Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
Frambjóðandi
úr launþega-
hreyfingunni
eftir Sverri
Garðarsson
Nú um næstu helgi fer fram próf-
kjör Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík um skipan á lista flokksins fyr-
ir bæjar- og sveitarstjómarkosning-
arnar í vor. Prófkjörið er opið öllum
flokksbundnum sjálfstæðismönn-
um. Með þvi ætti að verða tryggt,
að vilji flokksmanna komi fram um
það, hvernig sá listi verði best skip-
aður.
Þó svo að stjórnmái snúist fyrst
og fremst um stefnur, er það eigi
að síður svo, að einstaklingar þeir,
er veljast sem fulltrúar á framboðs-
lista, skipta þar miklu máli. Fram-
boðslisti þarf að vera skipaður bæði
traustu og reyndu fólki, sem ekki
hefur aðeins reynslu af borgarmál-
um, heldur einnig á ýmsum öðrum
sviðum.
Einn þeirra manna, er gefur kost
á sér í prófkjörinu, er Hilmar Guð-
laugsson, múrari. Má segja að hann
sé í raun fulltrúi verkalýðshreyfing-
arinnar í þessu prófkjöri. Hann hef-
ur starfað mikið að verkalýðsmál-
um, verið formaður Múrarafélags
Reykjavíkur og Múrarasambands
íslands. Verið fulltrúi stéttar sinnar
á þingum Alþýðusambands íslands
og setið í miðstjóm þegs. í dag er
hann formaður Húsnæðisnefndar
Reykjavíkur en hann er eindreginn
stuðningsmaður félagslega hús-
næðiskerfisins. Áður hafði hann
setið í stjóm Verkamannabústaða.
Hilmar hefur verið formaður
bygginganefndar Reykjavíkur um
margra ára skeið, enda hefur hann
víðtæka þekkingu á þeim málum.
Kjósum
eftir Birgi
Armannsson
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
ganga til prófkjörs um næstu helgi
við þær aðstæður, að andstæðingar
flokksins hafa tekið ákvörðun um
að bjóða fram sameiginlegan lista
Að gefnu tilefni
eftir Sigríði
Sigurðardóttur
I þessu fyrsta prófkjöri mínu
ákvað ég að fara ekki geyst af
stað. Framkoma mín að umfjöllun
gagnvart öðrum frambjóðendum
hefur ekki byggst á öðra en virð-
ingu. Því get ég sagt við Særúnu
Sigurjóndóttur sem skrifar grein í
Morgunblaðið 26. janúar sl. að
vonir hennar eru uppfylltar.
Einnig vil ég upplýsa hana um,
★ Pitney Bowes
Frímerkjavélar og stimpllvélar
Vélar til póstpökkunar o. fl.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
Flísar á
fyrirtæki og
AGROB
ff AtFABORG V
KNARRARVOGI 4 • 8 686755
Sigríður Sigurðardóttir
að það er eðlilegt að skiptast á
skoðunum við samherja. I fimm
manna pólitískt kjörinni stjórn er
ekki bara ein mannekja sem tekur
afstöðu. Eg og stjórnarformaður
Dagvistar bama höfum getað
skipst á skoðunum án þess að fyrir-
fara góðu samstarfi innan þeirrar
stjórnar.
Eg óska Særúnu, frambjóðend-
um og öðru góðu fólki velfarnaðar.
Höfundur er fóstra og varaborg-
arfulttrúl og frambjóðandi í próf-
kjöri sjálfstæðisfólks / Reykjavík.
VARASALVI - VARASMYRSL
ENDURNÆRIR ÞURRAR
OG SPRUNGNAR VARIR
FÆST í APÓTEKINU
Hilmar Guðlaugsson
Hilmar hefur einnig starfað að
uppbyggingu íþróttahreyfingarinn-
ar í borginni, m.a. verið formaður
Knattspyrnufélagsins Fram og
þekkir því af eigin raun þau verk-
Sverrir Garðarsson
efni, sem stjómendur íþrótta- og
æskulýðsmála í borginni glíma við.
Hefur hann sinnt þeim málum vel,
m.a. með setu sinni í Iþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkur, en
„Hilmar Guðlaugsson
stefnir á 4. sætið á list-
anum. Hann er verðug-
ur fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, sem traustur
og gegn Reykvíkingur.
Eg vil því eindregið
beina þeim tilmælum til
allra þeirra, #r þátt
taka í prófkjörinu, að
veita honum brautar-
gengi.“
hann er varaformaður ráðsins.
Hilmar Guðlaugsson stefnir á 4.
sætið á listanum. Hann er verðugur
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem
traustur og gegn Reykvíkingur. Ég
vil því eindregið beina þeim tilmæl-
um til allra þeirra, er þátt taka í
prófkjörinu, að veitá honum braut-
argengi.
Höfundur er hljómlistarmaður.
Gunnar Jóhann í 4. sætið
í borgarstjórnarkosningunum í vor.
Þetta hræðslubandalag vinstri
flokkanna sýnir auðvitað veika
stöðu hvers þeirra um sig, en þó
er ekki ástæða til annars fyrir sjálf-
stæðismenn en að taka mark á
þeim hættumerkjum, sem fram
hafa komið í skoðanakönnunum um
stuðning við hinn nýja lista. Ljóst
er að flokkurinn verður að halda
vel á spilunum til að halda meiri-
hlutanum í borginni; málefnastaðan
verður að vera góð og framboðslist-
inn vel mannaður.
Málefnalega stendur Sjálfstæðis-
flokkurinn sterkt að vígi í Reykja-
vík, en prófkjörið nú um helgina
hefur útslitaáhrif á það, hversu sig-
urstranglegur framboðslistinn verð-
ur. Ef vel á að vera þarf listinn að
höfða til sem flestra hópa borg-
arbúa, kvenna og karla, ungra og
aldraðra, launþega og atvinnurek-
enda og svo má lengi telja. í ljósi
þess er mikilvægt að frambjóðendur
flokksins séu fjölbreyttur hópur og
endurspegli mismunandi sjónarmið.
Mestu máli skiptir þó, að um sé að
ræða hæfa einstaklinga, sem geta
aflað stefnu sjálfstæðismanna fylg-
is meðal kjósenda og era jafnframt
færir um að framfylgja henni að
kosningum loknum.
Ný andlit nauðsynleg
í hópi núverandi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins eru margir,
sem standa fýllilega undir framan-
greindum kröfum. Þar eru bæði
karlar og konur, sem árum saman
„Gunnar Jóhann hefur,
þrátt fyrir ungan aldur,
aflað sér víðtæks
trausts vegna starfa
sinna.“
hafa unnið farsællega að framgangi
sjálfstæðisstefnunnar og staðið
vörð um hagsmuni borgarbúa.
Þessu fólki eiga sjálfstæðismenn
að sjálfsögðu að veita brautargengi
í prófkjörinu. Hins vegar verður að
gæta þess, að framboðslisti flokks-
ins getur vart talist sigurstrangleg-
ur, ef ekki verður þar einhver end-
urnýjun. Nauðsynlegt er, að þar
verði ofarlega einhver ný andlit og
vil ég í því sambandi vekja sérstaka
athygli á framboði Gunnars Jó-
hanns Birgissonar.
Oflugur málsvari
sjálfstæðisstefnunnar
Gunnar Jóhann hefur, þrátt fyrir
ungan aldur, aflað sér víðtæks
trausts vegna starfa sinna, jafnt
innan Sjálfstæðisflokksins sem ut-
an. Hann var formaður Stúdenta-
ráðs og Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, á háskólaárum sín-
um, var formaður Varðbergs, félags
ungra áhugamanna um vestræna
samvinnu, og hefur gegnt fjölda
trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann hefur bæði í ræðu
og í riti verið öflugur málsvari sjálf-
stæðisstefnunnar, fastur fyrir og
fylginn sér, en um leið málefnaleg-
ur og öfgalaus. Gunnar Jóhann
hefur undanfarin ár rekið eigin lög-
mannsstofu og hefur með störfum
sínum á þeim vettvangi kynnst hög-
um bæði atvinnufyrirtækja og ein-
staklinga í borginni.
Af þessum sökum tel ég að það
væri fengur að því fyrir sjálfstæðis-
menn í Reykjavík að Gunnar Jóhann
Birgisson skipaði 4. sætið á fram-
boðslista flokksins í vor.
Höfundur er laganemi og situr í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Bamanauðgarar ganga lausir
eftir Amal Rún Qase
Það setur að mér hroll í hvert
skipti sem ég les um að mönnum,
sem hafa framið kynferðisglæpi,
er sleppt út strax eftir játningu.
Það er með fádæmum, að í réttar-
ríki eins og íslandi, skuli menn, sem
hafa játað á sig eins alvarlegan
glæp og nauðgun er, ganga lausir.
Eg efast um, að ég sé eina konan
á Islandi, sem fyllist ótta um eigið
öryggi og barnsins síns í hvert sinn,
sem fjölmiðlar segja frá einum kyn-
ferðisglæpamanninum í viðbót sem
gengur laus.
Ein helsta ástæðan fyrir því, að
fólk brýtur ekki af sér, er óttinn
við refsingu. Því vægari sem refs-
ingin er, þeim mun fleiri eru líkleg-
ir til að bijóta af sér. í DV laugar-
daginn 22. janúar síðastliðinn var
frétt á baksíðu, sem vakti mikla
reiði með mér. Þar var sagt frá 33
ára karlmanni, sem hafði viður-
kennt, að hafa misnotað unga pilta
á grófan, kynferðislegan hátt.
Þessum manni var sleppt strax eft-
ir játningu. RLR segir í sömu frétt,
að „ekki hafí þótt nægar ástæður
til að úrskurða hann í gæsluvarð-
„Er ekki kominn tími
til, að dómskerfið fari
að líta á kynferðisof-
beldi sem alvarlegan
glæp og dæmi eftir
því?“
hald“. Og þess vegna spyr ég:
Hveijar eru „nægar ástæður" ef
ekki þær, að hafa játað á sig kyn-
ferðislegt ofbeldi gagnvart börn-
um?
Er ekki kominn tími til, að dóms-
kerfið fari að líta á kynferðisof-
beldi sem alvarlegan glæp og dæmi
eftir því? í mínum huga er sú afsök-
un, að nauðgarar gangi ekki heilir
til,skógar, markleysa. Máli mínu
til stuðnings vil ég benda á, að í
fyrrverandi lýðveldinu Júgóslavíu
hefur þúsundum kvenna verið
nauðgað af hermönnum eftir að
þeim hafði verið gefíð leyfi til að
nauðga. Það getur enginn sann-
fært mig um, að allir þessir her-
menn séu andlega vanheilir. Þvert
á móti sýnir þetta, að menn geta
framið óhugnanlegustu glæpi ef
Amal Rún Qase
engin refsing er við því. Þess vegna
vil ég skora á dómskerfið, að dæma
nauðgara til hörðustu refsingar
samkvæmt lögum.
Höfundur er í framboði i prófkjöri
sjálfstæðisfólks í Reykjnvík.