Morgunblaðið - 28.01.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
31
Frjálslyndi
í stað öfga
eftir Björgólf
Guðmundsson
Ég er sjálfstæðismaður af skóla
umburðar- og frjálslyndis, ég hafna
hvers kyns öfgum og kreddum. Ég
vek athygli á því að öfgar og ein-
strengingsháttur í stjórnmálum
hafa sjaldnast leitt til góðs.
Við eigum að leyfa einstaklings-
frelsinu og mannúðinni að njóta sín
í borginni okkar.
Við eigum ekki að gangast upp
í breytingum breytinganna vegna.
Það er enginn akkur í því fyrir
okkur að breyta borgarfyrirtæki í
hlutafélag og kalla það einkavæð-
ingu þegar þar er e.t.v. einungis
um að ræða breytingu úr einu kerfi
í annað.
Mér finnst eðlilegt að borgin sjái
um rekstur fyrirtækja eins og t.d.
SVR sem á að annast almennings-
samgöngur og lýtur engum sam-
keppnisreglum á markaði heldur er
fyrst og fremst almannaþjónusta.
Hins vegar, ef um er að ræða borg-
arfyrirtæki sem fallið getur að al-
mennum samkeppnismarkaði þá
ber að nýta sér hagkvæmni og
frumkvæði einkaframtaksins. Við
eigum að leggja mikið á okkur til
að halda frið og efla samráð um
viðgang þeirra fyrirtækja sem borg-
in ræður fyrir hverju sinni. Enn-
fremur leggja sjálfstæðismenn
áherslu á náið samráð við starfsfólk
borgarinnar og félög þess.
Við eigum að leggja áherslu á
þau gildi fyrir einstaklingana og
fjölskyldur sem upp úr standa í lífi
hvers manns. Við þurfum að hlúa
að æsku Dorgarinnar og eigum ekki
að láta einhveijum stofnunum ein-
um eftir uppeldishlutverkið. Með
sama hætti ber okkur skylda til að
tryggja öllu eldra fólki umönnun
við hæfi hvers og eins. Um leið og
ég vara við stofnanatrú legg ég
áherslu á hina siðferðislegu ábyrgð
sem við bæði sem einstaklingar og
samfélag eigum að rísa undir gagn-
vart eldri samborgurum.
í prófkjörsbaráttunni og fyrri
greinum mínum hér í Morgunblað-
inu hef ég lagt mesta áherslu á
hugmyndir mínar í atvinnumálum.
Fjöruferö
NVSV
NÁTTÚRUVERNDARFÉLAG
Suðvesturlands stendur fyrir
vettvangsferð fyrir almenning til
fjöruskoðunar á stórstraums-
fjöru laugardaginn 29. janúar.
Fólk mæti á Snoppu á Seltjarnar-
nesi við garðinn út í Gróttu á tíma-
bilinu frá kl. 13 til 14.30. Árni
Waag fuglaáhugamaður, Droplaug
Olafsdóttir dýrafræðingur og Krist-
inn Guðmundsson sjávarlíffræðing-
ur verða á svæðinu og segja frá
því sem fyrir augu ber.
Allir eru velkomnir. Þetta er kjör-
ið tækifæri fyrir alla fjölskylduna
að bregða sér í náttúruskoðunar-
ferð. Verið vel klædd. Það mun
koma flestum á óvart hve lífríki
fjörunnar er fjölbreytt um hávetur
og forvitnilegt að skoða, segir í frétt
frá NVSV.
„Við eigum að leggja
áherslu á þau gildi fyrir
einstaklingana og fjöl-
skyldur sem upp úr
standa í lífi hvers
manns.“
Ég hef slegið á nótur bjartsýni fyr-
ir hönd borgarinnar okkar og bent
á að ísland geti stækkað í sífellt
minnkandi heimi. Tengslin við Evr-
ópu eiga að færa okkur ný atvinnu-
tækifæri eins og ég hef rakið áður
í fyrri greinum. Ég ítreka að borg-
in þarf að hlúa að hinum nýju vaxt-
arsprotum. Okkur vantar fólk til
að selja þá þjónustu sem skapar
fleirum atvinnu í Reykjavík.
Vissulega hef ég margháttaða
reynslu úr atvinnulífinu heima og
erlendis. Ég hefi kynnst sigrum
jafnt sem ósigrum í hinum harða
heimi viðskiptalífsins og mannlífinu
öllu. Ég veit að fjöldi einstaklinga
KRIPALUJOGA
Verið velkomin á kynningu laugar-
daginn 29. janúar kl. 14.00.
Byrjendanámskeið hefjast í
byrjun febrúar.
Skeifunni 19, 2. hæ6, s. 679181 (kl. 17-19).
Að g*efnu tilefni
Björgólfur Guðmundsson
og fjölskyldna hefur kynnst mis-
jöfnu í sínu lífi. Það heyrir til undan-
tekninga fremur en reglu að fólk
fæðist með silfurskeið í munni og
gangi fyrirhafnarlaust í gegnum líf-
ið. Þannig á það heldur ekki að
vera og ég legg stoltur fram reynslu
mína í þá fjölbreyttu baráttu sem
framundan er.
Höfundur er þátttakandi í
prófkjöri sjálfstæðismanna til
borgarstjórnarkosninga í
Reykjavík.
eftir Kristínu Blöndal
„I kjölfar reglugerðar-
innar var á sama hátt
unnið að samræmdu
námskeiðsefni fyrir
dagmæður um land allt
og kom Anna K. Jóns-
dóttir hvergi nærri
þeirri vinnu.“
Vegna skrifa Særúnar Sigurjóns-
dóttur um dagvistarmál í Reykjavík
í Morgunblaðinu 26. janúar sl.
finnst mér nauðsynlegt að koma
eftirfarandi leiðréttingu á fram-
færi. Anna K. Jónsdóttir á engan
þátt í þeirri vinnu sem lítur að reglu-
gerð um daggæslu barna í heima-
húsum. Sú reglugerð var unnin á
vegum félagsmálaráðuneytisins að
frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur
ráðherra og Anna K. Jónsdóttir
átti ekki sæti í þeirri nefnd. í kjöl-
far reglugerðarinnar var á sama
hátt unnið að samræmdu nám-
skeiðsefni fyrir dagmæður um land
allt og kom Anna K. Jónsdóttir
hvergi nærri þeirri vinnu.
Kristín Blöndal
Um gott samstarf hennar við
Félag dagmæðra hér í borg vísa ég
í fundargerðir stjórnar Dagvistar
barna í Reykjavík. Þar sést hvernig
hún hefur stuðlað að klofningi inn-
an samtakanna með því að blanda
sér í innanfélagsdeilur.
Höfundur er fulltrúi Kvenna-
listans í stjórn Dagvistar barna.
lausn á vanda nátthrafna
Oft hefur verið bent á nauðsyn þess að þeir
sem búa í úthverfum og eru seint á ferli í
miðbænum komist klakklaust heim til sín.
Nú er fundin lausn á þessum vanda.
Næturvagnar SVR hf hefja akstur
föstudaginn 28. janúar.
Leiö 125ferfrá Kalkofnsvegi kl. 2:00 og 3:00
í Bústaða- og Breiðholtshverfi.
Leið 130ekurfrá Hverfisgötu við Stjórnar-
ráðshúsið kl. 2:00 og 3:00 og fer um
Sundin, Árbæ og Grafarvog.
Næturvagnarnir aka fyrst um sinn aðeins
á föstudags- og laugardagskvöldum .
Fargjald er kr. 200 í reiðufé. Farmiðar og
græn kort gilda ekki.
Gó&a heimferö - með strætói
SVR hf
LÆKJARTORG - BUSTAÐIR - SEL - FELL
LÆKJARTORG - SUND - ÁRBÆR - GRAFARVOGUR
BACKMAN