðarsamstarf. „Hafin er nýr kafli í
tengslum bandalagsins við ríki Mið-
og Austur-Evrópu og í tilraunum
þess til að tryggja öryggi og stöðug-
Jeltsín einangraður inn-
an um nýi u ráðherrana
leika í Evrópu," sagði hann.
Leiðtogar NATO-ríkjanna sam-
þykktu fyrr í mánuðinum áætlunina
um „Samstarf í þágu friðar“, en hún
miðar að tvíhliða samningum um
hemaðarsamvinnu við fyrrverandi
kommúnistaríki, meðal annars með
sameiginlegum heræfingum sem
heQast síðar á árinu.
Litháen er fyrsta fyrrverandi sov-
étlýðveldið sem undirritar samning
um friðarsamvinnu og sótti fyrr í
mánuðinum um fullgilda aðild að
NATO. Bandalagið er tregt til að
veita ríkjum eins og Litháen aðild,
einkum vegna andstöðu Rússa. Braz-
auskas sagði að ekki væri hægt að
líta á beiðni Litháa um aðild að
NATO sem ógnun við Rússa eða
önnur Evrópuríki. „Litháar gera eng-
ar landakröfur á hendur nágranna-
ríkjum sínum,“ sagði hann og bætti
við að Litháar vildu að rússneski
herinn færi þegar í stað frá Lett-
landi og Eistlandi. Rússneskir her-
menn hafa þegar verið fiuttir á brott
frá Litháen.
Brazauskas gagnrýndi yfirlýsing-
ar rússnesku stjórnarinnar um ör-
yggishagsmuni Rússa í Eystrasalts-
ríkjunum. „Það er sérlega erfítt að
skilja yfirlýsingar um sérstaka hags-
muni Rússa í Eystrasaltsríkjunum,
einkum vegna þess að Litháen og
hin Eystrasaltsríkin voru aldrei lög-
mætir hlutar af Sovétríkjunum.“
Lokauppgjöri spáð milli umbótasinna og harðlínumanna á næstunni
Moskvu, Pétursborg. Reuter.
UMBÓTASINNINN Sergei Dúbínín tók við embætti fjármálaráð-
herra í Rússlandi í gær en talið er, að honum muni reynast
erfitt að fá aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar til að fallast á skoð-
anir sínar í rikisfjármálunum. Haft er eftir heimildum meðal
stuðningsmanna Borísar Jeltsíns, forseta Rússlands, að hann sé
eins og á báðum áttum og eigi æ erfiðara með að takast á við
þann pólitíska raunveruleika, sem blasir nú við í landinu. Sum-
ir hans nánustu samstarfsmanna telja, að lokauppgjörið milli
umbótasinna og harðlínumanna sé á næstu grösum.
Oliver North fer í
framboð til þingsins
Washington, Richmond. Reuter, The Daily Telegraph.
OLIVER North, einn af aðalmönnunum í íran-kontra hneykslinu, hóf
í gær baráttu sína fyrir sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings, þrátt
fyrir að hafa verið dæmdur fyrir að ljúga að þingnefnd sem rannsak-
aði málið fyrir sjö árum.
Oliver North er fyrrverandi undir-
ofursti í sjóhernum og einn af um-
deildustu mönnum Bandaríkjanna
vegna aðildar hans að leynilegri
vopnasölu til írans og fjárhagsaðstoð
við kontra-skæruliða í Nicaragua,
sem Bandaríkjaþing hafði bannað.
Hann vakti mikla athygli þegar hann
varði gerðir sínar; sumir litu á hann
sem hetju og föðurlandsvin en aðrir
sem fláráðan öfgamann.
North sagði í viðtalsþættinum
„Larry King Live“ í CNN-sjónvarp-
inu að hann hefði ákveðið að sækj-
ast eftir því að verða frambjóðandi
repúblikana í Virginíu í kosningun-
um til öldungadeildarinnar vegna
mikils stuðnings almennings og
vegna þess að sér virtist sem stjórn-
málamenn brygðust ekki við kröfum
kjósenda. Áhorfendum var gefínn
kostur á að hringja og leggja spurn-
ingar fyrir North og einn þeirra
kallaði hann „lygara" sem hefði
„svívirt herbúninginn". „Ég laug
ekki. Ég sagði sannleikann ... sann-
leikurinn særði menn.“
Líklegt þykir að North verði fyrir
valinu sem frambjóðandi repúblik-
ana, en það verður ákveðið á flokks-
þingi í Virginíu í júní. Keppinautur
hans er James Miller, sem var fjár-
lagastjóri Hvíta hússins í forsetatíð
Ronalds Reagans. Miller er lýst sem
litlausum tæknikrata með mikla
reynslu af stjómmálum.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Charles Robb verður að öllum líkind-
um frambjóðandi demókrata í kosn-
ingunum, sem verða í nóvember.
Robb er eiginmaður dóttur Lyndons
B. Johnsons, fyrrverandi forseta,
Lindu Bird, og hefur átt í vök að
veijast vegna hneykslismála, m.a.
ásakana um framhjáhald og þátt-
töku í veislum þar sem eiturlyfja var
neytt. Þingmaðurinn hefur vísað
þessum ásökunum á bug.
North hóf baráttuna í Norfolk,
stærstu flotastöð heims. Fjölmargir
hafa atvinnu af hernum á þessum
slóðum og líklegt þykir að North
njóti mikils stuðnings á meðal þeirra.
North leggur áherslu á fjölskyldu-
gildi og harðari aðgerðir til að
stemma stigu við glæpum í málflutn-
ingi sínum. Ljóst er að kosningabar-
átta hans á eftir að vekja mikla at-
hygli því sjónvarps- og útvarpsstöðv-
ar, auk dálkahöfunda blaðanna,
keppast um að fá hann í viðtöl. •
North hefur einnig komið sér upp
öflugri fjáröflunarvél; þrenn samtök
sem tengjast honum hafa safnað
rúmlega 23 milljónum dala, jafnvirði
1,6 milljarða króna, frá árinu 1988
og komið sér upp póstlista með nöfn-
um hálfrar milljónar manna.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja, að Dúbínín sé umbótasinnaður
en óvíst, að hann hafi sama myndug-
leika til að bera og Borís Fjodorov,
fyrrverandi fjármálaráðherra, sem
kom yfirleitt sínu í gegn þótt öll
sund virtust lokuð. Dúbínín heyrir
auk þess beint undir Víktor Tsjerno-
myrdín forsætisráðherra og mun því
eiga erfitt með að leita eftir stuðn-
ingi Jeltsíns.
Engin von um skynsamlega
stefnu
Fjodorov studdi Dúbínín sem eft-
irmann sinn en í viðtali við Moskvu-
sjónvarpið í fyrrakvöld sagði hann,
að eins og nú væri komið væri öll
von úti um skynsamlega stefnu í
peningamálum. Átti hann þá meðal
annars við þá yfirlýsingu Tsjerno-
myrdíns, að nauðsynlegt væri að
beita „öðrum aðferðum" í baráttunni
gegn verðbólgunni, hugsanlega
verð- og launastöðvun og víðtæku,
opinberu eftirliti. Alexander Zave-
ijúkha aðstoðarforsætisráðherra og
yfirmaður landbúnaðarmála hefur
auk þess lagt til, að landbúnaðinum
verði lagðar til 40 trilljónir rúblna,
26 milljarðar dollara, á næstu sex
árum en Fjodorov sagði, að það
myndi leiða til ofurverðbólgu á
skömmum tíma.
Jeltsín forseti var í Pétursborg í
gær þar sem minnst var, að 50 ár
eru liðin síðan aflétt var umsátrinu
um borgina í síðari heimsstyrjöld.
Var það haft eftir embættismönnum,
sem voru í för með honum en vildu
ekki láta nafns síns getið, að forset-
inn virtist eiga stöðugt erfiðara með
að fást við hinn nýja raunveruleika
í rússneskum stjórnmálum. „Það
erfítt að átta sig á hvað hann er að
hugsa eða hvað hann ætlast fyrir,“
sögðu þeir.
Beðið eftir Jeltsín
Mjög lítið hefur farið fyrir Jeltsín
síðustu daga en það er alkunna, að
stundum er eins og einhver höfgi
leggist yfir hann. Það hefur hins
vegar yfirieitt verið fyrirboði ein-
hverra tíðinda og þótt hann hafi
margar ráðgjafa, hefur hann ávallt
tekið sínar stærstu ákvarðanir al-
einn. „Þessum þagnartíma hlýtur að
vera að ljúka,“ sagði Víktor Losbak,
ritstjóri dagsblaðsins Moskvufrétta.
„Við megum nú eiga von á yfirlýs-
ingu frá forsetanum."
Umbótasinninn Sergei Júshenkov,
þingflokksformaður Valkosts Rúss-
lands, skoraði í gær á Jeltsín að víkja
Tsjernomyrdín forsætisráðherra úr
embætti til að bjarga umbótastefn-
unni. Sagði hann, að verstu grun-
semdir um stefnu stjórnarinnar væru
að rætast auk þess sem ljóst væri,
að völdin væru að færast úr höndum
forsetans til forsætisráðherrans.
Ýmsir nánir stuðningsmenn Jelts-
ins segja, að lokauppgjörið milli
umbótasinna og harðlínumanna hafi
ekki enn farið fram en það sé stutt
í það. „Örlög Rússlands eru að ráð-
ast þessa dagana, þessar klukku-
stundirnar,“ sagði Fjodorov, fyrrver-
andi fjármálaráðherra, í gær.
PdO-verksmiðjan í Blackburn
framleiðir um fjórðung allra geisla-
diska, sem seldir eru í breskum versl-
unum. Talsmenn Philips hafa viður-
kennt að þeir viti ekki nákvæmlega
hvers vegna diskamir eyðileggjast.
Þó er talið að brennisteinn, sem berst
með andrúmsloftinu, éti sig inn í
nítrósellulósahúðina sem er ysta lag
disksins og gangi þar saman við silf-
urhúðina á disknum og myndi
málma. Það veldur dökkum brons-
blettum sem koma á endanum í veg
fyrir að geislaspilarinn geti „lesið“
diskinn.
PdO er eini framleiðandinn sem
setur silfurhúð undir nítrósellulósa-
-----» ♦ «-----
Lög gegn of-
beldi í kvik-
myndum
Washinglon. Reuter.
MEIRIHLUTI Bandaríkjamanna
styður setningu laga til að tak-
marka ofbeldi í kvikmyndum. Það
er skoðun þeirra að kvikmyndaof-
beldi leiði til aukins ofbeldis í sam-
félaginu.
í könnunum á vegum ABC/Day
One kemur í ljós að 77% Bandaríkja-
manna telja að flestar kvikmyndir í
seinni tíð bjóði upp á of mikið of-
beldi, 68% sögðust telja að kvik-
myndaofbeldi leiði af sér ofbeldi í
samfélaginu og 54% sögðu að setja
bæri lög til að stemma stigu við
kvikmyndaofbeldi.
lagið. Aðrir framleiðendur notast við
ál. Philips telur að silfrið sé næmara
fyrir skemmdum af völdum brenni-
steins en ál og fyrirfinnist brenni-
steinn í plasthylkinu eða pappírnum
í því, muni diskurinn eyðileggjast.
Þá getur brennisteinn sem berst með
andrúmsloftinu svo og það að geyma
geisladiska í heitu og röku um-
hverfí, haft áhrif til hins verra, segir
í New Scientist tímaritinu.
Þær upplýsingar fengust hjá Skíf-
unni, sem flytur inn geisladiska frá
Philips, að ekki hafi borið á þessu
vandamáli í geisladiskum sem keypt-
ir eru hér á landi þar sem þeir eru
framleiddir í Þýskalandi.
Bretland
Neyðarlína vegna
ónýtra geisladiska
EIGENDUR geisladiska sem framleiddir hafa verið fyrir Philips-fyr-
irtækið hafa margir hverjir horft upp á diskana eyðileggjast, skömmu
eftir að þeir voru keyptir. Segir í frétt breska blaðsins Independent
að Philips hafi komið upp nokkurs konar neyðarlínu fyrir viðskipta-
vini sína. Segir fyrirtækið að séu diskarnir merkir „Made in the UK
for PdO“ við miðjuna, séu líkur til þess að þeir muni verða blettóttir
og ekki hægt að spila þá.